Helgarpósturinn - 22.05.1995, Page 7

Helgarpósturinn - 22.05.1995, Page 7
WIWNIUDWGUJR1 FRETTIR f Bankinn tapaði malinu fypir Hæstanetti • „Þetta mál er loks á enda, en átökin kringum þaö hafa verið gífurleg og afar einkennilega aö allri afgreiðslu þess staðið. Eftir þennan slag við harðan viðskiptaheiminn og yfirmenn bankastofnana landsins hafa runnið á mann tvær grímur og í dag spyr ég sjálfa mig hvers litli maðurinn í þjóðfélaginu má sín eiginlega." Þetta sagði Valdís Ragnars- dóttir, íbúðareigandi á Klapp- arstíg í Reykjavík og einn þriggja stefnenda Lækjargötu- útibús ísiandsbanka, í viðtali við Póstinn, en bankinn beið nýverið lægri hlut í dómsmáli sem áfrýjað hafði verið til Hæstaréttar vegna viðskipta- hátta og meðferðar fimm ára gamals húsnæðisstjóraarláns er var iagt á rangan reikning og bankinn neitaði að bakfæra. Bankinn var dæmdur til fullrar endurgreiðslu og hlaut Valdís rúmar þrjár milljónir með vöxtum frá arinu 1990, en fyrir tveimur árum þurfti hún að leysa út lífeyri sinn til að forða íbúðinni frá gjaldþroti. Forsögu málsins má rekja til þess að þá 25 ára gömul dóttir Valdísar festi kaup á íbúð þessari hjá Fasteignasölu Vagns E. Jónssonar í desemb- er 1989. Drógu kaupin tölu- verðan dilk á eftir sér. í nýjasta tölublaði Neytenda- blaðsins er ítarleg umfjöllun um málið þar sem lögfræðileg atvik eru rakin. Segir þar að óheiðarlegir viðskiptahættir íslandsbanka hafi þótt full- sannaðir fyrir Hæstarétti og bankinn því verið dæmdur til fullrar endurgreiðslu til Valdís- ar á peningum þeim er bygg- ingaverktakinn stakk undan til eigin nota og íslandsbanki neit- aði að endurgreiða. „í samskiptum við lögfræð- inga íslandsbanka og aðra menn, er höfðu með þetta mál að gera og ég biðlaði til um far- sæla lausn, fékk ég að kynnast hörðu andliti viðskiptaheims- ins sem almennur neytandi og óbreyttur borgari og oft hef ég velt því fyrir mér hvernig farið hefði ef ég væri Jón forstjóri en ekki Valdís Ragnarsdóttir neyt- andi. Það hefur oft hvarflað að mér hvort ég hefði hlotið aðra afgreiðslu mála væri ég karl- maður í viðskiptaheiminum en ekki miðaldra kona. Það tók okkur fimm ár að vinna okkur inn sannlegan rétt okkar, en á þeim tíma hafði ég skrifað til Félags fasteignasala, yfirbanka- stjóra íslandsbanka og lög- fræðideildar bankans þar sem allir svöruðu á sama veg og sögðu mér að þegar fólk setti undirskrift á skuldabréf skipti litlu máli hvað um það yrði; greiðslu væri ávallt krafist. Þó voru mannlegi þátturinn og almennt viðskiptasiðferði þyngri á metunum fyrir dóm- stólum þegar upp var staðið. Þessu máli er nú lokið og dóm- fest og þakka ég Guði fyrir að réttlætið náði loks fram að ganga.“B Valdís Ragnarsdóttir, jbúðar- eigandi og stefnandi íslands- banka: „Neytandinn má sín oft ekki mikils gagnvart hörðum heimi viðskiptanna, en við unn- um þetta mál og ég er sátt í dag.“ Guðjón Albertsson, fyrrverandi deildarstjóri hjá Tryggingastofn- un. Hefur kært Karl Steinar fyrir meint lögbrot til Umboðsmanns Alþingis. hefði verið lögð niður með sam- þykki Guðmundar Árna Stefáns- sonar, þáverandi heilbrigðisráð- herra. Guðjón segist hafa í höndunum bréf þar sem segir að samþykkis hafi ekki verið leitað og það því ekki verið veitt. Guðjón segir að staðhæfingin um að honum hafi verið boðið starf yfirlögfræðings standist ingastofnunar vegna meintra brota við ráðningu tryggingayf- irlæknis og að Karl Steinar og Jón Sæmundur Sigurjónsson hjá tryggingaráði segðu af sér. Nið- urstaðan í máli Hrafns fól í sér að tryggingaráð hefði staðið rangt að málum en ekki var kveðið á um að um skaðabóta- skyldu væri að ræða. Júlíus Vals- son, fyrrverandi tryggingayfir- læknir, hyggst einnig Ieggja fram kæru, annars vegar á hendur fjármálaráðherra vegna brott- rekstrar úr starfi tryggingayfir- læknis og hins vegar ætlar hann að vísa kæru um skattsvik til Umboðsmanns Alþingis. FLEIRI ÓÁNÆGÐIR Pósturinn hefur heimildir