Helgarpósturinn - 18.01.1996, Blaðsíða 8
8
RMMTUDAGUR18. JANUAR1996
Héraösdómur Reykjavíkur hefur fengiö tii úrlausnar harkalegt deilumál eins sendiferöabílstjóra og Bíla-
stæöasjóðs borgarinnar. Lögfræöingur sjóösins segir bílstjórann hafa ákveðnar skoðanir á því hvenær
sendibílstjórar eigi aö greiöa í stööumæla og hvenær ekki. Bílstjórinn segir sjóöinn ekki fara eftir eigin
starfsreglum og harðneitar að borga. Dæmi eru um einstaklinga sem skulda Bílastæöasjóöi hundruð
þúsunda króna.
Nú set ég hnefann i borðið
- segir Grétar G. Guðmundsson sendibílstjóri og telur tímabært að stöðva yfirgang Bflastæðasjóðs.
Eg er búinn að standa í þrefi
við Bílastæðasjóð Reykja-
víkurborgar á þriðja ár og tími
til kominn að málið fari fyrir
dómstóla. Sjóðurinn krefst
þess að ég borgi í stöðumæla
meðan ég er að losa eða taka
vörur, en það stangast á við lög
og reglur. Það var kominn tími
til að setja hnefann í borðið og
fá þá til að hætta þessum yfir-
gangi,“ sagði Grétar G. Guð-
mundsson sendiferðabílstjóri í
samtali við Helgarpóstinn.
Bílastæðasjóður Reykjavík-
urborgar hefur stefnt Grétari
fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur
út af ógreiddum stöðumæla-
sektum. Upphæðin er ekki há í
þessu tilfelli og nær ekki tíu
þúsund krónum að sögn Grét-
ars. Hann segir málið snúast
um það hvort sendibílstjórum
beri að greiða í stöðumæla eða
ekki þegar þeir eru að koma
vörum í verslanir og stofnanir.
Sigurður A. Þóroddsson, lög-
maður Bílastæðasjóðs, sagði
að það hefði orðið samkomulag
beggja aðila að vísa þessu máli
til meðferðar í Héraðsdómi, en
slíkt er fátítt þegar um ógreidd
stöðugjöld er að ræða. í þessu
tilviki væri ekki um háar upp-
hæðir að ræða en dæmi væru
um að einn og sami maður
skuldaði Bílastæðasjóði hundr-
uð þúsunda króna.
„Maðurinn hefur ákveðnar
skoðanir á því hvenær sendibíl-
stjórar eiga að greiða í stöðu-
mæla og hvenær ekki. Hann tel-
ur líka að sendibílstjórar megi
leggja uppi á gangstéttum og í
stæði fyrir fatlaða, svo eitthvað
sé nefnt,“ sagði Sigurður A.
Þóroddsson.
En er engin undanþága fyrir
sendibílstjóra frá því að greiða í
stöðumœla?
„Nei. Ekki er mér kunnugt um
það.“
Eg borga ekki
„Ég vil ekki borga í stöðu-
mæla þegar ég er að dreifa
vörum um bæinn. Þeir vilja
víst að ég sé inni í bílastæða-
húsum meðan ég er að koma
vörum í verslanir. Samkvæmt
starfsreglum Bílastæðasjóðs
og lögreglusamþykktinni hafa
sendibílstjórar heimild til að
stöðva bílana við verslanir til
að koma þangað vörum án
þess að greiða í mæli. Þeir fara
ekki eftir sínum eigin reglum,“
sagði Grétar G. Guðmundsson.
„Viðskiptin við Bílastæða-
sjóð eru á þann veg að ef mað-
ur skrifar þeim bréf og biður
um niðurfellingu á atriði A í
dag þá er það fellt niður en á
morgun er atriði A hins vegar
ekki fellt niður. Þeir eru letja
menn til að sækja rétt sinn og
segja bara að það sé ódýrara
að borga en standa í einhverju
þrefi. Auðvitað er miklu dýr-
ara fyrir mig að vera með lög-
fræðing í vinnu í langan tíma
en að borga Bílastæðasjóði
einhverja fimmhundruðkalla.
