Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 19.01.1995, Qupperneq 7

Helgarpósturinn - 19.01.1995, Qupperneq 7
FIMMTUDAGUR 19. JANUAR 1995 MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR 7 I ársbyrjun 1992 hófu tollayfirvöld rannsókn á innflytjendum á frönskum kartöflum. Tvö fyrirtæki fengu nýverið dóm, eitt bíður dóms og tvö eru á leiðinni Hmm lýrirtæ sviku um 100 miiyón' út á franskar kartöflur Ertt fyrirtækið krefst endurgreiðslu frá ríkinu vegna ólögmætrar álagningar. „Fyrir utan þessi þrjú mál sem hafa farið til dómstóla er eitt mál hjá saksóknara og eitt hjá okkur sem er rétt ófarið til saksóknara,“ segir Kristinn Ólafsson, tollstjóri hjá Tollstjóraembættinu í Reykja- vík. Árið 1988 var lagður 190 pró- senta jöfnunargjald á innflutning franskra kartaflna og árið 1992 hófu tollayfirvöld rannsókn á öllum fyr- irtækjum í áðurnefndum innflutn- ingi. Nýlega hlutu tvö þessara fyrir- tækja dóm fyrir tollalagabrot og þriðja fyrirtækið bíður dóms. Væntanlega fara mál tveggja fýrir- tækja til viðbótar fýrir dómstóla en samanlögð undanskot þeirra nema hátt í 100 milljónum króna. „Þetta er nokkuð langur ferill. Sum málin hafa verið í kæru hjá ríkistollanefnd og hafa dregist á langinn af þeirri ástæðu. Það er ekki hægt að segja að öll málin séu með sama sniði. Hins vegar er nið- urstaðan sú sama að það skilar sér ekki allt til greiðslu. En aðferðirnar eru ekki allar eins,“ sagði Kristinn Ólafsson. Hann staðfesti að mun fleiri fyrirtæki hefðu verið til skoð- unar en „ekki komist á þennan rek- lón Baldvin Hannibalsson Árið 988 vildu bændur banna inn- lutning á frönskum kartöflum en lón Baldvin gaf hann frjálsan og lét afgreiða þær sem iðnvöru. spöl.“ Hjá embætti Ríkissaksóknara fengust þær upplýsingar að fýrir ut- an þau tvö mál sem þegar hefur verið dæmt í bíði eitt úrlausnar hjá dómstólum. Ástæðan er sú að það fyrirtæki reki einkamál gegn ríkinu þar sem deilt sé urn lögmæti þess- ara jöfnunargjalda, hvort þau standist lög og þá milliríkjasamn- inga sem við erum aðilar að. Þar var sagt að refsimál væri rekið sam- hliða einkamálinu og biði úrskurð- ar þess. Lögmaður fyrirtækisins kannaðist ekki við að refsimál væri rekið samhliða fýrir dómstólum. Sveik 13 milljónir en gaf sig fram Einar Friðrik Kristinsson, framkvæmdastjóri Daníels Ól- afssonar hf., var nú um ára- mótin dærndur í 15 mán- aða fangelsi, allt skil- orðisbundið, auk greiðslu á 400.000 króna sekt til ríkis- sjóðs. Um var að ræða svik á 13,4 milljónum króna Jón Helgason Setti 190 prósenta jöfnunargjald á innfluttar franskar kartöflur til að styrkja íslensku kartöfluverksmiðjurnar í Þykkva- bæ og á Svalbarðseyri. í aðflutningsgjöld í 33 vörusending- um á fjögurra ára tímabili, 1988- 1992. Einar Friðrik stóð fyrir innflutn- ingi á frönskum kartöflum frá Hol- landi og framvísaði við tollyfirvöld vörureikningum og aðflutnings- skýrslum sem sýndu einungis hluta af innkaupsverði vörunnar „í því skyni að svíkja undan verulegan hluta aðflutningsgjalda,“ eins og segir í ákærunni. Vörureikningarn- ir sýndu því aðeins um þriðjung af raunverulegu verðmæti þessara vörusendinga. Dómurinn tók hins vegar tillit til þess að Einar Friðrik kom sjálfur til tollyfirvalda þann 24. mars 1992 og í ársbyrjun 1992 hófu tollayfirvöld rannsókn á innflytjendum á frönskum kartöflum. Tvö fyrirtæki fengu nýverið dóm, eitt bíður dóms og tvö eru á leiðinni. Svik þessara fimm fyrirtækja nema nærri 100 milljónum króna. lagði fram 33 aðflutninsskýrslur yfir umræddar sendingar og viður- kenndi brot sín greiðlega. Hann lagði öll