Helgarpósturinn - 23.04.1997, Side 19
MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL1997
19
llníted hefur sigrað
- segir Arsene Wenger, þjálfarí Arsenal, og segir tómt mál að
tala um fræðilega möguleika annarra liða
u
Ein aðalástæð-
an fyrir vel-
gengni Arsenal
er harka og
kraftur varnar-
mannanna.
Petta útspil Wengers minn-
ir um margt á ummæii
þjálfara handknattleiksliðs
Stjörnunnar (kvenna) á dögun-
um. Hvort þetta er úthugsuð
sálfræðibrella eða ekki þá er
rétt að Manchester-menn eru
líklegir til að hampa bikarnum
í fjórða skipti á fimm árum í
vor. Enda gríðarlega gott og
samstillt lið. Það má þó ekki
gleyma því að liðið á óheyri-
lega erfitt prógramm fyrir
höndum. Ekki nóg með að það
þurfi að slást í Evrópu, heldur
þurfa æði margir leikmenn
liðsins að spila landsleik fyrir
Englendinga gegn Georgíu.
Auðvitað eru leikmenn keppi-
nautanna líka í landsliðinu, en
það munar um hvern leik, sér-
staklega þegar fjórir erfiðir
leikir bíða United frá __________
3.-11. maí.
Margir halda því
fram að markvörður
Liverpool, David
James, hafi rétt Unit-
ed bikarinn. En hann
átti arfaslakan dag
gegn United og það lá
við að hann ætti fyrir-
gjöfina á Cole í þriðja
markinu. Margir
enskir markmenn,
bæði spilandi og
hættir, hafa orðið til
að taka upp hansk-
ann fyrir James. Hann
hafi vissulega átt
slæman mánuð, en
ekkert sé verra fyrir
markmann en að
missa sjálfstraustið
og ekki megi rýja
hann því — enda sé
hann góður mark-
maður með framtíð-
ina fyrir sér. Hvort
sem James nær að
vinna úr sínum mál-
um og hendir myndbandsspól-
unum með forvera sínum
Bruce „gönuhlaupi" Grobbele-
ar“ eða ekki er „næsta“ víst að
hann mun ekki gleyma 19. apr-
íl 1997 í bráð. Til að kóróna
slæman mánuð datt James úr
landsliðshóp Englendinga um
helgina.
VORU BARA BETRI
United-menn voru vel að
sigrinum komnir, spiluðu vel
og sóknir liðsins voru mun
markvissari en reitaboltaspil
Liverpool. Vörn liðsins var
enda sterk og segist Ferguson
ekki hræðast neitt lið í heimin-
um; vinni hans varnarmenn
vinnuna sína geti þeir varla
tapað.
Líklega munu áhangendur
Liverpool-liðsins muna vel og
lengi snautlega frammistöðu
annars línuvarðarins í leikn-
um. í þrígang flaggaði hann á
það sem sjónvarpsáhorfendur
sáu glögglega að var ekki rang-
staða. Astandið var svo slæmt
að Bjami Fel hafði á orði að
líklega þyrfti línuvörðurinn að
rifja upp reglurnar. Manchest-
er-liðið var líka rænt tækifær-
um eins og Liverpool og það
verður fróðlegt að sjá hvort
þessi snáði fær að flagga í
framtíðinni.
EKKI BUIÐ ENN?
Eins og áður segir léku Unit-
ed-menn á als oddi í leiknum
og nú er bara spurning hvort
þeir ná að halda þetta út. Leik-
ir liðsins framundan eru síður
en svo auðveldir og eins og
alltaf er ekkert gefið eftir í síð-
ustu umferðunum. Botnliðin
berjast af slíkum fítonskrafti
að bestu lið landsins eiga í vök
að verjast. Margir leikmanna
bestu liðanna þurfa að spila
með landsliðum sínum á næst-
unni, að ógleymdum Evrópu-
leikjum Manchester og Li-
verpool. Eftir jafntefli Coven-
try og Arsenal er Arsenal end-
anlega úr sögunni sem keppi-
nautur Man. Un. um titilinn.
Einungis Liverpool-menn eiga
fræðilega möguleika á að ná
David Seaman, „Sea-
amo“, er besti mark-
maður Englendinga, það
er ekki nokkur spurning.
Hér ver hann víti frá
Miguel Nadar og tryggir
Englendingum sæti í
undanúrslitum EM.
Þessi maður hefur breytt ansi
mörgu í Arsenal-liðinu. Patrick Vi-
eira var nánast stolið frá AC Mil-
an, svo lítið borguðu Arsenal-
menn fyrír þennan frábæra leik-
mann.
eða komast upp fyrir Cantona
og félaga. Því má svo ekki
gleyma að annað sætið í deild-
inni gefur rétt til að komast í
meistaradeildina og það er
metnaðarmál bæði fyrir Li-
verpool og Arsenal að komast
þangað.
SKYTTURNAR ÞRJAR
Það er annars athyglisvert
hversu frábærum ár-
angri Wenger hefur
náð með liðið. Liðið
hefur breyst frá því að
spila leiðinlegan fót-
bolta yfir í skemmti-
legt lið þar sem spil er
allsráðandi. Skytturn-
ar þrjár frá Frakklandi
hafa sett skemmtileg-
an svip á liðið. Arsene
Wenger, sem náði frá-
bærum árangri með
Mónakó á sínum tíma,
virðist hafa gert
kraftaverk á Highbury. Hvorki
Glenn Hoddlc né George
Weah eiga nægilega sterk orð
til að lýsa hæfileikum hans
sem þjálfara og segja báðir
frama sinn honum að þakka.
