Helgarpósturinn - 07.11.1996, Page 18

Helgarpósturinn - 07.11.1996, Page 18
18 FIMIVmJDAGUR 7. NÓVEMBER1996 Sveitó vestri? Dead Man ★★★★ y Aðalleikendur: Johnny Depp, Gary Farmer, Lance Henríkson, Robert Mitchum og fleiri. Handrít og leikstjóm: Jim Jarmusch. að þykir ekkert fréttnæmt að heyra að nýjasta mynd Jims Jarmusch sé skrýtin; engin af myndum hans hefur getað talist eðlileg og er Dead Mart engin undantekning. Hún gerist í villta vestrinu en fjallar ekki um kúreka og tónlistin er mestöll spiluð á einn raf- magnsgítar. Bærinn sem myndin gerist í er ógeðslegur forarpyttur og algjörlega á skjön við bæi gömlu kúreka- myndanna. Inn í þennan við- bjóðslega sveitó bæ kemur menningarlega sinnaður mað- ur sem leikinn er af Johnny Depp. Hann er þó ekki lengi að lenda í klandri og áður en hann veit af er hann eftirlýstur fyrir morð af grimmum verksmiðju- eiganda, sem Robert Mitchum leikur. Jarmusch kýs að hafa mynd- ina í svart/hvítu eins og tvær bestu myndir hans, Stranger Than Paradise og Down By Law, voru. Á það vel við hinn sérkennilega stíl myndarinnar sem og hinar furðulegu per- sónur sem skjóta sífellt upp kollinum. Ein af þeim er indíán- inn Nobody sem leikinn er af Gary Farmer. Hann er án efa skemmtilegasta týpa myndar- innar fyrir utan furðulega ferðalanginn, sem Iggy Pop leikur. Það er án efa ein fyndn- asta og ógeðfelldasta persóna Jarmusch til þessa. Myndataka Robbys Muller er mjög góð og sérstök hvað varðar lýsingu og andstæður. Jarmusch sjálfum hefur tekist að skapa verk sem er bæði skemmtilega ótrúlegt og sér- stakt en um leið svo raunsætt að það hefði mátt halda að myndin væri tekin á tímum villta vestursins. Persónurnar eru allar mjög ólíkar og eftir- minnilegar auk þess sem sagan sjálf gæti ekki verið betri. Dead Man er sennilega besta mynd Jarmusch, því hún hefur til að bera alla hans kosti. Myndin er fyndin, alvarleg, býr yfir mjög góðum samtölum og er svo náttúrulega alveg stórfurðu- leg. Eyj a Dr. Brando The Island of Dr. Moreau ★ Aðalleikendun Marion Brando, Val Kilmer, David Uiewlis, Fainiza Balk og fleiri. Leik- stjórn: John Frankenheimer. Hinn stórgóði höfundur H.G. Wells samdi sögu ár- ið 1896 sem fjallaði um eyju þar sem óður vísindamaður gekk of langt og braut lögmál náttúrunnar með hræðilegum afleiðingum. Sagan var á sínum tíma ekki bara spennandi vís- indaskáldskapur heldur líka áhrifamikil dæmisaga. Nú hef- ur leikstjórinn John Franken- heimer fært sögu Wells yfir á hvíta tjaldið og má þar glögg- lega greina afturför hjá leik- stjóra sem var eitt sinn mjög fær. Frankenheimer byrjar mynd- ina á hafi úti þar sem við fáum að kynnast aðalpersónunni sem leikin er af David Thewlis. Thewlis lék eins og margir muna aðalpersónuna í mynd Mikes Leigh, Naked, og býst ég við að eftir að hafa séð hana þá geti manni ekki þótt mikið til Thewlis koma í þessari mynd. Val Kilmer leikur klikkaðan að- stoðarmann Moreaus, Montg- omery, hasshaus sem hefur mikið dálæti á því að prófa lyf dýranna sjálfur. Kilmer hefur oft sýnt það og sannað hversu fær leikari hann er, en honum mistekst herfilega hér. Brando sjálfur er hálfhlægilegur sem brjálaði vísindamaðurinn sem telur sig vera guð. Hann er klæddur upp eins og keisari og gengur um í slopp og með hatt sem er fullur af klökum og kæl- ir hausinn á honum. Dýrin eru furðuleg blanda af hinum og þessum kvikindum sem