gögn fram ótilknúinn og greiddi þessar 13,4 milljónir, auk 9 milljóna króna í dráttarvexti, sam- tals 23 milljónir króna. Dómurinn var að öllu leyti skilorðsbundinn þar sem hann gaf sig fram af sjálfs- dáðum, greiddi gjöld og dráttar- vexti auk dráttar á málsmeðferð. Taldi löglegt að vangreiða 8 milljónir Ólafur Bragason, eigandi og framkvæmdastjóri Sómaco hf., var litlu fyrr, eða þann 11. október 1994 dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyrir tollalagabrot, þar af 9 mánuði skil- orðisbundna. Ólafur stóð fyrir innflutningi á frönskum kartöflum frá Kanada ár- ið 1991 og var ákærður fyrir að framvísa „við tollyfirvöld vöru- reikningum og aðflutningsskýrsl- um, sem sýndu einungis hluta af innkaupsverði vörunnar í því skyni að svíkjast undan greiðslu aðflutn- ingsgjalda," eins og segir í ákær- unni. Um var að ræða sex ferðir með innflutning á rúmlega 100 tonnunr af frönskum kartöflum og námu vangreidd gjöld 8 milljónum króna. Ólafur lét gera tvo vöru- reikninga, annan með mun lægri upphæð sem fram- vísað var við tollaaf- greiðslu vörunnar. Báðum reikningum var framvísað í banka til yfirfærslu á gjald- eyri til kanadíska fyr- irtkisins Cawendish Farms. „Ákærði taldi sig þó ekki vera að gera neitt ólöglegt og væri þessi framsetning á vörureikningunum alfar- ið samningsmál sitt við seljanda vörunnar,“ segir í dómnum en sú röksemd er af- greidd sem „fráleit“ í dómnum. Só- maco var úrskurðað gjaldþrota 26. apríl 1993. Viija endurgreiðslur vegna ólögmæts jöfnunargjalds Magnús R. Jónsson rak fyrir- tækið Gnípu hf. sem flutti inn franskar kartöflur en það heitir nú Garri hf. Lögmaður fyrirtækis segir að það sé eldra fýrirtækið, Gnipa, sem stefnir íslenska ríkinu. „Við viljum ógilda úrskurð ríkistolla- nefndar varðandi álagninguna og endurkrefja það sem hefur verið of- greitt á árunurn 1988 til 1992.“ Lög- maðurinn segir að þeir telji álagn- inguna ólögmæta og þá ekki bara jöfnunargjaldið frá þeim 90 prósentum sem nú er upp í þau 190 prósent sem það var upphaf- lega. Hann segir að allt jöfnunar- gjaldið sé ólögmætt og þeir krefjist endurgreiðslu á „mörgum tugum milljóna". Nú í febrúar verður frávísunar- krafa ríkisins flutt en málið sjálft í beinu framhaldi. Lögmaðurinn vonaðist til þess því ljúki í vor í hér- aðsdómi en býst fastlega við að það fari áfram til Hæstaréttar, hver svo sem niðurstaðan verði. Eins og áður sagði fengust þær upplýsingar hjá-embætti ríkissak- sóknara að opinbert refsimál biði úrslita í þessu einkamáli fyrirtækis- ins við ríkið. Lögmaðurinn kann- aðist ekki við neitt opinbert sem biði sínum umbjóðanda. Það skal tekið fram að ekki náðist í Magnús R. Jónsson þar sem hann er erlend- is. Jón Baldvin gaf innflutning frjálsan en Jón Helgason setti 190 prósenta jöfnunargjald Forsögu þessa máls má rekja til ársbyrjunar 1988 en þá sendi Jón Baldvin Hannibalsson fjármála- ráðherra tilmæli til ríkistollstjóra þess efnis að franskar kartöflur skyldu afgreiddar sem iðnaðarvara og því ekki lengur háð leyfi land- búnaðarráðuneytisins. Innlendir framleiðendur vildu banna inn- flutning með öllu. Þetta kom Jóni Helgasyni landbúnaðarráðherra „alveg á óvart“ enda taldi hann þær falla undir búvörulög. Hálfum mánuði síðar setti Jón Helgason 190 prósenta jöfnunargjald á inn- fluttar franskar kartöflur sem áður báru 40 prósenta gjald. Þetta jöfn- unargjald lagðist ofan á 30 prósenta toll. Tilgangur Jóns var að styrkja íslensku kartöfluverksmiðjurnar í Þykkvabæ og á Svalbarðseyri. Jöfn- unargjaldið var lækkað í 120 pró- sent árið 1989 og í 90 prósent í nóv- ember 