Helgarpósturinn - 16.01.1995, Side 32
Newcastle og Manchester United gerðu jafntefli í gær á St. James’ Park í Newcastle. Mark Hughes kom Un-
ited yfir í fyrri hálfleik en Paul Kitson jafnaði fyrir Newcastle í þeim seinni. Á myndinni sækir Kitson að vörn
United en Gary Pallister og Roy Keane eru til varnar. Sjá allt um enska boltann á bls. 30.
Rokk og ról í
Krikanum ■ Gaupi
og skandalarnir
FH-ingar brydduðu upp á þeirri
nýbreytni í heimaleik sínum gegn
GOG í Krikanum að hafa hljóm-
sveit á áhorfendabekkjunum. Var
hér um að ræða þrjá vaska sveina
sem höfðu meðférðis trommur,
bassa og gitar. Var tríóið ætlað til
að ýta undir stuðning áhorfenda,
meðal annars með því að spila stef
þegar mark var skorað og stjórna
hvatningarópum áhorfenda. Virt-
ist sem þessi nýbreytni mældist al-
mennt vel fyrir meðal áhorfenda,
enda eru flestir orðnir leiðir á
þessum hefðbundnu þokulúðrum
sem gera ekkert annað en að eyði-
leggja hljóðhimnur nærstaddra.
Hins vegar mættu þeir samkeppni
þar sem þulurinn var því miklu
meira heyrðist í honum. Átti hann
til að þenja barkann all hressilega
í hljóðnemann akkúrat þegar
hljómsveitin var að spila þannig
að lítið heyrðist í henni. Spurning
hvort ekki mætti sameina hlut-
verkin og leyfa grey hljómsveitarf-
ýrunum að sjá um allt heila klabb-
ið...
o,
" g meira um þennan blessaða
leik. Greinilegt var að dómararni
fóru í taugarnar á þeim sem sáu
leikinn. Viðstaddir bauluðu
óskaplega og
það að ráðast á þá
vegna þessa
skrípaleiks
sem þeir
buðu upp á.
Meðal
þeirra sem
ekkivar
sáttur við
frammi-
stöðu
þeirra var
hinn ástsæli
íþróttafrétta-
maður GuðjÓN
Guðmundsson,
Gaupi, á Stöð 2. í hálfleik var hon-
um svo nóg boðið að hann struns-
aði niður að ritaraborði og lét eft-
irlitsdómarann, sem kom frá Lux-
emborg, heyra sína skoðun á hinu
franska dómarapari. Gaupi lét
dæluna ganga x dágóða stund og
endaði siðan á orðunum: „Das ist
ein Skandal!“ Var fátt um svör og
einu viðbrögðin sem hann fékk frá
eftirlitsdómaranum var að hann
yppti öxlum í sífellu. Hins vegar er
ekki vitað hvort hann væri orðlaus
yfir þessum yfirlýsingum Gaupa
eða hvort hann hreinlega skildi
ekki manninn...
FH-ingar töpuðu fyrri leik sínum í átta liða úrslitum Evrópukeppni bikarhafa gegn danska liðinu GOG, 22:27.
Myndin er táknræn fyrir leikinn: Miklar stimpingar og oftar en ekki lágu menn í valnum eftir illa meðferð mót-
herjanna. Hálfdán Þórðarsson liggur í gólfinu en danska stórskyttan Claus Jacob Jensen stendur yfir hon-
um. Hans Guðmundsson og Nikolaj Jacobsen eru við öllu búnir. Sjá nánar um leikinn á bls. 30.
Gústaf Bjarnason stóð fyrir sínu gegn Braga í Portúgal og gerði sjö
mörk.
Haukar töpuðu stórt í fyrri
leiknum í Borgarkeppni Evrópu
Útfítiðhekb
urdökkt
Haukar úr Hafnarfirði eiga held-
ur betur á brattann að sækja eftir
fyrri leikinn í átta liða úrslitum
Borgarkeppni Evrópu. Liðið sótti
Braga frá Portúgal heim og tapaði
með tólf marka mun, 28:16. Strax í
upphafi leiks náðu Portúgalirnir
fimm marka forskoti, 6:1, og héldu
því alveg fram í miðjan seinni hálf-
leik. I stöðunni 18:13 skildu leiðir og
á meðan Braga raðaði inn mörkum
gekk ekkert né rak hjá Haukum.
Tólf marka tap varð staðreynd, for-
skot sem vart verður unnið upp
gegn jafn sterku liði og Braga er. Þó
má ekki útiloka þann möguleika
eins og dæmin sanna. Besti maður
Hauka í leiknum var Gústaf
Bjarnason en hann skoraði sjö
mörk. Aðrir leikmenn náðu sér
ekki á strik í þessum leik. Seinni
leikurinn fer fram hér á landi næst-
komandi laugardag. Um 150 stuðn-
ingsmenn Hauka fóru með liðinu
út með leiguflugi og studdu vel við
bakið á sínum mönnum.l
Islandsmeistaramótið í þolfimi
Magnús og
Anna unnu
íslandsmeistaramótið í þolfimi
fór fram í Háskólabíói á laugar-
dagskvöldið og var vel sótt. I karla-
flokki sigraði nýkrýndur íþrótta-
maður ársins 1994, Magnús Sche-
ving, með miklum yfirburðum og
kom það fáum á óvart enda er hann
í algjörum sérflokki meðal íslenskra
þolfimikeppenda. 1 kvennaflokki
fékk Anna Sigurðardóttir flest stig
en hún vann einnig parakeppnina
ásamt bróður sínum, Karli Sig-
urðssyni. Islandsmeistari kvenna
frá í fyrra, Unnur Pálmadóttir, gat
ekki tekið þátt að þessu sinni vegna
meiðsla. ■
Veður
Veðurhorfur næsta sólarhring:
Stormviðvörun: búist er við stormi á öll-
um miðum; Vesturdjúpi, Norðurdjúpi,
Austurdjúpi, Færeyjardjúpi og Suðvest-
urdjúpi.
Norðaustan-hvassviðri eða stormur og
snjókoma verða norðan og norðvestan-
lands, en él eða snjókoma vestanlands. i
fyrstu allhvöss suðaustan átt og rigning
austanlands, en síðar allhvass eða
hvass suðvestan og léttir heldur til aust-
anlands. Hiti verður frá 3 stigum niður í 6
stiga frost. Á höfuðborgarsvæðinu er
gert ráð fyrir allhvössum norðaustan en
síðan norðanvindi. Dálítil snjókoma
verður með köflum en síðar smáél. Frost
verður um fimm stig.
Horfur á þriðjudag og miðvikudag:
Víðast hvar nokkuð hvöss norðanátt,
einkum þó um landið austanvert. Snjó-
koma og él verða á Norður- og Norð-
austurlandi. Einnig dálítil él vestantil á
Norðurlandi og á Vestfjörðum, en þurrt
og vfða léttskýjað syðra. Frost verður á
bilinu 8 til 13 stig.
Telur þú að áfengisauglýsingar í
fjölmiðlum myndu auka neyslu áfengis?
Greiddu atkvæði!
@0 10 10
39,90 krónur mínútan
Já
90,7%
Síðast var spurt:
Eiga þingmenn að skrá
lögheimili sitt háma
kjá sér áns og aðiir?
I hverju tölublaði leggur Morgunpósturinn spurningu fyrir lesendur, sem þeir geta kosið um í síma 99 15 16.