Helgarpósturinn - 09.01.1995, Blaðsíða 2
2
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
,
Pétur Gunnlaugsson lögfræð-
ingur og formaður Fjölskyldu-
verndar, félags forsjárlausra for-
eldra, fullyrðir að lögreglan hafi
beitt umfangsmiklum símhlerun-
um á meðan leitin að börnum Að-
alsteins Jónssonar og Sigrúnar
Gísladóttur stóð yfír. Lögreglan
fór inn á um 20 heimili í leit sinni
að börnunum án húsleitarheimilda
og telur að slíkra heimilda hafi ekki
verið þörf þar sem húsráðendur
hafi undantekningarlaust sýnt lög-
regluyfirvöldum samstarfsvilja.
Jónas Hallsson, aðstoðaryfirlög-
regluþjónn, sem stjórnaði leit lög-
reglunnar, vísar fullyrðingum Pét-
urs um símhleranir alfarið á bug og
segir þeim ekki hafa verið beitt við
leitina að börnunum. Pétur bendir
hins vegar á að eftir að Aðalsteinn
hringdi frá skrifstofu Fjölskyldu-
verndar í kunningja sinn og fór að
loknu símtalinu rakleiðis til hans,
hafi lögreglan beðið eftir honum
fyrir utan heimili hans. Segir Pétur
að einungis með því að hlera síma
Fjölskylduverndar hafi lögreglan
getað orðið sér úti um upplýsingar
um væntanlegar ferðir Aðalsteins.
Til að staðfesta grun sinn um sím-
hleranirnar kom Pétur á framfæri
röngum upplýsingum um dvalar-
stað barnanna í símtölum við með-
limi Fjölskylduverndar sem voru
málinu óviðkomandi. „Ég lét þær
upplýsingar koma fram í símtölun-
um að börnin væru í ákveðnum
húsum þótt ég hefði ekki hugmynd
urn hvar þau væru og það var eins
og við manninn mælt að löggan
mætti á annan staðinn og hinn var
Sigrun Gísladóttir kem-
ur með yngra barn sitt á
Landspítalann aðfaranótt
síðastliðins fimmtudags.
Lögregluyfirvöld hafa leg-
ið undir þungum ásökun-
um um að hafa beitt
óspart símhlerunum þeg-
ar Sigrúnar og barnanna
tveggja var leitað.
■■I
MÁNUDAGUR 9. JANÚAR 1995
Yrðir þú ekki
brjálaður ef löggan
myndi hlera símann
Pétur Gunnlaugsson lögfræðingur segir lögregluna hafa beitt símhlerunum í leitinni að
börnum Aðalsteins Jónssonar og Sigrúnar Gísladóttur. Hann lagði gildru sem hann segir
lögregluna hafa fallið í og þannig staðfest grun sinn um meintar símhleranir hennar
Ólafur Ragnar Grímsson
um að flýta kosningum
Lítt hugsað hjá
Jóni Baldvini
Breytirí raun engu.
„Eins og margt annað hjá Jóni
Baldvini finnst mér þetta iítt
hugsað,“ segir Ólafur Ragnar
Grímsson um þá skoðun Jóns
Baldvins Hannibalssonar að flýta
beri kosningum ef stöðugleika í
efnahagsmálum verði stefnt í
voða í komandi kjaradeilum.
Friðrik Sophusson hefur tekið
undir það sjónarmið og Jón Baid-
vin segist hafa rætt það við Davíð.
„Verkfall kennara, ef til kemur,
á að hefjast 17. febrúar," segir ÓI-
afur Ragnar. „Það liggur þess
vegna ekki ljóst fyrir fyrr en í
fyrsta lagi 17. febrúar hvort til
verkfalls kemur. það hefur nú
venjulega verið talað um að frá
boðun kosninga til kjördags eigi
að líða 4-6 vikur. Séu vikurnar sex
er það nokkurn veginn sami tími
og verði kosningar 8. apríl. Þannig
að ég sé ekki að það sé nokkurt
efnisinnihald í þessu hjá honum. í
fyrsta lagi veit engin úrslitin úr
þessari atkvæðagreiðslu hjá kenn-
urum fyrr en í lok þessa mánaðar.
