Helgarpósturinn - 26.06.1995, Qupperneq 15
ÍÞRÓTTIR
IMMNUIBWGIUR^
Jón Arnar var nokkuð (rá sínu besta (100 metra hlaupi og
langstökki á meistaramóti FRÍ um helgina. Hann hljóp á
10,92 sekúndum og stökk 7,64 metra og sigraði í báðum
greinum.
Jon a toppnum
=8.619 stig
Jón Arnar Magnússon
tugþrautarkappi hefur
náð nijög góðum árangri í
mörgum einstökum grein-
um tugþrautarinnar,
hann er til dæmis íslands-
methafi í 110 metra
grindahlaupi og lang-
stökki. Pósturinn gerði sér
að leik að safna saman
besta árangri Jóns Arnars
í hverri grein og hvað sá
árangur gefur í stigum.
Að sjálfsögðu er hér að-
eins um leik að ræða og
rétt að taka fram að hér
er ekki nauðsynlega um
að ræða árangur sem
náðst hefur í tugþrautar-
keppni. Áðurnefnt Is-
landsmet Jóns Arnars í
grindahlaupinu setti
hann til dæmis í Tallinn á
dögunum, en þar keppti
hann aðeins í tveimur
greinum. Á tugþrautar-
mótinu sein haldið var í
Austurríki fyrir skömmu
náði Jón Arnar hins vegar
sínum besta árangri fram
að þeim tíma i heilum
fjórum greinum; kúlu-
varpi, 400 metra hlaupi,
stangarstökki og 110
metra grindahlaupi. Það
liggur þó í augum uppi að
mun erfiðara er að ná
toppárangri í einstökum
greinum á tugþrautar-
móti þar sem keppt er i
fimm greinum á dag. Það
er athyglisvert að Jón
Arnar hefur náð sínum
besta árangri í öllum
greinunum nema tveim-
ur, langstökki og spjót-
kasti, á þessu ári og sýnir
það vitanlega í hvíiíkri
framför þessi afreksmað-
ur er.
Heildarstig Jóns Arnars
í þessari samantekt eru
8.619, árangur sem hefði
skilað honum silfri og
verið aðeins 57 stigum frá
gullinu á hinu geysisterka
móti í Austurríki á dögun-
um og er 216 stigum yfir
gildandi Norðurlanda-
meti Svíans Henriks Daga-
ard, en það er 2.403 stig.
Islandsmet Jóns Arnars
frá í Austurríki er 8.237
stig.H
Besti árangur Jóns Arnars
í einstökum greinum
Grein Arangur Stig
100 metra hlaup 10,59 sek. 956
Langstökk 8,00 metr. 1061
Kúluvarp 15,37 metr. 812
Hástökk 2,06 metr. 859
400 metra hlaup 47,82 sek. 918
110 metra grind 14,19 sek. 950
Kringlukast 48,18 metr. 833
Stangarstökk 4,90 metr. 880
Spjótkast 58,98 metr. 738
1.500 mhlaup - 4:51,18 metr. 612
Samtals 8.619
Júggar og K
tapteir
Lið Júgóslava stendur best að
vígi í A-riðli Evrópukeppni lands-
liða í körfuknattleik eftir leiki
helgarinnar. Júgóslavar hafa
jafnmörg stig og Grikkir og ítalir
en eiga leik til góða á þá. Á laug-
ardag sigruðu Júgóslavar ítali
87-74 og voru þeir Djordevic, Dan-
ilovic og Divac stigahæstir. í B-
riðli eru Rússar og Frakkar efstir
og jafnir með 7 stig að loknum
fjórum leikjum en Króatar hafa 6
stig eftir þrjá leiki. Á myndinni
sjást leikmenn Frakka og Tyrkja
kljást í leik sem endaði 90-76
Frökkum í hag.H
Eiður Smári í aðallið PSV
sumarfríi á Islandi um þessar mundir.
