Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 09.01.1995, Qupperneq 11

Helgarpósturinn - 09.01.1995, Qupperneq 11
MÁNUDAGUR 9. JANÚAR 1995 MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR 11 Eins og fram kom í síðasta tölublaði MORGUNPÓSTSINS á að fara að stofna samtök fórnarlamba læknamistaka. Eitt af umkvörtunarefn- um þeirra er seinagangur og hlutdrægni Landlæknisembættisins Hvergi í heiminum jafn auðvett að kvarta segir Matthías Halldórsson aðstoðarlandlæknir. „Ég held að það sé hvergi í heim- inum eins auðvelt að koma kvört- unum á framfæri eins og hér á landi,“ sagði Matthías Halldórs- son aðstoðarlandlæknir í samtali við MORGUNPÓSTINN í gær. „Ef fólk vill kvarta yfir einhverju í heil- brigðisþjónustunni þá bjóðast því ýmsir möguleikar. Það er í íyrsta lagi hægt að kvarta við viðkomandi stofnun eða yfirlækni hennar eða hjúkrunarforstjóra, eftir því um hvað er að ræða. Síðan er hægt að kvarta til héraðslæknis í viðkom- andi héraði, en þeir eru átta talsins á landinu. Einnig er sérstök nefnd starfandi um ágreiningsmál sem rísa vegna samskipta almennings og aðila innan heilbrigðisþjónust- unnar. í henni eru tveir læknar og einn lögfræðingur, sem jafnframt er formaður hennar. Hún á að láta í té álitsgerð samkvæmt skriflegum tilmælum dómstóla og málsaðila hverju sinni. í þessari nefnd má enginn vera starfsmaður heilbrigð- isþjónustunnar, ekki heldur lækn- arnir. Hún er hins vegar mjög lítið notuð, hefur fengið svona to mál til meðferðar á undanförnum tveimur eða þremur árum en mun færri þangað til.“ Að sögn Matthíasar leita flestir til Landlæknisembættis- ins með sínar kvartanir, og finnst Kvartanir og kærur til Land- læknisembættisins árið 1993 Alls bárust Landlæknisembættinu 260 kvartanir á árinu 1993. Af þeim voru 206 skoðaðar nánar. Aðilar sem kvartað var undan: Sjúkrahús: .......................................112 kvartanir Þar af: Slysadeildir:.............................................30 kvartanir Hand- og lýtalækningadeildir:.............................24 kvartanir Geðdeild og áfengisdeild:.................................16 kvartanir Kvennadeild: .....................................8 kvartanir Bæklunarlækningadeild: ...........................8 kvartanir Læknar á heilsugæslustöðvum:...............................26 kvartanir Sérfræðingar á stofu:........................................18 kvartanir Tannlæknar:.................1.......................9 kvartanir Heimilislæknar á eigin stofu: .....................5 kvartanir Læknavaktin: ......................................3 kvartanir Hjúkrunarheimili: .................................2 kvartanir SamskiptiviðTryggingastofnunogannað:...............31 kvörtun Helstu umkvörtunarefni: Röng meðferð:..............................................47 kvartanir Ófullnægjandi meðferð:.......................................68 kvartanir Ófullnægjandi eftirlit: ...........................10 kvartanir Samskiptaörðugleikar:........................................30 kvartanir Ófullnægjandi aðgengi að þjónustu: ................16 kvartanir Tafir á afgreiðslu læknisvottorða:...........................16 kvartanir Meint trúnaðarþrot: ..........._............ .....10 kvartanir Niðurstöður rannsókna Landlæknisembættisins: Kvörtun staðfest:.........................................53 tilfelli Kvörtun staðfest að hluta:................................18 tilfelli Kvörtun ekki staðfest (vísað frá):........................75 tilfelli Ekki hægt að fá óyggjandi niðurstöðu:.....................36 tilfelli Ekki unnið frekar í málinu:...............................12 tilfelli Ólokið (í nóvember ‘94):.............................22 mál. Aðgerðir Landlæknisembættisins: Engin:...........................................106 tilfelli Ábending: ............................................59 tilfelli Aðfinnsla:.................................................13 tilfelti Lögformleg áminning: ..................................3 tilfelli Tillaga um leyfissviptingu: ............................Engin Keflavík Matthías Halldórsson segir fólk hafa fjölda möguleika vilji það koma kvörtun á framfæri vegna mistaka í heilbrigðiskerfinu. Þó telur hann eðlilegast að leitað sé til Landlæknisembættísins. honum það eðlilegt. „Sumum finnst eðlilegra að leita til nefndar- innar, en hvort sem hún er of illa kynnt eða af því fólki finnst að- gengilegra að koma hingað, þá leita nú flestir til okkar. Það finnst mér enda vænlegra til árangurs. Land- lækni ber einnig skylda til þess samkvæmt lögum að taka við kvörtunum og kærum almenn- ings.“ Árið 1993 bárust Landlæknis- embættinu um það bil 260 kærur og kvartanir. Leitað er álits sérfræð- inga í flestum alvarlegum tilfellum, og stundum er leitað álits lækna- ráðs, sem er ráðgefandi aðili fyrir embættið. „Ég fór yfir þessi mál og tók út þær kvartanir sem voru hálfgerð vitleysa ef það má orða það þannig, algjörlega órökstuddar kvartanir. Eftir stóðu 206 kvartanir, mismun- andi alvarlegs eðlis. Við reynum að afgreiða þessi mál eins hratt og vjð getum en þó getur komið fyrir að þau dragist í meira en eitt og jafnvel meira en tvö ár.“ En hvað er gert þegar niðurstaða um mistök læknis liggur fyrir? „Fyrir minniháttar mistök eða brot í starfi er viðkomandi aðila gefin ábending um það sem betur mætti fara. Næsta stig er að land- læknir finnur að störfum viðkom- andi læknis, annað hvort skriflega eða munnlega. Samkvæmt lögum má síðan veita læknum lögform- lega áminningu ef um alvarlegt brot er að ræða og er ráðherra þá sent afrit af áminningunni. Þetta gerist sem betur fer ekki oft. Ef slík áminning kemur ekki að haldi eða ef brot er mjög alvarlegt þá er lögð fram tillaga um sviptingu á lækn- ingaleyfi, sem ráðherra verður að framfylgja, það er ekki í verkahring embættisins. Engar tillögur um leyfissviptingar voru gerðar árið 1993, en tvær árið 1992, og náðu báðar fram að ganga. Slíkar tillögur eru sjaldan gerðar nema fyrir liggi að áfengi eða fíkniefhi tengist mál- inu.“ Matthías aðhyllist ekki þá hug- mynd að ráða umboðsmann sjúk- linga til starfa, líkt og gert var í Danmörku fyrir skemmstu. „Slíkur umboðsmaður er fyrst og fremst hugsaður til þess að leið- beina fólki í gegnum kerfið og það hefur verið borin upp tillaga um slíkan umboðsmann hér. Við erum hins vegar svo miklu minni hér að það er spurijing hvort þörf er á slík- um umboðsmanni í heilt starf. Enda lítum við á okkur sem eins konar umboðsmenn sjúklinga líka þótt við séum læknar.“ Matthías telur ekki að hlut- drægni gæti hjá Landlæknisemb- ættinu á kostnað sjúklinga. „Það kemur ósjaldan fyrir að læknar eru reiðir við okkur, rétt eins og sumir sjúklingar, þannig að þetta er nú á báða bóga. Ég held að það sé yfir- leitt reynt að ná sanngjarnri og góðri lausn á þessum málum, enda er það það eina sem skiptir máli fyrir þetta embætti." -æöj Akureyri Maður réðst inn á heimili eldri konu og réðst á nágrannakonu hennar Laust fyrir klukkan eitt aðfara- nótt sunnudagsins réðst 28 ára gamall maður inn á heimili konu á sjötugsaldri í Keflavík. Konan var ein heima þegar maðurinn kvaddi dyra en hún kannaðist ekkert við hann og vildi ekki opna