Helgarpósturinn - 07.11.1996, Blaðsíða 23
FlMIVmJDAGUR 7. NÓVEMBER1996
23
Ekki
missa a
Bókaveisla
■ Nú geta bókaunnendur og
grúskarar tekið gleði sína svo
um munar, því milli fjörutíu og
fimmtíu þúsund bækur, um
allt milli himins og jarðar,
verða á bókamarkaði forn-
bókaverslunarinnar Bókavörð-
unnar. Bókavarðan, sem er til
húsa á Vesturgötu 17, er tutt-
ugu ára um þessar mundir og í
tilefni af því er boðið upp á
helmingsafslátt af öllum bók-
um verslunarinnar. Bókamark-
aðurinn hefst í dag og stendur
til 17. nóvember.
„Den nye
virkelighed i det
nordiske samarbejde"
■ Utanríkisráðherra Dana,
Niels Helveg Petersen, heldur
fyrirlestur í Norræna húsinu á
morgun, 8. nóvember. Dan-
mörk, Svíþjóð og Finnland eru
öll í Evrópusamband-
inu, en vegna þess hef-
ur samstarf milli Norð-
urlandanna breyst
mikið síðustu ár og á
trúlega eftir að breyt-
ast enn meira í fram-
tíðinni. Danski utanrík-
isráðherrann fjallar
einmitt um breyttar
forsendur fyrir nor-
rænu samstarfi, sem
þarf að endurskipu-
leggja á næstu árum.
Eins ræðir ráðherrann um
samskiptin við grannsvæði
Norðurlanda, einkum þó
Eystrasaltsríkin.
Fyrirlesturinn er eins og áður
sagði á morgun og hefst klukk-
an fimm. Að sjálfsögðu talar
ráðherrann á móðurmáli sínu
hinni ylhýru dönsku. íslend-
ingar ættu þó ekki að verða í
vandræðum
með að skilja
hann, — eftir
allt dönsku-
námið. Allir
eru velkomnir
og aðgangur
er ókeypis.
Yeah Yeah
Yeah.........
■ Nýbítlarnir
í hljómsveit-
inni Sixties
verða á norð-
urlandi um
helgina. Á
föstudagskvöld verður hljóm-
sveitin í Sjallanum á Akureyri
og á laugardagskvöld heim-
sækja piltarnir Blönduós þar
sem þeir munu fá unglings-
stelpurnar til að gráta, öskra,
syngja og dansa.
Kertaljósastemmning
hjá Herði Torfa
■ Hörður Torfason hefur að
undanförnu farið vítt og breitt
um landið með hljómleika og
verið vel tekið þar sem hann
hefur farið. Næstkomandi
Iaugardagskvöld verður Hörð-
ur í höfuðborginni,
nánar tiltekið í Nor-
ræna húsinu. Þar flyt-
ur hann lög af nýjum
geisladiski, Kossinum,
auk eldra efnis. Eins
og venjulega er Hörð-
ur einn á ferð með
gítara sína. Hljómleik-
ana, sem hefjast
klukkan níu, kennir
Hörður við kerta-
ljósastemmningu
sem tilheyri værð og
rósemi vetrarins...
■ Strákarnir í hljóm-
sveitinni In Bloom
hafa í heilt ár skipulagt utan-
ferð til Los Angeles þar sem
þeir ætla að dvelja í hálft ár og
freista þess að koma sér á
framfæri og taka upp ný
myndbönd. í kveðjuskyni hafa
þeir kallað til félaga
sína úr Reggae on
Ice, Sóldögg, Dead
Sea Apple og Skíta-
móral og ætla þess-
ar hljómsveitir
ásamt In Bloom að
halda styrktar- og
kveðjutónleika í
Tunglinu í kvöld, á
föstudaginn í Ólafs-
vík, laugardag
Húsavík og sunnu-
dagskvöld á Gauki á
Stöng. Sá sem tekur upp nýtt
myndband hljómsveitarinnar
er Ágúst Jakobsson sem með-
al annars hefur unnið með
Guns ‘n’ Roses og Sound-
garden...
