Helgarpósturinn - 09.01.1995, Side 27

Helgarpósturinn - 09.01.1995, Side 27
27 , , *l ll/IÁM MANUDAGUR 9. JANUAR 1995 MORGUNPOSTURINN SPORT NBA-pistill Golf Unglingamir í frumskóginum Frábærbyrjun Dallas kemurá óvart. Á undanförnum árum hefur Dallas Mavericks verið persónu- gervingur lélegs árangurs í banda- rískum íþróttum. Þetta lið var kryddið í öllum bragðmiklum sam- ræðum og Dallas brandararnir fóru eins og eldur í sinu um allan heim. Hvar er best að halda sig á æfingum bjá Dallas? Beint undir körfunni. Árangurinn var svo hroðalegur að spekingar spáðu því að Dallas hreinlega félli niður í CBA-deildina (sem auðvitað getur ekki gerst). Liðið vann einungis 24 leiki af 164, leiktímabilin 1992- ‘94. Liðið komst síðast í úrslitakeppnina 1990 og var þar áður talið eitt efnilegasta lið deildarinnar. Margir bjuggust t.a.m. við því að Dallas næði að velta Los Ángeles Lakers úr sessi fyrir tímabilið i988-’89 sem besta lið deildarinnar. Þá klæddust ma- verískum treyjum leikmenn á borð við Rolando Blackman, Derek Harper og Mark Aguirre. Síðan fór allt að ganga á afturfótunum. Liðið skipti frá sér Aguirre og fékk þunglynt og síkveinandi gamal- menni (Adrian Dantley) í staðinn. Þá voru meiðsli mikið vandamál og eiturlyíjaneysla Roy Tarpley var liðinu þungbær. Stjórn liðsins átti sinn þátt í óheillaþróuninni. Skipt var á ómissandi leikmönnum og lítið sem ekkert fengið i staðinn. Al- ex English og Fat Lever voru fengnir ífá Denver en segja má að þeir hafi átt sín bestu ár að baki sér. En þegar neyðin er stærst þá er hjálpin næst. Þegar allir héldu að Donald Carter, eigandi liðsins, og Norm Sonju, framkvæmdastjóri, væru endanlega búnir að missa vitið og að liðið stefndi óðfluga í gjaldþrot, þá kom að því að liðið fékk upp- reisn æru. Vegna lélegs árangurs áskotnaðist Dallas valréttur snemma í háskólavali undanfar- inna ára. Liðið hefúr notað þessa valrétti til að velja til sín efnilega leikmenn en ekki dottið í þá gryfju að skipta þeim fyrir reynda leik- menn. Árið 1992 valdi Dallas Jimmy Jackson fjórðan, 1993 fékk það Jamal Mashburn með fjórða valrétti og síðasta vor krækti liðið sér í Jason Kidd. Ávextir heppn- innar eru nú loks farnir að skila sér. Kidd, sem er leikstjórnandi, er í harðri baráttu um að vera valinn nýliði ársins, og hefur sýnt stór- kostlega hæfileika til að stjórna lið- inu. Þrátt fyrir að vera yngsti leik- maður deildarinnar (fæddur 1974) er litið til hans sem leiðtoga Dallas innan vallar sem utan. Kidd er stór- kostlegur alhliðaleikmaður og minnir tölfræði hans á gömlu meistarana Oscar Robertson og Magic Johnson. Hann hefur oft náð þrennunni (þrefaldri tvennu), þ.e.a.s. verið með tveggja stafa tölu í þremur tölffæðiþáttum, í vetur. Jason Kidd er frábær leikstjórnandi en kannski ein lélegasta skytta seinni ára. Hann hefur sýnt ótrúlega hæfileika til að stjórna hraðaupphlaupum og er ein helsta ástæðan fyrir vel- gengni félaga sinna þeirra Mash- burn og Jackson sem báðir blanda sér í slaginn um stigakóngstitilinn. Kæmi það fáum á óvart að þessir þrír kæmust allir í Stjörnuleikinn í febrúar. Með þessa þrjá leikmenn og endurnærðan, hreinnefja Tarpley er enginn ástæða til annars en bjartsýni. Liðið er það næstyngsta í deildinni; meðalaldur leikmanna um 25 ár. Liðið hefur alla burði til að leiða deildina í fráköstum og nægir þar að minnast á Kidd, einn besta frákastara af