Helgarpósturinn - 18.05.1995, Blaðsíða 6
FIPKmTÖDAGuR 18
ed
felldasta
frétt
viKunnar
AULAR
ÓSKAST
FYRIR
FRIÐRIK
Alþýðublaðið á
ógeðfelldustu frétt vik-
unnarað þessu sinni. Þeir
greina frá því að síðar á
þessu ári sé ráðgert að
halda veglegt skákmót í
tilefni þess að okkar fyrsti
stórmeistari, Friðrik Ól-
afsson, varð sextugur fyrr
á árinu. Það i sjálfu sér er
hið besta mál en nú er
hugmyndin að stranda á
því að Friðrik er orðinn
svo lélegur í skáklistinni
að ekki fást nógu lélegir
andstæðingar til mótsins.
Ekki er jú hægt að láta af-
mælisbarnið tapa öllum
skákunum á heiðursmót-
inu. Menn innan skák-
hreyfingarinnar eru nú
sagðir leita logandi Ijósi
að nógu „veikum and-
stæðingum".
<\ íy
Þegar farið var af stað
með hugmyndina var nú
ekki gert ráð fyrir að fá
nein unglömb til mótsins.
Nöfn þeirra Guðmundar
Sigurjónssonar, Lar-
sens, Gligorics,
Smyslovs og Korchnojs
voru nefnd í því sam-
bandi. Nú segir Kratinn
hins vegar að þessir menn
séu of sterkir fyrir Friðrik
og ekkert verði af mótinu
nema einhverjir finnist
sem Friðrik geti hugsan-
lega unnið. Ekki stingur
blaðið upp á neinum sem
koma ættu í stað þessara
gamalmenna en varla
væri ónýtt að leyfa afmæl-
isbarninu að etja kappi
við „strákana okkar" sem
virðast reiðubúnir að tapa
hvar og hvenær sem er.
Heimsmeistarakeppnin í handbolta
Þótt miðasala á leiki Heims-
meistarakeppninnar í handbolta
hafi ekki gengið eins og vonir
stóðu til segir Halldór Jóhannsson,
sem sér um miðasöluna á HM, að
þær sölutölur sem nefndar hafa
verið í fjölmiðlum undanfarna
daga fjarri raunveruleikanum.
„Einhvers staðar var talað um
að búið væri að selja miða fyrir
50 milljónir. Þetta er bara rangt.
Talan er mun hærri," segir Hall-
dór.
Aðspurður hver rétt upphæð
sé þá, segist Halldór ekki vilja
nefna ákveðna heildartölu á
þessu stigi.
„Við erum búnir að vera með
fullt hús í Höllinni í fjögur skipti
en í hvert sinn sem það gerist
gefur miðasalan í kringum 10
milljónir í tekjur. Þannig að það
þarf ekki mikinn reiknishaus til
þess að finna jjað út að miðasal-
an er mun hærri en áðurnefnd
tala. Svo hefur mætingin verið
fín hérna fyrir norðan og þokka-
leg í Kópavogi, Hafnarfjörður er
eini staðurinn sem hefur verið
slappur."
Eins og komið hefur fram gerði
Halldór samning við Handknatt-
leikssamband Islands um að
hann hefði einkaumboð fyrir
miðasölu á HM. Samningur þessi
fól í sér að hann ábyrgðist að HSÍ
fengi aldrei minna en 40 milljónir
króna í tekjur af miðasölunni.
Þegar samningurinn var undirrit-
aður í júlí í fyrra var jafnframt
gengið frá tryggingum fyrir þess-
ari upphæð, og skiptust þær
þannig að Akureyrarbær lagði
fram bæjarábyrgð fyrir 20 millj-
ónum en Halldór sjálfur trygg-
ingar fyrir hinum helmingnum.
Fer Sparisjóður Mývetninga með
þær tryggingar. Aðspurður
hvort hann sjái fram á að tapa á
keppninni segist Halldór ekkert
farinn að spá í það.
„Á þessum tímapunkti veit
maður ekkert um það. Stærstu
leikirnir eru eftir. Það er búið að
selja vel á úrslitaleikinn og ég er
viss um að það verður uppselt á
segir Halldór Jóhannsson, sem sér um miðasöluna á HM.
