Alþýðublaðið - 21.02.1976, Blaðsíða 2
SKEMMTANIR — SKEMMTANIR
HÓTEL LOFTLEIÐIR
Cafeteria, veitingasalur meö sjálfsafgreiöslu opin alla
daga.
HÓTEL LOFTLEIÐIR
Blómasalur, opinn alla daga vikunnar.
HÓTEL BORG
lalþýðuj
nÉEiEi
Lærum af reynslunni
viö Austurvöll. Resturation, bar og dans I Gvllta
salnum.
Sími 11440.
HÓTEL SAGA
Grilliö opiö alla daga. Mfmisbar og Astrabar, opiö alla
daga nema miðvikudaga. Simi 20890.
INGÖLFS CAFÉ
viö Hverfisgötu. — Gömlu og nýju dansarnir. Simi 12826.
ÞÓRSCAFÉ
Opiö á hverju kvöldi. Sími 23333.
SKEMMTANIR — SKEMMTANIR
Ingólfs-Café
Gömludansarnir í kvöld kl. 9
Hljómsveit Garðars Jóhannessonar.
Söngvari Björn Þorgeirsson.
Aðgöngumiðasala frá kl. 8. — Simi 12826.
Volkswageneigendur
Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Huröir — Vélarlok —
Geymslulok á Wolkswagen I allflestum litum. Skiptum á
einum degi meö dagsfyrirvara fyrir ákveöiö verö.
Reyniö viöskiptin.
Bilasprautun Garðars Sigmundssonar.
Skipholti 25 Simar 19099 og 20988.
Fulltrúaráð Alþýðuflokksfélaganna
í Reykjavík
FUNDUR
Stjórn Fulltrúaráðsins boðar til
hádegisverðarfundar með stjórn og
varastjórn hverfisráða, laugardaginn 21.
feb. n.k. kl. 12 i Iðnó (uppi).
Dagskrá:
Rætt um nýtt skipulag og starfsemi
hverfisstjórna.
Stjórnin.
B&)
TRÉSMIÐJA
BJÖRNS ÓLAFSS0NAR
REYKJAVÍKURVEGI 68 - SÍMI 51975
HAFNARFIRÐI
HÚSBYGGJENDUR!
Muniö hinar vinsælu TI-
TU og Slottlistaþétting-
ar á öllum okkar hurö-
um og gluggum.
Ekki er ráð nema í
tíma sé tekið.
Pantið timanlega.
Aukin hagræðing
skapar lægra verð.
Leitið tilboða.
Rlnl
Það er kominn tími til þess, að við (s-
lendingar lærum af reynslunni og til-
einkum okkur ákveðin sannindi í sam-
bandi við stjórn efnahagsmála. Þau
sannindi felast í þeirri stefnu, sem Al-
þýðuflokkurinn hélt fram í síðustu
kosningum og bar f ram, þegar hann var
að kosningum loknum beðinn að taka
þátt í viðræðum um hugsanlega ríkis-
stjórnarmyndun, en var þá hafnað af
formanni Framsóknarflokksins. Þessi
sannindi eru, að þegar efnahagur
þjóðarinnar er kominn i kalda kol, eins
og nú, þá er lítil von til þess að okkur
takist að rétta þjóðarskútuna við nema
með víðtæku samstarf i og samvinnu. Sú
samvinna þarf einkum og sér í lagi að
takast við aðila vinnumarkaðarins og
þá fyrst og fremst verkalýðshreyf ing-
una. Forsenda þess að hún geti tekizt er
að sjálfsögðu sú, að aðilar vinnu-
markarðarins geti borið traust og tiltrú
til ríkisstjórnarinnar og að hún vilji fyr-
ir sitt leyti hafa samstarf við þá.
Það þarf væntanlega ekki nú mörgum
orðum um það að fara hversu miklu
auðveldara þaðværi fyrir íslendinga að
leysa efnahagsvanda þjóðarinnar, ef
með víðtæku samráði tækist að velja
ákveðnar leiðir út úr ógöngunum, sem
bæði ríkisstjórn, alþingi, launþegar og
vinnuveitendur teldu réttar og vildu
stuðla að. Með því móti ynnist það, að
allir þessir aðilar yrðu hver í sínu lagi
ábyrgir fyrir þeim aðgerðum, sem
samstaða tækist um, og sæu sér akk í
því að þær næðu f ram að ganga. Aðeins
með þeim hætti, að okkar fámenna þjóð
nái að sameinast um lausn vandans get-
ur sú lausn orðið með skjótum og örugg-
um hætti. Ríki tortryggni, ágreiningur
og úlfúð milli þessara aðila þar sem
hver togar í sinn skækil magnast aðeins
erfiðleikarnir og reynast óleysanlegir.
islendingar eru fámenn þjóð — nán-
ast eins og ein f jölskylda. Einmitt þess
vegna getum við tekizt á við vandamál
með þeim hætti, sem fjölmennari þjóðir
eiga erf iðara með— líkt og samhent og
samstæð fjölskylda myndi gera. Þetta
getum við gert, þetta eigum við að gera.