„Þetta leggst allt vel í mig,“
segir Eiöur Smári Guðjohnsen, en
hann hefur verið valinn í aðaliið
PSV sem kemur saman til æf-
inga 12. júlí næstkomandi. Eiður
lék með varaliði félagsins á síð-
asta keppninstímabili og náði
það mjög góðum árangri, lék
meðal annars til úrslita við
varalið Barcelona á sterku móti
í Sviss fyrir stuttu. Aðeins einn
annar leikmaður úr varaliðinu,
sextán ára Hollendingur, jafn-
aldri Eiðs Smára, var færður úr
varaliðinu í aðalliðið.
„Undirbúningstímabilið hefst
12. júlí með þrek- og hlaupaæf-
ingum. Síðan verður farið eitt-
hvert í æfingabúðir og væntan-
lega leiknir æfingaleikir áður en
deildarkeppnin hefst, upp úr
miðjum ágúst,“ segir Eiður
Smári.
„Hópurinn er 22 menn og er
hann eiginlega eins og tvö lið,
því þjálfarinn, Dick Advocat, viií
hafa eitt ellefu manna byrjunar-
lið og síðan einn skugga fyrir
hvern leikmann í því. Mitt hlut-
verk er að vera skuggi brasil-
íska framherjans Ronaldo," segir
Eiður Smári.
„Mér líkar eiginlega betur að
leika á miðjunni, þar er maður
meira í boltanum og meira með
í spilinu, en það er samt ágætt
að vera fremst," segir Eiður
Smári, en hann hefur einmitt
lengstum leikið þá stöðu með
varaliðinu.
Margir knattspyrnuáhuga-
menn vildu gjarnan sjá Eið
Smára í landsliðstreyjunni í liði
með föður sínum, Arnóri Guð-
johnsen.
„Nei, ég get ekki sagt að ég
hafi hugsað neitt sérstaklega út
í það eða gert mér einhverjar
vonir um það,“ segir Eiður
Smári þegar hann er spurður
hvort hann telji auknar líkur á
að hann verði valinn í A-lands-
liðið nú eftir að hann er kominn
í aðallið PSV. „Það væri auðvit-
að plús að vera valinn og heiður
fyrir mig.“
Collymore ekki
til Liverpool?
Einhver snurða virðist hlaupin
á þráðinn varðandi félagsskipti
Stans Collymore úr Nottingham
Forest yfir í Liverpool. Colly-
more var seldur fyrir metfé, 850
milljónir króna, fyrir viku en nú
vill hann fá fimm prósent af upp-
hæðinni í eigin vasa. Stjórn For-
est segist nú halda síður og segir
að ef Collymore ætli að halda
kröfum sínum til streitu sé bara
best að hætta við allt saman og
hann geti mætt til vinnu hjá
þeim 10. júlí næstkomandi.
Forráðamenn Liverpool segj-
ast hins vegar ekki vita betur en
allt sé í stakasta lagi og að geng-
ið verði formlega frá félagsskipt-
unum í þessari viku.B
Torfi Magnússon kemurtil bjargar
sínu gamla félagi.
Enginn vildi
verða
formaður
Það mátti litlu muna að brátt
yrði um körfuknattleiksdeild
Vals núna í sumarbyrjun. Eftir
mikla fjárhagserfiðleika var svo
komið að enginn fékkst til að
taka að sér formennsku í deild-
inni og innan aðalstjórnar var
farið að ræða um að leggja körfu-
knattleiksdeildina niður. Mörg-
um þótti það einkennileg tillaga,
sérstaklega í ljósi þess að fjár-
hagsstaða handknattleiks- og
knattspyrnudeildar er í raun enn
verri.
Lyktir málsins urðu þær að Er-
lendur Eysteinsson mun taka að
sér formennsku, en hann hefur
verið formaður landsliðsnefndar
KKÍ sem reyndar verður lögð
niður innan skamms. Auk þess
hafa nokkrir úr fyrri stjórn sam-
þykkt að sitja áfram.
