Helgarpósturinn - 18.01.1996, Page 21
FIMMTUDAGUR18. JANUAR1996
21
h
Ljóöabækur voru óvenjuáberandi í jólabókaflóöinu í ár, en því miöur beiö þaö hlutskipti þeirra flestra aö
veröa undir í athyglissamkeppninni viö aörar (og oft ómerkilegri) bókmenntir. Einhverjar Ijóöabækur liföu
þó hrotuna af, þótt á köflum hafi þaö veriö fyrir aðrar sakir en gæöa. Þannig eru höfundarnir til dæmis
ákaflega misduglegir við aö kynna verk sín. Til aö bæta ögn úr þessu afleita ástandi gluggaði
Helgarpósturinn í nokkrar Ijóðabókanna og valdi af handahófi sýnishorn fyrir lesendur sína...
„Hélaðir sandar og hemuð vötn“
Hetjan
sem hafði lagt fleiri að velli en
nokkur okkar hinna og aldrei dval-
ist lengur en til dögunar í rúmum
þeirra, hnaut um stól á leiðinni út
einn laugardagsmorguninn. Hon-
um varð litið til rúmsins og vífsins
í rúminu. Þá mælti hann: Fögur er
stúlkan svo að mér hefur hún aldr-
ei jafnfögur sýnst, bleikir vangar
en slegið hár, og mun ég ríða aftur
og fara hvergi.
í dag búa þau í Árbænum.
Höfundur: Andri Snær Magnason. Bókartitill:
Ljóðasmygl og skáldarán. Útgefandi: Nykur.
Skyggni
í slæmu skyggni
á þessari jörð
opnast gátt
á gangandi höfði.
Fiðraður heili
hnitar yfir
á hringlaga braut
kringum kvöldið.
Á götunni speglast
auð augu
í glænýjum pollum.
Hann er með hatt.
Höfundur: Porri Jóhannsson. Bókartitill: Hol-
ræsin á ströndinni. Útgefandi: Skákprent.
Herrann
Með spegilbrot lífs míns
í höndum sínum
situr guð í hásæti sínu
og skoðar lífshlaup mitt
Hann hugsar:
Til hvers skapaði ég þessa konu?
Andlit bak við spegilbrotið glottir
Höfundur: Björg S. Gísladóttir. Bókartitill: Sig-
utvegarinn sárfætti. Útgefandi: Höfundur.
Auglýsing um fasteignagjöld, sérstakan
fasteignaskatt og brunatengd gjöld.
Álagningarseðlar fasteignagjalda í Reykjavík árið 1996 verða sendir út næstu daga ásamt gíróseðlum
vegna fyrstu greiðslu gjaldanna og umsóknareyðublaði vegna greiðslu gjalda með boðgreiðslum á greiðslu-
kortum. Gjöldin eru innheimt af Gjaldheimtunni í Reykjavík, en einnig er hægt að greiða gíróseðlana í
næsta banka, sparisjóði eða pósthúsi.
Fasteignagjöldin skiptast í fasteignaskatt, lóðarleigu, tunnuleigu/sorphirðugjald, vatnsgjald, sérstakan
fasteignaskatt og holræsagjald.
Tekjulágir elli- og örorkulífeyrisþegar sem fengu lækkun á fasteignaskatti á liðnu ári hafa fengið hlutfalls-
lega lækkun fasteignaskatts og holræsagjalds fyrir árið 1996. Framtalsnefnd mun yfirfara framtöl gjald-
enda þegar þau liggja fyrir, væntanlega í júní- eða júlímánuði. Úrskurðar hún endanlega um breytingar á
fasteignaskatti og holræsagjaldi m.a. hjá þeim sem ekki hafa þegar fengið lækkun en eiga rétt á henni
samkvæmt þeim reglum sem borgarstjórn setur, sbr. 4. mgr. 5. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitar-
félaga og breytingu á vatnalögum, sem samþykkt var 15. desember s.l. Verður viðkomandi tilkynnt um
breytingar, ef um þær verður að ræða.
Viðmiðunarreglur vegna fasteignaskatts og holræsagjalds fyrir árið 1996 eru eftirfarandi:
100% lækkun
Einstaklingur með (peninga) tekjur allt að kr. 640.000
Hjón
80% lækkun
Einstaklingur með (peninga) tekjur
Hjón
50% lækkun
Einstaklingur með (peninga) tekjur
Hjón
kr. 900.000
kr. 640.000 til kr. 710.000
kr. 900.000 til kr. 985.000
kr. 710.000 til kr. 800.000
kr. 985.000 til kr. 1.120.000
Þeir sem ekki fengu lækkun á s.l. ári, geta til að flýta fyrir afgreiðslu, sent framtalsnefnd umsókn um
lækkun ásamt afriti af skattaframtali 1996.
