Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 07.11.1996, Qupperneq 9

Helgarpósturinn - 07.11.1996, Qupperneq 9
FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER1996 9 Vika á Kanari 19. nóvember frá kr. 29.900 Nú bjóðum við þér hreint ótrúlegt tilboð í solina a Kanari í glæsilega vikuferð, þar sem þú tekur þátt í spennandi dagskrá alla daga, hvort sem er kvöldvökur eða spennandi kynnisferðir og nýtur traustrar þjón- ustu fararstjóra Heimsferða allan tímann. Nú getur þú tryggt þér spennandi tilboð: Þú bókar ferðina í dag eða á morgun á tilboðsverði og viku fyrir brottför staðfestum við gististaðinn, góðan gististað á Ensku ströndinni. HEIMSFERÐIR Skyldi það ennþá vera karlmannsverk að kaupa bíl og kvenmannsverk að velja þvottavél? Blaðamaður Helgarpóstsins fór á stúfana og komst að því að heimilisfjármálin eru fyrst og fremst á ábyrgð kvennanna. Þær virðast hafa töglin og hagldirnar þegar kemur að fjárfestingum og sparnaði fyrir fjölskylduna. Þorfinnur: Konan miklu skynsamari en ég í fjármálum. búnir að taka meiri áhættu en þær konur sem komi. „Hins vegar, ef fólk er með eitthvert fé að ráði á milli handanna, þá finnst mér algengara að hjón taki sameiginlega ákvörðun um stóru fjárfestingarnar." En er það bara starfið sem réð því að þú tókst að þér peningamálin? „Nei, ég er miklu samvisku- samari og á auðveldara með að halda utan um þessa hluti og taka ákvarðanir," segir Anna Karen. „Ég held að það sé mjög algengt með konur að þær leyfi körlunum aðeins að koma að hlutunum til að þeir haldi að þeir hafi ráðið ein- hverju, en á endanum taka þær ákvarðanirnar. Þær fara bara fínt í það.“ Austurstræti 17, 2. hæð. Sími 562 4600 Pað sama uppgötv- aði breski blaða- maðurinn Beverly D’Silva sem kannaði málið fyrir helgarblað Independent. „Það eru konurnar sem hand- fjatla heimilispening- ana, fjárfestingar heimilisins eru undir styrkri kvenlegri stjórn," segir Beverly og bendir á að rann- sóknir hafi sýnt að eig- inkonan stjórni fjár- málum heimilisins, hver svo sem vinni fyr- ir peningunum. Þrátt fyrir að karlar séu í stjórnunarstöðum á flestum sviðum utan heimilisins og hafi um- sjón með fjármálunum í fyrirtækjum og stofn- unum, nefndum og ráðum, þá láta þeir fjármálin í hendurnar á eiginkonunni þegar inn fyrir dyrastafi heimilisins er komið. Konurnar eru íhaldssamari Grundvallarmunur á skap- gerð kynjanna ræður því hversu tilbúin þau eru til að taka áhættu með peninga og leggja í fjárfestingar sem stefnt gætu sambandinu í voða. Karl- ar og konur reynast hafa jafn- mikið vit á fjármálum en karl- arnir láta sem þeir viti meira, konurnar sem þær viti minna. Þær eru óragari við að spyrja spurninga sem gætu virst ein- feldningslegar en eru þó nauð- synlegar til að átta sig á þeim skuldbindingum sem fjárfest- ingunni fylgja. Þetta staðfesta starfsmenn fjárfestingarfyrir- tækja, bílasalar og bankastjór- ar sem dags daglega vinna við að lána fé eða útvega fjárfest- ingar. Þessi grundvallarmunur veldur því að peningar eru ein meginástæða þess að fólk fer fram á skilnað að því er hjóna- bandsráðgjafar á Bretlandi halda fram, og þar með setja þeir peningana í sama flokk og deilur um barnauppeldi og pirring út