Alþýðublaðið - 16.07.1974, Side 13
Matthias Hallgrimsson skorafti eina mark Skagamanna I leiknum gegn Akureyringum. Skagamenn
áttu fjöldan allan af tækifærum sem þeir misnotuöu I leiknum.
Lánsamir Akureyringar Qarv p|aver
riniuniniiiii i/nn oi/iniiinminii í i/ni i J J
EIGINGIRNIN KOM SKAGAMONNUM IKOLL
Akurnesingar sóttu
Akureyringa heim á laug-
ardag og léku liðin síðari
leik sinn í fyrstu deildinni.
Leikurinn fór fram í ágæt-
is veðri og lyktaði með
lafntefli/ eitt mark gegn
einu. úrslit leiksins eru
ósanngjörn þar sem
Skagamenn höfðu tals-
verða yf irburði, en tókst þó
ekki að skora nema eitt
mark, þrátt fyrir að oft
skylli hurð nærri hælum
við mark heimamanna.
Akureyringar léku undan hægri
norðan golu í fyrri hálfleik, og
leikurinn var ekki gamall þegar
fyrsta markiö var skoraö. Strax á
1. mín. fengu Akureyringar auka-
spyrnu á miöjum vallarhelmingi
Skagamanna, Steinþór sendi há-
an bolta aö marki og Daviö mark-
vöröur hugðist handsama bolt-
ann, en missti hann klaufalega og
Siguröur Lárusson kom aðvifandi
og skoraöi. Öskabyrjun Akureyr-
inga, slæm mistök Daviös, sem aö
þessu sinni kostuðu Akurensinga
eitt stig. Smám saman náöu
Skagamenn öllum völdum á miöj-
unni og sköpuöu sér tækifæri, sem
þó nýttust ekki. A 15. min. komst
Matthias innfyrir, skaut i stöng-
ina innanveröa, en þaöan barst
boltinn til Benedikts markvarðar
ÍBA. A 25. min. tókst Skagamönn-
um loks aö jafna. Gefinn var hár
bolti inn i teig Akureyringa.
Benedikt var aöþrengdur og náöi
ekki til knattarins sem barst út til
Matthiasar sem skoraði auöveld-
lega. Af og til áttu Akureyringar
sóknarlotur, en af þeim skapaðist
litil hætta. A 35. min. munaöi litlu
aö Skagamenn bættu viö marki
þegar Eyleifur skallaöi i þverslá.
Þaö sem eftir var hálfleiksins
sóttu Skagamenn stift aö marki
heimamanna án þess þó að skora.
Þó kom stöngin Akureyringum aö
haldi einu sinni þegar markvörö-
ur þeirra sló boltann i hana.
Siöari hálfleikurinn fór að
mestu fram á vallarhelmingi
Akureyringa, þó svo aö litiö væri
um hættuleg tækifæri. Þó komst
Eyleifur einu sinni I dauöafæri en
skaut fram hjá. Astæöa þess
hversu litið var um hættuleg færi
Skagamanna er sú, aö framlinu-
menn þeirra einkum Matthias og
Höröur þjást af eigingirni sem er
mikill löstur þessara annars
ágætu leikmanna.
Leiknum lauk sem sé meö jafn-
tefli sem fýrr greinir. Akureyr-
ingar mega þakka fyrir þaö. Ann-
ars hefir leikaöferö þeirra meö
fimm menn i öftustu vörn og
fljóta framherja gefiö þeim góöa
raun. Þeir eru aö visu litiö meö
boltann, en berjast allir vel og
nýta þau tækifæri sem þeir fá og
þaö er það sem gildir.
Akurensingar eru liklega meö
eitt alsterkasta liöiö, en sem fyrr
getur er eigingirnin ljótur löstur á
leik þeirra, leikaöferö sem aldrei
gefur góöa raun. Valur Bene-
diktsson dæmdi leikinn og geröi
það þokkalega.
G
1. deild
Staðan 11. deild eftir leikina um
helgina:
Valur-ÍBV
Akureyri-Akranes
Keflavik-KR
Akranes
Keflavik
ÍBV
Valur
KR
Akureyri
Víkingur
Fram
Markhæstu menn:
Steinar Jóhannsson, Kefiav.
Matthias Haiigrlmss. Akran.