Nokkur tonn af
Ijósa- og hljóðbúnaði
■ Hljómsveitin Todmobile er
um þessar mundir að gefa út
sjötta geisladisk sinn, Perlur
og svín. Eyþór Arnalds verður
ekki með í þetta skiptið en í
staðinn hefur sveitin fengið
Vilhjálm Goða til að fylla í
skarðið. Todmobile leggur nú
af stað í tónleikaferð um land-
ið til að kynna nýja diskinn.
Eru þetta stórtónleikar í orðs-
ins fyllstu merkingu, því nokk-
ur tonn af ljósa- og hljóðbún-
aði verða notuð á tónleikun-
um. Todmobile ætlar sér að
leika þekktustu lög sín, sem og
kynna efni af nýja diskinum.
Fyrstu tónleikarnir eru á
sunnudaginn á ísafirði, því-
næst í Sjallanum á Akureyri á
þriðjudaginn og svo áfram
hringinn...
Handrit á hálfa milljón
■ Allir sem vettlingi geta vald-
ið ættu að setjast niður nú um
helgina og semja handrit að
leikriti, því á mánudaginn er
síðasti skilafrestur á handrit-
um í samkeppni Leikfélags
Reykjavíkur um leikhúsverk.
Samkeppnin er í tilefni 100 ára
afmælis leikfélagsins og eru
verðlaun veitt fyrir bestu
handritin. Verðlaunin eru ekki
af verri endanum: Þriðju verð-
laun eru 200.000 krónur, önn-
ur verðlaun 300.000 krónur og
fyrstu verðlaun hálf milljón ís-
lenskra nýkróna. Eins verður
verkið, sem hlýtur fyrstu verð-
laun, sýnt í lok afmælisárs LR.
Þá er bara að setjast niður og
snara fram einu handriti...
Listamaðurinn Þorvaldur Þorsteinsson opnaði um síðustu helgi sýninguna Eilíft líf í Listasafninu á Akureyri.
Meðal verka á sýningunni má nefna Athafnir, Ijósmyndaröð sem sýnir 25 algengar athafnir fólks í heimahús-
um, Maríumyndir og Mínútumyndir. Blaðamaður HP sló á þráðinn til Þorvalds og spurðist fyrir um sýninguna.
Hversdagsleikinn mesta ævintýrið
Pó að ég segi sjálfur frá var
opnunin ævintýraleg," seg-
ir listamaðurinn. „Á fjórða
hundrað manns kom á opnun-
ina og líkaði að ég held ágæt-
lega. Sýningin var opnuð með
því að fyrsta kakan á kökubasar
kvenfélagsins Framtíðarinnar
var keypt. Það má segja að sýn-
ingin hafi selst upp, þ.e.a.s. það
sem var til sölu á henni, því
kökubasarinn var keyptur upp
á nokkrum mínútum. Þess má
geta að núna um helgina verður
kvenfélagið Hlíf með kökubasar
á sýningunni.
Tilgangurinn með Maríu-
myndunum var að ná sem
mestri fjölbreytni í Maríumynd-
um, þannig að það minnti á trú-
arlegu Maríumyndirnar, sem
eru allt frá því að vera hálsmen
og yfir í stór líkneski. Hugsunin
var að skoða myndina af hinni
nútímalegu, veraldlegu Maríu
og setja hana í upphafið sam-
hengi. Ég leitaði að Maríunum í
símaskránni á Akureyri. Þar
fann ég rúmlega fimmtíu Mar-
íur, sendi þeim öllum bréf og
spurði hvort ég gæti fengið
mynd af þeim til að sýna. 36
Maríur sendu mér mynd og eru
þær nú á sýningunni.
Mínútumyndirnar geri ég í
samstarfi við Þorstein J., út-
varps- og sjónvarpsmann. Þetta
eru hljóðverk, mínútuhugleið-
ingar sextán einstak-
linga sem voru spurðir
ólíkra spurninga. Spurn-
ingarnar eiga það sam-
eiginlegt að vera „stór-
ar“. Svörin voru frá
fimm og upp í tíu mínút-
ur og úr því var klippt
um það bil mínúta, þar
sem okkur fannst krist-
allast einhver sannleik-
ur. Einhvers konar sam-
mannlegur raunveru-
leiki.“
Þorvaldur hefur sýnt
víða um heim á undan-
förnum árum og tók
meðal annars þátt í sýn-
ingunni Container 96 í
Kaupmannahöfn, en 96
borgir um víða veröld tóku þátt
í þeirri sýningu, „Þar var ég
með símaverk, þar sem sýning-
argestir gátu hringt um allan
heim og þakkað þeim sem
styrktu sýninguna," segir Þor-
valdur. „Styrkjendurnir voru að
sjálfsögðu íbúar þessara 96
borga, tugmilljónir að tölu. Ég
hafði safnað símaskrám borg-
anna saman, þannig að gestir
sýningarinnar gátu hringt í ein-
hvern íbúa þessara borga og
þakkað honum fyrir framlagið.