í tengaforeldra. Ráð- gjafarnir segja að ágreiningur um fjármál endurspegli oft önnur vandamál í samband- inu, parið sé kannski ekki nógu náið og skuldbindingar óveru- legar. Og peningarnir geta orð- ið að beittu vopni; ef eiginmað- urinn hefur orðið uppvís að framhjáhaldi getur konan farið að vera kærulaus með peninga til að hefna sín. Það er greinilegt, segja þess- ir sömu ráðgjafar, að fólk sem átt hefur sína eigin reikninga og sinn eigin sparnað áður en það byrjaði saman getur átt erfiðara með sameiginlegu fjár- málin en foreldrarnir. Peningar, barnauppeldi og tengdaforeldrar Bilið milli kynjanna er gleitt þegar kemur að fjárfestingum því konur vilja hafa allt á hreinu og spila upp á öryggið en karlar mæna á hagnaðar- vonina án þess að taka tillit til Verð kr. 29.930 M.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, 19. nóv., 7 nætur. Verð kr. 39.960 M.v. 2 í íbúð, 19. nóv., 7 nætur, skattar innifaldir. Anna Karen: Á endanum eru það konurnar sem ráða fjármálum heimilisins. áhættunnar. Þeir láta glepjast af gylliboðum um svimandi háa vexti í vafasömum erlend- um fjárfestingarsjóðum meðan konurnar velja stöðugleikann og öryggið í bönkunum heima fyrir. Starfsmenn íslenskra verð- bréfafyrirtækja taka undir þetta. „Karlmennirnir sem leita hingað eru miklu áhættu- fíknari en konur,“ segir karl sem selur hiutabréf. „Konur eru yfirhöfuð jarðbundnari þótt erfitt sé að alhæfa. En það er merkilegt að maður sér jjað, einkum á fólki sem gengur menntaveginn, að konan er miklu íhaldssamari.” Kona sem starfar sem ráð- gjafi hjá verðbréfasjóði fullyrð- ir hins vegar að munurinn sé breytilegur eftir aldri fremur en kyni, yngra fólkið sé frekar tilbúið til að freista þess að fá betri ávöxtun og taka áhættu. „Eldra fólk ætti reyndar ekki að taka áhættu með fjármuni," segir hún. „En þetta er misjafnt eftir því hvort það er upp- sveifla í þjóðfélaginu. Þegar vel gengur koma bæði kynin jafnt en þegar ekki gengur vel í þjóð- félaginu er það frekar kvenfólk- ið sem kemur og vill vera for- sjált." Engar skuldbindingar fyrr en... Karlar eru ekki feimnir við að viðurkenna hvernig þessum hlutum er háttað á heimilinu. í könnun sem breskt trygginga- fyrirtæki lét gera meðal hjóna kom í ljós að annar hver karl sagði að konan væri betri í að fara með peninga heimilisins og að tveir af hverjum þremur karlmönnum taka ekki ákvarð- anir um fjárfestingar án þess að konurnar hafi farið yfir og útskýrt fyrir þeim skuldbind- ingarnar sem fylgja samningn- um. íslenskir karlmenn eru engin eundantekning. Ingólfur V. Gíslason, starfsamaður karla- nefndar Jafnréttisráðs, er að vinna úr niðurstöðum jafnrétt- iskönnunar sem hann gerði meðal karlmanna. Hann spurði meðal annars að því í þessari karlakönnun hvernig málum væri háttað á heimilinu þegar ákvarðanir væru teknar um meiriháttar fjárfestingar. Að sögn Ingólfs sögðu flestir við- mælenda hans að þau hjónin tækju jafnan þátt, en þó sýnd- ist sér vera örlítil tilhneiging í þá átt að konan ýtti frekar á um að ákvörðun væri tekin. Síðan settust þau niður og tækju ákvörðunina í samein- ingu. „Það er með þetta eins og aðra þætti heimilislífsins, að það er alveg Ijóst að þetta er ábyrgðar- og