Þá eru allar líkur á að fyrrver-
andi landsliðsþjálfari og leik-
maður Vals um árabil, Torfi
Magnússon, taki að sér þjálfun
karlaliðs Vals. Svali Björgvinsson
mun síðan áfram þjálfa kvenna-
liðið.B
Heimir Karlsson flytur úr landi.
Heimir fer
til Bretlands
Heimir Karlsson, íþróttafrétta-
maður hjá RÚV og þjálfari ann-
arrardeiídarliðs IR, hefur nú
sagt báðum þessum störfum
lausum og er á leið til Bret-
lands til starfa við einkafyrir-
tæki sem hann hyggst setja á
laggirnar í samvinnu við annan
aðila.
Heimir vildi ekki skýra frá
því að svo stöddu í hverju
starfsemi fyrirtækisins fælist
en sagði þó að það tengdist á
engan hátt sjónvarpsmálum.
Heimir, sem fer utan nú á
allra næstu dögum, lýsti sínum
síðasta leik fyrir ríkisútvarpið í
gærkvöldi, en það var leikur FH
og Breiðabliks í fyrstu deild-
inni í knattspyrnu.B
Miðnætun
Svokallað Miðnæturhlaup
Panténe Pro-V fór fram í Reykja-
vík um helgina. Keppt var í
tveimur vegalengdum, þriggja og
tíu kílómetra. Það var Sigmar
Gunnarsson, UMSB, sem sigraði í
tíu kílómetra hlaupi karla á tím-
anum 32:02 og Hulda Björk Páls-
dóttir úr ÍR hljóp sömu vega-
lengd á 38:16 mínútum og sigraði
í kvennaflokki. Þau Ingvar Garð-
arsson, HSK, og Ásdís María Rún-
arsdóttir, ÍR, sigruðu í þriggja
kílómetra hlaupinu.H
Keppendur við
rásmarkið í
Jónsmessu-
hlaupinu.
Gunnar Egils-
son ökuþórer
skipstjóri á
eina bátnum
sem gerður er
út frá Selfossi
• Gunnar Egilsson, ökuþór í torfærunni, er borinn og barnfædd-
ur á Selfossi og býr þar ásamt konu sinni og fjórum börnum.
Hann er skipstjóri á Páli ÁR-401 sem er eini fiskibáturinn sem
gerður er út frá Selfossi.
Gunnar „svali“, eins og hann
er kallaður um þessar mundir,
keppir í flokki sérútbúinna
jeppa á Svaia. Gunnar hefur átt
bílinn síðastliðin þrjú ár.
Fyrri eigendur voru ekki
ófrægari menn en Árni Kópsson
og Árni Grant. Bíllinn leit ekki vel
út þegar Gunnar keypti hann,
eða eins og hann segir sjálfur:
„Það var rosalegt að sjá hann —
hann var alveg boddílaus, alveg
eins og beinagrind. Mér leist
ekkert á hann en ég vissi að
þetta var góður bíll og ákvað að
slá til. Það má segja að ég sé bú-
inn að smíða bílinn að mestu
leyti upp.“
Fjölskylda Gunnars hefur
einnig mikinn áhuga á torfær-
unni og fylgir honum á flestar
keppnir og hvetur til dáða. Sem
dæmi um áhuga sona hans þá
halda þeir ásamt öðrum krökk-
um á Selfossi sína eigin torfæru-
keppni; með stigagjöf, aðstoðar-
mönnum, dómurum og verð-
launum.
Bílana hafa þau smíðað sjálf,
málað og merkt eins og fyrir-
myndirnar og felst keppnin í að
draga þá á eftir sér í spotta yfir
tilbúnar torfærur án þess að
velta þeim.
KIKKIÐ, SPENNAN, HRAÐINN
- En af hveiju eru menn í tor-
færunni?
„Það er kikkið, spennan, hrað-
inn. Það gerist eitthvað þegar
maður er að keyra,“ sagði Gunn-
ar.
- Hvað er það fyrsta sem
kemur upp í hugann eftir
veltu?