Framtalsnefnd er til viðtals alla miðvikudaga kl. 16.00 til 17.00 á II hæð Aðalstrætis 6, frá 7. febrúar til
29. maí. Sími 552-8050 - bréfsími 563-2249.
Borgarstjórn Reykjavíkur hefur ákveðið að nýta heimild til álagningar sérstaks fasteignaskatts á fasteignir
sem nýttar eru við verslunarrekstur eða við skrifstofuhald, ásamt tilheyrandi lóð, sbr. 1. nr, 4/1995 um
tekjustofna sveitarfélaga með síðari breytingum.
Eigendur fasteigna í Reykjavík skulu senda skrá yfir eignir sem falla undir framangreint ákvæði, ásamt
upplýsingum um síðasta heildarfasteignamatsverð þeirra eða eftir atvikum kostnaðarverð. Ennfremur skal
skrá þar upplýsingar um notkun þeirra svo og upplýsingar um rúmmál eigna sem einnig eru notaðar til
annars en verslunarreksturs og skrifstofuhalds.
Upplýsingar skulu sendar til Skráningardeildar fasteigna, Skúlatúni 2, Reykjavík.
Sérstök eyðublöð til að nota í þessu skyni munu liggja frammi hjá Skráningardeild fasteigna, en þau hafa
einnig verið send til allra eigenda verslunar- og skrifstofuhúsnæðis í borginni, sem vitað er um.
Vanræki húseigandi að senda skrá yfir eignir, sem ákvæði þetta tekur til, er sveitarstjóm heimilt að nota
aðrar upplýsingar til viðmiðunar við álagningu, þar til húseigandi bætir úr.
Með fasteignagjöldum em ennfremur innheimt brunatengd gjöld þ.e. iðgjald brunatryggingar þeirra
húseigna sem vátryggðar eru hjá Húsatryggingum Reykjavíkur, svo og viðlagatryggingargjald fyrir
Viðlagatryggingu íslands, brunavarnargjald sem innheimt er fyrir Brunamálastofnun ríkisins og umsýslu-
gjald sem innheimt er fyrir Fasteignamat ríkisins.
Skráningardeild fasteigna, Skúlatúni 2, Reykjavík, veitir upplýsingar um álagningu gjaldanna,
sími 563-2520.
Gjalddagar ofangreindra gjalda eru 1. febrúar, 1. mars, 1. apríl, 1. maí, 1. júní og 1. ágúst.
Borgarstjórinn í Reykjavík,
8. janúar 1996
Ævintýrið
Eyðandi sinni framtíð í óvissu
án staðfestu né áætlana.
Víst er gaman að ferðast
og breyta til.
Lifa við hið óvænta
ganga fyrir næsta götuhorn.
Býr ævintýrið þar
í fagurbyggðu húsi.
Standa dyr opnar
og gestgjafinn ævintýrið
býður þig velkominn
eða þorir þú ekki
að ganga fyrir húshornið?
Höfundur: Steinþór Jóhannsson. Bókartitill:
Samfella. Útgefandi: Fjölvaútgáfan.
Lifandi vötn
eiga að streyma
austan og vestan
um meðallandið
Tungan er frjósöm
gróin
græn
Nú verður nóttin köld
Hvert sem eygir
auga mitt þreytt
hélaðir sandar
og hemuð vötn
Höfundur: Finnur Torfi Hjörieifsson. Bókartitill:
í meðallandinu. Útgefandi: Mál og menning.
Það var þessi vetur
Nei.
Það var ekki sá vetur,
ekki sá
sem skýldi mér
í myrkum faðmi,
það var þessi vetur
fullur af hvítu æðandi myrkri
fullur af linnulausri þreytu,
þessi vetur sem teygir vonleysið
fram á útmánuði.
Það var þessi vetur
sem engir skuggar flökta.
Höfundur: Einar Ólafsson. Bókartitill:
Mánadúfur. Útgefandi: Bókmenntafélagið
Hringskuggar.
Fornleifafræðingurinn
og ég
Getur verið að ég sé beinagrind í
kirkjugarði og þú eigir eftir að
grafa mig upp? Óskandi að satt
væri. Þá gæti ég hlakkað til þess
að þú færir um mig höndum og
hresstir mig við svo ég ætti í
vændum að verða ósnertanleg,
sýningarhæf, nálæg en þó fjarlæg í
vörslu þinni.
