Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 09.01.1995, Qupperneq 30

Helgarpósturinn - 09.01.1995, Qupperneq 30
I I I Dregið í áskriftargetraun morgunpóstsins og Heimsferða Það var ánægð fjölskylda sem tók við farseðli fyrir tvo til Kanaríeyja úr hendi Andra Más Ingólfssonar, framkvæmdastjóra Heimsferða og Sveinbjörns Kristjánssonar, dreif- ingarstjóra MORGUNPÓSTSINS. Frá vinstri: Andrea í fangi föður síns, Benedikts Ólafssonar, Ásdís Kristjánsdóttir, Andri Már Ingólfsson, framkvæmdastjóri Heimsferða, og Sveinbjörn Kristjánsson dreifingarstjóri MORGUNPÓSTSINS. Hinn 20. desember síðastliðinn var dregið í áskrifendahappdrætti MORGUNPÓSTSINS og vinningur- inn síðan afhentur á þrettándan- um. Þúsundir áskrifenda söfnuðust í áskriftarherferð blaðsins í haust og þeirra á meðal voru þau Bene- dikt Ólafsson, sjómaður í Hafnar- firði, og kona hans Ásdís Krist- jánsdóttir. Þau hrepptu aðalvinn- inginn í happdrættinu, sem var ferð fyrir tvo til Kanaríeyja á vegum Heimsferða að verðmæti 140.000 króna. „Við erum að spá í að fara um miðjan mars,“ sagði Benedikt í samtali við blaðið, og var að vonum ánægður með vinninginn. „Þetta er mjög gott og styttir veturinn heil- mikið fyrir manni. Tilbreyting að fljúga til Kanarí í staðinn fyrir að sigla til Þýskalands. Við tökum auðvitað dóttur okkar, hana Andr- eu, með og þetta verður ein alls- herjar afslöppunarferð fyrir alla fjölskylduna." Að sögn Benedikts var það ekki á áætlun hjá fjölskyld- unni að fara í utanlandsferð á ár- inu. „Hins vegar ætluðum við til Kanaríeyja í fyrra en urðum að hætta við af fjárhagsástæðum. Þannig að þetta er kærkomin upp- bót fyrir þessa ferð sem aldrei var farin.“ „Ég hlakka mikið til ferðarinnar og líst bara í alla staði vel á þetta ferðalag, sérstaklega í þessu veðri sem er hérna núna,“ sagði Ásdís. „Mér er strax farið að hlýna við til- hugsunina eina.“ Hún er þó ekki á því að hún sé farin að verða brún ennþá, þó ekki megi miklu muna. Fjölskyldan mun dvelja í þrjár vik- ur í sólinni á Kanaríeyjum. Ánægð með MORGUNPÓSTINN „Mér líst alveg ágætlega á Morg- unpóstinn,“ segir Ásdís. „Ég les það alltaf um leið og ég kem heim úr vinnunni. Mér fínnst ákaflega þægilegt að vera áskrifandi að blaði sem kemur ekki nema tvisvar í viku. Hin blöðin vildu hrannast upp hjá okkur nánast ólesin nema rétt um helgar. Það sem mér líkar einna best við þetta blað er að það fylgir fréttunum eftir, sem mér finnst vanta í flesta aðra fjölmiðla. Það er kannski sagt frá einhverju forvitnilegu í sjónvarpinu eitthvert kvöldið, og maður vill gjarnan fá að vita eitthvað meira um málið, en það kemur bara ekki. Þessu er betur farið á Morgunpóstinum og mér líkar það vel.“ „Ég tek þetta alltaf með mér út á sjó og les það þar. Mér hefur litist ágætlega á blaðið hingað til og fannst gott að fá smáauglýsingarnar inn. Við höfum einu sinni auglýst og það gaf góðan árangur. En fyrir mig er mikilvægast að hafa nóg les- efni og það vantar ekkert upp á það í Morgunpóstinum,“ sagði Bene- dikt að lokum. ■

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.