„Djöfullinn, verst að komast
Gunnar ásamt aðstoðarmönnum: „Annars eru aðstoðarmennirnir hátt í
áttatíu prósent af árangrinum og ég hef verið mjög heppinn með aðstoð-
armenn."
ekki upp! — Að velta er ekki það
versta, þessar tvær veltur í Jós-
epsdaínum voru léttar. Það
versta er að fara aftur fyrir sig,“
sagði Gunnar, sem þekktur er
fyrir að taka áhættu í akstrinum.
„Annars eru aðstoðarmenn-
irnir hátt í áttatíu prósent af ár-
angrinum og ég hef verið mjög
heppinn með aðstoðarmenn.
Maður þarf líka að standa sig vel
þeirra vegna en það er ekkert
Íeyndarmál að aðstoðarmenn-
irnir hafa oft bjargað mér með
hæfni sinni og góðum móral.“
- Hver er helsti andstæðing-
urinn — er það Frissi fríski?
„Manni leiðist ekkert að hafa
hann neðarlega en annars er
það svolítið sérstakt með þessa
íþrótt að menn eru alltaf tilbúnir
að hjálpast að og lána hver öðr-
um. í fyrra velti Helgi Schiöth og
ég fór að hjálpa honum að gera
við. Það kostaði mig vinnings-
sæti en hann endaði í næsta
sæti fyrir ofan mig. Mórallinn er
svona, — menn vilja hafa heið-
arlega keppni.
Nú í sumar getur allt gerst;
við þessir fjórir efstu þurfum að
lenda mjög neðarlega svo við
klúðrum Islandsmeistaratitli.
Það er enginn öruggur og það
verður síðasta keppnin sem
sker úr um íslandsmeistaratitil-
inn. Þess vegna er mjög mikið
atriði að dómaramistök komi
ekki upp.“
- Hvemig kanntu við viður-
nefnið Gunnar „svali“?
„Þetta er allt í lagi, hefur gott
augiýsingagildi,“ sagði Gunnar,
en hann er með auglýsinga-
samning við Sól hf.H
Ekki Vinni
JONES ÍSLANDS
„Jú auðvitað eru aðeins
verri dómarar í annarri
deildinni, þessu er
deildaskipt eins og lið-
unum,“ segir Lúövík
Jónasson, hinn harð-
skeytti varnarmaður
Stjörnunnar, en hann
hefur tvisvar verið rek-
inn út afþað sem afer
keppnistímabilinu. Hann
vill ekki kenna slœmri
dómgœslu um brott-
rekstrana, hann var
ekki alls kostar ánœgð-
ur með þann seinni en
segist hafa átt þann
fyrri fyllilega skilinn.
Lúðvík segir ennfremur
að hann sé ekki endilega
miklu harðari en aðrir
leikmenn og vill ekki
kannast við að hann sé
nefndur Vinny Jones ís-
landsM
ÍVAR í HAUKA
Framherjinn Ivar Ás-
grímsson hefurákveðið
að leika með œskufélagi
sínu, Haukum, nœsta
vetur. Hann hefur um
nokkurra ára skeið leik-
ið ogþjálfað með Snœ-
felli og ÍA, oftast með
ágœtum árangri. Reynir
Kristjánsson mun áfram
þjálfa Hauka nœsta vet-
ur, en Haukar hyggjast
leika án erlends leik-
manns nœsta vetur sem
í vetur.M
Þorbergur ætlar að ná í
Eyjapeyja.
Þorbergur
TRYLLIR
Yfírlýsing Þorbergs Aðal-
steinssonar, fyrrverandi
landsliðsþjálfara í hand-
knattleik ogþjálfara
ÍBV, um að hann hyggist
sœkja þá „Eyjapeyja“
sem uppi á landi eru hef-
ur vakið misjafna hrifn-
ingu annarra þjálfara í
1. deild. Margir þessara
leikmanna eru nefnilega
með samninga við sín fé-
lög og þótti mönnum
þetta óþörf bírœfni hjá
landsliðsþjálfaranum
fyrrverandiM