Alþýðublaðið - 16.07.1974, Blaðsíða 2
LL flytur yfir
götuna til FÍ
I nokkur ár voru skrifstoíur islensku flugfélaganna gegnt hvor
annarri viö Vester Farimagsgade. Skrifstofa Flugfélags Islands að
no. 1 og skrifstofa Loftleiöa aö no. 4. Þessi skipan húsnæðismálanna
hélstenn um sinn eftir að stjórn og verkefni voru sameinuö um ára-
mótin siöastliöin.
t siöustu viku flutti svo starfsemin saman aö Vester Farimags-
gade 1. Stutt var aö flytja, aðeins þvert yfir götuna og á myndinni
sjást starfsmenn félaganna flytja skilti Loftleiöa aö hinni sameigin-
legu skrifstofu, þar sem nafn Flugfélagsins, eöa Icelandair eins og
félagiö heitir erlendis, var fyrir.
Forstjóri starfsemi Islensku flugfélaganna i Danmörku og hinnar
sameiginlegu skrifstofu að Vester Farimagsgade 1 er Vilhjálmur
Guðmundsson og aðstoöarforstjóri Milton Lundgren.
: Happdrætti á Vesturlandi
I Dregið hefur verið i skyndihappdrætti Al-
■ þýðuflokksins á Vesturlandi. Fyrsta vinning,
■ ferð til Mallorka, hlaut miði nr. 451, annan
; vinning (matarstell) hlaut miði nr. 244 og
; þriðja vinning (reiðhjól) hlaut miði nr. 2764.
! Vinninganna má vitja til Sveins Guðmunds-
" sonar, formanns kjördæmisráðs.
Barnagæsluvandamálin
hrekja stúdenta frá
námi, ef ekki rætist úr
Þjóðhátið i Kðpavogi
Hesturinn í
11 aldir
Á fundi sinum 2.-7. gerði
hagsmunanefnd S.H.l. eftir-
farandi ályktun:
Hagsmunanefnd Stúdenta-
ráös Háskóla islands sam-
þykkir að beina þeim tilmæi-
um til borgarstjórnar Reykja-
vfkur og félagsmálaráðherra
að framkvæmdum við bygg-
ingu leikskóla fyrir börn verði
hraðað sem mest þannig að
unnt verði að fullnægja hinni
miklu eftirspurn stúdenta eftir
gæslu fyrir börn sin.
Hagsmunanefnd vill einnig
beina athygli stjórnvalda að
þvi, að nú eru 110 börn
stúdenta á biðlista hjá Barna-
vinafélaginu Sumargjöf og að
biötimi eftir plássi þar er
u.þ.b. 1 ár. Það er þvl mjög
brýnt, að bæta úr þvi neyðar-
ástandi sem nú rlkir I barna-
heimilismálum, þar sem ljóst
er, að margir stúdentar
neyðast til að hverfa frá námi,
komi þeir ekki börnum slnum
á dagvistunarheimili.
Þá v i 11 hagsmunanefnd
skora á þá stúdenta, sem þeg-
ar hafa komiö börnum sinum
á barnaheimili á vegum
Félagsstofnunar stúdenta, að
þeir taki börn sin af barna-
heimilum, eigi þeir nokkra
möguleika aðra á gæslu fyrir
börn sin og viki þannig fyrir
þeim sem, verr eru á vegi
staddir og ekki hafa mögu-
leika til annars en gæslu á
vegum Félagsstofnunar
Þjóðhátið i tilefni 11 alda bú-
setu verður haldin I Kópavogi
sunnudaginn 21. júll
(næstu helgi).
Hátiðahöldin hefjast ki.
13,30 með skrúðgöngu frá Vlg-
hólaskóla og fer Skólahljóm-
sveit Kópavogs fyrir göng-
unni, en gengið verður fylktu
liði á hátiðasvæðið — Rúts-
tún.
Dagskráin á hátlðasvæðinu
hefst kl. 14,00 með helgistund.
Siðan flytur forseti bæjar
stjórnar, Sigurður Helgason,
setningarræðu og kirkjukór
syngur með undirleik Skóla-
hljómsveitarinnar. Þá verða
fimleika- júdó- og glímu-
sýningar og sýndir þjóðdans-
ar. Guðmundur Jónsson og
Magnús Jónsson syngja I sam-
spili við Skóiahljómsveitina.
Kynnir verður Þorsteinn
Hannesson. Hestamanna-
félagið Gustur sér um at-
hyglisvert atriði sem er:
Hesturinn I 11 aldir.
Eftir kvöldmat verður tekið
til að nýju, en kvölddagskráin
hefst kl. 20,30 með lúðra-
blæstri og dansi.
Hljómsveit Ragnars Bjarna-
sonar leikur fyrir dansinum en
Ómar Ragnarsson og Karl
Einarsson skemmta.
Bæjarstjóri, Björgvin
Sæmundsson, mun siðan siita
hátlðinni en að þvi loknu mun
loftið loga af flugeldum.
Lista- og menningarsjóður
Kópavogs verður með lista-
verkasýningu I Vighólaskóla,
sem verður opnuð á laugardag
kl. 16 og stendur til 3ja ágúst.
Ný lög ríkisstjórnarinnar.
