Helgarpósturinn - 26.06.1995, Blaðsíða 10

Helgarpósturinn - 26.06.1995, Blaðsíða 10
ÚTLÖND Dagur samkynhneigðra var haldinn hátíðlegur í flest- um borgum heims á laugar- daginn með tilkomumiklum skrúðgöngum. Notuðu sam- kynhneigðir tækifærið og vöktu athygli á því réttinda- leysi sem þeir þurfa að búa við enn þann dag í dag. í Zúrich kröfðust hommar og lesbíur þess að fá að gifta sig eins og annað fólk og settu lesbíurnar, sem sjást hér á myndinni, brúðkaup á svið til að undirstrika ósk sína. í New York var einnig mikið um dýrðir og tóku nokkur þúsund manns þátt í skrúð- göngunni sem þar var farin. Var þess meðal annars minnst þegar hommabar á Christopher Street var lagð- ur í rúst árið 1968.B ísraelskir hermenn særðu 51 og skutu einn til bana á vestur- bakka Jórdanar í gær þegar Pal- estínumenn kröfðust þess að fangar yrðu látnir lausir. Á mynd- inni sjást heiftúðugir Palestínu- menn bera kistu hins 23 ára há- skólanema Shadi Azzymeh um stræti arabísku borgarinnar Na- blus. Vitni segja að hermenn sem stóðu við Jneid-fangelsið hafi ít- rekað varað við því að þeir myndu skjóta á Palestínumenn- ina, sem voru flestir háskólanem- ar og aðstandendur fanga í þessu stærsta fangelsi vesturbakkans. Hermennirnir vörpuðu svo tára- gasi yfir hópinn og hófu skothríð. Vitni sáu hvar höfuð Shadis sprakk í sundur við byssuskotið. Palestínumenn bera líkkistu Shadi Azzymeh um götur Nablus skömmu eftir að ísraelskir hermenn skutu hann til bana. Fyrr um daginn hafði 22 ára og asna sinn í loft upp auk þess liðsmaður Hamas-samtakanna, að særa þrjá ísraelska her- Ma'wya Roka, sprengt sjálfan sig menn.H Minnast Nicole / heiminum ríkir mikil samkeppni á milli nýút- skrifaðra fatahönnuða og nýliðunum reynist erfítt að hasla sér völl að loknu námi. Á dögun- um útskrifaðist hópur nemenda frá fatahönn- unarskóla í London. Stellu McCartney tókst aldeilis að vekja athygli á sér og lokaverkefni sínu. Hún fékk föður sinn, Paul McCartney, til að semja tónlistina og þœr Naomi Campbell, Kate Moss og Yasmin Le Bon til að sýna fötin. Ekki voru allir jafn- ánœgðir með þetta framferði Stellu og einn samnemandi hennar sagði að þarna sœist berlega hverju peningar og frœgð fengju áork- að.m Kertamessa á ströndinni til MINNINGAR UM NlCOLE, EN O.J. SlMPSON FÆR EKKI AÐ MÆTA. Vinir og œttingjar Nicole Simpson og Ronalds Gold- man, sem voru myrt fyrir ári, komu saman á ströndinni í Orange og héldu kertamessu til rninningar um þau. OJ Simpson var ekki boðið. Á ströndina mœttu 500 manns, þar á meðal móðir Nicole og dóttir hennar, Tanya. á þessari strönd léku Nicole og systir hennar sér þegar þœr voru litlar stúlkurM Dóttir McCartneys VEKUR ATHYGLI VIÐ ÚTSKRIFT Jackson og Presley eru sæl og ánægð hvort með annað og reyna að eign- ast börn. barnaníðingshátt svaraði hann því að hann gæti aldrei skaðað barn. Allt sem hafi verið sagt á sínum tíma hafi verið lygi, lygi og aftur Iygi. Þá var hann spurð- ur hvað fengi 36 ára gamlan mann til þess að sofa í sama rúmi og ungir drengir og svar- aði hann því til að öllum væri velkomið að taka þátt í náttfata- partíi með sér. Lisa Marie segir að börnin elski Jackson, þau elti hann inn á baðherbergi og kúri hjá honum í bólinu. Þau skötu- hjú hafa í hyggju að flytja frá Bandaríkjunum og hugsanlegir staðir til að setjast að á séu Suð- ur-Afríka eða Sviss. Michael endar viðtalið á léttu nótunum. Hann þurfi enn að laga ýmislegt við útlit sitt. Hann gæti til dæm- is hugsað sér að skipta um augu eða kinnar.H n Jackson i Um þessar mundir er mikið Iað gerast í lífi