Helgarpósturinn - 19.01.1995, Side 12
SNJOFLOÐIÐ I SUÐAVIK
12
FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 1995
Viðtal við Frosta Gunnarsson sem bjargað var undan flóðinu en dóttir hans Elma lá 15 tíma
undir snjómassanum áður en hún fannst
„Getum þakkað lýrir að
vera á lífi“
„Fataskápurinn fór ofan á mig og
snjórinn smá mjakaðist yfir mann
og þrengdi allt um kring þannig að
ég gat mig hvergi hreyft," segir
Frosti Gunnarsson, 44 ára bif-
reiðastjóri og íbúi við Túngötu 3 á
Súðavík, sem varð undir snjóflóð-
inu. Frosti og eiginkona hans, Björg
Hansdóttir 44 ára, voru í fasta-
svefni ásamt yngri dóttur þeirra,
Elmu D. Frostadóttur, 14 ára, (en
hún bjargaðist eftir að hafa legið 15
tíma í flóðinu), þegar snjóflóðið
hreif hús þeirra með sér þegar það
steyptist yfir Súðavík. Þau eiga einn-
ig aðra dóttur sem er búsett í Hafn-
arfirði og son, Gunnar Á. Frosta-
son 22 ára, sem var hjá unnustu
sinni annars staðar í bænum og
lenti ekki í flóðinu sjálfu. „Maður
gat náttúrlega ekkert gert. Ég reyndi
að brjótast um eftir að ég var orðinn
fastur með allt þetta farg ofan á mér
en það versnaði bara við það og ég
átti vont með að anda. Ég vissi ekki
hvað var upp eða niður og reyndi að
kalla á konuna mína en hún var í
rúminu við hliðina á mér þegar
snjóflóðið féll yfir okkur. Hún sagði
mér eftir á að hún hefði ekki getað
gefið frá sér hljóð og svarað þrátt
fyrir að hún væri rétt hjá mér. Hún
var svo andstutt en heyrði í mér og
það var mikil! styrkur fyrir hana.“
Björgunarmenn fundu Björg rétt
á undan Frosta og hún lét þá vita
hvar hann var að finna. „Hún gat
látið vita að ég væri þarna rétt hjá
henni og þess vegna var haldið
áfram að leita á þessum stað. Ég tal-
aði við sjálfan mig og hugsaði að
svona færi maður fyrir rest en ég var
búinn að stunda vinnu á ísafirði í 11
ár og þvælst í nánast hvaða veðri
sem er á snjósleða milli ísafjarðar og
Súðavíkur. Núna var ég loksins bú-
inn að fá vinnu heima og þá lendi ég
í þessu. Ég haföi aldrei áhyggjur af
snjóflóðahættu á Súðavík því húsið
okkar var ekki talið standa á hættu-
svæði.“
Eftir að björgunarmennirnir
fundu Frosta var hann fluttur í
frystihúsið þar sem hann fékk fyrstu
aðhlynningu.
„Maður var orðinn mjög kaldur,
ég veit ekki hversu kaldur, en ég var
með fullri meðvitund. Mér finnst ég
hafa sofið stóran hluta af þessum
tíma sem ég var undir flóðinu án
þess að ég treysti mér til að fullyrða
það. Biðin eftir að vita hvað orðið
hafði um dóttur okkar, sem svaf í
öðru herbergi, var nánast óbærileg
en eftir 15 tíma fannst hún loksins
og þá á lífi. Það eina sem maður gat
gert var að gráta þegar hún kom
loks í leitirnar. Hún er á góðum
batavegi en mér skilst að það hafi
pressað eitthvað á nýrun í henni en
það er allt á réttri leið. Við munum
öll örugglega jafna okkur á þessu
líkamlega mjög fljótlega og getum
öll vel við unað því við komumst á
lífi úr þessari hörmung.“
Frosti er göngufær og segir að
umönnunin á sjúkrahúsinu á ísa-
firði hafi verið til fyrirmyndar og
kann öllu starfsfólki bestu þakkir
sínar.