fyrir hon- um. Skipti þá engum togum að maðurinn braut spjald í útidyra- hurðinni og þröngvaði sér til inn- göngu. Konan náði að hringja í vin- konu sína í næsta húsi, sem er á svipuðum aldri, og tókst síðan að forða sér út úr húsinu við illan leik. Maðurinn fór á eftir henni en ná- grannakonan hitti hann fyrir í inn- keyrslunni. Maðurinn réðst þá á hana og tók hana kverkataki og skellti henni á gangstéttina. Karl- maður í nærliggjandi húsi varð var við átökin og kom konunum til hjálpar og í þann mund renndi lög- reglan að húsinu. Hafði hún hendur í hári árásarmannsins og var hann fluttur í fangageymslur. Honum var sleppt að loknum yfirheyrslum í gær en gat ekki gefið neinar skýr- ingar á framferði sínu. Konurnar Ekiðáhross og ijósastaur Mikil hálka var á vegum norðan- lands um helgina og töluvert af umferðaróhöppum. Fernt var flutt á sjúkrahús eftir bílveltu í Garðsvík á Svalbarðsströnd, gegnt Akureyri, á föstudagskvöld og er bíllinn tal- inn gjörónýtur. Hvasst var í veðri og skyggni lélegt. Um þrernur stundarfjórðungum síðar sama kvöld ók bíll á ljósastaur við Glerár- götu á Akureyri og valt og endaði á toppnum. Einn maður var í bílnum og slapp hann við alvarleg meiðsli. Þá var ekið á hross við bæinn Mógil á Svalbarðsströnd aðfaranótt laug- ardagsins. Hesturinn er talinn hafa drepist samstundis og bíllinn skemmdist töluvert. ■ Grindavík Ók á kyirstæðan bíl og twfflqálkabrotnaði Ekið var á kyrrstæða bifreið á Grindavíkurvegi undir morgun í fyrrinótt. Tveir 18 ára piltar voru í bílnum og tvíkjálkabrotnaði annar þeirra en hinn slapp frá árekstrin- um án umtalsverðra meiðsla. Báð- ir piltarnir voru taldir ölvaðir en ekki er enn að fullu ljóst hvor þeirra ók bílnum sem skemmdist verulega. ■ I návíqi Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambandsins „Það er tími til að gera hreinty “ segir formaður KÍ Kennarar rnunu ganga til at- kvæðagreiðslu um verkfall 19. og 20. janúar og eru allar líkur á því að það verði samþykkt og verkfallið hefjist þann 17. febrúar, náist ekki samningar fýrir þann tíma. Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasam- bandsins, stendur því í ströngu núna. Hverjar eru meginkröfur kenn- ara? „Það nrá skipta kröfunni í tvo flokka. Annars vegar þann sem varðar beinar launahækkanir en við förum fram á tveggja flokka hækk- un á öll starfsheiti og fjögurra flokka hækkun á tveimur fyrstu ár- um í starfi. Hver launaflokkur gef- ur þriggja prósenta hækkun og svo kemur starfsaldurshækkun til við- bótar. Hinn hluti kröfugerðarinnar tekur til þeirra breytinga sem hafa orðið á skólastarfi á síðustu árum. Þessi hlutur kröfunnar gæti orðið kostnaðarauki fyrir ríkið en hann felur ekki í sér neinar breytingar á launatöxtum." Hvernig breytingar eru þetta? „Ég get nefnt það sem dæmi að við göngum út frá því í kröfunni að það verði viðurkennt sem fullt starf að kenna og hafa umsjón með ein- um bekk. Ef við tökum yngri bekk- ina þá er þetta ekki metið í dag nema sem 2/3 úr starfi. Eftir því sem einsetnum skólum fjölgar, líkt og þróunin er í dag, þá eiga þessir kennarar minni möguleika á að bæta sér þetta upp með kennslu í öðrum bekkjum. Það er því svo að margir þeirra kennara sem hefja kennslu'í dag og fá fyrir fullt starf byrjunarlaun kennara sem eru 68.500 krónur fá innan við 50.000 í laun á mánuði. Þessi hluti kröfunn- ar snýst því um að aðlaga kjara- samninga að einsetnum skóla.