Helgarpósturinn - 07.11.1996, Side 7

Helgarpósturinn - 07.11.1996, Side 7
FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER1396 7 SS ritað er af einum af starfs- mönnum ÁTVR fyrir vheil- brigðisgeirann", segir að ÁTVR hafi jafnan litið svo á að hverri nýrri tegund fylgi kynning, öðru nafni sölumennska. Óbeinar og jafnvel allt að því „þráðbeinar“ áfengisauglýsing- ar hafa færst mjög í vöxt á und- anförnum árum og hver veit nema tóbaksinnflytjendur fari að grípa til „kynninga“ og ann- arra svipaðra bragða. Þá má benda á augljósar auglýsinga- leiðir sem gætu haft nokkur áhrif á íslandi, svo sem auglýs- ingar í tímaritum sem njóta vinsælda hér og auglýsingar á íþróttaleikvöllum sem vænta má að sjáist í sjónvarpi hér á landi. Reyndar mun þess vart að vænta að Philip Morris og um- boðsaðilinn hér, íslensk-amer- íska, þurfi að hafa verulegar áhyggjur af að falla út af mark- aðnum eftir að hafa einu sinni komist inn. Þær tegundir sem ekki ná 0,5% markaðshlutdeild á níu mánaða reynslutíma falla út og verða ekki teknar inn aft- ur fyrr en í fyrsta iagi eftir eitt ár. Marlboro-sígaretturnar voru á sínum tíma allvinsælar á íslandi og varla ástæða til að ætla annað en þær muni þegar í upphafi ná þessari markaðs- hlutdeild. Ekki er vitað hversu stórri markaðshlutdeild forsvars- menn Íslensk-ameríska versl- unarfélagsins reikna með að ná. Helgarpóstinum tókst hvorki að ná sambandi við Bert Hansson forstjóra né Egil Ágústsson framkvæmdastjóra, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Hins vegar má benda á að síg- arettur frá Philip Morris (og þá einkum Marlboro) eru með hátt í fimmtungshlutdeild í síg- arettusölu í fríhöfninni í Kefla- vík. í Evrópulöndum mun markaðshlutdeildin víða vera á bilinu 20-30% og allt upp í 45% í Sviss. Peningar í húfi Heildarsala tóbaks nam ná- lægt fjórum og hálfum milljarði króna á síðasta ári og sígarett- ur eru langstærsti liðurinn í þeirri sölu. Stór hluti þessara fjármuna rennur til ríkisins en það eru þó engir smápeningar sem eru í húfi fyrir umboðsað- ila þeirra tegunda sem mestra vinsælda njóta. „Komdu til Marlborolands." Þessi auglýsing frá Philip Morrís-fýrir- tælú'nu birtist á baksíðu Time á svipuðum tíma og umboðsmenn fyrírtækisins gengu á fund for- stjóra ÁTVR þeirra erinda að knýja hann til að hefla söiu á Mariboro. Nú benda líkur til að íslendingum gefist eins og öðrum kostur á þessu „fyrirheitna landi“. Tóbaksrisamir svífast einskis — Sylvester Stallone fékk hálfa milljón dollara fyrir að nota ákveöna sígarettutegund í kvikmyndum og Marlboro fékk að vera með í Súperman II Bandarísku tóbaksrisarnir hafa áratugum saman háð harða baráttu fyrir veldi sínu og enn sem komið er oftast farið með sigur af hólmi. Nú eru að verða liðin 40 ár síðan fullsannað þótti að reykingar væru helsti orsakavaldur krabbameins í lungum. Síðan hafa fjöldamargir aðilar höfð- að mál á hendur tóbaksfram- leiðendum en undantekningar- lítið tapað. Svo sterk ítök hafa bandarísku tóbaksfyrirtækin haft í þjóðfélaginu að nánast ótrúlega lítið hefur borið á umræðu um skaðsemi reyk- inga. Tóbaksrisarnir hafa stutt kosningasjóði stjórnmála- manna sem þar af leiðandi hafa ekki lagt sig í framkróka við að berjast gegn reyking- um. Fjölmiðlar hafa heldur ekki þorað að taka af skarið af ótta við að tapa auglýsinga- tekjum. Raddir baráttumanna gegn reykingum hafa þvl lengst af verið hjáróma, enda ekkert til sparað af hálfu þess- ara stórfyrirtækja til að þagga niður í þeim sem eitthvað hafa haft út á reykingar að setja. En nú virðist sem þetta sé að breytast. Clinton, sem var endurkjörinn forseti Banda- ríkjanna á þriðudaginn, mun vera fyrsti Bandaríkjaforset- inn sem hefur baráttu gegn reykingum á stefnuskránni. Bob Dole, frambjóðandi repú- blikana, er á hinn bóginn sagð- ur tengdur tóbaksframleið- endum eins og margir aðrir stjórnmálamenn. Tóbaksfram- leiðendur töpuðu sem sagt forsetakosningum. Reykingar drepa fleiri en öll önnur erturlyf Talið er að tóbaksreykurinn verði hátt í hálfri milljón Bandaríkjamanna að bana ár- lega og sé þannig skæðara og stórvirkara vígtól en áfengi, heróín, kókaín og öll önnur eit- urlyf til samans. Það er því ekki að ástæðulausu að Lyfja- stofnun Bandaríkjanna rihe Food and Drug Administrati- on) vill skrá nikótín sem eitur- lyf. Til nýrra tíðinda telst líka að bandaríska