Helgarpósturinn - 24.07.1995, Page 17
MWNUÐWGUR
• Þaö gerist ekki á hverjum degi að menn innan við þrítugt hætta
í boltanum til að einbeita sér að vinnunni. Þess finnast þó dæmi og
nýlegast er að Jón Örn Stefánsson, fyrrverandi línumaður í hand-
boltaliði Hauka, er búinn að kaupa reksturinn á Sprengisandi.
„Það verða miklar og gagnger-
ar breytingar á matseðlinum um
næstu mánaðamót,“ sagði Jón
Örn um breytingar á matseðli.
Eins og þeir muna sem í Kántrý-
bæ Hallbjörns Hjartarsonar hafa
komið þá var þar sérlega
skemmtilegur matseðill til
skamms tíma sem innihélt með-
al annars réttina „Slappa kúrek-
ann“ og „Riddara gresjunnar“.
Má eiga von á réttum eins og„-
Þvögu í teignum", „Skoti í slá“
eða einhverju þess háttar?
„Ég á nú ekki von á því.“
Er ekki erfitt að hætta í
skemmtilegu sporti og einbeita
sér að atvinnunni?
„Þetta er mjög skemmtilegt
líka, en auðvitað saknar maður
boltans alltaf.“H
Jón Örn af
línunni í eldhúsið.
smassar a Graf
Þrátt fyrir að Steffi Graf sé enn
að fagna sjötta Wimbledon-titlin-
um og nýrri tískuvörulínu í sínu
nafni eru óveðursblikur á lofti.
Skattyfirvöld í Þýskalandi telja
sig nefnilega eiga eitthvað van-
talað við stúlkuna. í maí var gerð
húsleit heima hjá henni, en yfir-
völd gruna hana og Peter föður
hennar um eitthvað misjafnt
Faðirinn sér um fjármálin: „Ég
treysti því að hann hafi gert það
rétt. “U
Tekur skatturinn verð-
launapeninginn?
g -t'jj
Jw tíjlt
jk w \ mm \ i
JónArnar —-■HPI
ætlarað V ^
Gautaborg
" &
„Erað
komast í
magnað
form“
„Það hefur gengið mjög vel
fram að þessu, ég er að komast í
magnað form,“ segir Jón Arnar
Magnússon tugþrautarkappi. Jón
Arnar heldur utan fjórða ágúst
næstkomandi til Gautaborgar, en
heimsmeistarakeppnin í frjálsum
íþróttum hefst á Ullevi-leikvang-
inum þann sjötta. „Ég var í æf-
ingabúðum í Svíþjóð og tók þátt í
móti í Karlskrona þrettánda júlí.
Ég keppti í tveimur greinum, lang-
stökki og 110 metra grindahlaupi.
Ég sigraði í langstökkinu, þrátt
fyrir ekkert sérstakt stökk, 7,37
metra. Hins vegar varð ég þriðji í
grindinni, en bestu menn Svía,
Dana og Norðmanna tóku þátt og
tókst mér að leggja Norðmann-
inn,“ segir Jón Arnar en hann
hljóp á góðum tíma, 14,22 sek-
úndum, sem er aðeins þremur
hundruðustu frá hans eigin ís-
landsmeti.
„Þetta hefur verið að koma í
köstunum hjá mér, í spjótinu, kúl-
unni og kringlunni,“ segir Jón
Arnar. „Og í stangarstökkinu hef
ég verið verulega á uppleið." Að-
spurður segist Jón Arnar stefna á
að bæta eigið íslandsmet og ef
möguleiki væri á að Norðurlanda-
metið fyki í leiðinni slægi hann
ekki hendinni á móti Jjví. „Maður
gefst ekki upp í síðustu greininni,
fimmtán hundruð metra hlaup-
inu, ef maður eygir Norðurlanda-
metið,“ segir Jón Arnar að lokum.
Jón Arnar keppti í fimm grein-
um í Bikarkeppni FRÍ um helgina.
