Helgarpósturinn - 19.01.1995, Blaðsíða 28

Helgarpósturinn - 19.01.1995, Blaðsíða 28
28 X - Doxni no's y_r_rJTc.! Ei _L _L £J n _L 19.JANUAR - 26.JANUAR 1995 Góðir gæiar 1V ÞV Titill Flytjandi VL 12 01 BETTER MAN PEARLJAM 3 01 02 LOVE SPREADS STONE ROSES 6 17 03 GOD TORI AMOS 2 04 04 CRUSH WITH EYELINER R.E.M. 4 18 05 ISAW THELIGHT THE THE 2 20 06 BACK IT UP ROBINS 2 07 07 WHATEVER OASIS 5 — 08 TELL ME WHEN HUMAN LEAGUE 1 13 09 SYMPATHY FOR THE DEVIL GUNS N’ ROSES 3 15 10 WHEN I COME AROUND GREEN DAY 2 — 11 DOLLPARTS HOLE 1 02 12 FELL ON BLACK DAYS SOUNDGARDEN 6 11 13 THANK YOU FOR HEARING ME SINEAD O'CONNOR 5 — 14 BRAZILIAN SKY SPOON 1 — 15 GOT TO GETAWAY OFFSPRING 1 16 16 PRETTY PENNY STONE T. PILOTS 4 03 17 ODE TO MY FAMILY CRANBERRIES 6 — 18 SHE’S A RIVER SIMPLE MINDS 1 — 19 TAKE YOU THERE PETE ROCK/CL SMOOTH ’ 05 20 MURDER WAS THE CASE SNOOPD. DOGG 8 kraumandi undir... KITTY KITTY 69B0YS DREAMER LIVINJOY INEVER SEEN A MAN CRY SCARFACE CREEP TLC Góðkuttnitigjar fyrsta bekks eru nú komnir á sinn stað. Pearl Jam eiga topplagið þessa vikuna, Better Man. Gáfnaljós vikunnar er íslandsvinurinn Tori Amos semfer upp umfjórtán úr 17. í 3. bekk. Hœsta nýja lagið eiga aðrir nýir íslandsvinir, Human Le- ague - Tell Me When. 6 ný lög koma inn á listann, 6 lög klifra uppá við, 3 lög standa í stað þannig að fallistarnir eru 5. X-Domino’s listinn ervalinn vikulega af hlustendum og dagskrárgerðarmönn- um X-ins. Listinn er frumfluttur á limmtudögum kl. 16:00-18:00 og endurlelk- inn á laugardögum kl. 14:00-16:00. Það er Einar Örn Benediktsson sem sér um’ann! Posturmn DOMINO’S PIZZA MORGUNPÓSTURINN MANNLÍF FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 199$ ICántríklúbburinn, sem á sér of langa forsögu til þess að hún verði rakin hér, verður endurvakinn í Naustkjallaranum á föstudags- kvöld. Áhugamál klúbbsins er að sjálfsögðu sveitatónlist, janframt því sem klúbbmeðlimir hafa ánægju af því að snæða stórar T-beinsteikur með tilheyrandi. Allt verður tii alls í Naustkjallarnum á föstudagskvöld. Þeir sem vilja mega mæta með kú- rekahatt og í kúrekastígvélum. Sérstakir aðdáendur Led Zeppelin ætla að standa fyrir tónleikum á Tveimur vinum á fimmtudags- kvöld. í þessum hópi eru meðal annarra Sigurður Gröndal, Gunn- LAUGUR BRIEM, JÓHANN ÁSMUNDSSON og fleiri sem ætla að spila fjölda Led Zeppelin-laga í fullri lengd. Fyrir nokkru sá þessi hópur fyrir sams konar uppákomu á Gauknum fyrir troðfullu húsi. Þar voru sam- ankomnir margir fertugir rokkarar, feðgar, Hallur Hallsson fyrrum fréttamað- ur og annað fólk. Kristín Ásta Kristinsdóttir fyrirsæta spratt fram á sjónarsviðið þegar hún vann EL- ITE-fyrirsætukeppnina hér á Islandi og fór síðan til Ibiza til að taka þátt í Look of the year 1994- keppninni sem hefur getið af sér súpermódel eins og Cindy Crawford og Naomi Campbell. Kristín Ásta er nú á leið til Ítalíu ásamt fleiri fyrirsætum og Baldur Bragason myndaði hana og tók við hana viðtal stuttu fyrir brottför Hvað ertu gömul? „Ég verð tvítug 23. mars, hrút- ur!“ Þú ert fyrirsæta. Er þetta þitt að- alstarf og áhugamál eða eitthvað sem þú bara lentir í? „Eg bara datt út í þetta en ég lít ekki á þetta sem starf, það er ekki hægt á íslandi.“ Nú ertu á leið til útlanda, ekki satt? „Jú ég flýg út í dag. Fer fyrst til London og ætla að djamma þar ærlega um helg- ina, síðan á sunnudag eða mánu- dag flýg ég til Mílanó." Hvað kemurþað til með að bera í skauti sér? „Góð spurning. Ég hef ekki minnstu hugmynd um það, en eitt er víst að ég ætla ekkert að stressa mig á þessu. Ef hlutirnir ganga ekki upp þá ætla ég mér að skoða Ítalíu og heimsækja fólk í borgum í kring. Ég er komin með samning þarna úti, við förum tvær út til að byrja með, ég og Heiðrún Anna. Síðan í febrúar koma jafnvel Árný, Klara og Elma Lísa út til okkar. Stefnan er að hafa það gott og skemmta sér vel.“ Erum við að týna 'óllum fallegustu. stelpunum okkar til ítalans? . “ „Það eru þín orð,“ segir Kriitfn feimnislega. : • • •> Eru góðir möguleikar þarna? „Maður kemst ekki inn á erfiðari ; markaðina nema að byrja á stað eins og Aþenu eða MíÍanó. Staðir þar sem maður hefur tækifæri á því að fá myndir. Myndirnar eru náttúrlega undirstaðan að þessu ölíu saman. Án þeirra gerist lítið.