En mér fannst rétt að stöðva
þennan yfirgang og því er mál-
ið komið fyrir dómstóla,“
sagði Grétar.
Sumir skulda stórfé
Þeir eru ófáir bíleigendurnir
sem lenda í klónum á árvökul-
um stöðumælavörðum borgar-
innar, sem gegna starfi sínu af
mikilli samviskusemi, jafnvel
um of að sumra dómi. Standi
menn ekki skil á ógreiddum
stöðugjöldum kann svo að fara
að bíll þeirra verði boðinn upp
til að kreista út greiðslu gjald-
anna. Sigurður A. Þóroddsson,
lögmaður Bílastæðasjóðs, var
spurður hvort mörg dæmi
væru um erfiða skuldara.
„Það er nú sjaldan sem það
kemur fyrir að slík máli fari fyr-
ir dómstóla. Þó kemur það fyr-
ir ef menn skulda mikið vegna
margra bíla og þá erfitt að fara
annaðhvort aðfarar- eða upp-
boðsleiðina. Það eru til dæmi
um menn sem hafa skuldað
hundruð þúsunda króna í bíla-
stæðagjöld. Öðru hvoru koma
fram menn sem aldrei borga
sín gjöld. Þeir eru gjarnan á
einhverjum verðlausum bíl-
druslum og segja bara að við
getum hirt druslurnar ef við
viljum," sagði Sigurður og
stundi við.
SG
Kosningabaráttan í Dagsbrún er nú í hámarki en kosið verður um nýja stjórn félagsins á föstudag og
til klukkan 21 á laugardag að kosningu lýkur. Forystumenn beggja lista báru sig vel þegar Sæmundur
Guðvinsson ræddi við þá í gær.
Næsti formaður
án tóbaksdósa
Asunnudagsmorgun verður
ljóst hvort A-listi eða B-
listi hefur sigrað í stjórnarkjöri
Dagsbrúnar. Það liggur hins
vegar fyrir nú þegar að næsti
formaður félagsins mun ekki
flagga vörumerki Guðmundar
J. Guðmundssonar; tóbaks-
dósum og snýtuklút, hvernig
sem kosningarnar fara.
„Ég átti föður sem tók í nefið
en sjálfur hef ég aldrei lært
það. Guðmundur er líklega bú-
inn að taka í nefið fyrir mig. Ég
reykti en hætti því og hef ekki
hugsað mér að fara að nota
tóbak aftur,“ sagði Halldór
Björnsson, varaformaður
Dagsbrúnar og formannsefni
A-listans.
Af B-lista er Kristján Árna-
son formannsefni og hann
neytir ekki tóbaks. Ekki tókst
að ná tali af Kristjáni í gær en
hins vegar náðist í Sigurð Rún-
ar Magnússon, sem er varafor-
mannsefni A-listans. Hann við-
urkenndi strax að vera mikill
neftóbaksmaður. „Það er Guð-
mundi Joð að þakka eða kenna
að ég tek í nefið. Þegar við fór-
um að vinna saman reykti ég
tvo pakka á dag en Guðmund-
ur fékk mig til að skipta og fara
yfir í neftóbakið. Það er því
ljóst að þegar B-listinn tekur
við völdum verður áfram tekið
í nefið á Lindargötunni þótt
það verði ekki í formannsher-
berginu. Það gefst vel að taka í
nefið. Menn fá tíma til að
hugsa meðan þeir eru að því
og verða þess vegna ekki eins
æstir,“ sagði Sigurður Rúnar.
Finn ekki
þessa andstöðu
„Úrslitin liggja ekki fyrir fyrr
en búið verður að telja upp úr
kjörkössunum, en ég get ekki
fundið annað en okkur sé mjög
vel tekið og ég finn ekki þessa
miklu andstöðu sem hinir segja
að sé gegn okkur í félaginu,“
sagði Halldór Björnsson.
