Helgarpósturinn - 19.01.1995, Side 30

Helgarpósturinn - 19.01.1995, Side 30
30 MORGUNPÓSTURINN FÓLK FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR 1995 Sölvi • nýorðinn 20 • Að klára MR ef kennurunum tekst ekki að koma í veg fyrir það • feikilega laus og liðugur • trymbill • meira elska alla þannig að ég er á hálum fs.) Yfirlýsing: Fönkstígandinn verður þvílíkur, ekki spurning, og 1995 verður fönkár. Ég held líka að það sé það eina rétta. Já. Lykillinn að góðri helgi er númer eitt, tvö og þrjú að forðast þunglynt og komp- lexerað fólk sem er plága. Ég mundi byrja á því að koma mér í það umhverfi þar sem þetta fólk er ekki til staðar. Það er byrjunarpunktur á góðri helgi. Um fimmleytið á föstudegi er ég sofandi til að safna kröftum fyrir gleðina. Það kemur að því að maður vaknar og þá fer ég í góðra vina hóp. Það hefur verið þannig að Klapparstígurinn hef- ur haft vinninginn í mínum málum og þá aðallega staðurinn tveir tveir, en það er sér- hæfður staður fyrir hitt og þetta fólk og maður á stundum ekkert alltof vel við þar. Síðan leitar maður uppi gæfulegt fólk meðan líður á nóttina við kráarrölt — gleðin ávallt í fyrir- rúmi — og jafnvel reynir maður að koma sér í eftirpartý. En þó verður að taka fram að ég er svo góður drengur að ég reyni eftir megni að forðast sukk og svínarí þannig að eftirpartýið er ekkert endilega inni á kortinu. En ég er áhrifagjarn og dregst oftar en ekki inn í hringiðu atburðarásarinnar. Laugardagar eru ró- legri, þá er maður búinn að hleypa út vikuspennunni. Yfirvegaðari dagar og ég slaka vel á og læt koma mér á óvart. Þá er mikilvægt að þekkja uppátækjasamt fólk. Þessi dagur er óþekkt stærð og oftast skemmtilegri en föstudagarnir. Óvænt uppákoma gæti til dæmis verið að koma heim og þá eru vinir og kunningjar og vandamenn búnir að skipuleggja heljarinnar afmælisveislu mér til heiðurs þó ég eigi ekki afmæli. Það telst ansi óvænt. Ég er í hljómsveitinni 2001 og helgar fara oftast í hljómsveitar- hjakk og djamm. Ég er blessunarlega laus við fataáráttu og eyði engum tíma í tískuvöruverslunum. Ég nota fólk í kringum mig tii að verða mér úti um föt. Ég verð að viðurkenna það, þó að mér sé meinilla við það, þá stunda ég kaffihús. 22 er skemmti- legasti barinn og þar má jafnvel fá útrás fyrir dansfíflið í sjálf- um sér. 2001 er á hundraðogsjötíumiiljónkílómetrahraða þannig að mikill tími minn fer í það en ég verð að viðurkenna að það fer kannski minnstur tíminn í sjálfa spilamennskuna. Eins og Charlie Watts sagði þá hefur hann verið 40 ár í bransanum en 35 ár af þeim hafa farið í það að bíða eftir ein- hverju. I þessu er mikill sannleikur. • v á t ttu/0/hÁiÁh'h Blömaverslanir, blömaframleiðendur „24 ára myndarleg kona óskar eftir að komast í kyntii við ykkur á svipuðum aldri með erótík í huga. Þeir sem hafa áhuga gjarnan leggi inn nafn og sítna- númer ogýtið bara á takka 1. Takkfyrir, heyrumst.“ mmmmmim Botnaðu setningarnar James Dean dó af því að... hann var heimskur og keyrði of hratt. La Toya Jackson er best systkina sinna... vegna þess að hún hefur sérstakt dálæti á slöngum. Enginn er betri bíngól- ottómaður en Ingvi Hrafn... því hann er svo smekklegur karakter á heimavelli. Vala Matt... er afskap- lega snyrtileg og falleg og ég og félagi minn vorum rosalega skotnir í henni þegar við vorum átta ára. U'm/tkic i rösT íosnbvi; !,<S, Hunang HIJ(iAUl)A(í ÞÓRSGÖTU 17 - SÍMt 623495 Veishieldhús Harðar Sjáum um: Árshátíðir — fermingarveislur — brúðkaup — þorrablót - afmœlisveislur - erfisdrykkjur og hvers kyns mannfagnaði. £ Heimsendingarþjónusta £ Vistlegir veislusalir fyrir 20-250 manns VeisiueWhus Harðar Þórsgötu 17 - sími 623495 DREPLEIÐINLEGIR JANÚARDAGAR Vinnan •Þú ert búinn að vera á sömu laununum í mörg ár! •Þú ert miklu klárari en yfirmennirnir! •Þú ert búinn að læra allt sem þú getur í þess- ari vinnu! Heimilið •Þú ert orðinn hundleið/ur á að búa í úthverfi og þurfa alltaf á að vaða snjóinn upp á mitti í leit að leigubíl um miðjar nætur í miðbænum. •Þú býrð enn hjá mömmu og pabba af því þú átt ekki bót fyrir rassgatið á þér. •Það er ennþá formæka í ganginum hjá þér. Elskhuqinn •Þú er hundleið/ur á honum. Hann er þó skárri kostur að vera ekki með neinum. •Þú átt enn eftir að kynna hann fyrir fjöl skyldunni (kannski sem betur fer), en það gerir illt verra því það íþyngir honum. •Þótt hann sé þokkalegasta grey, en hann barasta ekki nógu góður elskhugi. Speqilmvndin • Hamingjan felst í því að vera fimm kílóum léttari, en samt hefur þú ekki orku til þess að gera neitt í því. •Hitt kynið er hætt að veita þér at- hygli. •Þú hefúr ekki skipt um stíl síð- an... .þú manst ekki hvenær. Félaaslífið •Þú þarft að horfast í augu við það að hafa ekki eign- ast einn vin allt árið. •Þú kemst að raun um það að þú hefur verið meira heima að undanförnu en áður. Enginn hefur boðið þér neitt lengi. •Bókin sem þú ert að lesa þessa dagana er Heimskra manna ráð. Kom hún ekki út í fyrra? Og tónlistin sem þú hlustar er sú sama og í janúar í fyrra. •Þú hefur sjálfur ekki staðið fyrir neinni uppákomu lengi. •Þú hefur ekki skipt um áhugamál, síðan þú fékkst áhuga á sundi í barnaskóla. Kvnlífið • Eini tíminn sem þú er farinn að stunda kynlíf er á kvöldin og um helgar. • Þú manst ekki hvaða dag heilum degi í :ð hinu kyninu, þvi kyni sem þú ert veikari fyrir. ( '( ( ( ( (

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.