Helgarpósturinn - 26.06.1995, Síða 11

Helgarpósturinn - 26.06.1995, Síða 11
FRETTIR IMeg svör við ntmnÉipi Páll B. Baldvinsson, listrænn ráðunautur Borgarleikhússins: „Allflestir umsækj- endur eru í per- sónulegu sambandi við leikhússtjóra og hafa þegar fengið munnleg svör viö umsókn sinni.“ • „Eg hygg að allflestum þeim leikurum er æsktu stöðu hjá Borg- arleikhúsinu næsta leikár hafi nú borist munnleg svörfrá Sigurði Hróarssyni leikhússtjóra og því úr lausu lofti gripið að fólk bíði átekta án viðbragða leikhússtjóra," sagði Páll B. Baldvinsson, list- rænn ráðunautur Borgarleikhúss- ins, í samtali við Póstinn, en um- sóknarfrestur leikara og leik- stjóra til Leikfélags Reykjavíkur rann út 17. febrúar síðastliðinn. Þrátt fyrir að langt sé liðið á sumarið hafa formleg svör um mannaráðningar ekki enn borist umsækjendum og verkefnalisti leikársins er ekki fullmótaður enn, þótt í bígerð sé að fylla hann bráðlega af verkum. Mikill- ar óánægju hefur gætt vegna málsins og er nú svo komið að nokkrir umsækjendur íhuga að draga umsóknir sínar til baka. „Reyndar má vera að nokkrum einstaklingum hafi ekki verið gef- in svör ennþá, því að ekki hefur til fullnustu verið gengið frá mannaráðningum ennþá, en ég reikna nú með að skrifleg svör verði gefin út með haustinu. Þó eru allflestir leikarar í persónu- legu sambandi við leikhússtjóra og hafa fengið svör í viðtölum við Sigurð nú að undanförnu. Af þeim sökum ætti niðurstaðan að Íiggja nokkuð ljós fyrir.“ JRGARLEIKHUSINU ÞRONGUR STAKKUR SKORINN „Vinnutilhögun sem þessi er afar eðlileg í íslensku leikhúslífi, þar sem Stefán Þjóðleikhús- sUóri stendur að sínum ráðning- um á afar svipaðan máta og Sig- urður. Til að mynda hafa leik- stjórum sem sóttu um stöður hjá Þjóðleikhúsinu næsta vetur ekki verið gefin föst svör enn- þá,“ sagði Páll Baldvin. Að lokum sagði Páll verkefna- skrá Borgarleikhússins ekki full- ákveðna enn en verið væri að skoða ýmsa möguleika í stöð- unni. „Borgarleikhúsinu er um þessar mundir afar þröngur stakkur búinn. Þrátt fyrir að aukafjárveiting Reykjavíkur- borgar hafi nýverið borist inn á borð leikhússins, ofan á eðlilega fjárstyrki til rekstrar leikhúss- ins, stendur leikhúsið frammi fyrir erfiðum tímum og af þeim sökum er verið að leita nýrra leiða í rekstri þess.“B Hvar er ná- ungakær- leikurinn? Ökumenn sýna lítinn náunga- kærleik. Það var alltént reynsla Sveins Rúnars Jóhannessonar þeg- ar hann datt af hjólinu sínu á miðvikudagskvöldið með þeim afleiðingum að hann slasaðist. Ökumenn sem leið áttu hjá höfðu ekki fyrir því að stöðva bíla sína og bjóða honum hjálp. Sveinn er á sextánda ári og býr við Lindarberg í Hafnarfirði. Þar skammt frá er mikil brekka sem endar í krappri beygju. Sveinn var að hjóla niður brekkuna á nokkurri ferð og náði ekki beygj- unni. „Mér fannst sem hjólinu væri kippt undan mér og það næsta sem ég vjssi var að ég kastaðist í götuna. Ég rak hnén í gangstétt- arkantinn svo blæddi úr. Þegar ég stóð upp verkjaði mig í allan líkamann. Þótt ég æpti af sárs- auka og blóðið lagaði úr mér óku þrír bílar framhjá mér án þess að bjóðast til að aðstoða mig. Mér datt í hug að leita eftir hjálp í næsta húsi en háttalag öku- mannanna dró úr mér móðinn svo ég ákvað að láta það vera. Ég óttaðist að mæta sama viðmót- inu þar og staulaðist því að lok- um sjálfur heim.