Ólafur Júliusson, Kafiavik
Jóhann Torfason, KR
2. deild
Staðan 12. deild eftir leikina um
helgina:
FH-Armann
Völsungur-Haukar
FH
Þróttur
Breiðab.
Haukar
Völsung.
Selfoss
Armann
ísafj.
Markhæstu menn:
(íuömundur Þóröars. Brbl. 7
.rúlius Bessason. Völsung 6
I.oftur Eyjólfsson, Haukum 6
Jóhann Hreiðarsson, Þrótti 6
ólafur Danivalsson, FH 6
Nú ættu Fram
og Víkingur að
hressa sig við
Fram sigraöi Viking l:01afspyrnu lélegum og leiðinlegum leik i
I. deiid á Laugardalsvellinum I gærkvöldi. Var þetta án efa léleg-
asti leikur Vikinga, þaö sem af er sumrinu, en þaö gerir ekki
Framarana góöa I leiknum i gærkvöidi.
Marteinn E. Geirsson skoraði mark liös sins á 40. mlnútu I fyrri
hálfleik upp úr aukaspyrnu, sem Eggert Steingrimsson tók I horni
teigsins.
Góða veðriö hefur greinilega haft letjandi og áhugadrepandi
áhrif á leikmenn liðanna og höföu þeir ekki meiri áhuga á leiknum
en svo, aö hann varö litið nema spörk, hnoö og kýlingar út I loftiö.
G
fjpOry .-j
P°OqJ
LF
sigraöi
á Bresku meistaramótinu
Suöur-Afrikumaðurinn Gary
Player sigraði á British Open
meö nokkrum yfirburöum. Þetta
er i þriðja sinn sem Player sem
nú e- 37 ára sigrar i þessu erfiöa
móti. Fyrst sigraöi Player I959,þá
næst 1968 og nú i þriðja sinn.
Player fór holurnar 72 á 282 högg
umy næsti maöur var Peter
Posterhuis frá Bretlandi hann lek
á 286 höggum. Þriðji var svo gull-
björninn Jack Nickylaus sem lék
á 287 höggum.
Lee Trevino frá Bandarfkjun-
um lét mörg orö og stór falla fyrir
keppnina um hversu lélegir
kylfingar Englendingar væru og
heföi hann þegar fjögra högga
forskot á þá. Trevino varð aftar-
lega i rööinni og má muna sinn
fifil fegurri þvi hann sigraöi 1971
og 1972. Nú lék hann á 301 höggi.
Meistaramót GR
Meistaramót GR hefst i dag á
Grafarholtsvellinum kl. 16:30. En
i dag 17 og 17 og 18 veröa leiknar
18holur. A föstudaginn er svo fri,
en sföustu 18 holurnar svo leiknar
á laugardaginn.
Alls veröa leiknar 72 holur i 6
flokkum.
Hjónakeppni GR
Fór fram um helgina meö þátt-
töku 18 hjóna, sem léku 12 holur.
Keppni var þannig aö karl-
mennirnir slóu af teigunum, en
konurnar púttuöu.
Efst og jöfn uröu:
Ólafur Bjarki Ragnarsson og
Agnes Haraldsdóttir á 58 höggum
og Einar Guönason og Súsanna
Möller á sama högga fjölda. Þau
urðu þvi aö leika bráöabana og á
fyrstu holu sigruöu þau Einar og
Súsanna.því þau léku á 4 höggum
en Ólafur og Agnes á 5 höggum. 1
3 sæti komu svo Lárus Arnórsson
og Sigurlína Gisladóttir á 59
höggum.
Borgarstjórnin í golf
Þá var borgarstjórninni boöiö
til golfkeppni og um leiö aö kynna
sér aöstæöur og framkvæmdir á
Grafarholtsvellinum. Fyrir-
komulag þeirrar keppni var að
borgarstjórnarmenn höföu val
inn meölim úr GR meö sér sem
var leiösögumaöur og kennari og
sló hann svo annaö hvert högg á
móti borgarstjórnarmanninum.
Leiknar voru 12 holur og urðu
þeir Albert Guðmundsson
(borgarstjórn) og Kristinn Berg
þórsson (GR) hlutskarpastir.
Enda mun Albert hafa veriö mjög
snjall golfleikari hér áöur fyrr.
o
Þriðjudagur 16. júlí 1974.