bakvörðum, Tarpley og „Popey“ Jones. Liðið spilar hraðan og skemmtilegan hraðupphlaupskörfubolta sem hef- ur verið á undanhaldi í deildinni síðustu ár en gæti nú verið að ryðja sér rúms á ný. Hinum 63 ára þjálf- ari liðsins, Dick Motta, tekst mjög vel upp í samskiptum við þessa ungu stráka og er sannkölluð hátíð í samanburði við Quinn Buckner sem þjálfaði liðið í fyrra. Motta var fyrsti þjálfari liðsins þegar það kom í deildina 1980. Hann er ekki ókunnugur sigurliðum því hann stjórnaði meistaraliði Washington 1978. Þá reyndi svo sannarlega á samskiptatækni Motta því stjörnur liðsins, Elvin Hayes og Wes Un- seld, hötuðust innilega og rifust eins og hundur og köttur. Þess er ef til vill ekki langt að bíða að Motta verði aftur meistari en hann verður að hafa hraðar hendur því hann á aðeins fjögur ár í fyrstu ellilífeyris- greiðsluna. -eþa-ÞK Marigr telja að Jimmy Jackson muni feta í fótspor Michael Jordan og leiða deildina í stigaskorun. Jordan og George Gervin eru einu skot- bakverðir í sögu deildarinnar til að vinna stigatitilinn. vann heima Það var heimamaðurinn Ernie Els sem bar sigur úr býtum í Bells- mótinu í Suður-Afríku í gærdag. Hann sýndi þar enn og sannaði hversu efnilegur hann er og sumir segja að hann eigi eftir að einoka helstu titlana í íþróttinni á kom- andi árum. Els fór brautina á þrem- ur undir pari síðasta hringinn. Jafnir í öðru og þriðja sæti urðu síðan Bandaríkjamennirnir Pat Horgan og Jim Johnson.B Skautahlaup RHsmaog Niemann Evrópu- meistarar Hollendingurinn Rintje Ritsma og Þjóðverjinn Gunda Niemann endurheimtu í gær Evrópumeist- aratitla sína í skautahlaupi á móti sem fram fór í hollensku borginni Heerenveen.B Spænska knattspyrnan Deportivo náði aðeins jöfhu Eins og fram kemur annars stað- ar hér í blaðinu burstaði Real Madrid Barcelona með fimm mörkum gegn engu í spænsku 1. Donato, fyrirliði Deportivo. deildinni á laugardaginn. Aðrir leikir deildarinnar fóru fram á iða- grænum Spánarvöllum í gærdag og bar helst til tíðinda að spútniklið Deportivo la Coruna náði aðeins markalausu jafntefli gegn Betis. Jafnteflið gerir það að verkum að Deportivo er enn í þriðja sæti á eft- ir Real-liðunum Madrid og Zar- agoza. Úrslit annarra leikja voru þessi: Celta - Sevllla 0:0 Logrones - Valladolid 0:0 Albacete - Oviedo 1:0 Atl. Bilbao - Sociedad 0:0 Sporting Gijon - Tenerife 1:1 Racing San - Valencia 3:2 Espanol - A. Madrid 2:0 Alex Ferguson, ávallt bjartsýnn Jæja/þá höfum víð enn klikkað íi---*nú verðum við að tryggja fa"n/l Evrópukeppninni... meistaratitilinn í úrvalsdeildinni... okkur 1 Meistarakeppninm 1 Evr- ópu á næsta ári! 'ZooAÍ ... Unrted og Meistarakeppnin Mikið hefur verið hlegið að döpru gengi Manchester United í Evrópukeppninni að undanförnu. Reyndar hefur þessi hlátur verið bundinn við öll lönd önnur en England, en Evrópubúum finnst lítið um enskt meistaralið koma sem getur ekki staðið sig gegn sam- bærilegum liðum álfunnar. I Eng- landi hafa menn reyndar sínar skýringar á þessu en sumir sjá þó spaugilegu hliðina á málunum... Nýárssundmót fatíaðm Hið árlega nýárssundmót fatl- Keppt var í fjórum sundgreinum í Einbeitingin og áhuginn leyndi aðra barna og unglinga fór fram í fimm mismunandi flokkum fötl- sér ekki eins og myndin sýnir Sundhöll Reykjavíkur í gærdag. unar og var fjölmennt á staðnum. skýrt.B

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.