“ Sveinn komst heim við illan leik og fór móðir hans með hann á slysavarðstofuna þar sem gert var að sárum hans. Auk þess að slasast á hnjám meiddist hann á olnbogum og höndum. Hann var ekki með hjálm en tókst að koma í veg fyrir höfuðáverka með því að bregða höndunum fyrir sig í fallinu. Tekin var röntgenmynd af öðrum fætinum en hann reyndist óbrotinn. „Mig langar til að beina þeim orðum til ökumanna að þeir nemi staðar og athugi hvort þeir geti aðstoðað þegar þeir sjá slas- að fólk og sýni þar með örlítið meiri náungakærleik.“B ætlar að leita til Mannréttindadómstóls Evrópu Kærír Hæstaré \ , „ 'f*\ , Gísli Kon- ráðsson. Seg- ir Hæstarétt draga taurn valdaaflanna í þjóðtélag- inu. „Þessi dómur er rakalaus þvæla og greinilegt að Hæsti- réttur þorir ekki að dæma gegn valdaöflunum í þjóðfélaginu. Dómararnir virðast ekki vera annað en strengjabrúður Kol- krabbans,“ segir Gísli Konráðs- son málari, en hann hyggst leita til Mannréttindadómstóls Evr- ópu vegna þess að honum þykir hann ekki hafa náð fram rétti sínum hjá íslenskum dómstól- um. Gísli gagnrýnir að í nýlegum dómi í máli hans gegn Sjóvá/Al- mennum og Brimborg hf. hafi Hæstiréttur ekki tekið tillit til neinna gagna sem lögð voru til grundvallar dómi héraðsdóms, sem var Gísla í vil. tUNUÐU FRAMHJA OG TOKU EKKI EFTIR SLYSINU Tildrög málsins eru þau að 24. nóvember 1989 var Gísli að sögn þvingaður til útafaksturs er hann mætti þremur trukkum úr Brimborgarlestinni svoköll- uðu sem voru á sýningarferð um landið. Gísli heldur því fram að trukkarnir hafi ekki ekið í samræmi við aðstæður og þvingað hann til þess að aka út af, þarna hafi verið um óeigin- legan árekstur að ræða sem trukkarnir hafi átt sök á. Þetta staðfesta vitni og lögreglu- skýrslur vitna um óeðlilega litla breidd á veginum og hjólför á vettvangi studdu frásögn Gísla. Einnig þótti það til marks um óvarkáran akstur lestarinnar að enginn bílstjórinn tók eftir því að bíll Gísla hafði lent utan veg- ar. Gísli missti meðvitund og bíllinn gjöreyðilagðist. Hann gerði kröfu á hendur Brimborg hf. og Sjóvá/Almennum um að fá bíiinn bættan auk flutnings- kostnaðar og bílamissis. LÍTID GERT ÚR HÉRAÐSDÓMI, LOGREGLU OGVITNUM Nýverið hafnaði Hæstiréttur endurupptöku á máli Gísla á hendur Sjóvá/Almennum og Brimborg hf. þrátt fyrir að lög- fræðingur Gísla, Ragnar Aðal- steinsson, hefði gert ýmsar at- hugasemdir við dóminn og fært fram mörg rök fyrir endurupp- töku. Gísli telur vinnubrögð Hæstaréttar forkastanleg. Hann segir að Hæstiréttur hafi ekki tekið tillit til neinna gagna sem dæmt var út frá í héraðsdómi og þannig gert lítið úr dóminum, lögreglu og vitnum. Gísli segir að svo virðist af öllum vinnu- brögðum sem Hæstiréttur hafi ákveðið niðurstöðuna fyrirfram til að standa vörð um hagsmuni valdaaflanna í þjóðfélaginu. Þetta mál hafi ekki mátt ná fram að ganga vegna þess fordæmis- gildis sem það hefði fyrir trygg- ingafélögin. HÆSTIRÉTTUR TÓK EKKI TILUTTIL NEINNA GAGNA