„Ég hef verið svolítið á róli en þær
mæðgurnar hafa verið mest í rúm-
inu. Við höfum fengið mikinn styrk
frá því einstaka fólki sem hefur hlúð
að okkur hér á sjúkrahúsinu. Áfalla-
hjálparhópurinn hefur komið að
miklu liði og ég hef talað nokkrum
sinnum við Rúdolf Adolfsson, sem
leiðir hann, og það hefur líka verið
mjög gott.“
Aðspurður um framtíðina segist
Frosti hafa búið allt sitt líf í Súðavík
og ekki geta hugsað sér annað. LAE
Frosti Gunnarsson bifreiðastjóri „Maður gat náttúrlega ekkert gert. Ég reyndi að brjótast um eftir að ég
var orðinn fastur með allt þetta farg ofan á mér en það versnaði bara við það og ég átti vont með að anda.“
gat komið skóm til hennar og leitt
hana út úr herberginu og fór með
hana og bróður hennar upp á efri
hæðina.“
Þegar heimilisfólkið var komið á
efri hæðina leituðu skjóls þar íbúar
úr næstu húsum, sem höföu farið á
kaf í flóðinu. Lilja hringdi í eigin-
mann sinn, Jónatan Inga, og sagði
honum fréttirnar.
Húsin sem urðu
verst úti
Húsin á Nesveginum voru í út-
jarðri flóðsins og urðu ekki eins illa
úti og þau sem voru fyrir miðri
Túngötunni, að undanskildu hús-
inu númer 7 við Nesveginn. Þar lét-
ust tvö eins og áður er greint frá og
strax á son minn sem var í næsta
herbergi við, en rúðan í herberginu
hans brotnaði ekki sem er ekkert
annað en kraffaverk."
Lilja Ósk segir að hugsanlega hafi
það orðið Steinunni til lífs að
glugginn á herbergi hennar er lítill
og því hafi snjórinn ekki náð að
brjótast þar inn að neinu ráði.
„Rúmið hennar stóð innarlega í
herberginu og flóðið náði alveg
upp að rúminu en fór ekki yfir
hana. Hún vaknaði upp við að fá
snjóinn upp að sér. Þegar ég skreið
yfir snjóinn til að komast að henni
sagði hún „mamma, það er allt fullt
af snjó hérna og glerbrotum". Ég
tveir björguðust. Aðrir sem létust
bjuggu allir við Túngötuna þar sem
miðja flóðsins fór yfir, ef frá er tal-
inn eini íbúi hússins sem flóðið
stöðvaðist á, Njarðargata 10. Sigur-
borg Guðmundsdóttir, 60 ára, bjó
þar og fórst í flóðinu.
Húsið að Túngötu 6 er efst í hlíð-
inni þar sem miðja flóðsins fór yfir
og gereyðilagðist. I húsinu voru
Hafsteinn Björnsson, 40 ára, og
uppeldisdóttir hans, Júlíanna
Bergsteinsdóttir, 12 ára. Þau fór-
ust bæði. Móðir Júlíönnu og sam-
býliskona Hafsteins, Björk Þórð-
ardóttir, 46 ára, var að heiman
þegar flóðið féll.
Þrír björgunarmenn, sem nýkomnir voru frá störfum í Súðavík, undir
kvöld á þriðjudag. Einar Valur Kristjánsson (í miðið) missti föður sinn í
snjóflóðinu sem féll íTunguskógi fyrir botni Skutulsfjarðar í apríl á síð-
asta ári.
Á sama tíma fréttir Elvar af snjó- „/Wjfn/Í73; það er allt
flóðinu og er að hugsa um að yfir- TUÍI af SHJO héma Og
gefa rafstöðina til að huga að fjöl- glerbrotum“
skyldu sinni en fær þá hringingu frá „Ég vaknaði við mikinn hávaða,
Önnu sem segir honum að hún og það var eins og eitthvað splundrað-
börnin séu heil á húfi. ist. Við töldum okkur ekki vera á
neinu hættusvæði en snjóflóðið
Einn af þeim sem komst lífs af úr
snjóflóðinu borinn frá borði úr
Fagranesinu á mánudaginn sem
flutti hina slösuðu frá Súðavík.
lenti á húsinu og fór inn um kjallar-
ann,“ segir Lilja Ósk Þórisdóttir, 40
ára móðir þriggja barna og íbúi að
Nesvegi 3.
