Helgarpósturinn - 16.01.1995, Síða 28
28
MORGUNPÓSTURINN SPORT
MÁNUDAGUR 16. JANÚAR 1995
Tennis
maður
4yrir rétt
Þjóðverjinn Gunther Parche,
sem helst er þekktur fyrir að hafa
stungið tennisdrottninguna Mon-
icu Seles í bakið fyrir tveimur ár-
um, kemur fyrir rétt í Þýskalandi
þann 31. mars næstkomandi.
Ríkissaksóknarinn þar í landi
áfrýjaði fyrir skömmu tveggja ára
fangelsisvist, sem undirréttur
dæmdi Parche í fyrir nokkrum
mánuðum, og segir hann eiga mun
þyngri refsingu skylda.
Monica Seles, sem var skærasta
tennisstjarna heims þegar atburð-
urinn átti sér stað í apríl 1993, hefur
ekki leikið tennis síðan. Hún fékk
taugááfall og hefur enn ekki náð sér
auk þess sem kröfur frá ýmsum fýr-
irtækjum hafa ekki bætt úr skák.
Þannig hefur fataframleiðandinn
Fila ákveðið að höfða skaðabóta-
mál á hendur henni að upphæð 400
milljónir króna vegna þess að
samningar við hana hafa ekki verið
uppfylltir.
Gunther Parche er ósköp venju-
legur fjölskyldufaðir, sem hefur
einkar mikinn áhuga á tennis-
íþróttinni. Hans stóra ást í lífinu
hefur ætíð verið þýska tennisstjarn-
an Steffi Graf og eina skýringin,
sem fengist hefur á verknaðinum,
er sú að það hafi farið í taugarnar á
-^Parche hve vel Seles gekk á kostnað
Graf.B
Frjálsar íþróttir
Breuer
keppir
aftur
fveggja ára alþjóðlegt keppnis-
bann yfir þýsku hlaupadrottning-
-■•(ínni Grit Breuer rennur út í ágúst
á þessu ári og á dögunum tilkynnti
þessa úthrópaða stjarna að hún ætl-
aði að komast aftur í fremstu röð.
Þetta afsprengi austur-þýsku
íþróttamálahreyfingarinnar féll
ásamt nokkrum stallsystrum sínum
á lyfjaprófí eftir mót fyrir tæpum
tveimur árum og þrátt fyrir áköf
mótnæli var hún dæmd í bann af
alþjóða frjálsíþróttasambandinu.
Hún hefur nú sagt skilið við
gamla félahið sitt, SC Neubranden-
burg, og gengið til liðs við ASC
Schwerin á árs samningi.
Breuer, sem er 22 ára gömul, hef-
ur sett markið á keppni á Ólympíu-
^eikunum i Atlanta eftir ár. Hún
vann 400 metra hlaupið á Evrópu-
meistaramótinu árið 1990 en hefur
verið í banni frá 1992JH
1 ■ ■
Þrátt fyrir stórkostlegt tímabil var Kristinn Friðriksson ekki valinn í landsliðshópinn
á dögunum
1 kuldanum
Það hefur vakið furðu margra
sem fylgjast með körfuboltanum
hér á landi að landsliðsþjálfarinn,
Torfi Magnússon, hafi ekki valið
Kristin Friðriksson, stórskyttu
Þórsara á Akureyri, í landsliðið,
sem lék þrjá æfingaleiki við Eng-
lendinga á milli jóla og nýárs. Sum-
ir segja að Kristinn, sem kom frá
Keflavík fyrir leiktímabilið, hafi
aldrei leikið eins vel óg einmitt nú í
vetur. Tvisvar hefur kappinn skor-
að yftr 40 stig í leik á tímabilinu, í
bæði skiptin gegn Skagamönnum.
„Þetta er náttúrlega landsliðið
hans Torfa,“ sagði Kristinn. „Ég
stóð mig ekki vel á síðasta sumri
þegar við spiluðum á Promotion
Cup á írlandi. Þar af leiðandi spil-
aði ég mjög lítið.“ Hann bætti því
við að enginn ætti fast sæti í lands-
liðinu sérstaklega þegar verið er að
tala um þá stöðu, sem hann spilar,
skotbakvörð. „Þarna eru Hebbi
[Herbert Arnarsson], Teitur Ör-
iygsson, Gaui Skúla [Guðjón
Skúlason] og Marel [Guðlaugs-
son].“ Kristinn segist alls ekki vera
svekktur yfir þessu enda hafi hann
ekki búist við því að vera valinn í
hópinn eftir slaka frammistöðu á
írlandi.
Hrannar Hólm, þjálfari Kristins
hjá Þór, var ekki á sömu skoðun
þegar Morgunpósturinn spurði hann
álits. „Mér finnst það ekki vera
spurning að Kristinn eigi að vera í
liðinu. Hann hefur verið að skora
um 27 stig að meðaltali í leik og átt
alveg heimsklassa leiki með okkur.“
Hrannar skilur á engan hátt hvern-
ig hægt sé að sniðganga hann og
segir að það sé löngu kominn tími
til að hann ræði við Torfa Magnús-
son landsliðsþjálfara. „Ég er hættur
að leggja skilning í þetta.“
„Ég fer ekkert í grafgötur með
það að Kristinn hefur leikið frábær-
lega í vetur. En ég verð að velja
menn út frá fyrri leikjum og auðvit-
að því sem ég sé,“ sagði Torfi lands-
liðsþjálfari. Eins og áður hefur
komið fram er þetta langsterkasta-
staða landsliðsins og sagði hann að
það hefði mikið um að segja í stöðu
Kristins. „Ég held að við höfum
aldrei átt eins marga frambærilega
skotbakverði. En annars vel ég nýj-
an hóp eftir tímabilið og Kristinn
Friðriksson er alls ekki út úr mynd-
inni hjá mér.“
eþa
Kristinn Friðriksson hefur ekki
hlotið náð fyrir landsliðsþjálfar-
anum þrátt fyrir frábæra frammi-
stöðu í vetur.