Meðal þess sem fram kom í rökum Ragnars Aðalsteinssonar fyrir endurupptöku var staðfest- ing framburðar Sigvalda Guð- mundssonar, lögregluvarðstjóra í Búðardal, um akstursskilyrði og aðstæður á vettvangi, en áreið- anleiki lögregluskýrslna hans var dreginn í efa í Hæstarétti auk framburðar þeirra Elínar Melsted og Moniku Einarsdóttur, sem urðu vitni að slysinu. Ann- að sem þeir Ragnar og Gísli gagnrýna er að Gunnar M. Guð- mundsson, einn þriggja dómara, hafi sett sig í sæti vitnis til að vitna um ágæti vegarins sem slysið varð á. Aðrar hugleiðing- ar dómara um aðstæður á slys- stað eru einnig gagnrýndar þar sem rétt hefði verið að nota lög- regluskýrslur af vettvangi. Gunnar M. Guðmundsson er ekki fastur dómari við Hæsta- rétt en var kallaður til sérstak- lega til að dæma í þessu máli. Fyrir nokkrum árum sat hann um skeið í lögmannanefnd tryggingafélaganna og hefur •Gísli gagnrýnir að í nýlegum dómi í máii hans gegn Sjó- vá/Almennum og Brimborg hf. hafi Hæstiréttur ekki tek- ið tillit til neinna gagna sem lögð voru til grundvallar dómi héraðsdóms, sem var Gísla í vil. Gísli gagnrýnt að Gunnar sé of tengdur tryggingafélögunum til að geta kveðið upp hlutlausan dóm á hendur þeim. WGGINGAFELOGIN TEFJA FYRIR MALUNUM Gísli segir að svo virðist sem tryggingafélögin geri sér það að leik að tefja mál og áfrýja dóm- um héraðsdóms og koma þann- ig í veg fyrir að fólk geti staðið í kostnaðarsömum málaferlum. Til dæmis hafi þetta tiltekna mál nú þegar kostað hann stórar fjárhæðir auk allrar þeirrar fyr- irhafnar og óþæginda sem fylgja málaferlum í sex ár. Gísli vill að lokum taka fram að hann sé ekki að fara með málið í fjölmiðla til að vekja athygli á sjálfum sér. „Tilgangurinn er að vekja at- hygli á slælegum vinnubrögðum Hæstaréttar og benda fólki á að það þurfi að hugsa sig vandlega um áður en það reynir að leita réttar síns í því réttarkerfi sem við búum við á íslandi í dag,“ segir Gísli Konráðsson.B SVEINBJÖRN ER AÐ SKRIFA Blöðruveldið. BJÖRN AFTUR? Eins og komid hefur fram í Póstinum er dag- skrárstjóri sjónoarps, Sveinbjörn Baldvinsson, í fjögurra mánaða leyfi til að klára handrit að Blöðruceldinu. Innan sjónvarpsins gengur nú sú saga að Soeinbjörn komi ekki aftur úr leyf- inu heldur hœtti sem dagskrárstjóri. ■ Biður RÁÐUNEYTIÐ Þorsteinn fékk bréf frá LÖGMANNI ÓLAFS ÞAR SEM KVARTAÐ ER YFIR HARALDI. mmsmm Jón Magnússon, lögmaður Ólafs Gunnarssonar refsifanga, hefur sent Þorsteini Pálssyni dóms- málaráðherra beiðni um íhlutun ráðuneytisins. Fer lögmaðurinn fram á að Þorsteinn hlutist til um að jafnrœðisreglu laga verði beitt og Ólaf- ur fái eðlilega meðferð. í bréfi lögmannsins eru rakin ýmis dœmi um það hvernig Ólafur hefur oerið lagður í einelti af fangelsismálayfirvöld- um. Eru þau að hluta til rakin til ágreinings Ól- afs og Haraldar Johannes- sen, yfirmanns Fangels- ismálastofnunar. Kemur fram að Ólafur hefur verið vistaður á A-gangi á Litla-Hrauni, en þar þykir vistin verri en annars staðar og er ein- göngu fyrir erfiða refsi- fanga. Þeir sem dœmdir voru með honuni hafa allir verið fluttir annað.M

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.