Helgarpósturinn - 18.01.1996, Side 2
2
FIMMTUDAGUR18. JANÚAR1996
gerð á vegum stöðvarinnar.
Nú heyrum við hins vegar að
Jón Tryggvason kvikmynda-
gerðarmaður sé að ganga frá
samningum við þá á Stöð 3 um
framieiðslu á spjallþáttum.
Jón er sagður vera á höttun-
um eftir stjórnendum að þess-
um þáttum og vill fá þá Gunn-
ar Smára Egilsson, fyrrver-
andi ritstjóra, Andrés Magn-
ússon vefara, Hrafn Gunn-
laugsson kvikmyndastjóra og
Hrafn Jökulsson ritstjóra tii
að skiptast á um að stýra þátt-
unum...
Ekkert lát er
á styrjöld-
inni í Lang-
holtskirkju og
söguburðurinn
verður sífellt
magnaðri. Við
messur um jól
og áramót söng kirkjukórinn
ekki eins og ailir vita. Séra
Flóki lét hins vegar vel yfir
kirkjusókninni og fór það mjög
fyrir brjóstið á kórfélögum. Nú
gengur sú saga að útsendari
kórsins hafi verið við eina há-
tíðarmessuna og talið 115
kirkjugesti. Séra Flóki hafi hins
vegar skráð í kirkjubók að 240
manns hafi komið til messu
þann dag...
*
Isíðasta Helg-
urpósti sögð-
um við frá nýju
viðurnefni
sjálfstæðu kon-
unnar Láru
Margrétar
Ragnarsdóttur
sökum tíðra
utanlandsferða
hennar: „Er-
Iendína“. Úr
allt öðrum
geira heyrum
við nú af öðr-
um ansi ferða-
glöðum manni
í ábyrgðarstöðu, sjálfum Frið-
bert Pálssyni, allsherjargoða
Háskólabíós. Friðbert mun
dvelja svo oft á erlendri
grundu vegna viðskipta fyrir-
tækis síns við útlenska kvik-
myndarisa og dreifingaraðila,
að glottandi starfsmenn eru
sín í millum farnir að kalla
hann „Friðlaus“...
Vaxandi
líkur eru
á að Guðrún
Pétursdóttir
og Ellert B.
Schram bjóði
sig fram til
forseta, en
þau eru sem kunnugt er hvort
með sínum hætti tengd Hanni-
balsfjölskyldunni. Þótt Jón
Baldvin Hannibaisson, mágur
þeirra beggja, hafi ekki gefið
upp hug sinn lét hann hafa
Þaö er aö veröa daglegt brauö í
Kaffileikhúsinu aö uppselt sé áöur
en auglýst er. Á laugardagskvöldiö
veröur þar frumflutt enn ein
nýjungin og nú undir undir
grískum formerkjum
Zorba, Ouzo
& Moussaka
Þó að við höfum ekkert aug-
lýst er dagskráin farin að
spyrjast það vel út að við höf-
um þegar ákvéðið að sýna
hana að minnsta kosti átta
sinnum,“ segir Ása Richards-
dóttir, framkvæmdastjóri
Kaffileikhússins, sem í sam-
vinnu við Zorbahópinn frum-
flytur á laugardaginn gríska
dagskrá_ í þeim tilgangi að
kynnna íslendingum tónlist og
sögu Grikkjans Mikis Þeodor-
akis.
Það var Sif Ragnhildardótt-
ir — sem margir gætu ímynd-
að sér af raddblænum einum
saman að væri grísk að upp-
runa — sem átti hugmyndina
að því að hópurinn kæmi sam-
an, en hann skipa auk Ragn-
hildar tveir af helstu Grikk-
landssérfræðingum landsins;
rithöfundarnir Sigurður. A.
Magnússon og Kristján Áma-
son. Leikstjóri er Þómnn Sig-
urðardóttir, en aðrir sem
leggja sitt af mörkum eru þau
Jóhann Kristinsson píanóleik-
ari, Þórður Ámason sem spil-
ar á gítar og boúzouki og Eyr-
ún Olafsdóttir sem túlkar
söng Sifjar á táknmáli — sem
ku vera mikil sjónræn upplif-
un.
Til að fullkomna menningar-
áhrifin verður áður en dag-
skráin hefst borinn fram grísk-
Þótt ótrúlegt
megi viröast er
þaö ekki fyrr en
í kvöld sem
aðdáendaklúbbur
Söngkonan Sif Ragnhildardóttir átti hugmyndina að grísku dagskránni sem frumflutt verður á laugardagskvöld.
...fær hinn hégómagjarni
Steingrímur Hermannsson
fyrir að ætla að öllum líkindum
að stíga fram fyrir skjöldu á
morgun, föstudag, og lýsa yfir
framboði sínu til forseta. Með
því myndi Denni dæmalausi
slá að minnsta kosti fimm flug-
ur í einu höggi. í fyrsta lagi létt-
ir hann þrautir Davíðs Odds-
sonar, sem hefur mánuðum
saman leitað að forsetaefni til
að sitja fyrir sig sem varamað-
ur í fjögur ár meðan hann klár-
ar sig á stjórnmálasviðinu og
býr í haginn fyrir eftirmanninn.