Hrannar Hólm skilur ekki hvern-
ig hægt er að sniðganga Kristin.
Frá A til Ö með Guðríði Guðjónsdóttur þjálfara Fram
Að vera eða vera ekki: Ólafur Unnsteinsson (Shakespeare)
Bíó: Hafnarbíó —
Draumar: Karabíska hafið SÍBDbl HlllTUMS.
Lndalaust: Kolla i markinu jr *
Jordan og OH
u'«“' Unnsteins...
Jójó: Upp og niður
Körfubolti: Michael Jordan
Landsleikir: Þjóðsöngurog þjóðarstolt
Matur: Þorrinn
INIirvana: Úff- Þungarokk
Olífur: Björg Guðmundsdóttir og góð ídýfa
Púst: Óhljóð
Böndótt: Zebrahestur
Stebbi Hilmars: Kvennaskólaneminn minn!
Tækni: Húkkskot á la Óli Unnsteins
Unglingar: Væl og leti
Vinna: íþróttahús íram
Þýska: Níska
Æöislegt: Að borða
Oskubuska: Ævintýri
Juventus sér eftir aurunum
Hyggjast færa heimaieikína til
Þessa skemmtilegu og frumlegu liðsmynd rákumst við á í nýútkomnu
Valsblaði. Þarna er á ferð A lið 5. fiokks Vals í handknattleik og er liðið
núverandi íslandsmeistari í greininni. Án efa eru nokkrir leikmenn í
þessum hóp verðandi landsiiðsmenn og þegar þangað er komið verð-
ur gaman að draga þessa fram...
Svo gæti farið að ítalska stórliðið
Juventus leiki ekki heimaleiki sína í
Tórínó á næsta ári.
Þetta er tilkomið vegna stöðugs
ágreinings félagsins við fyrirtækið,
sem á og rekur leikvanginn Stadio
delle Alpi, en á þeim velli hefur lið-
ið leikið alla sína heimaleiki síðan
völlurinn var lagður fyrir heims-
meistarakeppnina árið 1990.
Eins og oft áður í ítalskri knatt-
spyrnusögu snýst málið um pen-
inga. Samningurinn, sem er í gildi,
er á milli Sao Paulo fyrirtækisins,
sem á völlinn, og borgaryfirvalda í
Tórínó, sem taka við eignarhaldi
vallarins eftir nokkur ár. I samn-
ingunum felst að allar auglýsinga-
tekjur af spjöldum og ijósaskiltum
inni á vellinum fari í sjóð í vörslu
Sao Paulo.
Þetta fyrirkomulag hefur leitt til
þess að oftsinnis hefur það gerst að
afrakstur vallarins hefur orðið
meiri en tekjur af miðasölu eftir
leik í deildinni og af því eru for-
ráðamenn liðsins lítið hrifnir, sér-
staklega vegna þess að auk auglýs-
ingasölunnar fær Sao Pauio fyrir-
tækið há leigugjöld frá liðinu.
Antonio Giraudo, stjórnarfor-
maður Juventus, segir ástandið
vera algjörlega óviðunandi. „Við
verðum að leysa þetta á einhvern
hátt fyrir vorið. Það getur ekki ver-
ið sanngjarnt að vallareigendur fái
einn milljarð líra fyrir hvern leik á
meðan við fáum aðeins 300 millj-
ónir,“ sagði hann.
En þótt fjárhagslegar ástæður
liggi að baki deilunni er einnig
fleira sem kemur tjl. Frá upphafi
hefur völlurinn þótt vera of stór og
oft hefur það komið fyrir að þessi
74.000 sæta risi virkar hálftómur.
Og auðvitað skipar sagan líka sinn
sess; margir aðdáendur félagsins
horfa í fortíðarþrá til gamla vallar-
ins, Stadio Communale, sem nú er í
hálfgerðri niðurníðslu og má svo
sannarlega muna fífil sinn fegurri.
Breytist ekkert í stöðunni liggur
fýrir að þetta vinsælasta félag Italíu
verði á faraldsfæti á næstu leiktíð.
Líklegast þykir að liðið leiki deild-
arleiki sína áfram í Tórínó, bikar-
leikina í einhverri annarri borg og
fari hringferð um landið með Evr-
ópuleiki sína. Þrátt fyrir að þetta
hljómi undarlega þá er það kannski
ekki svo galið, vinsældir liðsins eru
miklar meðal Itala og ekki er ólík-
legt að áhorfendur í Palermo á Sik-
iley myndu flykkjast á leik með Ju-
ventus, jafnvel svo, að þeir yrðu
fleiri en á venjulegum deildarleik
með bæjarliðinu, Palermo.B