fyrir því að þau mál sem hér um ræð- ir séu ekki einsdæmi. Margir fleiri séu óánægðir með stjórn stofnunarinnar og íhugi jafnvel að láta af störfum, „pústrar séu með mönnum“. Þar sé um að ræða háttsetta menn sem mis- líki hvernig Karl Steinar komi fram við starfsmenn og hagi sér í fyrirtækinu. Einn heimildamað- ur sagði að meðal annars spilaði pólitík inn í málið þar sem krat- ar hefðu verið allsráðandi innan Tryggingastofnunar um árabil.B Hrafn Friðriksson, fyrrverandi yfir- læknir í heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneyti. Kærði trygginga- ráð til umboðsmanns. ekki því að hann hafi þegar gegnt því starfi um árabil. Og hann segir að með því að „bjóða" honum þetta starf í stað hins gamla hafi Karl Steinar ver- ið að þvinga hann til að hætta hjá stofnuninni. STÖÐUR EKKIAUGLÝSTAR Ýmis óreiða hefur tíðkast inn- an veggja Tryggingastofnunar ríkisins. Til dæmis hafa ráðning- Julius Valsson, fyrrverandi trygg- ingayfirlæknir. Ætlar líka að kæra til umboðsmanns. arsamningar ekki verið gerðir við starfsmenn, jafnvel þótt þeir hafi verið háttsettir og starfað hjá stofnuninni um árabil. Heim- ildamaður Póstsins segir að yfir- leitt hafi stöður innan stofnun- arinnar verið veittar eftir pólit- ískum skoðunum og mönnum ekki verið gefinn kostur á að hækka í tign vegna stjórnmála- skoðana. Lausar stöður hafa heldur ekki verið auglýstar og gagnrýnir Guðjón það sérstak- lega að honum hafi ekki verið gefinn kostur á að sækja um deildarstjórastöðuna yfir hinni nýju sameinuðu deild, heldur hafi maður með mun skemmri starfsreynslu verið ráðinn, án auglýsingar. „Forstjóri Trygg- ingastofnunar ákvað upp á sitt eindæmi að Haukur Hafsteins- son skyldi hljóta stöðuna,“ segir Guðjón. Eins og fram hefur komið hafa fleiri mál er varða Trygginga- stofnun komið inn á borð til Um- boðsmanns Alþingis og enn fleiri eru á leiðinni. Fyrir mánuði fékk Hrafn Friðriksson, fyrrver- andi yfirlæknir heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis og skólayfirlæknir, niðurstöður í kæru sinni á hendur trygginga- ráði og heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneyti til Umboðs- manns Alþingis. Hann krafðist þess í Póstinum í mars að opin- ber rannsókn færi fram á starf- semi ráðuneytisins og Trygg- O Ýmís óreiða hefur tíðkast innan veggja Tryggingastofnunar rík- isins. Tii dæmis hafa ráðningarsamningar ekki verið gerðir við starfsmenn, jafnvel þótt þeir hafi verið háttsettir og starfað hjá stofnuninni um árabil. UNUM VEISLU. Hagkaupsmenn HÖFÐINGLEGIR FRAIVI ÚR HÓFI Kringlukaupmenn munu ekki alls kostar sáttir við framkomu Hagkaups- manna, sem nú fyrir stuttu stóðu fyrir vœnni veislu á efri hœiI Kringl- unnar í húsnœði Hag- kaups og veittu þeirJó- hannes Jónsson Bónus- kaupmaður og Sigurður Gísli Pálmason, forstjóri Hagkaups. Að sögn þeirra var tilgangur gleðskaparins einungis sá að mœta jafningjum á óformlegan hátt í þœgi- legu umhverfí. Þetta ýtti við mörgum smákaup- manninum og verslunar- eigandanum í Kringlunni og fínnst þeim sem menn þessir hafi sýnt nœgan yfírgang í viðskiptahátt- um og samkeppnisað- ferðum. Ekki sé nóg með að stórhaupmennirnir geti leyft sér að bjóða upp á alls kyns tilboð vegna stœrðar fyrirtœkja sinna, heldurséu þeir teknir upp á að fylla samkeppnisaðila sína. Mörgum þykir nú nóg komið afþvígóða.M BREYTINGAR Á nœstu dögum tekurAl- þingi ákvörðun um breytingar á útvarpsráði, en Ijóst er að miklar mannabreytingar verða þar. Sjálfstœðismennirn- ir Hjálmar Jónsson og Halldóra Rafnar hœtta en líklega verður Davíð Stefánsson áfram. Fram- sóknarmenn fá inn mann til viðbótar við Gissur Pétursson og verður það líklega Kristj- ana Bergsdóttir, formað- ur framsóknarkvenna. Gert er ráð fyrir að Kvennalisti ogAlþýðu- bandalag skipti hinum sœtunum með sér. Full- trúi Kvennalista verður líklega Þórunn Svein- bjarnardóttir.M

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.