Helgarpósturinn - 19.01.1995, Side 11

Helgarpósturinn - 19.01.1995, Side 11
FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 1995 SNJOFLOÐIÐ I SUÐAVIK 11 „Konaii mín vaknaði áður eti þetta skeði og antiar drengurinn okkar var í rúminu við hliðina á henni og hún gat ekkert gert. “ Hafsteinn Númason er 43 ára sjómaður og formaður verkalýðsfélagsins í Súðavík. Hann missti börn sín í snjóflóðinu og Loftur Atli Eiríksson ræddi við hann á ísafirði í gær. Hafsteinn gagnrýnir fjölmiðla fýrir að fara offari en er þakklátur fýrir þá samkennd sem hann hefur fundið „ Við bjuggum a svæði sem atti að vera öruggt“ Níu fórnarlömb snjóflóðsins í Súðavík liggja á Fjórðungssjúkra- húsinu á ísafirði og eru á batavegi. Á sjúkrahúsinu dvelja, auk þeirra, jafn stór hópur aðstandenda þeirra og annarra látinna, en fólkið er flest mun ver komið á sig andlega en lík- amlega. Margir þeirra eru ósáttir við fréttir sjónvarps og útvarps af slysinu og fannst óvarlega farið í umjölluninni um snjóflóðið og skort á nærgætni. í gær náði MORGUPÓSTURINN tali af Hafsteini Númasyni sem missti börn sín í snjóflóðinu, í sam- ráði við Tómas Zoega geðlækni og Þorstein Jóhannesson yfir- lækni á Fjórðungssjúkrahússins á ísafirði. Hafsteinn Númason er 43 ára sjómaður og formaður verka- lýðsfélagsins á Súðavík. Hann var um borð í skipi sínu á leið í land rétt út af höfninni í Súðavík þegar snjóflóðið féll á bæinn og hrifsaði með sér hús hans. I húsinu voru eiginkona Hafsteins, Berglind M. Kristjánsdóttir, 31 árs, og þrjú börn þeirra hjóna á aldrinum tveggja til 7 ára. Berglind slasaðist nokkuð en slapp við beinbrot en börnin eru öll látin. Þau hétu Aðal- steinn Rafn 2 ára, Kristján Númi 4 ára og Hrefna Björg 7 ára. „Við vorum að koma í land þeg- ar við fféttum af þessu og vorum að bíða flóðs svo við gætum siglt inn höfnina,“ segir Hafsteinn. „Fyrst heyrðum við að snjóflóðið hefði fallið annars staðar í þorpinu og það gerði sér enginn grein fyrir hversu mikið þetta var. Ég hafði engar áhyggjur til að byrja með en síðan tóku að berast fréttir af því að þetta væri meira og meira og hversu skelfilegt þetta var. Þá áttaði ég mig á að mitt hús hafði lent í þessu. Ég hringdi og fékk upplýs- ingar um að það væri farið og að konan mín hefði bjargast en börnin væru týnd. Mér fannst erfiðast þarna fyrst að vera um borð og komast ekki í land. Veðrið var svo slæmt að skipið komst ekki upp að og það var óbærileg tilfinning að vera þarna rétt hjá og geta ekkert gert. Skipstjórinn treysti sér ekki að fara inn höfnina því ef eitthvað kæmi fyrir þá mundum við hugs- anlega loka henni og það var von á hjálparsveit sem þurffi að komast óhindrað að landi. Skipstjórinn tók því það ráð að vera fyrir utan og lýsa upp svæðið eins og hægt var. Það var náttúrlega það eina rétta sem hann gat gert í þessari stöðu. Hann hafði strax samband við ísa- fjörð til að kalla á skip sem voru í Djúpinu svo þau gætu komið og lýst upp og veitt þá aðstoð sem þau gátu. Seinna um morguninn fór hann lengra inn á fjörðinn og þar fórum við með gúmmíbát yfir í Haffara sem kom okkur í land. Það var mjög erfitt að fá fréttir af at- burðum í gegnum útvarp og maður var ekki einu sinn kominn á svæðið þegar maður heyrði hvað var að ske. Það jók enn á áhyggjurnar því þetta er lítið þorp og það veit eng- inn hverjir það eru sem verið er að tala um í fréttum. Þegar ég kom í land vildi ég fara að leita en björg- unarmennirnir töldu það ekki ráð- legt að hleypa mér sem aðstand- anda inn á svæðið. Þeir sögðu mér frekar að styðja