Áhorfendur létu sig ekki vanta í Höllina þegar íslendingar mættu Rússum í fyrrakvöld
en Halldór Jóhannsson, sem sér um miðasöluna á HM, er vongóður um að
enda réttum megin við strikið eftir keppnina.
þann leik og undanúrslitin líka.
Það er náttúrlega sárt að sjá ís-
lendingana ekki spila í átta liða
úrslitunum því það hefði auðvit-
að gefið geysilega miklar tekjur
fyrir keppnina. En það er svo
langt frá því að HM sé búið. Ef
Þjóðverjarnir komast til dæmis
alla Ieið veit ég að það er mikill
áhugi í Þýskalandi fyrir því að
koma og sjá úrslitaleikinn. Ég
neita því að mála skrattann á
vegginn í miðri keppni, það eru
nokkrir dagar og ég yrði bara
brjálaður ef ég væri að velta mér
upp úr því hvort ég tapa á þessu
eða ekki.“
-JK
Debet
Kredit
„Ég held að Margrét sé burðugur og ágætur
stjórnmálamaður. Hún er glæsileg og í góðu sam-
bandi við grasrótina. Margrét er heiðarleg og dug-
leg og ekki í undirmálum. Hún hefur haldið vel á
sínum spilum. Hún er með hjartað á réttum stað
og hennijgeðjast ekki að hrárri valdapólitík,“ segir
Mörður Ámason þjóðvakamaður. „Margrét er of-
boðslega dugleg og heiðarleg og náttúrugreind-
asta manneskja sem ég þekki,“ segir Jón Gunnar
Ottósson, forstjóri Náttúmfræðistofnunar og eig-
inmaður Margrétar. „Hún er góður og traustur
vinur og hæfur stjórnmálamaður,“ segir Ingibjörg
Sigmundsdóttir, vinkona Margrétar og eigandi
Garðyrkjustöðvar Ingibjargar Sigmundsdóttur.
„Margrét er heiðarleg og réttsýn. Einn af fáum
stjórnmálamönnum sem hefur viðhaldið þeim eig-
inleikum. Hún hefur góð tengsl við fólk, talar sama
tungumál og veit hvaða mál brenna á því,“ segir
Hrafn Jökulsson, ritstjóri Alþýðublaðsins.
„Margrét er ágætur félagi og samstarfsmaður. Ná-
vist hennar er þægileg og hún hefur tilfinningu fyr-
ir fólki og högum þess,“ segir Steingrímur J. Sig-
fússon, sem býður sig fram til formanns Alþýðu-
bandalagsins á móti Margréti.
Margrét Frímannsdóttir,
formannsefni Alþýdubandalagsins
„Hún hefur ekki haft mikið málefnalegt frum-
kvæði innan Alþýðubandalagsins. Hún þarf að
finna nýjar lausnir en hinar hefðbundnu og hálf-
úreltu lausnir í hennar flokki. Mér hefur stund-
um fundist vanta á einurð við að taka erfiðar
ákvarðanir en núna hefur hún hins vegar tekið
erfiða ákvörðun,“ segir Mörður Árnason þjóð-
vakamaður. „Hennar stærsti veikleiki er að hún
vinnur of mikið og gefur sér ekki tíma til að
slappa af. Það getur komið niður á vinnunni,"
segir Jón Gunnar Ottósson, forstjóri Náttúrufræði-
stofnunar og eiginmaður Margrétar. „Hún færist
stundum of mikið í fang þar sem hún vill hvers
manns vanda Ieysa,“ segir Ingibjörg Sigmunds-
dóttir, vinkona Margrétar og eigandi Garðyrkju-
stöðvar Ingibjargar Sigmundsdóttur. „Hún á enn-
þá eftir að sýna hver hennar sérstaða er í pólit-
ík. Ég óttast að hún sé of vel upp alin til þess að
ráða við kjaftaskúmana sem nú ráða öllu í þess-
um fúla flokki hennar," segir Hrafn Jökulsson,
ritstjóri Alþýðublaðsins. „Ég vil að menn séu
dæmdir af því jákvæða sem er að finna í fari
þeirra en ekki bomir saman á gmndvelli veik-
leika,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, sem býður
sig fram til formanns Alþýðubandalagsins á móti
Margréti.
Margrét Frímannsdóttir gefur kost á sér til formannskjörs í Alþýðubandalaginu ásamt Steingrími J. Sigfússyni varaformanni flokksins.