Helgarpósturinn - 07.11.1996, Side 12

Helgarpósturinn - 07.11.1996, Side 12
12 ana FlMIVmJDAGUR 7. NÓVEMBER1996 í þessari umfjöllun um Intemetið ætla ég að byrja á að skoða íslenska hornið á Netinu; þessu lyrirbrigði sem er svo lofað í ræðu og riti að fólki er talin trú um að án þess geti það ekki lifað. Þessi umfjöllun hefur álíka mikið sanleiksgildi og'kvikmyndagagnrýni sem gæfi öllum myndum fullt hús stjarna eða orð trúboða um himnaríki og eilíft líf. En ég er ekki trúboði og þetta fyrirbrigði er bara eins og það er; hvorki merkilegra né verra en nokkurt annað fyrirbrigði í mannheimum. Þessir pistlar eru settir á Netið á slóðina „this.is/net“, en það er grunnvefurinn sem hýsir http: / / this. is / net bæði netútgáfu þessa pistils og eins netútgáfu út- varpsþáttanna „Netlíf“ á Rás 2. í sameiningu ætlum við, stjórnendur þess þáttar og ég, að búa til einn stað á íslenska Nethorninu þar sem umfjöllun um Netið fer fram. Við tengjum þrjá miðla saman á einn stað; prentmiðil, útvarp og Netið. Þetta er það sem koma skal. Mörkin milli miðlanna eru að bresta og menn eru þegar farnir að gera tilraunir með þetta víðs vegar í heiminum. Hvað er raunverulega Það er alltaf vel þegið að fá ábendingar, bæði um það sem miður fer og þó sérstaklega það sem vel er gert, og því vil ég benda fólki á að netfang Netpóstsins er np@this.is. Hvergi í þessum skrifum hér er getið slóða á þá vefi sem til umfjöllunar eru, heldur er fólki bent á að heimsækja netútgáfuna á „http://this.is/net" og þar eru allar slóðir þeirra vefja sem um er rætt hverju sinni. Eins verður þessum skrifum haldið til haga svo ekki eru hundrað í hættunni þótt fólk missi úr, — það er allt á Netinu. Eða hvað? á íslenska Nethominu Ráðamenn fjalla fjálglega um Internetið og þátt Is- lendinga í því. Á þeim má skilja að íslendingar séu með fremstu þjóðum á Netinu. Og á hverju byggja þeir það? Ja, mér er spurn. Og af hverju sér maður þess engin merki? Hvar eru þessir merkilegu, fram- sæknu vefir? Eru þeir kannski þarna úti en ég veit bara ekk- ert af þeim? Ef svo er, hvað hefur þá klikkað í kynningunni, eru íslendingar kannski að gera stórmerka hluti sem eng- inn veit af? 15. september á íslenska horninu Ég ákvað að kanna þetta. Komast eins nærri um það og ég gæti hvað er á íslenska Net- heimahorninu og leyfa ykkur að dæma sjálfum um hversu framarlega íslendingar eru í Netmálum. Til að nálgast þetta notaði ég HotBot-leitarvélina sem sagði mér að í gagnabanka sínum geymdi hún 46.889 síður frá svæðinu .is (sem sagt íslandi). En er þetta það sem er á Net- inu hér? Svarið er nei, ekki al- veg. Ég fékk næst lista yfir allar nýjar og breyttar síður sem HotBot hafði fundið 15. sept- ember síðastliðinn og liðaði þá úttekt í sundur. Þennan dag sagðist HotBot hafa fundið 264 síður sem skiptast þannig: (sjá töflu) Svo virðist sem HotBot telji sjálfuppfærðar síður í hvert skipti sem leitarvélin kemur, svo þessi tala, 46.889, að frá- dregnum 37,5%, ætti að gefa okkur sennilegri mynd. En þá eru á íslenska Nethorninu um 30.000 síður eftir þessum út- reikningum. Dágóð tala þetta, en inni í þessu eru ekki vefir sem kaupa þarf aðgang að eins Netpósturinn Bragi Halldórsson netfang Netpóstsins er: np@this.is og vefur Morgunblaðsins og DV, enda vart hægt að tala um þá vefi sem part af upplýsinga- hraðbrautinni. Það er að minnsta kosti minn skilningur að þær síður, sem þú getur ekki komist inn á aðeins með ARCTIC l.MAGES ▲ i ■ , i mfmm Limited to domains: i2 D&te is aíteroron September 15, 1996 Retumed 264 matches. Internetþjónusta sími 561-6699 iíAi fcsi fcm tui ííi a^i si mi ______________________________&l I Hfigto.lUjfeMs yeitirigMteðir | Intemet