Gestir lásu af veggspjaldi það
sem þeir áttu að segja á við-
komandi tungumáli og lögðu
svo á.
.4aJ5L£
9 9 €■ (1 J 3'
9 3- * ? * 3
i # $ 9 a a
$ 3 & J
„Langtímaáætlun mín er að þakka
hverjum íslendingi fyrir sig fyrir
framlag hans til listarinnar," segir
listamaðurinn Þorvaldur Þor-
steinsson.
Það má segja að þetta verk sé
náskylt því sem er á sýningunni
hér á Ákureyri, þ.e.a.s. verk
sem fjalla um þennan daglega
veruleika og sköpunarkraftinn í
grámanum. Hinn gráa hvers-
dagsleika, sem mér finnst vera
mesta ævintýrið. Til að ná
þessu hef ég meir og meir verið
að vinna beint með fólki. Ég hef
mikið tengt einstaklinga við
verkin mín, til dæmis í þessu
símaverki og eins í borginni
Kotka í Finnlandi í fyrra,
þar sem ég þakkaði per-
sónulega öllum íbúum
borgarinnar fyrir að
styrkja sýninguna, sem
ég tók þátt í þar. Á torgi
borgarinnar voru lesin
upp nöfn og heimilisföng
allra íbúa borgarinnar.
Þakkargjörðin stóð yfir í
heilt sumar. En sýningin
á Akureyri markar nokk-
ur tímamót að því leyti
að ég er ekki bara að
fjalla um fólk heldur er ég
einnig að vinna með fólki.
Ég fór til að mynda með
ljósmyndara inn á tutt-
ugu heimili og fékk að
mynda fólk við daglegar
athafnir, auk þess sem unnin
voru fjölmenn skólaspjöld um
akureyrskar akademíur sem
ekki hafa hlotið fullnaðarviður-
kenningu menntamálaráðu-
neytis. Um þrjú hundruð
manns tóku því beint eða
óbeint þátt í sýningunni. Lang-
tímaáætlun mín er að þakka
hverjum íslendingi fyrir sig fyrir
framlag hans til listarinnar. Það
er nú bara staðreyndin að allir
leggja sitt af mörkum hvort sem
þeir vilja það eða ekki eða vita
það eða ekki. Einhvern veginn
er þetta allt saman samtengt,
hvort sem maður er listamaður
eða ekki, og hvað öðru háð.“
Friður
ogframfarir
Framfarir eru
fleira en frysti-
togarar og fjarlægir
fiskiþjóðgarðar.
Framfarir gerast
okkur nær, hægt, en
nartandi, líkt og með nýkeypt-
um tönnum fari. Eitt fegursta
dæmið er friðun Laugavegar-
ins.
Fyrsti áfangi fór ísmeygilega
fram í nafni fegurðar og götu-
lífs. Búnir voru til tangar út úr
gangstéttunum sem þrengdu
akbrautina, en mynduðu rými
fyrir götuhornasamræður.
Fólk gat haft með sér stól, svo
voru samræðupallarnir rúm-
góðir. Að enginn tók annan tali
þar hafði að gera með stað-
setningu tanganna: Allir á
götuhornum sem vísa út á op-
ið haf. Þannig var tekið fyrir í
fæðingu að umferðarteppur
mynduðust.
Nú gat umferðin runnið þýð-
lega upp og niður Laugaveg.
Menn í þungum þönkum, kon-
ur með þungar buddur, hund-
ar þungaðir kúk, þungbær
reiðhjól, barnavagnar með
þunglyndum ungbörnum. Úti á
akbrautinni; breidd tveir sum-
arhjólbarðar og einn Löduöx-
ull; siluðust bílarnir þunglega.