1993 í kjölfar skoðunar við- skiptadeildar GATT sem gerði at- hugasemdir við of hátt jöfnunar- gjald miðað við GATT- samkomu- lagið. I tengslum við álagningu þessara jöfnunargjalda kviknaði grunur tollayfirvaída um sviksamlegt at- hæfi. Rannsókn tollayfirvalda hófst í ársbyrjun 1992. Öll þau fyrirtæki sem stóðu fýrir innflutningi voru tekin til skoðunar og í ljós kom að fimm þeirra höfðu framið meint tollabrot sem samkvæmt heimild- um blaðsins nema hátt í 100 millj- ónum króna. -pj Hv Lvort sem að íslendingar eru fá- tækir af standtrúðum og almennum grínurum eða orðstír Radíusbræðra hefur borist svona hraustlcga út fýrir iandsteinana, þá eru þeir eftir- sóttir hjá Islendingafélögum. DavIð Þór Jónsson fór til Finnlands fýrir skemmstu að skemmta hjá Is- lcndingafélaginu þar og nú hafa Sslendingar í London pantað hann ásamt Steini Á. Magn- ússyni til að fara með gamanmál við Þorra- / blót sem þar verður í / byrjun febrúar. Eins og lesendur MORGUPÓSTSINS vita var Radíus-sjónvarpsþættinum slegið á frest og kom það sér nokk- uð illa fyrir lcikarann Stein sem hafði hafnað hlutverkum vegna þess verkefnis. Honum mun til dæmis hafa staðið til boða að leika það hlutverk sem Magnús Jónsson fer með í Kabarett... Sjónvarpið vinnur nú að undir- búningi þáttar sem verður í beinni útscndingu á föstudagskvöld klukk- an 20:40. Hann ber yfirskriftina Samhugur í verki og undirtitillinn segir til um efni hans: Landssöfnun vegna náttúruhamfaranna í Súða- vík. Dagsljósarliðið undir forystu Sigurðar Valgeirssonar mun bera hita og þunga af dagskrárgerð- inni... Leikarar Þjóðleikhússins æfa nú söngleikinn West Side Story af kappi en fyrirhugað er að frumsýna verkið í lok febrú- ar. Steinunn ÓlIna Þorsteinsdóttir átti að fara með stórt hlutverk í sýningunni en hún fékk sig lausa fyrir tæpri viku. Ástæð- an mun vera of mikið álag en hún er með mikið á sinni könnu í leiklistinni. Fyrir þá sem þekkja söngleikinn þá átti hún að leika Anitu, portóríkanska stúlku sem er kærasta Bernardós sem einnig er portórikani en hann leikur Baltasar Kormákur. Þjóð- leikhúsið er ekki á flæðiskeri statt þegar kemur að hæfileikaríkum syngjandi og dansandi leikkonum sem eru dökkar yfirlitum. Sigrún Waage tekur við Anitu en hún var áður með minna hlutverk í leikn- um. Karl Ágúst Úlfsson leikstjóri hefur því í ýmsu að snúast við að æfa inn nýjan leikara en í gær dró Flosi Ólafsson, sem fór með lítið hlutverk, sig cinnig til hlés af svip- uðum ástæðum og Steinunn og við hlutverki hans tekur Rúrik Har- aldsson... ^Æcira úr leikhúsheiminum. Borgarleikhúsið fetar nú í fótspor Þjóðlcikhússins með að leita til finnskra leikhúsmanna á þessu leik- ári en Kaisa Koronen leikstýrði Fá- vitanum eins og lcikhúsáhuga- mönnum er kunnugt. Nú standa yf- ir æfingar á leikritinu Heimili svörtu fiðrildanna sem fyrirhugað er að verði frumsýnt í marsbyrjun. Leikritið byggir á skáldsögu eftir finnsku skáldkonuna Lenu Lander og var hún einmitt tilnefnd til nor- rænu bókmenntaverðlaunanna fyr- ir nokkrum árum, einmitt fyrir þessa bók. Leikfélag Reykjavíkur hefur fengið finnska leikstýru, Eiiu Bergholm til þess að leikstýra, en finnskt Ieikhús hefur skapað sér sérstöðu á heims- vísu. Páll Baldvin Baldvinsson hefur unnið við hlið Eiju að endurbótum á sænskri leikgerð en hann er aðstoð- arleikstjóri og er þannig spor- göngumaður Kára HalldóRS sem var einmitt fýrir skemmstu aðstoðarleikstjóri finnsks kvenleikstjóra. Það er Þröstur Leó Gunnarsson sem fer með aðalhlutverk í leikritinu...

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.