Helgarpósturinn - 09.01.1995, Side 28
28
MORGUNPÓSTURINN SPORT
ðöfai i í A
MÁNUDAGUR 9. JANÚAR 1995
Enska bikarkeppnin
LHkiHðm
fíest úr leik
NBA-boltinn
Leikir aðfaranótt i
laugardags
Atlanta - Washington 112:90
Portland - Boston 95:92
New York - Cleveland 103:93
Charlotte - New Jersey 89:88
Orlando - Minnesota 121:99
Seattle - Chicago 108:101
Dalias - Indiana 103:92
LA Lakers - Milwaukee 106:98
Leikir aðfaranótt
sunnudags
Atlanta - New Jersey 102:85
Charlotte - Boston 106:98
Cleveland - Chicago 92:78
Portland - Washington 114:105
Indiana - Houston 88:83
Phoenix - Denver 109:100
Utah - Philadelphia 111:90
San Antonio - LA Clippers 103:88
Sacramento - Miami 96:95
Staðan
Austurdeild
Orlando 25 6 .806
New York 17 12 .586
Boston 12 19 .387
New Jersey 13 22 .371
Miami 10 20 .333
Philadelphia 10 21 .323
Washington 7 23 .233
Miðdeild
Cleveland 21 10 .677
Indiana 19 11 .633
Charlotte 19 12 .613
Chicago 16 15 .516
Atlanta 14 19 .424
Milwaukee 10 20 .333
Detroit 9 19 .321
Vesturdeild
Utah 21 10 .677
Houston 20 10 .677
San Antonio 18 10 .643
Denver 15 15 .500
Dallas 14 14 .500
Minnesota 6 23 .207
Kyrrahafsdeild
Phoenix 24 7 .774
Seattle 21 9 .700
LA Lakers 19 9 .679
Sacramento 17 13 .567
Portland 16 14 .533
Golden State 10 19 .345
LA Clippers 5 26 .161
Enski boltinn
Endurteknir leikir
Þeir leikir sem þarf að leika aftur I
ensku bikarkeppninni fara fram dag-
ana 16., 17. og 18. janúar næstkom-
andi. Þá leika:
16. jan: Tranmere - Bury
17. jan: Watford - Scarboro
Carlisle - Sunderland
Leeds - Wallsall
Middlesboro - Swansea
18. jan: Liverpool - Birmingham
Stoke - Bristol City
WBA - Coventry
Bristol Rovers - Luton
Arsenal - Millwall
Þrátt íyrir að enska bikarkeppnin
sé þekkt fyrir óvænt úrslit og glæsta
sigra smælingjanna er líklega al-
gengara að úrslitin fari eftir bók-
inni. Þannig er ekki líklegt að fræð-
ingar framtíðarinnar muni leita til
ársins 1995 til að finna dæmi um
sigur Davíðs á Golíat, flest önnur ár
væru betur til þess fallin.
Þriðja umferð bikarkeppninnar
var leikin um helgina og voru flest
úrslit eftir bókinni. Nokkur lið
lentu þó í vandræðum en fæst það
miklum að ekki sé hægt að bæta
fyrir þau í aukaleik sem leikinn er ef
um jafntefli er að ræða í fyrsta
leiknum. Þó er ljóst að allavega eitt
úrvalsdeildarlið er úr leik, botnlið
Ipswich tapaði fyrir 2. deildar liði
Wrexham og er úr leik.
Ljóst er að lið Wrexham, Mill-
wall, Bury, Aston Villa, Notting-
ham Forest, Crystal Palace, Port-
smouth, Leicester, Norwich, West
Ham, QPR, Southampton, Totten-
ham, Sheffield Wednesday, Wol-
verhampton, Oldham, Swindon,
Burnley og Bristol City eru komin í
fjórðu umferð en þekkt lið eins og
Liverþool, Arsenal, Blackburn,
Newcastle, Everton, Manchester
City og Leeds þurfa að há aukaleiki
til að fá úr því skorið hvort þau
komist áfram.
f stórleik Newcastle og Black-
burn í gær varð jafntefli. Chris
Sutton kom Blackburn yfir
snemma leiks en glæsilegt mark frá
Robert Lee jafnaði metin fyrir
Newcastle.
Manchester United leikur við
Sheffield United í kvöld. ■
Chilemaðurinn Ivan Zamorano fór illa með varnarmenn Börsunga í leiknum á laugardagskvöld og gerði
þrjú mörk.
Enska liðið Tottenham heldur áfram glæsilegri sigurgöngu sinni og á
laugardag varð utandeildarliðið Altrincham fyrir barðinu á þeim. Hér er
Teddy Sheringham fyrirliði liðsins í hörðum slag í leiknum.
Spænska knattspyrnan
Börsungar
fíengdir af
Real Madrid
Madrid náðu þar með að hefna fyrir
samskonar tap í fyrra.
Það verður ekki annað sagt en að
risaslagurinn árlegi í spænsku
knattspyrnunni hafi verið eftir-
minnilegur. Alltaf þegar stórliðin
Real Madrid og Barcelona mætast,
hvort sem það er á Bernabeuvelli
Real eða Nou Camp þeirra Bör-
sunga, er það sögulegur viðburður í
þarlendu knattspyrnulífi og risasig-
uf Madrídinga á laugardagskvöld-
ið, 5:0, hefur vakið athygli ut um
alla Evrópu.