tnonwn»ði)ar | gtiomgvglvstol'nerúr Yeíiir og vefbiónw & taltmdi letum to the University of Akureyri. nóv. , ;e.htm, 600 bytes, 15Sep96 m place Síður sem tölvur INTÍS og annarra Fjöldi síðna % vefþjóna uppfæra sjálfkrafa daglega 100 37,5 Heimasíður einstaklinga 46 17,5 Netfangasíður Treknet 26 10,0 Skólar og menntastofnanir 24 9,0 Tölvufyrirtæki 22 8,5 Útgefendur að setja efni sitt á vefinn 17 6,5 Félagssamtök 16 6,0 Fyrirtæki önnur en tölvufyrirtæki 7 2,5 Leikir 6 2.5 Samtals 264 100,0 því að fara inn á Netið, teljist ekki með og séu ekki til um- ræðu hér, enda tilvist þeirra raunveruleiki sárafárra. Hér er aftur á móti til umræðu raun- veruleiki allra Netverja. Eins bað ég HotBot um allar síður sem fundust frá 1. til 15. september og voru þær 2.451, sem aftur gefur okkur að að meðaltali komi inn um eitt hundrað nýjar og breyttar síð- ur eftir að við höfum dregið frá sjálfuppfærðar breytingar. Internetið á íslandi borið uppi af einstak- lingum í sjálfboðastarfi Þegar maður lítur á þessar tölur og gefur sér þær for- semdur að þetta sé dreifingin að jafnaði dag hvern og að þessi skipting gefi mynd af skiptingu íslenska Nethornsins þá vekur eftirtekt hversu stór hluti er heimasíður einstak- linga. Ég heimsótti flestar þessar síður og af öllum þess- um síðum voru aðeins tveir stórir einstaklingsvefir áhuga- verðir. Annars vegar vefur ljós- myndarans Ragnars Th. „Arct- ic Images" og hins vegar vefur sem innihélt upplýsingar um hljómsveitir sem viðkomandi einstaklingur dáði. Þessir vefir báru það með sér að vera unn- ir af dugnaði og áhuga. Upplýs- ingagildi? Það verður hver að heimsækja þá og dæma sjálf/ur. Eins er líklegt að flest- ir vefir félagssamtaka séu unn- ir af einstaklingum af áhugan- um einum saman. En hvar eru fagmennirnir? Hvar er þessi mikli framsækni netheimur sem menn lofa svo mjög í ræðu og riti? Með fullri virðingu fyrir því sem sett var inn á íslenska nethornið 15. september síðastliðinn, þá sé ég þess ekki merki. Ekkert af þessu getur talist byltingar- kennt né af kalíberi sem rétt- lætir þetta oflof. En þetta er það sem þetta er og góðra gjalda vert sem slíkt. Því vil ég fjalla um það sem er á Netinu raunverulega frekar en taka þátt í þessu hástemmda tali, hér í þessum pistlum. „En hvar eru fagmennirnir? Hvar er þessi mikli framsækni netheimur sem menn lofa svo mjög í ræðu og riti?“ Stærsti vefur á íslandi Athyglisvert er að sjá af þessu að sjálfsagt er netfanga- síðuvefur Treknets stærsti vef- ur á íslandi og ekki þarf þar að velkjast í vafa um upplýsinga- gildi, það er ótvírætt. Þeir eru með á skrá 4.514 netföng og er ein síða undir hvert, svo að með yfirsíðum er þetta um 4.600 síðna vefur. Ef þessi tala sem reiknuð er út frá upplýs- ingum HotBot er rétt, þá er hann um 15% af öllu íslenska horninu. ímyndið ykkur ef símaskráin væri 15% af bóka- kosti landsmanna? Hvílíkt bókasafn eða hitt þó heldur. Ég er ekki að kasta rýrð á net- fangavef Treknets með því að segja þetta, engan veginn, að- eins reyna að sýna hlutföllin eins og þau líta út. Og þau líta ekki neitt of vel út. Ef þetta er nærri lagi hvað skiptingu varð- ar er ekki að furða þótt íslensk- ir Netverjar streymi úr landi og að skoðun á íslenskum vefjum sé eins lítil og raun ber vitni. Það lætur nærri að hingað til lands sé aðeins sótt ein síða á móti hverjum tíu sem íslend- ingar sækja út. Og af hverju, eru þetta svona lélegir vefir? Er þetta eðlilegt vegna þess að megnið af þessu er á íslensku? En af hverju skoða þá íslend- ingar svona lítið íslenska vefi sjálfir? Hefur kynningin gleymst? Þessum spurningum verður ekki svarað hér heldur haldið áfram í næstu viku og þá spurt: „Hvernig finn ég nokkuð á þessu íslenska horni Internetsins? Þarf ég virkilega að notast við erlenda gagna- banka til að finna netsíðu sem er kannski bara í næsta húsi við mig?