poppstjörnunnar Michaels Jackson og konu hans ILisu Marie Presley. Plata hans HlStory: Past, Present And Fut- ure: Book 1, sú fyrsta í fjögur ár, Ier nýkomin út og nú eiga þau einnig eins árs brúðkaupsaf- Ímæli. Það vakti mikla athygli á sín- Ium tíma þegar fréttist af óvæntu hjónabandi þeirra Jack- sons og Presley í Dóminíkanska Ilýðveldinu í fyrra. Sögurnar þóttu ótrúlegar en svo var farið Iað líta svo á að um leið væri að ræða hjá Jackson til þess að Ihrista af sér orðið sem af hon- um fór um að hann væri barna- níðingur. Allt frá þeim tíma er | Lisa og Michael giftu sig hefur * sviðsljósið hvílt á þessu pari; |j3oppkónginum og rokkprins- Skötuhjúin leiðast upp heimtröðina á ársbrúð- kaupsaf- mælinu. essunm. Fyrir skömmu komu þau skötuhjú fram í bandarísku sjónvarpi þar sem þau voru spurð spjörunum úr, spurninga sem fæstir aðrir hefðu þurft að svara. Þar meðal annars viður- kenndu þau að hafa stundað kynlíf. Hins vegar olli það aðdá- endum vonbrigðum að þrátt fyrir að hafa reynt ýmislegt á Lisa Marie ekki enn von á barni. Jackson segir að það sé á valdi guðanna hvenær krakkinn komi. Þetta þóttu vonbrigði vegna þess að fólk er farið að bíða eftir erfingja sem búi yfir tónlistarhæfileikum úr báðum ættum. Hello IRN KURAIBOLINU HJA JACKSON í viðtali við glansritið þvertekur Lisa Marie fyrir að þau hafi gifst vegna hentugleika. Hún segist elska Michael, dá hann og virða — líka þegar hann sé í stúdíóinu og hún í eld- húsinu. Þau séu ósköp venjulegt fólk. Hún segir að þau rífist stundum, fari saman út í búð og út að borða og líka að það sé al- rangt að þau sofi hvort í sínu herberginu. Michael Jackson lýsir þeirra fyrstu kynnum þannig að hann hafi verið sautj- án ára að skemmta á sviði með Jackson Five en hún hafi verið sjö ára í hópi áhorfenda. Síðan segist hann hafa fylgst með henni og þegar hann frétti af skilnaði hennar bað hann einn lögfræðinga sinna að hafa uppi á henni til að hann gæti boðið henni á stefnumót. Þegar Jack- son var spurður út í meintan Bítur nef af samfanga sínum-og tyggur þao Manni nokkrum, sem situr af sér tólf ára fangelsisdóm í Kuwa- it, virðist eitthvað hafa fipast í mannasiðunum, því hann beit nef samfanga síns af og tuggði síðan. Vitni segja að bitvargurinn hafi ráðist að fórnarlambi sínu eftir að hafa hrætt það með því að gelta eins og hundur framan í það. Skömmu áður hafði árásar- maðurinn reynt að gera sér mat úr nefi fangelsislæknisins, en án árangurs. Þetta eru asnar.B Clinton safnaði 70 mllljónum króna til styrktar væntanlegu for- setaframboði sínu á fjáröflunar- samkomu í heimabæ sínum, Little Rock, um helgina. Clinton lof- ar að hætta Forseti Bandaríkjanna, Bill Clinton, lýsti því yfir um helgina að næsta kosningabarátta yrði sín síðasta. Clinton sækist nú eft- ir útnefningu sem frambjóðandi Demókrataflokksins fyrir næstu forsetakosningar, sem verða haldnar haustið 1996. Sam- kvæmt bandarískum lögum má hver maður aðeins gegna emb- ætti forseta samtals í átta ár. Ef Clinton nær kjöri í næstu kosn- ingum yrði hann aðeins 54 ára gamall þegar forsetaferli hans lyki. Clinton hefur nú náð að skrapa saman tæpum 400 millj- ónum króna af þeim 2.700 millj- ónum sem áætlað er að væntan- leg kosningabarátta hans kosti. Menn hafa velt fyrir sér hvort Clinton hefði hug á að bjóða sig fram til öldungadeildarinnar eða jafnvel aftur fram til forseta, færi svo að hann tapaði næst, en hann hefur semsagt lýst því yfir að hann muni aldrei bjóða sig fram aftur í nokkrum öðrum kosningum.H

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.