Eitt barna hennar, Sædís María
Jónatansdóttir, 20 ára, var að
heiman og eiginmaður hennar,
Jónatan Ingi Asgeirsson, 41 árs,
var um borð í rækjuskipinu Haffara
á leið til Súðavíkur. Lilja svaf á efri
hæðinni ásamt tengdamóður sinni,
Steinunni Ingvadóttur, 58 ára. En
tvö barna hennar, Steinunn Björk
Jónatansdóttir, 17 ára, og Krist-
ján Jón Jónatansson, 13 ára,
sváfu á neðri hæðinni.
„Ég hljóp strax niður en raf-
magnið var farið þannig að ég sá
ekkert. Það var snjór fyrir öllum
gluggum og flóðið virtist ná að efri
hæðinni. Ég heyrði í dóttur minni,
Steinunni Björk, en snjóflóðið kom
inn í herbergið hennar. Ég kallaði
Sóknarprresturinn í Súðavík, séra Magnús Erlingsson, og séra Karl V.
Matthíasson, sóknarprestur á Tálknafirði og forveri Magnúsar, bera
saman bækur sínar á sjúkrahúsinu á ísafirði. Mikið hefur mætt á þeim
og öðrum prestum undanfarna daga, þar sem margir eiga um sárt að
binda eftir hörmungarnar í Súðavík.
Húsið númer 6 splundraðist og
skall á húsinu sem stóð fyrir neðan
það, hinum megin við götuna. Þar
voru íjögur sofandi heima: Berg-
lind M. Kristjánsdóttir, 31 árs, og
börn hennar þrjú; Hrefna Björg
Hafsteinsdóttir, 7 ára, Kristján
Númi Hafsteinsson, 4 ára og Að-
alsteinn Rafn Hafsteinsson, 2
ára. Berglind barst með flóðinu og
það varð henni til lífs að hún þrýst-
ist upp á yfirborðið og var grafin
upp. Öll börn hennar létust í flóð-
inu.
Eiginmaður Berglindar og faðir
barnanna, Hafsteinn Númason,
43 ára, sem var staddur um borð í
togaranum Bessa þegar flóðið reið
yfir, lýsir sárri reynslu þeira hjóna í
viðtali hér í blaðinu.
I næsta húsi við Túngötu 6, í
húsinu númer 8 við ofanverða
Túngötuna voru fjögur heima við.
Hjónin Hjördís Björnsdóttir, 37
ára, og Jónas S. Hrólfsson, 37 ára,
og tvö af börnum þeirra; Birna D.
Jónasdóttir, 14 ára, og Helga B.
Jónasdóttir, 10 ára. Jónas var sá
eini sem bjargaðist úr flóðinu. Eig-
inkona hans og tvö börn fórust.
Þriðja barn þeirra hjóna, Sigurrós
Jónasdóttir 15 ára, var ekki heirna
þegar flóðið skall á þorpinu.
I húsinu fyrir neðan og handan
götunnar, númer 7 við Túngötu,
voru fjórar manneskjur. Mæðgurn-
ar Bella Aðalheiður Vestfjörð, 39
ára, og Petrea Vestfjörð Vals-
dóttir, 12 ára. Þær fórust báðar.
Hinir tveir íbúarnir, mæðginin Wi-
eslawa Lupinska, 33 ára, og sonur
hennar Tomasz Lupinski, 10 ára,
björguðust. Wieslawa bjargaðist
stuttu eftir að flóðið féll en Tomasz
fannst á lífi eftir að hafa verið hátt í
sólarhring grafinn í snjó undir vegg
hússins.
Hinum megin við Túngötu 6, í
húsinu númer 4, voru hjón með
tvö börn: Sigríður Rannveig
Jónsdóttir, 22 ára, og Þorsteinn
Örn Gestsson, 27 ára, og börn
þeirra, Linda R. Ásgeirsdóttir, 5
ára, og Hrafnhildur K. Þorsteins-
dóttir, á öðru ári. Það voru Þor-
steinn og Sigríður sem brutust slös-
uð inn í sjoppuna að leita sér skjóls.
Dóttir þeirra Linda fannst á lífi en
Hrafnhildur litla var látin þegar
hún fannst.