Wenger keypti strax Patrick
Vieira, sem hefur reynst liðinu
frábær; getur sent hárná-
kvæmar sendingar stutt og
langt — með hvorum fætinum
sem er. Hefur frábært auga fyr-
ir spili og er alltaf mættur til að
vinna skítverkin á miðjunni. Þá
tekur hann svo löng skref að
samherjar hans segja að hann
fari völlinn þveran í tíu skref-
um! Vieira, sem er fæddur í
Senegal, er almennt talinn
Paul Merson,
kókaínbróðir
eins og Bjami
Fel kynni að
kalla hann,
hefur spilað
vel á leiktíð-
inni með
Arsenal og er
einn af þeim
mönnum sem
Arsene Wen-
ger vill byggja
lið sitt á.
HeimsldúbbiH'
Sá mæti knattspyrnuáhugamaður
Halldór Einarsson stendur fyrir
stórmerkilegum alþjóðlegum klúbbi,
Heimsklúbbi áhugamanna um knatt-
spyrnu. Klúbburinn verður starfræktur
á Internetinu og því eru möguleikar
hans nær ótakmarkaðir og í rauninni er
ómögulegt annað en þessi hugmynd
gangi upp, verði jafn vel að henni hlúð á
næstunni og að undirbúningnum.
Stefnt er að því að klúbbfélagar fái
sem fjölbreytilegastar upplýsingar um
nánast hvað sem er varðandi „sína
menn“. Klúbburinn kemur og til með að
útvega félögum góða miða á leiki. Segja
má að með þessu tiltæki sé kastljósinu
beint að áhugamanninum en ekki at-
vinnumanninum, en það er áhugamann-
inum að þakka að atvinnumaðurinn hef-
ur atvinnu af boltasparki.
Það verða þó ekki bara áhugamenn
sem njóta góðs af starfsemi klúbbsins.
Þjálfarar og leikmenn geta náð sér í fróð-
leik hvers konar og upplýsingar um
hugðarefni sín. Eiginlega er með ólíkind-
um að engum skuli hafa dottið þetta í
hug fyrr!
HP óskar Halldóri og klúbbfélögum til
lukku með félagsskapinn og hvetur alla
áhugamenn um knattspyrnu til að kynna
sér betur starfsemi klúbbsins. Hér með
fylgir netfang hans fyrir áhugasama.
soccer@wssc.is
bestu kaup ársins í enska bolt-
anum og hann er sá maður
sem Arsenal ætlar að byggja
lið sitt á. Remi Garde er þriðji
Frakkinn hjá Arsenal og hefur
staðið fyrir sínu þegar hann
hefur gengið heill til skógar.
LEIKIR LIVERPOOL
Liverpool fær Tottenham í
heimsókn 3. maí. Það er leikur
sem ætti að vinnast, enda
stefnir Tottenham ekki að
neinu sérstöku, bara að klára
deildina með stæl, en Liver-
pool hefur allt að vinna. Eftir
Tottenham-Ieikinn taka við
tveir erfiðir útileikir gegn
Wimbledon, sem Liverpool
gengur nánast undantekning-
arlaust illa gegn, og svo spilar
liðið við Sheff. Wed., sem er í
fínu formi þessa dagana. Car-
bone og félagar hans í Sheffi-
eld hafa verið baneitraðir að
undanförnu og eru að reyna að
ná sér í Evrópusæti.
Til að Liverpool eigi séns á
að vinna mega þeir helst ekki
tapa stigi og það verður mjög
erfitt fyrir þá, sérstaklega í
ljósi þess að Robbie Fowler,
helsti markaskorarinn, verður
ekki meira með vegna banns.
LEIKIR UNITED
United á erfitt verkefni fyrir
höndum. Liðið spilar fjóra leiki
frá 3.-11. maí, hvern öðrum erf-
iðari. Þegar falldraugurinn
blasir við liðunum í neðri hluta
deildarinnar fyllast þau eld-
móði sem erfitt er við að eiga.
Fyrsti leikur Man. Utd. er gegn
Leicester (nýkrýndum Coca
Cola-meisturum). Leicester er
ekki enn sloppið við fall, en
getur gert það með því. að
sigra United á Filbert Street.
Þessu næst fær Manchester
þrjá heimaleiki í röð og hingað
til hafa ekki margir sótt gull í
greipar heimamanna á Old
Trafford. Bryan Robson mætir
með lærisveina sína, sem
hljóta að vera gírugir í að
standa sig eftir slaka frammi-
stöðu í deildinni og ótrúlegt
klúður í bikarkeppnunum.
Boro er í fallsæti og verður að
vinna og líklega mun Juninho
hinn brasilíski gera allt hvað
hann getur, og það er ekki svo
lítið, til að sigra United. New-
castle, með Shearer í broddi
fylkingar, hefur spilað vel upp
á síðkastið. Skorað grimmt og
verið á ótrúlega góðri siglingu.
Liðið á möguleika á að ná sæti
í meistaradeild Evrópu, en þeir
verða að sigra bæði Arsenal og
United til að það gangi og
treysta á að Liverpool tapi
a.m.k. einum leik og geri eitt
jafntefli. Þetta er ekki svo lang-
sótt og því er sigur fyrir
Newcastle lífsspursmál. Það er
líka hugur í leikmönnum New-
castle að sýna hvað í þeim býr
gegn sterku liði. Lokaleikur
United er gegn West Ham.
Verði West Ham fallið eða úr
allri hættu verður leikurinn
léttur fyrir United. Öðru máli
gegnir ef West Ham verður í
hættu. Þá er ekki jafnvíst að
ailt fari eins og ætlað er.