við konuna mína því hún hafði slasast og var í hálf- gerðu losti. Þegar flóðið stöðvaðist komst hún með höfúðið upp úr snjónum en það var svo mikill byl- ur að hún sá ekki neitt í kringum sig. Það varð henni hugsanlega til lífs að þar kom að maður sem hafði líka lent í flóðinu og hjálpaði henni. Hún ætlaði strax að leita að börn- unum en hann tók hana með sér á bensínsölu sem var þarna rétt hjá og hann dró hana þangað inn. Hún hringdi á sjúkrahúsið og í systur sína en hann rauk strax til að leita að fleira fólki sem var grafið í snjó- inn.“ Hafsteinn segir flóðið hafa kom- ið eins og þruma úr heiðskíru lofti en þau hjónin hafi rætt hugsanlega Hrefna Björg 7 ára, Kristján Númi 4 ára, Aðalsteinn Rafn 2 ára. Börn Hafsteins og Berglindar sem öll fórust í flóðinu. snjóflóðahættu og talið sig óhult í húsi sínu við Túngötu 5 í Súðavík. „Við bjuggum á svæði sem átti að vera öruggt en hálf gatan er farin burt. Það er ekkert eftir. Maður veit eiginlega ekki hvað verður um svona lítið þorp eins og þetta og það er óskiljanlegt hversu ofboðs- lega mikill kraftur þetta er. öll hús- in sem lenda í þessu splundrast eins og pappakassar. Ég bjó við neðan- verða götu og við vorum búin að tala um það hjónin að ef það kæmi snjóflóð mundi það fara á húsið fyrir ofan. Það hús kom bara á okk- ar og áfram. Konan mín vaknaði áður en þetta skeði og annar dreng- urinn okkar var í rúminu við hlið- ina á henni og hún gat ekkert gert. Við erum mjög óánægð með hversu mikill fréttaflutningur var á meðan við biðum í gær og fyrradag. Fjölmiðlar hafa miklu hlutverki að gegna en mér finnst að það þurfi að fara hægar í sakirnar. Eins og þegar búið er að birta götunöfn þá getur það valdið ugg meðal fólks annars staðar á landinu sem veit hvar maður á heima. Biðin og sorgin var svo mikil og svo fannst kannski ein- hver lifandi og þá greip maður í það hálmstrá vonarinnar, eins og þegar drengurinn fannst eftir 23 tíma leit. Áfallið varð síðan tvöfalt meira heldur en í upphafi þegar sannleik- urinn kom í ljós.“ Missir Hafsteins og Berglindar er ólýsanlegur en börnin þeirra þrjú fórust í flóðinu. „Yngsti drengurinn okkar fannst með lífsmarki fyrsta daginn en hann dó skömmu seinna. Hin tvö fundust síðast í gær. Það voru slæm mistök þar líka. Það var búið að segja okkur hverjir voru látnir og hverra var saknað og svo settist ég fram í gærkvöldi hér á sjúkrahús- inu og byrjaði að horfa á sjónvarps- fréttir og það fýrsta sem ég sá var nafn dóttur minnar meðal látinna en það var ekkert búið að tilkynna okkur það.“ Hafsteinn lofar umönnunina sem þau fórnarlömb slyssins hafa fengið á Fjórðungssjúkrahúsinu á ísafirði. „Mig langar líka til að segja að fólkið hérna á spítalanum er bú- ið að vera okkur stoð og stytta og ég held að það sé ekki til betra starfs- fólk á neinum spítala. Það er ekki hægt að segja með orðum hvað við öll, sem hérna erum, erum því þakklát.1' Hafsteinn segir að það eina sem þau Berglind geti gert sé að halda lífinu áfram og ekki gefast upp. „Við verðum að byrja upp á nýtt. Við munum líklega flytja suður og bíðum núna eftir að fá lík barnanna okkar. Við eigum ástvini annars staðar sem styðja við bakið á okkur og mér þótti líka vænt um að sjá í gærkvöldi að það virtist vera al- menn hluttekning um land allt um þessa miklu sorg sem flest okkar hafa orðið fyrir. Við erum bæði illa á okkur komin en það eru allir að reyna að hjálpa okkur að standa upprétt og ég þakka öllum sem hafa hugsað hlýtt til okkar.“ LAE

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.