í öðru lagi hefur Steingrímur
Framsóknarflokkinn til vegs og
virðingar í samfélaginu, þar
sem flokkurinn myndi þannig
eignast tvo af þremur mest
áberandi valdhöfum þjóðar-
innar. í þriðja lagi finnur hann
sér eitthvað annað við að
dunda í ellinni en að smíða og
bæta í listaverka- og myntsafn
Seðlabankans. í fjórða lagi fær
frú Edda loksins útrás fyrir
gestgjafahæfileika sína eftir
nokkurra ára hlé. í fimmta lagi
nær hann að sparka pólitískt í
punginn á öfundarmönnum
sínum á félagshyggjuvængn-
um, sem um nokkra hríð hafa
unnið hörðum höndum að því
að tryggja að Davíð fari í for-
setann, hætti í pólitík, gefi
þannig vinstriflokkunum svig-
rúm til fylgisaukningar og fái
nógu slappan andstæðing til
að hann sigri örugglega (til
dæmis Ólaf Ragnar)...
ur matur fyrir þá sem vilja. Á
borðum verður þjóðarréttur
Grikkja, Moussaka, ásamt
grísku brauði og grísku salati
með þjóðardrykknum Ouzo,
en þess má geta að eftir
tveggja ára pásu fer þessi anís-
drykkur loks að fást aftur í rík-
inu.
Að sögn Ásu er dagskráin
sett saman í þeim tilgangi að
létta fólki lundina í skammdeg-
inu og hafa þau í Kaffíleikhús-
inu fullan hug á að tengjast
öðrum þjóðum með sama
hætti, það er að segja þar sem
maturinn er jafnmikið atriði og
menningin.
Bítlanna veröur
stofnaöur á
íslandi.
A von á bítlum á öllum aldri
Ahuginn er gífurlegur og ég
á ekki eingöngu von á að
fólk yfir fertugt mæti á stofn-
fundinn heldur bítlar á öllum
aldri,“ segir Eirikur Einars-
son sem kallar sig Eirík frum-
bítil, en hann hefur staðið í
ströngu undanfarið við að
hrinda í framkvæmd margra
ára gömlu áhugamáli, sem er
stofnun aðdáendaklúbbs í
kringum hina bresku Bítla á
íslandi.
Stofnfundurinn verður nán-
ar tiltekið á Hard Rock klukk-
an níu í kvöld og er eins og
grísku dagarnir til þess fallinn
að lyfta brúnum landsmanna
eftir „...a hard day’s night“.
Flestir, að minnsta kosti Bítla-
aðdáendur, furða sig á því að
ekki skuli löngu vera búið að
stofna aðdáendaklúbb Bítl-
anna hér á landi, en slíkir
klúbbar blómstra nú um allan
heim í kjölfar nýs Bítlaæðis.
Hvert verður hlutverk og
starf Bítlaklúbbsins?
„Við stefnum að því að
stofna það öflugan Bítlaklúbb
að við getum haft að minnsta
kosti einn starfsmann í fullri
vinnu við klúbbstarf, sem er
starf sem ég hefði sjálfur
áhuga á að sinna. Ætlunin er
að halda fundi mánaðarlega,
árshátíðir, útgáfu fréttabréfs
og síðast en ekki síst að fara í
hópfeð á hina árlegu Bítlahá-
tíð í Liverpool í ágúst, sem
verður öflugri með hverju ár-
inu.“
Hver er uppáhaldsbítillinn
þinn?
„Ég geri ekki upp á milli
þeirra. “
Þess má geta að meðal
þeirra sem boðað hafa komu
sína á Hard Rock í kvöld eru
Gunnar Þórðarson, Rúnar
Júlíusson og Þorgeir Ást-
valdsson.
það eftir sér í norsku blaði á
dögunum að hann hefði auga-
stað á konu nokkurri í emb-
ættið. Þeir sem til hans þekkja
eru ekki í vafa um hver sú
kona er í ljósi þess að Jón
Baldvin hefur gjarnan haft það
á orði í samsætum, að Hanni-
balarnir hafi Schramarana
undir hælnum en hafi ekki roð
við Engeyjarættinni...
Kaffi Reykjavík verður vett-
vangur sérstæðra fagnað-
arfunda föstudaginn 19. janú-
ar þegar gamla Hafskipsgeng-
ið — starfsmenn til sjós og
lands — ætlar að hittast þar á
árlegum fundi sínum, en þessi
liður hefur verið fastur punkt-
ur í tilveru þeirra undanfarinn
áratug. Viðskiptablaðið greinir
frá því að hófið hefjist stund-
víslega klukkan 17:00 og það
er því hægur vandinn fyrir for-
vitna velunnara og haturs-
menn Hafskips sáluga, að
mæta á staðinn þá og bregða
sér á glugga veitingahússins á
Vesturgötu 2 — eða jafnvel
koma askvaðandi inn ef því er
að skipta...
Eftir að ákveðið var að setja
allt púður Sjónvarpsins í
dægurmálaþáttinn Dagsljós í
haust hefur 19:19 Stöðvar 2
átt verulega undir högg að
sækja. Frá og með 1. febrúar
hyggst Stöð 2 hins vegar
svara samkeppninni með því
að bæta við aukafréttatímum
klukkan tólf á hádegi og fjögur
og sex síðdegis og hefja frétta-
magasínþáttinn 19:19 nítján
mínútum fyrr eða klukkan sjö
á virkum dögum. Þetta þýðir
jafnframt að fjölga þarf á
fréttastofunni. Eftir því sem
HP kemst næst
hefur Þorsteinn
J. Vilhjálmsson,
útvarpsmaður á
Rás 2, verið ráð-
inn til að létta
undir með dæg-
urmálagenginu
hjá samkeppnisaðilanum, með
því skilyrði að hann „komi sér
fyrst niður á jörðina". Þá hef-
ur HP heimildir fyrir því að
Benedikt Sigurðsson, fráfar-
andi fréttamaður á RÚV, komi
til með að sjá um morgunfrétt-
irnar á Bylgjunni...