Alþýðublaðið - 21.02.1976, Page 1
38. TBL. - 1976 - 57. ÁRG.
LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR
Ritstjórn Siöumúla II - Simi 81866
(H)RÓS-
HAFINN
OKKAR
BAKSIÐA
íþróttir í opnu og á bls. 6
Verkfall og veðurhamur-bls. 12 og 13
Hugmyndir nefndar um stjórn og skipulagningu fiskveiða
Alþýðublaðið hefur fregnað, að nefnd, sem skipuð var af sjávarútvegsráðherra, Matthíasi Bjarnasyni, til
þess að gera tillögur um skipulag og stjórn f iskveiða við island hafi orðið ásátt um að miða leyfilegt af lahá-
marká þorskveiðum við 280 þúsund lestir á yfirstandandi |ri. Þá mun nefndin einnig hafa orðið sammála um
að gera ráð fyrir, að 100 þúsund tonn af þeim afla gengju til*3siendinga þannig að til skipta fyrir Islendinga
sjálfa á yfirstandandi ári kæmu 180 þús. tonn.
100 þúsund tonna þorskaflakvóti fyrir
útlendinga - 180 þús. tonn fyrir okkur
Sú tillaga hefur einnig verið
rædd á fundum nefndarinnar og
er sett fram i frumhugmyndum
hennar að draga eigi úr sókn i
þorskstofninn með þvi að banna
allar þorskveiðar nema með
handfærum og á linu frá 15. mai
i ár og fram til 15. september.
Þá hefur nefndin einnig rætt að
banna með öllu veiðar með flot-
vörpu frá 15. mai nk. og til ára-
móta.
Alþýðublaðið hafði i gær tal af
Matthiasi Bjarnasyni, sjávarút-
vegsráðherra og spurðist fyrir
um þessar hugmyndir. Ráð-
herra sagðist enn ekki hafa
fengið tillögur nefndarinnar, en
þeirra væri von á næstunni.
Sagðist ráðherra ekki vilja tjá
sig um málið fyrr en hann hefði
tillögurnar i höndunum.
Alþýðublaðinu er kunnugt
um, að þessar hugmyndir
nefndarinnar um aigert bann
við togveiðum á þorski i fjóra
mánuði i sumar hafa spurst út
ineðal útvegsmanna og fisk-
verkenda. Hafa einkum Vest-
firðingar, Norðlendingar og
Austfirðingar mikið við þær að
athuga og halda þvi m.a. fram,
að hugmyndirnar virðist vera
sniðnar algerlega með hags-
muni útgerðarmanna af suð-
vesturhorni landsins fyrir aug-
um. Þar eru aðallega gerðir út
bátar ásamt stórum togurum,
sem veiða mjög ufsa og karfa. Á
vetrarvertið, eða fram til 15.
maí, fá bátarnir á suð-vestur-
horninu um 85—90% af ársafla
sinum á þorski, en yfir sumar-
mánuðina, þegar banna á
þorskveiðar nema á handfæri og
linu skv. umræddum hugmynd-
um, eru minni bátarnir á Suð-
vesturlandi að humarveiðum en
þeir stærri við veiðar á loðnu.
Þá hefur einnig verið á það
bent, að mikið af þorskafla bát-
anna af Suð-vesturlandi sé
verkað i skreið og i salt þannig
að vinna við verkun þess afla,
sem þessir bátar fá á vetrarver-
tið, fari fram meira og minna
allt suinarið.
