Alþýðublaðið - 16.07.1974, Qupperneq 12
VALSMONNUM TOKST AD JAFNA
A SlOUSTU STUNDU
í leik þeirra gegn Eyjamönnum
Á föstudagskvöldið fór
fram einn leikur i I.
deild, þá lék Valur við
ÍBV á Laugardalsvell-
inum.Lauk leiknum með
jafntefli 2—2, i hálfleik
var staðan 1-^0 fyrir
Val.
Leikurinn bauð uppá
nokkra spennu og var
allvel leikinn af báðum
aðilum. Einn af betri
leikjum sumarsins.
Strax á 1. min.á Ingi Björn skot
á markið úr góðu færi, en hitti
boltann illa og Arsæll ver auð-
veldlega. Á 14. min á Hörður
Hilmarsson þrumuskot af löngu
færi, en beint i fang' Arsæls i
Eyjamarkinu.
Eyjamenn snúa vörn i sókn og
Orn óskarsson á gott langskot, en
rétt framhjá.
Valsmenn snúa vörn I sókn,
Friðþjófur ætlar að hreinsa,en
tekst ekki betur en svo að hann
sneibir boltann út til Alexanders,
sem brunar upp kantinn, gefur
vel fyrir markið á Kristin
Björnsson sem gefur sér góðan
tima inni i vitateigi Eyjamanna
leggur boltann fyrir sig og skorar
örugglega.
A 30. min.komst Orn Óskarsson
inn i sendingu hjá Jóhannesi
Eðvaldssyni, sem hann ætlaði
Sigurði Haraldssyni i markinu, en
hittir ekki tómt markið. boltinn
rúllar framhjá stönginni.
Á 36. min.á Ingi Björn skot úr
erfiðri aðstöðu á mark Eyja-
manna af stuttu færi, en Arsæll er
vel á verði og ver vel.
Seinni hálfleikur byrjaði af
miklum krafti og eftir 9 minútur
máttu Valsmenn hirða boltann úr
markinu hjá sér. Markið skoraði
Orn Óskarsson með harðfylgi
sinu, eftir að hafa leikið á varnar-
menn Vals. Sigurður Haraldsson
hafðihendur á boltanum, en hélt
ekki skotinu.
A 69. min. taka svo Vestmann-
eyingar forystu i leiknum með
marki Tómasar Pálssonar. Allan
heiðurinn af þvi mátti örn
Óskarsson, hann lék með boltann
upp allan völlinn upp að enda-
mörkum, þar sem hann gaf fyrir
markið, þar sem Tómas þurfti
ekki annað en að reka tána i bolt-
ann.
Þegar hér var komið sögu gerði
rússneski þjálfari Vals tvær
breytingará liðinu, þeir Sigurður
Jónsson og Vilhjálmur
Kjartansson komu inná, Vil-
hjálmur i stöðu bakvarðar, en
Sigurbur tók við stööu
Jóhannesar i vörninni sem lék
nú sem tengiliður.
Þessi breyting virkaði til hins
betra á leik liðsins, þvi það sem af
var hálfleiksins höfðu Eyjamenn
verið öllu friskari i sóknaraðgerð-
um sinum. Nú snérist dæmið við
og Valsmenn gerðu harða hrið að
marki Eyjamanna. Á 83-min. fá
Valsmenn dæmda aukaspyrnu
við vitateig Vestmannaeyinga,
eftir nokkurt þóf i vitateignum
berst boltinn út til hægri til
Jóhannesar, sem spyrnir aftur-
fyrir sig fyrir markið aftur. Þar
kemur Alexander á fullri lerð og
skorar með þrumuskoti. 2-2 sem
uröu lokatölur leiksins. Sem
verður að teljast sanngjarnt
miðað við gang leiksins.
Valsliðið lék nú einn sinn besta
leik i mótinu, sem fyrr er
Jóhannes Eðvaldsson maður
liðsins, en auk hans áttu þeir
Hörður Hilmarsson, Grimur
Sæmundsson, Dýri Guðmundsson
og Alexander góðan leik. Það er
nokkurt vandamál hjá liðinu
hversu mjög þeir Ingi Björn og
Kristinn einleika og ætla sér of oft
að gera hlutina sjálfir.
I liði Eyjamanna var örn
óskarsson langbesti maðurinn en
auk hans áttu þeir Þórður
Hallgrimsson og Arsæll i markinu
góðan leik og vart við hann að
sakast um mörkin.
Leikinn dæmdi Steinn
Guðmundsson og fannst manni
hann leyfa fullmikla hörku oft á
tiðum.
Þarna eru þeir félagar örn
Óskarsson og óskar Valtýsson á
fullri ferð i ieiknum gegn Val á
föstudagskvöidið. örn átti þá sinn
besta leik i sumar og átti allan
heiðurinn af mörkum Eyja-
manna. Hvað eftir annað gerði
hann mikinn usla I Vaisvörninni
með hraða sinum og baráttugleöi.
Óskar er lykil leikmaöurinn á
miðjunni en þar vantar þá til-
finnanlega góða tengiiiði.
Jóhannes Eðvaldsson átti stórleik með liði sinu Val gegn Eyjamönnum.
eftir að Eyjamenn höfðu tekið forystu I leiknum og voru að ná tökum á
leiknum. Tók hann viðstööu tengiliðs, það gjörbreytti öllum leik liðsins
og þeim tókst að jafna leikinn. Myndin er úr leik Keflvlkinga og Vals
þar sem þeir Guðni og Jóhannes berjast um boltann.
Þjálfari
Eyjamanna
fornemaðist’
og er farinn heim
7
Þjálfari Vestmannaeyinga
Duncan McDowell hélt af landi
brott á sunnudaginn eftir að
óánægja hafbi komið upp milli
hans og leikmannanna eftir leik
inn við Val á föstudagskvöldið. Að
sögn Eyjamanna þá voru þeir
ánægðir með McDowell sem
þjálfara, en ekki hversu óstöðug-
ur hann hefur verið. Enda má
segja að lið þeirra sé nokkuð
óstöðugt þessa dagana.
Ekki eru Eyjamenn enn búnir
að ráða þjálfara, en Victor Heiga-
son sem hefur þjálfað lið þeirra
mun taka að sér þjálfunina þar til
nýr þjálfari hefur verið ráðinn.
Honum mun hafa verið boðið að
taka liðið að sér en ekki þekkst
boðið vegna anna.
Það er þvi með öllu óljóst hver
það verður sem tekur að sér
þjálfun liðsins, en trúlega munu
þeir reyna fyrir sér innanlands
áöur en þeir leita út út fyrir land-
steinana.
Bláskógaskokkið
Bláskógaskokkið svokallaða fór
fram á sunnudaginn hlaupið var
eða skokkað frá fejábakka á
Þingvöllum til Laugarvatns.
Keppt var i fimm aldursflokkum
karla og kvenna. Þátttakendur I
hlaupinu voru á öllum aldri sá
elsti 75 ára en sá yngsti sjö ára.
Fyrstur I hlaupinu varð Eng-
lendingur Symonds, annar varð
landi hans Parker, en i þriðja sæti
kom Helgi Ingvarsson. 1 kveiína-
flokki sigraði Svandis
Sigurðardóttir.
Allir keppendurnir um 300
talsins fengu viðurkenningar
skjöl fyrir þátttöku sina I
skokkinu.
©r
Þriöjudagur 16. júlí 1974.