stjórnunarsvið konunnar, hvort sem hún er þvinguð til þess vegna ábyrgð- arleysis karlsins eða hún tekur þetta að sér ótilneydd." Ingólf- ur segir að þess vegna væri eðlilegt að draga þá ályktun að það væri konan sem sæi um fjármálin, þótt hann hefði ekki spurt um annað en stærstu fjárfestingarnar. Hún er fjármálastjórinn Anna Björg Petersen og Magnús Pálmi Ömólfsson eru bæði í háskólanámi og hafa bú- ið saman í tvö ár. Anna Björg verður fyrir svörum og segist sjá um fjármál heimilisins. „Það er ég sem sé um að borga reikningana á réttum tíma, þótt við leggjum bæði til pen- ingana,“ segir hún. „Ég hugsa meira um hagkvæmni í rekstri, — þótt Magnús sé að læra hag- fræði og ætti því frekar að hafa áhuga á þessu.“ Anna segir að þetta eigi bæði við um dagleg- an rekstur heimilisins og stærri fjárfestingar á borð við bílinn sem keyptur var í sum- ar. Hún segir að þau hafi legið lengi yfir dæminu með bílinn áður en þau létu verða af kaup- unum og á endanum hafi hún tekið ákvörðun um fjárfesting- una. „Ég held að það sé kannski frekar að konurnar ýti á eftir karlmönnum að taka ákvarðanir, ekki endilega að þær taki ákvarðanirnar einar,“ segir Anna Björg. Hvers vegna heldur þú ut- an um fjármálin? „Er það ekki yfirleitt konan sem man eftir því að fara í bankann og borga reikningana," spyr Anna á móti. „Mamma sér alveg um þetta til dæmis.“ En er Magnús ekkert að taka völdin af fjármála- stjóranum eftir því sem hann kemst lengra í náminu? „Hann kannski kemur með gáfulegri at- hugasemdir," segir Anna Björg hlæjandi. Er hann kannski á öðr- um nótum, heldurðu að hann myndi taka meiri áhœttu? Anna segist efast um það. „Við erum mjög svipuð með þetta,“ segir hún. „Við tókum reyndar einu sinni áhættupróf upp úr einni kennslubókinni hans og það kom þannig út að ég væri miklu meiri áhættufíkill en hann, samt er ég ábyrgari venjulega." Konan er atvinnumaðurinn Þorfinnur Ómarsson, framkvæmdastjóri Kvik- myndasjóðs, segir að sér sé bæði ljúft og skylt að láta konnunni sinni eftir að ráða flestu á þessu sviði. „Hún vinnur náttúr- lega í fjárfestingabransan- um þannig að hún er at- vinnumaðurinn,” segir hann, „svo er hún bara miklu skynsamari en ég! Við tökum í sjálfu sér allar ákvarðanir saman ef það er eitthvað af viti en í smærri verkefnum reyn- um við að vera dálítið sjálfstæð, gerum stundum það sem okkur sýnist." Þorfinnur segist efast um að nokkur munur sé á þeim hvað áhættu varðar og segir að engir árekstrar séu til staðar um fjármál- in. En hvað með leiðin- legu gluggabréfin? „Svo lengi sem við eig- um fyrir þeim fer hún með reikningana, enda er hún að vinna í verðbréfafyrir- tæki þar sem banki er inn- anhúss, svo það er þægi- legra fyrir hana að sjá um bankaferðirnar." Anna Karen Hauksdótt- ir, eiginkona Þorfinns, er ráðgjafi hjá Verðbréfa- markaði íslandsbanka. Hún tekur undir með Þor- finni og segir að öll fjármál heimilisins séu á sínum herðum, og að þannig sé það mjög víða, — konan sjái um heimilispening- ana. Anna Karen segir þó að enn séu karlmenn í meirihluta viðskiptavina fyrirtækisins og það sé greinilegt að þeir séu til- Konur hafa meira fjármálavit en karlar

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.