“ Nú er tímasetningin mjög krí- tísk og hætta á að sett verði bráða- birgðalög á verkfallið, eða þá eins og einn stjórnmálamaður hefur bent á, að \il greina kæmi að flýta kosningum. Hvernig horfir þessi tímasetning við þér? Eruð þið að vonast til að kjör kennara verði stórt kosningamál? „Það er ríkisstjórnin sem hefúr verið að stilla þessu upp sem kosn- ingamáli. Við höfum ekki fengið umræðu um okkar sérmál og allar umræður um kaup og kjör hafa ver- ið leystar með allsherjar lækninga- meðali úti á hinum almenna vinnumarkaði. Við, það er HÍK og Kl, hófum okkar undirbúning á miðju síðasta ári og lögðum fram okkar kröfur í nóvember. Við höf- um síðan átt marga fundi með rík- isvaldinu. Reynslan kennir okkur, líkt og þegar samningar losnuðu í ársbyrjun 1993 og það var fellt, að fara út í verkfall. Þá vorum við samningslaus í tólf og hálfan mán- uð og eftir stöðugur viðræður, sem voru meira eða minna rabb, varð niðurstaðan sú að ekkert náðist fram. Verkfall er auðvitað ekki markmið og algert neyðarúrræði en það er nærri því vonlaust að draga fram lífið á þessum launum og fólk vill ekki láta bjóða sér þetta lengur.“ En hvað með bráðabirgðalög eins og ég impraði á áðan? „Ríkisstjórnin er nokkuð ráða- laus og hefur í raun og veru afhent samningsumboð sitt til Vinnuveit- endasambandsins og fjármálaráð- herra lýsti því yfir á fundi með okk- ur nú fyrir helgina að hann liti svo á að þar væru kjarasamningar í raun gerðir. Það er alvarlegt að ríkið, sem er stærsti atvinnurekandi í landinu með 25.000 starfsmenn, skuli hafa fjármálaráðherra sem „Það hefur einkennt kjaravið- rœður á undanfömum árum að samningsréttur opinberra starfsmantm hefur verið fótum troðinn. Menn trúðu því lengi vel að það vceri vilji til að gera eitthvað í þessutn málum en því miður bendir allt til þess að ríkisvaldið vilji halda niðri launutn almenns launafólks og það sé í raun liður íþví að bæta kjör þeirra sem nóg hafa fyrir.“ lýsir því yfir að hann geti ekkert að gert fyrr en hann fái skilaboð úr Garðastrætinu. Við höfum því velt möguleikanum á bráðabirgðalög- um fyrir okkur en það verður að koma í ljós.“ Bítur verkfallsvopnið, Eiríkur? Er ekki hætta á löngu verkfalli sem skilar litlu í vasa kennara? „Það hefur einkennt kjaravið- ræður á undanförnum árum að samningsréttur opinberra starfs- manna hefur verið fótum troðinn. Menn trúðu því lengi vel að það væri vilji til að gera eitthvað í þess- um málum en því miður bendir allt til þess að ríkisvaldið vilji halda niðri launum almenns launafólks og það sé í raun liður í því að bæta kjör þeirra sem nóg hafa fyrir.“ En jafnvel þó að kröfurnar nái fram að ganga, jafna þá ekki af- leiðingarnar allan ávinning við jörðu? „Það er háð vilja manna til að varðveita það sem fæst út úr samn- ingum. En um leið og á að hreyfa við kjarasamningum hjá þeim sem hafa lökust kjörin, en þeir eru miklu fleiri en kennarar, þá er talað um að öllu sé stefnt í voða. Það kemur þó fyrst og fremst til af því að þegar hreyft er við þeirra laun- um lítur ríkisstjórnin á það sem skyldu sína að færa fjármagnseig- endum bætur á silfurfati, en þeir eru ekki tilbúnir að rjúfa tengslin milli launa og lánskjaravístölu.“ Verður þetta hart verkfall? „Við lítum svo á að það sé tími til þess að gera hreint. Það er í deiglunni að flytja grunnskólahald yfir á sveitarfélögin og þrátt fyrr stöðuga umræðu um að kjör kenn- ara séu óviðunandi, en mennta- málaráðherra hefur sjálfur margoft lýst því yfir, hefur ekkert verið gert til úrbóta. Það er öllum Ijóst að sveitarfélögin hafa enga þá tekju- pósta sem gerir þá að betri viðsemj- endum en ríkið. Ríkisvaldið verður að taka til hjá sér áður en það veltir byrðunum yfir á aðra.“ -ÞKÁ

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.