I öðru lagi Iiggur ekkert fyrir
hvort samningar takast fyrr en um
Olafur Ragnar Grfmsson „Eigi
þá að taka ákvörðun um að
boða til kosninga, í Ijósi þess að
ekki hafi náðst samningar, þá
yrði það í hæsta lagi viku fyrr en
á að vera ella.“
miðjan febrúar. Eigi þá að taka
ákvörðun unt að boða til kosn-
inga, í ljósi þess að ekki hafi náðst
samningar, þá yrði það í hæsta
lagi viku fyrr en á að vera eila. Mér
finnst ansi lítið efnishald í þessu
þegar umbúðirnar hafa verið
teknar af,“ segir Ólafúr Ragnar
Grímsson. -pj
í fyrsta lagi
kom hann Guð-
mundi Áma, hinum
ástsæla bæjarstjóra,
frá völdum. Það er
ekki hægt að ætlast
til þess að Maggi
vinni viðlíka afrek
aftur á pólitískum ferli sínum og því
er ekki að neinu að keppa fyrir
hann.
í öðru lagi
getur hann varla
pantað fleiri skýrslur
frá endurskoðend-
um í Reykjavík sem
skilja ekki gildi vin-
argreiðans í stjórn-
málum, eins og
Guðmundur Árni hefur margoft bent
á. Þær eru allar komnar.
í þriðja lagi
er það óskemmtilegt
að vera bæjarstjóri
Sjálfstæðisflokksins,
verandi kommi, og
þurfa að standa og
sitja eins og and-
stæðingarnir vilja.
í fjórða lagi
er komið í Ijós að
hann á ekki roð í
Mathiesenana sem
ráða því sem þeir
vilja í bænum. Þeir
vildu Jóhann G. burt
úr bæjarstjórninni til
að rýma fyrir ættleranum, Þorgils
Óttari, sem gat ekki hunskast til að
halda sæti sínu í síðustu kosning-
um. Og þá kom ættfaðirinn til skjal-
anna og flæmdi Jóa burt til að
bjarga því.
í fimmta lagi
eru flestir sammála
um að Maggi sé
feykilega góður
kennari, jafnvel betri
sem slíkur en bæjar-
stjóri. Það er ekki
hægt að láta krakk-
ana í Flensborg blæða öllu lengur.
Nei, ég yrði rosalega
feginn því þeiryrðu þá
að opna hann fyrst.
Pétur Gunnlaugsson
lögfræðingur sagði í síma Fjöl-
skylduverndar að börnin væru
falin að Hjallavegi 5 og í kjölfar
símtalsins barst ieit lögreglunnar
þangað þrátt fyrir að húsráðend-
ur væru ekki á landinu og höfðu
ekkert með málið að gera.
vaktaður,“ segir hann.
Annað húsið sem hér um ræðir
er að Hjallavegi 5 þar sem Haf-
steinn Gunnarsson, samstarfs-
maður Péturs, býr en hann hefur
dvalist erlendis undanfarnar vikur.
Efri hæð hússins er í útleigu og
staðfesti leigjandi íbúðarinnar að
lögreglan hafi kvatt dyra hjá sér og
spurt hvort hún hafi orðið vör við
ferðir barnanna á neðri hæðinni.
MORGUNPÓSTURINN leitaði upp-
lýsinga varðandi þessi tvö tifelli
meintra símhlerana til Jónasar
Hallsonar aðstoðaryfirlögreglu-
þjóns. „Við fórum víða og á marga
staði og eflaust höfum við komið á
óhentugum tíma á einhverja þeirra,
eins og í því tilfelli er Aðalsteinn fór
til kunningja síns,“ segir hann.
„Við vorum að leita að börnunum
og það hefur bara staðið þannig á.