dómsmáilaráðu- Heimspekingur við Ijósritunarvél Undarlegt og ófyr- irséð atvik varð til þess að bréf frá Syl- vester Stallone — þar sem hann þáði hálfa milljón doliara fyrir að nota sígarett- ur frá ákveðnu fyrir- tæki — komst alla leið á Internetið. í Bandaríkjunum eins og annars staðar eru dæmi þess að há- skólamenntað fólk fái ekki atvinnu. Einn siíkur, reyndar með doktorsgráðu í heim- speki, varð að gera sér að góðu að þekkj- ast starf sem ljósrit- ari á lögmannastofu sem vann fyrir tób- aksframleiðendur. Honum ofbauð inni- hald minnisblaðanna sem hann ljósritaði og ákvað að brjóta trúnaðarheit sem hann hafði undirritað þegar hann var ráðinn til starf- Bandarísk sígarettuauglýsing frá fjórða áratugnum. ans. Hann tók aukaljósrit af baráttumanni gegn reykingum, háskólans I Kcdiforníu. Glanz þúsundum skjala og sendi þau Stanton Glanz, við læknadeild kom gögnunum á bókasafnið Blessun páfans Það eru ótrúleg- ustu aðilar sem hafa góðfúslega þegið fjárframlög frá tób- aksframleiðendum. Philip Morris-fyrir- tækið lagði á sínum tíma fram sjö millj- ónir dollara til stuðnings Vatíkan- inu þegar það var að afla fjár til viðgerða á listmunum. Þetta framlag var þó talið margborga sig, því með þessu vannst velvilji kirkjunnar og blessun sjálfs páf- ans. Slík blessun er ekki ónýt „sölu- mönnum dauðans“. Á barnaveiðum! Tóbaksrisarnir vilja auðvitað síst af öllu viðurkenna að markaðs- setning þeirra höfði til ungs fólks, unglinga og jafnvel neytið hefur hafið rannsókn á því hvort framámenn tóbaks- iðnaðarins hafi ekki gerst sekir um mein- særi þegar þeir hafa haldið því fram fyrir rétti að nikótín sé ekki vanabindandi. Tóbaksrisarnir hafa einskis svifist til að koma vöru sinni á framfæri. Einkar góða raun hefur það gefið þeim að kaupa sig inn í kvikmyndir með vinsælustu stjörnunum eða nota ímyndir úr vinsælum kvikmyndum. Öllum slíkum samningum var að sjálfsögðu haldið vandlega leyndum og óvíst að peningarnir hafi ver- ið gefnir upp til skatts. og eftir að dómstóll hafði synjað lög- mannastofunni um að fá þau afhent tók fyrirspurnum um þau að rigna yfir bókasafnið. Þetta var meira en unnt var að anna og málið var ieyst með því að veita aðgang að þeim á Internetinu. Nú hefur Kaliforníu- háskóli gefið út úr- val þessara skjala í 540 blaðsíðna bók sem nefnist Sígar- ettuskjölin „The Cig- arette Papers." Árið 1980 greiddi Philip Morris 42 þús- und dollara fyrir 22 innskot sem sýndu Marlboro-vörumerk- ið í kvikmyndinni Superman II. í tveim- ur tilvikum hafði Lo- is Lane Marlboro á skrifborðinu sínu og blés frá sér sígar- ettureyk glaðleg á svip. barna. í nýlegri bók eftir Philip Hilt, sem alllengi hefur skrifað um tóbaksrisana fyrir New York Times, kemur hins vegar fram að stórum hluta af markaðsaðferðum tóbaksris- anna er einmitt ætlað að ná til ungmenna. Rannsóknir sýna að fólk sem ekki byrjar að reykja fyrr en eftir 21 árs ald- ur hættir yfirleitt fljótlega aft- ur. Það eru þeir sem byrja að reykja á unglingsaldri sem sitja fastir og geta ekki hætt. Hilt segir í bók sinni Smok- escreen: The Truth Behind the Tobacco Industry Cover up: „Fyrirtækin... verða að ná árangri meðal ungmenna á aldrinum 12-18 ára. Þannig verður þessi vani inngróinn hluti af sjáifsímynd þeirra... Þessa freistingu þarf að leggja fyrir ungmennin meðan þau eru í mótun, einmitt þegar barnið er að byrja að horfast í augu við heiminn af alvöru." Edison á móti reykingum Eins og vikið var að í upp- hafi virðist sem tak tóbaks- framleiðendanna kunni að vera að linast á bandaríska markaðnum. Baráttan hefur staðið lengi. Sem dæmi má nefna að sá merki uppfinn- ingamaður Thomas Alva Edi- son réð ekki reykingamenn í vinnu. Hann var reyndar ekki alls kostar einn á báti. Framan af öldinni voru reykingamenn t.d. ekki vel séðir hjá bílafram- leiðendum á borð við Ford og Cadillac. Fari svo að bandarískir bar- áttumenn gegn reykingum vinni verulega á og sala í Bandaríkjunum fari að drag- ast saman er ekki að efa að þessir auðhringir munu verða enn ófyrirleitnari í markaðs- sókn sinni annars staðar, sennilega einkum í þróunar- ríkjunum. Dæmi um slíkt eru þekkt. Þannig mun mæðrum í allmörgum þróunarríkjum tal- in trú um jjað í auglýsingum og áróðri að þurrmjólk fyrir börn sé mun hollari en móð- urmjólkin. (Byggt á „The New York Review")

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.