Þetta gekk bara ekki upp.
Eitthvað varð að víkja. Fyrst
fuku hundarnir. Árátta þeirra
til að kúka á Laugaveginn var
talin ólæknandi og þótt hunda-
eiendur væru álitnir færir um
að beygja sig eftir molunum á
Hverfisgötu og Skólavörðustíg
var vitað að þeir gætu ekki tínt
kúk af Laugaveginum. Einhver
misþroski, líklega.
Næst voru hjólin tekin út.
Þau hefði aldrei átt að leyfa,
tugir hjólreiðamanna náðu að
slasast þegar innkaupatrylltar
kerlingar með tíu tonna burð-
arpoka slógu þá af hjólunum.
Nú fara aðeins forhertir
spennufíklar niður Laugaveg-
inn á tveggja tommu röndinni
milli nýja malbiksins og skarð-
tenntu gangstéttarbrúnarinn-
ar. Flestir eru þeir fingurbrotn-
ir áður en þeir komast niður í
víddir Bankastrætisins og
sumum tekst að þrykkja enn
betur saman milli akandi og
kyrrstæðra bíla. Einstaka
verða eftir, vafðir um smátrén
sem skógræktin gerir mengun-
arþolstilraunir með við Lauga-
veginn.
Framhald á friðun Laugaveg-
arins verður sem hér segir:
Næst verða barnavagnarnir
bannaðir. Það gerir heilbrigð-
isráðherra á þeirri forsendu að
Öfgamál
Auður Haralds
skrifar
börnum innan átján ára sé
bannað að anda að sér eitur-
efnum.
Því næst verða eldri borgar-
ar fjarlægðir. Þeir hafa hvort
„Næstvoru hjólin tekin
út. Þau hefði aldreiátt að
leyfa, tugir hjólreiða-
manna náðu að slasast
þegar innkaupatrylltar
kerlingar með tíu tonna
burðarpoka slógu þá af
hjólunum. Nú fara aðeins
forhertir spennufíklar
niður Laugaveginn á
tveggja tommu röndinni
milli nýja malbiksins og
skarðtenntu gangstéttar-
brúnarinnar.11
eð er svo lág ellilaun að þeir
eyða engu og eru þar með til
óþurftar og tafa fyrir hina.
Fegrunarnefndin fær því svo
framgengt að ófríðu fólki verði
bannað að þvælast á Lauga-
veginum.
Upp úr þvf verða fáir aðrir
eftir en fangarnir í hæggengri
bílaröðinni sem sleppa aldrei
út úr gasklefunum sínum
vegna fimmtíukallaleysis. Þeir
sitja samankrepptir á Lauga-
veginum og bora í nefið
(hæsta nefhreinsunartíðni er á
löngum laugardögum) og.
skutla uppgreftrinum út um
bílgluggana. Stefnt er að því að
fyrir jól verði horkúluhrúgurn-
ar á Laugaveginum orðnar
minnst jafnmyndarlegar og
hundakúkurinn hefði getað
orðið.
Lokatakmarkið er alfriðum
Laugavegarins fyrir vorið. Þá
getum við hætt að gapa af
hrifningu við sjónvarpið yfir
að Júgóslavar geti lært ís-
lensku á Flateyri og byrjað að
gapa af hrifningu yfir að kaup-
menn af Laugaveginum hafi
lært að flaka fisk á Fáskrúðs-
firði.
spurt...
Ef þú fengir að hoppa
inn á Alþingi í einn dag og
gætir komið í gegn hvaða
frumvarpi sem þú vildir,
hvað yrði fyrir valinu?
Elsa B. Valsdóttir,
formaður Heimdallar:
„Ætli ég mundi ekki
reyna að semja frumvarp
sem afnæmi öll þessi
óþarfa frumvörp og
óþarfa lög sem við sitjum
uppi með í dag. Þetta frumvarp mundi takmarka
hlutverk ríkisins við það að halda uppi lögum og
reglu í landinu og leggja leikreglurnar fyrir sam-
félagið en láta það að öðru leyti afskiptalaust. —
Jújú, það ætti að vera hægt að koma þessu fyrir í
einu frumvarpi, ég trúi ekki öðru."