Pétur á að vita betur, ef hann er
eitthvað inni í lögum, en þá voru
ekki lagalegar forsendur fyrir hler-
un í þessu rnáli. Þannig að það er
barnaskapur að segja þessa hluti.“
Jónas hefur einnig skýringar á reið-
um höndum fyrir komu lögregl-
unnar að Hjallavegi 5. „Það kemur
þannig til að stúlkurnar hjá Barna-
verndarnefnd höíðu áhuga á þeim
stað vegna fyrri afskipta húsráð-
enda af barnaverndarmálum," segir
hann.
Pétur telur einnig notkun lög-
reglunnar á sjónaukum við leitina
ámælisverðar en að hans sögn sá
hún eldra barnið í kíki og tókst af
þeim sökum að hafa hendur í hári
þess.
„Ég veit ekki hvort það sé ólög-
legt en þetta eru náttúrlega glugga-
gægjar og mér finnst það tvíeggjað
þegar verið er að fylgjast með
einkalífi fólks innan veggja heimil-
isins,“ segir hann.
Á þriðjudag mun Fjölskyldu-
vernd halda fund um stöðuna í
barnaverndarmálunum í safnaðar-
heimili Langholtskirkju og munu
Aðalsteinn og Sigrún koma fram á
fundinum. -lae
Afdráttarlaus úrslit í Kjörkassanum
Aðalsteinn Jónsson „í sumum til-
fellum eiga forsjársviptingar rétt
á sér en þegar maður er að reyna
að vera meðaljón ganga þessar
rannsóknir út í öfgar.“ ^
ar út úr kerfinu.“
Aðalsteinn segir barnaverndaryf-
irvöld hafi „virst mannlegri" á síð- |
asta fundi þeirra og foreldranna.
Tímabundin forsjársvipting barna-
verndarnefndar stendur að öllu
óbreyttu til 17. janúar en í dag verð-
ur haldinn annar fundur þar sem
væntanlega kemurí ljós hver fram- )
tíð barnanna og foreldranna verð-
ur. " -LAE
í gildruna
fullyrðir Pétur Gunnlaugsson, formaður Fjölskylduvemdar.
Meira en 90 prósent töldu
forsjársviptinguna ranga
„Ég er ánægður og glaðurM segir Aðalsteinn Jónsson, faðir bamanna.
Rúm 90 prósent þeirra sem
hringdu í Kjörkassa MORGUN-
PÓSTSINS undanfarna daga töldu
ekki rétt að svipta Aðalstein Jóns-
son og Sigrúnu Gísladóttur for-
ræði barna sinna eins og fram kem-
ur á baksíðu blaðsins í dag. I
MORGUNPÓSTINUM síðasta
fimmtudag var spurt: Var rétt að
svipta Aðalstein og Sigrúnu forræði
barna sinna?
Aðalsteini voru kunngerð úrslit-
in í gærkvöldi og brást hann við
þeim fagnandi. „Þessi úrslit sýna að
fólk er ósátt við kerfið eins og það
er, og það er mjög skiljanlegt,“ seg-
ir hann. „Það er ekkert sem mælir
gegn því að barnaverndarþáttur sé
til staðar en þeir eiga ekki að beita
sér í að brjóta niður fjölskyldur
heldur byggja þær upp. Að mínu
mati nota barnaverndaryfirvöld
rangar aðferðir til að nálgast fólk.
Það er boðað á fundi og þar situr
fólk í lás í stað þess að hafa prest og
lögmann viðstadda strax frá upp-
hafi.“
Hin afdráttarlausu úrslit í Kjör-
kassanum komu Aðalsteini ekki
mjög á óvart. „Ég er ekki beint hissa
á þessum úrslitum en ég er mjög
ánægður og glaður yfir að sjá hvað
almenningur tekur vel eftir. Ég
kom mínum skilaboðum heiðar-
lega frá mér og er ekki að fela neitt
enda hef ég enga ástæðu til þess. I
sumum tilfellum eiga forsjársvipt-
ingar rétt á sér, eins og þegar um
misnotkun vímuefna eða kynferð-
islegt ofbeldi er að ræða, en þegar
maður er að reyna að vera meðal-
jón ganga þessar rannsóknir út í
öfgar. Við erum búin að vera í
rannsóknum í eitt og hálft ár og
spurningin er hvenær maður losn-
b-