maður hefði frekar átt von á að sjá í StarWars-mynd. Gervin eru þó góð, enda er það brellumeist- arinn Stan Winston, sem hann- aði skímslið í Aliens, sem býr til skepnurnar og þó að frá tæknilegri hlið séu þær vel unnar, þá eru þær bara svo hlægilegar að þeim tekst ekki að vekja neina spennu. Og það er, þegar á heildina er litið, að- algalli myndarinnar. Þrátt fyrir góða leikara, góðan brellu- meistara og góðan leikstjóra þá er myndin hvorki dæmisaga né er hún spennandi. EltM SVÖRIN: 1. Öll svör eru jafngild nema D. Hafirðu merkt við D bendir það til að þú sért ekki nógu vakandi fyrir þínum eigin við- brögðum undir álagi. A=20, B=20, C=20, D=0. 2. B er besti kosturinn. For- eldrar sem búa yfir miklum til- finningaþroska nota tækifærið þegar barnið lendir í vandræð- um til að kenna því að skilja til- finningar sínar og finna ráð til lausnar vandanum. A=0, B=20, C=0, D=0. loft og vinna gegn fordómum er að lýsa því afdráttarlaust yf- ir að slíkt orðalag líðist ekki á vinnustaðnum. A=0, B=0, C=20, D=0. 6. D. Rannsóknir á reiði og aðferðum við að róa reiða ein- staklinga hafa sýnt að árang- ursríkasta aðferðin er fólgin í því að leiða hugann frá ástæðu reiðinnar, auðsýna skilning og stinga loks upp á öðru og mild- ara sjónarhorni gagnvart hinni upphaflegu ástæðu reiðinnar. 3. A. Að vera fær um að gera sér áætlun um að leysa vand- ann og fylgja henni er einmitt merki um sjálfsþroska. A=20, B=0, C=0, D=0. 4. C. Hæfileg bjartsýni er til marks um tilfinningalegan þroska og verður til þess að maður lítur á mótlæti sem áskorun og mistök sem holla lexíu. Hæfileg bjartsýni felur í sér að reyna nýjar aðferðir fremur en að gefast upp, ásaka sjálfan sig og leggjast í þung- lyndi. A=0, B=0, C=20, D=0. 5. C. Árangursríkasta aðferð- in til að skapa rétt andrúms- 7. A. Gerðu að minnsta kosti 20 mínútna hlé. Það tekur að minnsta kosti þann tíma fyrir líkamann að komast í samt lag eftir heiftarlega reiði. Reiðin leiðir hugann afvega og eykur líkurnar á ósanngjörnum árás- um. Eftir að reiðin hefur sjatn- að er mun líklegra að þið getið rætt málið og náð árangri með samtalinu. A=0, B=5, C=5, D=20. 8. B. Hópstarf gengur best þegar allir hafa náð að kynnast og er farið að líða vel í návist hinna. Undir slíkum kringum- stæðum getur hver og einn lagt mest af mörkum. A=0, B=20, C=0, D=0. 9. D. Feimni barna er iðulega unnt að lækna ef foreldrarnir vinna skipulega að því að skapa aðstæður sem krefjast þess af barninu að það takist á við vandann en eru á hinn bóg- inn ekki of erfiðar. A=0, B=5, C=0, D=20. 10. B. Með því að takast á við hæfilega krefjandi verkefni er líklegast að þér takist að skapa það hugarástand og vel- líðan sem auðveldar þér bæði nám og frammistöðu. A=0, B=20, C=0, D=0. HVERNIG ÁTTU SVO AÐ TULKA STIGAFJOLDA ÞINN? 200 — Tilfinningaþroski þinn er allt að því ofurmann- legur. (Með öðrum orðum: Þú svindlaðir.) 175 — Þú hefur meiri tilfinn- ingaþroska en flest þau stór- menni sögunnar sem einkum hafa getið sér orð fyrir sálar- legt jafnvægi. 150 — Þú getur borið þig saman við sjálfan Mahatma Gandhi. 125 — Þú getur borið þig saman við Sigmund Freud. 100 — Tilfinningaþroski þinn er í meðallagi. 75 — Hefur þér dottið í hug að leita til sálfræðings? 50 — Þú átt í erfiðleikum á tilfinningasviðinu. 25 — Að því er tilfinninga- þroska varðar stendur þú á sama stigi og Neandertals- maðurinn. 