Hann stökk aðeins 4,40 metra í
stangarstökki, á best 4,90. í lang-
stökki stökk hann 7,79 metra, á
best 8,00. í spjótkasti bætti Jón
Arnar sig um tvo sentímetra,
kastaði 59 metra slétta. Hundrað
metrana hljóp hann á 10,57 sek-
úndum, sem er örlítil framför en
meðvindur var of mikill, eins og í
110 metra grindahlaupi; í því
hljóp hann á 14,12 sekúndum, en
íslandsmet hans er 14,19 sekúnd-
ur.B
Þeir eru báðir gamlir refir,
eiga báðir A-landsleiki að baki
og eru miðjumenn. Nú spila þeir
í annarri deild og eru áberandi í
sínum liðum. Sveinbjörn Hákon-
arson spilar með Þór á Akureyri
og Njáll Eiösson spilar með og
þjálfar Víði í Garði.
Ætlið þið aldrei að hœtta?
„Ég ætlaði nú eiginlega að
vera hættur en við erum liðfáir
og vonandi geri ég eitthvert
gagn,“ segir Njáll og bætir við að
hann sé í ágætisformi. „Maður
lyftir og hleypur, það er mikil-
vægt fyrir menn á þessum aldri,
maður lendir í allskyns pústrum
tog því er mikilvægt að vera í
góðu standi. Því er ekki að neita
að það tekur mikið frá manni að
þjáifa líka. Maður er að minnsta
kosti ekki að spila sinn besta
bolta, — vonandi var maður
betri þegar maður var yngri.“
Ertu á leið í old-boys?
„Nei, það líður vonandi á
löngu þar til maður lendir í því,
sá bolti er allt of hægur. Annars
á ég unga konu og hún heimtar
að ég sé í góðu formi og svo hef
ég svo gaman af þessu, þannig
að ég held áfram.“
Hvernig er það með þig
Svenni, ertu að fara að leggja
skóna á hilluna?
„Ég hef nú aldrei gefið út nein-
ar yfirlýsingar um að ég sé að
hætta, en ég tek undir með
Njalla, því ég á líka unga konu
sem vilí hafa mig í formi! Ég hef
alltaf sagt að um leið og ungu
strákarnir fara að taka mann í
hlaupunum þá hætti ég, en það
hefur ekki gerst ennþá. Ég hef
náttúrulega verið heppinn með
meiðsl og t.a.m. var það í fyrsta
skipti í vetur sem ég var frá um
einhvern tíma. Reyndar finn ég
fyrir því núna að það fer mjög í
taugarnar á yngri leikmönnum í
hinum liðunum þegar maður
tekur þá, ætli þeim finnist ég
ekki of gamall, en þeir vanmeta
mig yfirleitt."
SlGURÐUR BJÖRGVINSSON EKKI
DAUÖUR ÚR ÖLLUM ÆÐUM.
SlGGI MEÐ ÞAÐ
■MUattlMWll
FERLINUM
Einn ellijaxlinn, Sigurður
Björgvinsson, spilar nú í
4. deild með Reyni úr
Sandgerði. Sigurður
skoraði eitt marka liðs-
ins um daginn í 1-3-sigri
gegn Gráttu. í viðtali við
Víkurfréttir kom fram að
Sigurður taldi þetta fal-
legasta markið á ferli
sínum, sem einkenndist
aflengd frekar en
markaskorun. Markið
varskorað úr auka-
spyrnu utan teigs og
ha fnaði boltinn efst í
markhorninu. Reynis-
menn eru nú efstir í B-
riðliM
Það hlýtur þá að vera gaman
að sóla þá fram og aftur?
„Það hefur verið það í mörg
ár.“
Nú eruð þið svipaðir leikmenn,
þú og Njáll, báðir frekar lágvaxn-
ir miðjumenn, vel spilandi, og
svo eruð þið komnir rétt yfir þrí-
tugt, kannski farnir að nálgast
fertugt...
„... já og svo erum við frekar
hárlitlir en ég hef þó vinninginn
á Njalla þar; ég á eftir fleiri hár
og þarafleiðandi fleiri ár í bolt-
anum.“
Það er engin spurning að það
yrði sjónarsviptir að þeim félög-
um.l