“ np@this.is Mönnum þótti skrítiö aö sjá grein samgönguráöherra, Hall- dórs Blöndal, í Morgunblaðinu á dögunum um „samkeppni" Pósts & síma viö INTÍS á íslenska Inter- netmarkaönum. Þarna reyndi æösti yfirmaöur og fulltrúi „eig- enda“ P & S aö færa rök fyrir því aö ekkert væri athugavert viö þessa samkeppni, aö hér sætu menn viö sama borö í heiöarlegri og eðlilegri samkeppni. Almennir notendur Internetsins á íslandi hafa barist fyrir því aö koma upp þessu sambandi og eru INTÍS samtök stærstu endurseljend- anna. En INTlS er ofurselt því aö versla viö P & S (alveg eins og ég og þú). Þaö bjóöast ekki aörir val- kostir, því þaö er engin sam- keppni á fjarskiptasviöi á íslandi. Og á hverju ári borgum við P & S 1,4 milljaröa! fyrir aögang aö Net- inu. Meö því aö segja aö ein skrif- stofa P & S „versli" viö aöra, al- veg eins og INTÍS „neyöist" til aö gera, þá sé „eölileg og heiöarleg" samkeppni tryggöl Þetta eru rök sem standa þversum í hálsinum á manni... Það telst til mikilla viðburða þegar erlendar hljómsveitir troða upp á íslenskri grund og landinn gerist æ vandlátari á tónleika hann kýs að sækja. En þeir sem ekki fóru í Tunglið síðasta fimmtudagskvöld misstu af stórgóðum tónleikum. Var það ekki síð- uríslensku upphitunarsveitunum að þakka en aðalsveit kvöldsins, Super Furry Animals. — Svana Gísladóttirvar á staðnum... íslenskir hæfileikar Upphaflegur tilgangur tón- leikanna var, auk þess augljósa, að gefa ellefu manna sendisveit Creation-útgáfufyr- irtækisins kost á að heyra í efnilegasta tónlistarfólki lands- ins, og það kom í hlut Maus, Kolrössu krókríðandi og Botn- leðju að stíga á stokk. Maus startaði tónleikunum og var þétt að venju, enda skartar sveitin afburðagóðum trymbli. Á hæla þeirra fylgdi Kolrassa krókríðandi og lék lög af nýút- kominni plötu sinni; Köld eru kvennaráð. Var það mál manna að Rössurnar hefðu aldrei ver- ið betri, en þær voru í miklu stuði og munar þar mest um söngkonuna Elísu, sem er hreint frábær á sviði. Botn- leðja rak endahnútinn á ís- lenskan kafla þessa kvölds, en þeir drengir eru einnig að gefa út nýja plötu sem mun bera heitið Fólk er fífl. Botnleðja var kraftmikil og þétt að venju og það er ljóst að ásamt Kolrössu skipar sveitin sérstakan sess í íslensku tónlistarflórunni. Margir voru þeirrar skoðunar að þær hefðu hreinlega verið betri en velska sveitin Super Furry Animals og má sjálfsagt finna á því margar skýringar. Creation-menn óstundvísir Það verður að segjast að Super Furry var ekki upp á sitt besta í Tunglinu ef marka má ágæta plötu þeirra; Fuzzy Log- ic, og báru sveitarmenn við ýmsum erfiðleikum því til af- sökunar. Mestum vonbrigðum olli þó títtnefnd sendinefnd frá Creation, sem af einhverjum ástæðum kom of seint til leiks og náði aðeins lokalögum Botnleðju en missti algjörlega af hinum tveimur. Kannski gleymdu þeir að færa klukkur sínar fram um einn tíma, en vonbrigðin eru þeirra, við hin áttum gott tónlistarkvöld! Eftir tónleikana náði blaða- maður tali af kollega sínum Johnny Cigarette hjá breska tónlistartímaritinu Vox, sem þarna var staddur til að skrifa um íslandsförina. Lýsti hr. Cig- arette leiða sínum yfir að hafa misst af „kvennasveitinni", en kvaðst hafa orðið hrifinn af því sem hann heyrði til Botnleðju. Hyggst hann jafnvel skrifa stuttlega um sveitina í Vox. Vilja koma aftur Drengirnir í Super Furry Ani- mals voru mjög ánægðir með dvöl sína hér á landi og hafa mikinn áhuga á að koma aftur þegar hlýna fer í veðri.

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.