A Vestfjörðum, Norðurlandi
og Austfjörðum er ástandið hins
vegar allt annað. Þaðan eru
gerðir út fjölmargir minni skut-
togarar, sem stunda þorskveið-
ar allt árið um kring og þessi
skip fá allt upp i 1/3 hluta þorsk-
afla sins yfir sumarmánuðina, á
þeim timum, þegar banna á
slikar veiðar skv. hugmyndum
þeim, sem ræddar hafa verið i
nefndinni. Þótt þessi skip vildu
þá snúa sér að öðrum veiðum,
t.d. á ufsa og karfa, er viða á
þessum stöðum engin verkunar-
aðstaða fyrir slikan fisk, á Vest-
fjörðum mun t.d. ekki vera til
nema ein flökunarvél fyrir
karfa. Þá er einnig meginhlut-
inn af þorskafla þessara lands-
hluta unninn i frystihúsum og
þvi verkaður nokkurn veginn
jafnóðum og aflinn berst að
landi. Yrðu þorskveiöar með
botnvörpu og flotvörpu þvi
bannaðar I fjóra mánuði á þessu
ári myndi þvi öll vinna i frysti-
liúsum i þessum landshlutum
leggjast niður og fjöldaatvinnu-
leysi fylgja i kjölfarið. Munu
nefndarmenn eitthvað hafa rætt
afleiðingar sliks og þvi hjálp-
ræði helzt hreyft að bæta fólkinu
á þessum stöðum upp atvinnu-
tapið með auknum fram-
kvæmdum i hitaveitumálum og
vegamálum, en að sjálfsögðu er
ekki gert ráð fyrir neinu sliku i
fjárlögum islenzka rikisins.
Alþýðublaðið hefur haft tal af
nokkrum útvegsmönnum og
fiskverkendum á Vestfjörðum,
Norðurlandi og Austfjörðum og
hafa þeir allir heyrt um þessar
hugmyndir stjórnunarnefndar-
innar. Lýstu þeir þungum á-
hyggjum sinum ef þær næðu
fram að ganga og sögðust ekki
sjá betur, en að þær væru mið-
aðar við það, að útvegsmenn og
fiskverkendur á suð-vestur-
horninu hefðu allt sitt á hreinu.
,,Ef þetta nær fram að ganga
er verið að hafa endaskipti á
öllu landinu”, sagði einn þess-
ara manna við Alþýðublaðið.
Annar tók þannig til orða, að
hann sæi ekki betur, en að slikar
tillögur ef framkvæmdar yrðu
hlytu að lciða til uppreisnar sjó-
manna og fiskverkafólks á
Norðurlandi, Austfjörðum og
Framhsld á bls. ;
Vestfirðingar, Norðlendingar og Austfirðingar skelfingu lostnir
Fulltrúar atvinnurekénda
ammmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmai^mmmmmmmmmmm
tefia framgang samninga!
„Það hefur ekkert breytzt i
sarnningarnálunurn frá þvl i gær-
kvöld,” sagði Björn Jónsson i
viðtali við Alþýðublaðið i gær.
Björn benti á, að vinnuveitendur
hefðu lýst þvi yfir, að þeir gengju
að tillögu sáttasernjara i aðal-
atriðurn, rneð þeirri undan-
tekningu þó, að sarnningstirninn
yrðilengri. Þetta reyndist þó ekki
eina undantekningin,, þvi at-
vinnurekendur settu einnig frarn
skilyrði, sern Aiþýðusarnbandi
hvorki gat né vildi ganga að.
Þetta skilyrði var það, að sérrnál-
in yrðu algerlega tekin úr hönd-
urn einstakra félaga og hópa,
þannig að þessi sérrnál yrðu rædd
einungis af aðalsarnninganefnd-
inni. Þá visuðu atvinnurekendur
algerlega á bug sérákvæðurn er
hefðu einhvern aukinn kostnað i
för rneð sér.
Af þessu rná glöggt sjá, að at-
vinnurekendur hafa litinn hug á,
að ræða þessar tillögur sátta-
sernjara, sern þó eru langt frá þvi
að vera aðgengilegar fyrir verka-
lýðshreyfinguna. A hinn bóginn
finnst ýrnsurn, að tirni sé til
korninn að fulltrúar vinnuveit-
enda hætti að draga raun-
verulegar viðræður á langinn
rneð sýndarrnennskuviðbrögðurn,
sern þeir sjálfir vita að verka-
lýðshreyfingin getur alls ekki
gengið að.
Allt frá þvi viðræður rnilli Al-
Frh. á bls. I 'i
VATNSELGUR OG VÍNSKORTUR setti svip sinn á þennan fjórða dag
allsherjarverkfallsins hjá æði mörgum borgarbúum i dag. Við vorum á
ferð um mánnlitla miðborgina og tókum fólk tali — og segjum frá því á
blaðsiðum 12 og 13 i blaðinu i dag.