„Við erum bara með okkar
stefnu, sem er fyrst og fremst
sú að hækka kauptaxtana og
breyta þeirri launastefnu sem
hefur verið í gangi hér, reyndar
með okkar samþykki og ann-
arra, það er þessi svokallaða
þjóðarsáttarleið. Við erum líka
að boða breytingar á starfshátt-
um félagsins og einnig erum við
með betri starfsmenntun á odd-
inum, en hún hefur kannski
ekki verið í nógu fyrirrúmi hér.
Við teljum að hún geti verið lyk-
illinn að því að menn fái bætt
kjör,“ sagði Halldór.
Má þá ekki segja að þetta
mótframboð hafi ýtt viðykkur og
hvatt núverandi stjórn til að taka
til hendi?
„Ja, það er nú svo að Dags-
brún er 90 ára gamalt félag og
því eðlilegt að menn þurfi ein-
hvern tímann að breyta hlutun-
um. Það hafa orðið miklar
breytingar í stjórn Dagsbrúnar
þótt formaðurinn hafi verið hér
í mjög langan tíma. Formaður
eins félags er nú einu sinni
ímynd félagsins eins og forsæt-
isráðherra er hjá ríkisstjórn.
Það er því kannski ekki undar-
legt að menn haldi að við höf-
um gert litlar breytingar ef þeir
horfa bara til eins manns í fé-
laginu. En það hafa komið nýir
menn í stjórn félagsins með
stuttu millibili ef ekki árlega.
Það er hins vegar eins og eng-
inn muni eftir því og horfi bara
á eitt andlit," sagði Halldór
Björnsson.
Sambandslaus forysta
Það var ekki annað að heyra
á Sigurði Rúnari Magnússyni en
að frambjóðendur A-lista væru
önnum kafnir nánast allan sól-
arhringinn við að afla listanum
fylgis meðal Dagsbrúnar-
manna.
„Við byrjum klukkan sjö á
morgnana áður en þeir byrja að
vinna og svo eru kaffi- og mat-
artímar nýttir til hins ýtrasta.
Síðasti fundurinn á þriðjudag
var klukkan hálftíu um kvöldið
og fundartíminn fer alltaf langt
fram úr áætlun," sagði Sigurð-
ur.
Hvað er það sem helst brenn-
urá mönnum á þessum fundum?
„Það eru kjörin og innri mál-
efni félagsins. Mikið er rætt um
sambandsleysi núverandi for-
ystu við hinn vinnandi mann.
Við erum að hitta menn sem
hafa borgað í félagið árum sam-
an en eru ekki einu sinni full-
gildir félagsmenn og nánast
réttindalausir. Það hefur komið
Halldór Björns-
son, varafor-
maður Dags-
brúnar, dreif
sig í formanns-
framboð nú:
„Ég átti föður
sem tók í nefið
en sjálfur hef
ég aldrei lært
það. Guðmundur er líklega búinn
að taka í nefíð fyrir mig. Ég reykti
en hætti því og hef ekki hugsað
mér að fara að nota tóbak aftur."
skýrt í ljós að á þeim vinnustöð-
um þar sem menn eru á lægstu
launum Dagsbrúnar er fylgi
okkar á A-lista mun meira en
hinna. Stjórnarlistinn á sitt fylgi
á öðrum stöðum," sagði Sigurð-
ur Rúnar.
Og þið œtlið auðvitað að sigra
í kosningunni?
„Já, það ætlum við að gera.
En það er svolítið erfitt að átta
sig á stöðunni. Menn eru svo af-
skaplega jákvæðir meðan fund-
irnir standa yfir á vinnustöðum
og þá ekki síst ef það er leiðin-
legt veður úti,“ sagði Sigurður
Rúnar Magnússon.
Á sunnudagsmorgun verður Ijóst
hvort A-listi eða B-listi hefur sigr-
að í stjórnarkjöri Dagsbrúnar. Það
iiggur hins vegar fyrir nú þegar að
næsti formaður félagsins mun ekki
flagga vörumerki Guðmundar J.
Guðmundssonar; tóbaksdósum og
snýtukiút, hvernig sem kosning-
arnar fara.