Stórauka skriffinnskuna
Umsögn
sveitar-
félaganna
að engu
höfð
Þegar frumvarp til laga um
ráöstafanir til aö draga úr
áhrifum oliuverðhækkana á
hitunarkostnað íbúða var til
meðferðar á Alþingi i april-
mánuði slöastliðnum, lét stjórn
Sambands Islenskra sveitar-
félaga hlutaöeigandi þingnefnd-
um i té umsögn um frumvarpiö.
Lýsti stjórnin sig að sjálfsögðu
samþykka ráöstöfunum til
lækkunar oliuverðs til upphitun
ar ibúöa, en tjáöi sig hinsvegar
algerlega mótfallna þeirri
niðurgreiösluaðferð, sem ráö-
gerö var I frumvarpinu, þ.e.
greiöslu oliustyrks til skatt-
framteljenda fyrir milligöngu
sveitarstjórna, sökum þess hve
sú niðurgreiðsluaðferð væri
flókin og kostnaðarsöm. Stjórn
sambandsins benti á þaö i um-
sögn sinni til Alþingis, aö aug-
ljósir væru ýmsir annmarkar á
framkvæmd ráðgerörar niöur-
greiðsluaðferöar og aö mun ein-
faldara og ódýrara virtist vera
að greiða niöur húsakyndingar-
oliu hjá dreifingaraðilum (olíu-
Hafnarfjarðar Apótek
Opið öll kvöld til kl. 7
Laugardaga til kl. 2
Helgidaga kl. 2 til 4.
félögunum) llkt og gert væri I
sambandi við niðurgreiöslur á
landbúnaöarafuröum.
Mótmæli og ábendingar sam-
bandsins voru aö engu haföar,
og var frumvarpiö samþykkt
óbreytt á Alþingi og staðfest
sem lög nr. 47, 14. mai 1974. Á
grundvelli laganna gaf við-
skiptaráðuneytiö út reglugerö
30. mai s.l. um úthlutun oliu-
styrks. Samkvæmt lögunum og
reglugerðinni ber sveitarstjórn-
um að senda ráöuneytinu á
þriggja mánaöa fresti greinar-
gerö um fjölda Ibúa i viðkom-
andi sveitarfélagi, sem búa viö
oliuupphitun og hafa búiö i
sveitarfélaginu meirihluta
þriggja mánaða timabilsins.
Skalsérstaklega tilgreina fjölda
lífeyrisþega. Ráðuneytiö
ákveður siöan upphæö styrksins
til hvers einstaklings fyrir hvert
timabil meö hliðsjón af stöðu
oliusjóös og fjölda þeirra, sem
styrks njóta i landinu. Siðan
reiknar ráðuneytiö út saman-
lagða styrkfjárhæö i hverju
sveitarfélagi og sendir
greiðsluna til viðkomandi
sveitarfélags, sem á að annast
uthlutun oliustyrksins, sem
greiðist hverjum skattframtelj-
anda vegna hans, maka hans og
barna, sem eru á framfæri hans
og ekki sjálfstæðir framtelj-
endur.
Af framangreindu er ljóst, aö
efnt hefur verið til mikillar
skriffinnsku, sem bitnar á ráöu-
neyti, sveitarfélögum og þeim,
sem styrks njóta. Stjórn Sam-
bands islenskra sveitarfélaga
vill itreka það, sem fram kemur
i umsögn stjórnarinnar til Al-
þingis, aö fyrirsjáanleg eru
ýmis vandkvæöi á því, að
greinargeröir sveitarfélaga um
þá, sem búa við oliuupphitun
geti orðið nákvæmar, t.d. i sam-
band viö blandaða upphitunar-
gjafa og fjarvistir styrkþega i
öðrum sveitarfélögum utan lög-
og dvalarheimila.
Samkvæmt reglugeröinni,
sem gefin var út 30. mai s.l., og
bréfi ráöuneytisins dags. sama
dag til allra sveitarfélaga
landsins áttu sveitarfélögin að
hafa skilað greinargerðum til
ráðuneytisins fyrir 15. júni.
Höföu sveitarfélögin þvi aöeins
nokkra daga til stefnu. Ljóst
mátti vera, að slikt var ófram-
kvæmanlegt, ekki sist þar sem
leiðbeiningarreglur skorti að
mestu um framkvæmd
könnunarinnar og frágang
greinargerða. 1 hinum minni
sveitarfélögum eru fram-
kvæmdastörf oddvita aukastörf
og I hinum stærri sveitarfélög-
um er sjálfstæð könnun og
samning greinargerða sam-
kvæmt lögunum og reglu-
gerðinni mikið starf, þar sem
ekki er hægt að notast viö fyrir-
liggjandi skrár óbreyttar.
Sveitarfélögunum verður þvi
ekki með neinni sanngirni kennt
um tafir, sem verða kunna á
skilum greinargerða og úthlut-
un oliustyrks umfram þau tima-
mörk, sem I lögunum greinir.
Slikt máttu höfundar lagafrum-
varpsins og löggjafinn sjá fyrir.
1
BLÓMAHÚSIÐ ífclÍb SkiphoJti 37 Opið til kl. 21.30. ^y^^Einnig laugardaga oa sunnudaga. (U) ÞAÐ BÖRGAR SIG AÐ VERZLA f KR0N
Dúnn
í GUEIIBAE
/ími 84200
©
Þriðjudagur 16. júlí 1974.