0 — Um tilfinningaþroska þinn er ekkert að segja. Hann er sem sé enginn. (En það er auðvitað líka hugsanlegt að þú hafir ætlað að vera sniðug(ur) og svindla — með þessum hrapallegu afleiðingum!) Tilfinningaþroski skapar þér betri stöðu í samkeppni við aðra. Jafnvel á vinnustöðum þar sem allir eru vel gefnir sýna kannanir að það eru ekki endilega þeir sem hafa hæsta greindarvísitölu sem afkasta mestu eða skila bestum árangri í starfi, heldur fremur hinir sem búa yfir þroskuðu tilfinningalífi. Há greindarvísi- tala getur vissulega gagnast þér vel ef þú starfar að fræði- legum rannsóknum en þrosk- að tilfinningalíf er til dæmis líklegra til að skila þér árangri ef þú ætlar að reyna fyrir þér I stjórnmálum eða fjölmiðlun. Umburðarlyndi og svipaðir eiginleikar, sem iðulega eru taldir búa í hjartanu fremur en heilanum, auka líkur á að hjónaband þitt verði farsælt. Það er skortur á þessum eigin- leikum sem skýrir hversu hrapallega fólki getur mistek- ist að stjórna eigin lífi þrátt fyrir himinháa greindarvísi- tölu. Rannsóknir á fólki með háa greindarvísitölu en lítt þrosk- að tilfinningalíf sýna einmitt hinn dæmigerða leiðindapúka. Þetta fólk er óhemju gagnrýn- ið á aðra, vanafast og sýnir ógjarnan tilfinningar né heldur er það reiðubúið að taka við tjáningu annarra á tilfinninga- sviðinu. Fólk með þroskaðar tilfinningar er svo þvert á móti opnara, binst öðru fólki auð- veldlega tilfinningaböndum og leggur iðulega á sig vinnu í þágu einhvers málstaðar. Þetta fólk á auðvelt með að auðsýna samúð en jafnframt er tilfinningalíf þess í góðu jafnvægi. Því líður vel og það er ánægt með sjálft sig, aðra og tilveruna yfirleitt. Há greindarvísitala gerir þig vissulega að gáfumenni — en ekki endilega að góðmenni. Ari Eldjárn skrifar um kvikmyndir Bíóin í bænum DOásföáiDgiM^ The Nutty Professor ★ Murphy eins og hann gerist verstur. Horfíð frekar á frummyndina eöa ieig- iö „Eddie Murphy Delerious’. The Arrival ★ Handritið er fáránlega paranoid, leik- stjðrnin slðpp og geimverumar hlægi- legar. Djöflaeyjan ★★★★ íslensk kvikmyndagerð á uppieiö. Vonandi koma fleiri svona. Jerusalem ★★★ Bille August í góöu formi. Sagan er dramatísk og Maria Bonnevie skarar fram úr. §Á\ffiffl=[8)fiá)ÍDD A Time To Kill ★★★ Effektift réttardrama meO góOum leik- urum. Matthew McConaughey er bestur. Phenomenon ★★ Myndin byijar vel og fyrri helmingur- inn er skemmtilegur en hún klúörast gjörsamlega eftir hlé. Trainspotting ★★★★★ Besta mynd ársins. Sprenghlægileg og viöbjóösleg á köflum og sjónræn veisla. Eraser ★★ Meöalgóö spennumynd. Slökktu á heilanum og gleymdu allri skynsemi og þá hefuröu gaman afþessu. ©■^©fPODQDlMá) Djöflaeyjan (Sjá Háskólabíó) Multiplicity ★★★ Sprenghlægileg gamanmynd meö Mi- chael Keaton í aðalhlutverki. Sunset Park 0 Nei hættiöi nú alveg! Dangerous Minds á körfuboltavelli? ILsiBDlsirásMá Striptease ★★ Ekkert hræöileg og ekkert frábær. Burt Reynolds er fyndinn en endirínn absúrd. Escape from LA ★ John Carpenter vinnur greinilega bara vel meö litla peninga á milli hand- anna. K^ŒÍbOgDDDOí] Striptease (Sjá Laugarásbíó) Girl 6 ★ Hvaö er Spike Lee aö hugsa? Ein- hvers staöar innan um þrautleiöinleg símavændisatriði leynist siöferöis- saga. ID4 ★ Þjóöremba og tölvubrellur. The Great White Hype ★ Nokkur fyndin atriöi en slæmur endir.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.