Leiksins hafði verið beðið með
mikilli eftirvæntingu á Spáni og var
töluvert álag á leikmönnum Barcel-
onaliðsins, ekki síst vegna frétta um
að framherjinn Romario sé'á för-
um frá félaginu í næstu viku. Vegna
þessa ákvað Johan Cryuff, þjálfari
íiðsins, að setja Brasilíumanninn á
bekkinn og velja í hans stað Rúm-
enann snjalla Gheorghe Hagi, en
sem kunnugt er má aðeins leika
með þrjá erlenda leikmenn hverju
sinni. Hinir tveir voru að vanda
Hollendingurinn Ronald Koeman
og Búlgarinn Hristo Stoichkov.
Þrátt fyrir þessar breytingar áttu
Börsungar aldrei möguleika gegn
sterkum og grimmum leikmönn-
um Madridarliðsins. Chilemaður-
inn Ivan Zamorano var illstöðvan-
legur og þegar í fyrri hálfleik var
hann búin að gera þrennu fyrir sína
menn. Þótt ótrúlegt megi virðast
var hann þó ekki einn í sérflokki í
leiknum, Daninn Michael Laudr-
up fór hreint á kostum og í flestum
viðureignum sínum við kappann
vissu varnarmenn Börsunga ekki
hvort þeir voru að koma eða fara.
Síðustu tvö mörk Real komu í
seinni hálfleik og voru þar að verki
Luis Enrique og Jose Amavisca.
Sigurinn er sérstaklega sætur fyr-
ir Real Madrid þar sem þeir töpuðu
5:0 fyrir Barcelona í fyrra á Nou
Camp og segja margir sparksér-
fræðingar að liðið eigi titilinn nú
vísan.
107,000 áhorfendur fengu aldeil-
is eitthvað fyrir peningana sína og
sáu þeir meðal annars Stoichkov
rekinn út af í seinni hálfleik fyrir að
sparka í hné eins andstæðings síns.
Stoichkov, sem var einn frammi í
leiknum og fékk ekkert til að moða
úr langtímunum saman, var orðinn
mjög pirraður og á yfir höfði sér
leikbann fyrir verknaðinn.
Zamorano, sem var tekinn af
leikvelli tíu mínútum fyrir leikslok,
var alveg búinn og sagði aðeins að
leikurinn hefði verið mikilvægur
fyrir þjóð sína og liðið.B
NHL- deildin
Ræðst á þriðjudag hvort
keppni verður endan-
lega hættá tímabilinu
Forráðamenn bandarísku ís-
hokkídeildarinnar tilkynntu í gær
að þeir hefðu sett lokafrest fram á
þriðjudag til að semja við leikmenn
deildarinnar um kaup og kjör, ann-
ars væri keppninni lokið á þessu
tímabili.
Fyrr um daginn höfðu leikmenn
sett fram eiginlegt lokatilboð sitt
sem forráðamennirnir höfnuðu
samstundis með nítján atkvæðum
gegn sjö.
„Stjórnin ákvað að aflýsa allri
keppni á þriðjudaginn ef ekki hefur
verið samið áður,“ sagði formaður
nefndarinnar við blaðamenn um
helgina.
Deildin átti upphaflega að hefjast
í október en hefur verið frestað af
og til í vetur vegna harðra launa-
deilna leikmanna og eigenda lið-
anna. Barist er um launaþök, aldur
nýliða og samningarétt leikmann-
anna sjálfra. Hefur sitt sýnst hverj-
um í málinu og lítið þokast í sam-
komulagsátt.
Formaðurinn klykkti út með því
að segja að boltinn væri hjá leik-
mönnununum sjálfum. „Ef þeir
eru tilbúnir til að aðlaga sig breytt-
um aðstæðum þá verður deilda-
keppni, annars ekki.“B
Bayern Múnchen
Tennis
Emil Kostad-
inov lánaður
frá Deportívo
Búlgarski landsliðsmaðurinn
Emil Kostadinov hefur verið lán-
aður frá spænska liðinu Deportivo
la Coruna til þýskalandsmeistara
Bayern Múnchen. Kostadinov hef-
ur átt í erfiðleikum með að komast
í lið hjá la Coruna þar sem fyrir eru
fjölmargir snjallir framherjar en
hjá Bayern er pláss fyrir hann við
hlið Frakkans Jean-Pierre Papin.
Kostadinov stóð sig mjög vel
með búlgarska liðinu á HM í sum-
ar. Hann er í eigu portúgalska
liðsins Porto en var í leigu hjá
spænska liðinu þar til á laugardag.
Þetta er nokkuð flókið og blasir
þannig við að ef Bayern vill kaupa
hann í lok tímabilsins þarf það að
semja við la Coruna og síðan
Porto. ■
Stefan Edberg
vann í Quatar
Svíinn Stefan Edberg endur-
heimti meistaratitil sinn á opna
tennismótinu í Quatar á sunnudag
þegar hann sigraði landa sinn
Magnus Larson 7-6, 4-7, 6-1 í úr-
slitaleik mótsins í gær. Sigurinn
færir Edberg rúma 600,000 dali í
sigurlaun.
Edberg var mjög öruggur allan
tímann og sagðist hafa fundið sig
vel. „Eftir fyrsta leikinn var ég viss
um að ég myndi vinna,“ sagði hann
eftir viðureignina. „Ég varð örugg-
ari með sjálfan mig og fann press-
una minnka.“
„Ég hef ekki séð Stefan leika svo
vel í langan tíma,“ sagði Larson eft-
ir á. „Hann var frábær og ég átti
ekki möguleika.“B