Aðeins að ósk mín hjari; að ég sé
nú þegar dauð. Þá stæðir þú ekki
vörð um mig þess umkominn að
grafa mig upp; megurð þín og
magnleysi.
Höfundur: Ágústína Jónsdóttir. Bókartitill: Són-
ata. Útgefandi: Fjölvaútgáfan.
Orðsending
Þegar þú leggur höfuðið
á útsaumskoddann
ættirðu að hafa undir honum
kort til leiðsagnar
því allar nætur villistu
inn í draumana mína
Höfundur: Anna Lára Steindal, einn af nokkr-
um höfundum í Andblæ, tímariti um bókmenntir
og draumbókmenntir.|
Útgefandi: Andblær.i
Ágústína
Jónsdóttir:
Sónata.
Andri Snær
Magnason:
Ljóðasmyg)
og skáldarán.
Björg S.
Gísladóttir:
Sigurvegar-
inn sárfætti.
Leikfélag Reykjavíkur ætlar að opna sérstaka Höfundasmiðju í Borgarleik-
húsinu á laugardaginn. Smiðjan samanstendur af hópi íslenskra leikskálda
sem hafa um nokkurt skeið haft aðstöðu í Borgarleikhúsinu til að gera tilraun-
ir með verk sín ásamt leikurum Leikfélagsins. Fyrsta verkið sem Höfunda-
smiðjan kynnir er einþáttungurinn Grámann eftir Valgeir Skagijörð, sem jafn-
framt er leikstjóri. Verkið gerist á bar í Reykjavík og segir frá óvæntum endur-
fundum tveggja manna. Aðrir höfundar sem kynna verk sín í Höfundasmiðj-
unni í vetur eru Anton Helgi Jónsson, Benóný Ægisson, Björg Gísladóttir,
Bragi Ólafsson, Elísabet K. Jökulsdóttir, Friðrika Benónýs, Guðlaug Erla Gunnarsdóttir, Ingi-
björg Hjartardóttir, Jónína Leósdóttir, Kristján Kristjánsson, Linda Vilhjálmsdóttir, Súsanna
Svavarsdóttir, Svala Amardóttir og Þorgeir Tryggvason...
Heljarmennið og myndlistarmaðurinn Birgir Andrésson opnar á laugardag-
inn klukkan 16:00 sýningu á Café Sólon Islandus í Ingólfsstræti. Á sýning-
unni verða nokkur þeirra verka sem Biggi sýndi í sumar á hinum rómaða tví-
æringi í Feneyjum. Þau mynda ákaflega þjóðlega innsetningu og samanstanda
annars vegar af handprjónuðum lopafánum og hins vegar blýantsteikningum
af gömlum bæjarstæðum. Biggi hefur undanfarin 15-20 ár haldið sýningar
bæði hér heima og erlendis. í október á síðasta ári sýndi hann meðal annars í
Belfast og Sarajevó. Sarajevó-sýningin stendur reyndar enn og hefur það háleita markmið að
endurreisa listasafn hinnar stríðshrjáðu borgar. Til að taka óvænt sjónarhoi n á sælu „Hverjir-
voru-hvar?“-dálksins og velta aðeins fyrir sér hverjir verða á Sólon á laugardaginn við Bigga-
opnunina, þá spáir Helgarpósturinn að félagar Bigga á borð við Jón Óskar Hafsteinsson, Huldu
Hákon, Húbert Nóa, Hannes Lárusson, Ólaf Lárusson og Bjama Þórarinsson mæti...
Uthlutun úr Kvikmyndasjóði, sem átti að fara fram 15. janúar, hefur dregist
fram til næstu mánaðamóta. 56,8 milljónir eru til úthlutunar úr sjóðnum
núna, en af þeim var 40 milljónum lofað í fyrra. Því eru aðeins 16,8 milljónir eft-
ir til úthlutunar núna. Bryndís Schram, framkvæmdastjóri Kvikmyndasjóðs,
segir að sú nýbreytni, að gefa út vilyrðabréf fyrir styrk sem ekki er greiddur út
fyrr en ári seinna, hafi verið tekin upp til að gefa kvikmyndagerðarmönnum
eins árs tækifæri til að afla sjálfir fjár í myndir sínar. Á þessu ári verði því gefin
út vilyrðabréf fyrir stuðningi sem kvikmyndagerðarmenn fá ekki úthlutað fyrr
en að ári...