“ Nú hefur maður heyrt Ijótar sögur afframkomu umboðsmanna og annarra í bransanum þarna suður- frá, hvaðfmnst þér um það? „Umboðsmenn eiga það til að vera ofsalega stirðir, þú krefur þá um peninga og þá eru svörin ekki falleg. Síðan falla þeir í tvo hópa, annað hvort dýrka þeir þig eða hata þig. Þeir geta gert manni lífið erfitt.“ Nú hafa margar stúlkurfarið er- lendis til aðfreista gœfunnar við módelstörf og oftar en ekki mjög ungar stúlkur, fmmtán, sextán ára. Getur þetta ekki verið eyðileggjandi andrúmsloft þarna úti? „Þeir vilja svona ungar stelpur til þess að geta mót- aðþær ogskoðanir þeirra. Þeir viljajþær ekki ort svona gamlar eins og mig. Ég er bú- in að móta mínar skoðanir og er ákveðin með mitt. Á Ibiza, í Look of the Year-keppninni, var ég næst elst af sjötíu stelpum og ég var ní- tján. Þær voru flestar þetta fjórtán, fimmtán. Það voru tveir símaklefar inni á hótelinu og á meðan ég var að Annað hvort dýrka umboðsmennirnir mann eða hata hringja heim og láta vita að það væri steikjandi hiti, sól og ofsa gaman þá voru þarna stelpur í unnvörpum hágrenjandi í slmanum. Þefta er bara skemmandi. Það eru gerðar svo miklar vænting- ar og kröfurnar til stúlknanna eru slíkar að það er ekki möguleiki fyr- ir þessar stúlkur að uppfylla þær. Þetta eru bara börn. Þó að þær líti fullorðinslega út eru þetta svo litlar sálir.“ Hvernig œxlaðist það að þú fórst þarna út? „Við vorum að sýna í Perlunni fyrir jólin á sýn- ingunni Lifstíll 2000, þegar þao kemur kona, okkur að ovörum, með sílikonbrjóst, -rass, -nef og alles og við er- um kallaðar til hennar ein í einu. Hún leit á mann, pot- aði í magann og sagði manni að brosa. Ég var rifin úr pásu þannig að ég var með brauð á milli tannanna og alls ekki undir þetta búin. Tveimur vikum seinna var hún farin aftur til ftalíu og þá var ég búin að komast að því að hún var frá umboðsskrifstofunni JUMP og þá fengum við að vita að hún vildi fá okkur út. Það kom mér alveg á óvart.“ Á hvaða forsendum farið þið þarna út, Irvernig er hlúð að ykkur? „Það er misjafnt hvernig þefta gengur íyrir sig en jafnan bjóðast umboðsskrifstofurnar til að borga undir mann farið og jafnvel hús- næði eða að þær biðja um mann en borga ekki neitt. í okkar tilviki vilja þær annað hvort borga undir okkur farið eða húsaleiguna. Farið er borgað fyrir mig og síðan, ef maður er í fjárkröggum, þá hjálpar skrifstofan manni ef það er séð fram á að maður fái eitthvað að gera.“ Er þetta ekki harður bransi? „Frekar. Margt af þessu er ótta- lega falskt. Það sem ég er að gera núna er að komast að því hvort að þetta er eitt- nvað fyrir mig, ekkert, kemst maður áfram á ís- landi. Þetta er líka tækifæri sem maður fær þegar maður er ungur og því ekki að nýta sér það?“ Nú vannstu ELITE-keppnina, hverju breytti þaðfyrir þig? „Ég fékk vinnu á Ingólfscafé," segir Kristín og hlær. „En svona í alvöru, þá eru helstu breytingarnar þær, allavega út á við, þótt það sé hálf hallærislegt að segja það, þá eru sumir sem segja frekar halló við mann heldur en áður. Þetta strikar undir nafhið þitt og gerir það að verkum að þá sjaldan að það koma hingað erlendir aðilar til að leita að módelum í vinnu þá er maður ekki bara nafn held- ur nafn sem vann ELITE. En þegar á endann er litið þá gerir það ekki mikið, án þess að ég sé að gera lítið úr þessari keppni.“ Hverjir eru þínir verstu ósiðir? „Ég get verið ótrúlega ókvenleg stundum og á til með að vera skap- stökk, fljót upp og líka niður aft- ur.“ Hvað myndi undra mig mest af því sem ég kœmi til með aðfinna í bakpokanum þínum? „Sælgætið, það leynist sælgæti alls staðar. Hvað reiðir þig? „Ósanngirni." Hvað er þaðfyrsta sem þú gerir á morgnana? „Opna augun.“ Hver er meginmunurinn á karli ogkonu? „Typpi ð.“ Hefur þú einhvern tímann slegið einhvern? „Nei.“ Aldrei? „Nei. Jú. Fyrrverandi kærasta minn, einu sinni.“ Það er kannski þess vegna sem hann er fyrrverandi? „Nákvæmlega.“

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.