Alþýðublaðið - 01.05.1975, Síða 17
Hafa skorað
10 mörk í
tveim leikjum
Landslið leikmanna 16 ára og
yngri lék við Breiðablik i 3. flokki
á þriðjudagskvöldið og sigraði
auðveidlega 5-1.
„Ætli það verði ekki einn leikur
enn við jafnaldrana áður en við
snúum okkur að þeim eldri”,
sagði þjálfari unglingaliðsins i
gær. „Strákarnir hafa ekki fengið
næga mótspyrnu i þessum leikj-
.um. Við munum reyna að leika
einn æfingaleik i viku, þar til við
komumst á grasið, en þá einbeit-
um við okkur meira að uppstili-
ingum og samæfa liðið”.
Þetta er annar leikur liðsins, en
hinum leiknum lauk einnig með
sigri landsliðsins sem sigraði
Skagamenn 5-0 og hefur liðið þvi
skoraö 10 mörk i tveim leikjum.
Hansi Schmidt ... réðst á einn leikmanna Rintheim og snéri upp á fing-
ur hans.
Hansi Schmidt snéri uppá fingur....
.... og allt logaði
í slagsmálum
þegar Gummersbach tryggði sér réttinn til að
leika til úrslita um meistaratitilinn þýska
„Það brutust út gifurleg slags-
mál eftir seinni leik
Gummersbach og Rintheim i
seinni leik liðanna um hvort liðið
kæmist i úrslit i meistarakeppn-
inni sem lauk meö öruggum sigri
Gummersbach 18-11”, sagði Axel
Axelsson þegar við höfðum sam-
band við hann i gær um hvað helst
væri að frétta frá Þýskalandi.
„Tilefnið var að eftir leikinn
þegar leikmenn liðanna voru að
þakka hvorum öðrum fyrir leik-
inn, átti Hansi Schmidt eitthvað
vantalað við einn i liði Rintheim.
Þegar þeir tókust svo i hendur
snéri Hansi upp á einn fingurinn á
leikmanninum og við þetta varð
Axel Axelsson... verður i eldlin-
unni um helgina þegar
Pankersen mætir Gummersbach.
allt vitlausti höllinni og til mik
illa slagsmála kom bæði meðal
leikmanna og áhorfenda.
Málið var að sjálfsögðu kært og
nú er óvist með öllu hvort Hansi
fær að leika með i úrslitaleiknum
á sunnudaginn.
1 fyrri leik liðanna sigraði
Rintheim 17-16 en það var vitað
fyrirfram hvernig seinni leikur-
inn færi og þetta eina mark dygði
þeim skammt, þvi Gummers
bach er mjög sterkt á heimavelli
og séð að hverju stefndi strax i
byrjun leiksins og þvi heldur
Gummersbach áfram á betra
markahlutfall, 34:28.”
Dankersen-
Gummersbach
í úrslit
„Ég hef ekkert getað leikið með
i þessar undankeppni fyrir
meistaratitilinn þýska”, sagði
Axel Axelsson þegar við spurðum
hann hvernig gengi hjá
Dankersen.
„Ég hef átt við þrálát meiðsli
að striða, fyrst hendin, siðan
nefbrotnaði ég og nú tóku meiðsl-
in i hendinni sig upp aftur.
Ég vonast samt fastlega eftir
að vera orðinn góður á sunnudag-
inn þegar við leikum við
Gummersbach i úrslitaleiknum.
Við sigruðum Hofweier heima 22-
11, en töpuðum á útivelli 16-15 og
komumst áfram á betra marka-
hlutfalli 37:27, eins og Gummers-
bach.
Úrslitaleikurinn verður leikinn
i Dortmound og er það kallaður
hlutlaust völlur. Gummersbach á
samt mikil itök þar, enda leika
þeir alla Evrópuleiki sina á þess-
um velli.
Þeir eru með gott lið, en við
erum samtekki alveg vonlausir”.
Velferðarþjóðfélag nútímans hefir blómgast hér á landi, þrátt
fyrir harðneskju náttúrunnar, fámenni, strjálbýli og einhæft sam-
félag. Vöxtur þessa þjóðfélags og framtíð er komin undir öfl-
ugum og síauknum viðgangi hinna innlendu atvinnuvega, skyn-
samlegri verkaskiptingu og umfram allt réttlátum kjörum allra
þeirra, sem leggja hönd á plóginn.
Þetta hafa samvinnumenn skilið, frá því að þeir hófu baráttu sína
fyrir alinnlendri verzlun í eigu neytendanna sjálfra og fram á
þennan dag, þegar sívaxandi þörf kröftugra alíslenzkra atvinnu-
vega beinir viðleitni samvinnumanna stöðugt inn á nýjar brautir
í leit að auknum möguleikum í atvinnumálum.
Samvinnuhreyfingin og verkalýðsfélögin eru greinar á sama
stofni, almenn samtök með samskonar markmið: sjálfstæði og
fullan rétt einstaklingsins yfir arði vinnu sinnar, hvar sem hann
býr og hvað sem hann stundar. Þessar hreyfingar hljóta alltaf |
að eiga samleið: efling annarrar er endanlega sama og við- |
gangur beggja. Þess vegna árna samvinnumenn verkalýðshreyf- |
ingunni heilla á alþjóðlegum hátíðisdegi hennar, 1. maí.
^ SAMBAND fSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
Fimmtudagur 1. mai 1975.