Reynslan ætti að hafa kennt okkur það.
Þannig vildi Alþýðuf lokkurinn að
efnahagsvandamál jájóðarbúsins yrðu
leyst þegar hann barðist fyrir því í
kosningunum og í stjórnarmyndunar-
viðræðunum eftir kosningar, að sú
ríkisstjórn, sem við völdum tæki á Is-
landi, byði aðilum vinnumarkaðarins og
þá fyrst og fremst verkalýðshreyf ing-
unni samstarf. Það var ekki Alþýðu-
flokkurinn einn, sem var þessarar
skoðunar. Verkalýðshreyf ingin sjáif
mótaði stefnu í þessum anda með tii-
lögum þeim, sem hún sendi ríkisstjórn-
inni í desembermánuði s.l. og öðrum til-
lögum, sem hún hafði áður gert. i tillög-
um þessum fólst samstarfstilboð til
ríkisstjórnarinnar — boð um, að verka-
lýðshreyf ingin væri fyrir sitt leyti
reiðubúin til samráðs við ríkisstjórnina
um aðgerðir í efnahagsmálum til þess
að tryggja kaupmátt launa og atvinnu-
öryggi. Nokkru síðar gerðu atvinnurek-
endur, hinn aðili vinnumarkaðarins,
ríkisstjórninni sama tilboð. En hvorki
þá né þegar Alþýðuflokkurinn setti
f yrst f ram hugmyndir sínar um víðtækt
samstarf landsmanna allra um leiðir til
lausnar var á það hlustað. Ólafur Jó-
hannesson hafnaði á sínum tíma tillög-
um Alþýðuflokksins um samráð við
aðila vinnumarkaðarins og gekk meira
að segja svo langt að staðhæfa, að á
slíkum grundvelli væri hann ófáanlegur
til þess að reyna myndun ríkisstjórnar.
Og sú stjórn, sem Ólaf ur myndaði fyrir
ihaldið, hef ur ávallt verið sömu skoðun-
ar— hafnað öllum samstarfstilboðum
aðila vinnumarkaðarins.
Þetta eru án efa afdrifaríkustu póli-
tísku mistök stjórnarinnar. AAeð hverj-
um deginum verður það Ijósara hversu
réttmæt samstarf sstef na Alþýðu-
flokksins var. En á þeim tíma, sem nú-
verandi ríkisstjórn hefur setið, hefur
hún spilað út úr höndum sér mögu-
leikanum á að slíkt víðtækt samstarf
um lausn efnahagsmála geti tekizt með
hana sem aðila að slíku samstarf i. Ein-
f aldlega vegna þess, að með aðgerðum
sínum hefur ríkisstjórnin rúð sig öllu
trausti bæði launþega og atvinnurek-
enda og enginn í þeirra hópi þorir leng-
ur að trúa henni eða treysta á hana til
eins eða neins.
Nauðsynin á þjóðarsamstöðu um
leiðir út úr kviksyndi efnahagslífsins er
brýnni nú, en nokkru sinni fyrr. En slík
samstaða getur ekki tekizt nema við
aðra ríkisstjórn en þá, sem nú situr.
Þess vegna ber henni að fara f rá — því
fyrr, því betra.
Spurningar, sem krefjast svara
i greinum sem Alþýðublaðið hefur
birt undanfarna daga kemur það fram,
að þrír lögreglumenn, sem starfa utan
tollgæzlunnar, hafa á einni viku upplýst
að magni til jaf n mikið áf engissmygl og
tollgæzlan í Reykjavík hefur gert á
fimm árum.
Nú hafa ýmsir yfirmenn dómsmáia í
landinu á einn og annan hátt beitt sér
gegn þessum tilteknu lögreglumönnum
og tekið rannsókn mála úr höndum
þeirra. )
Án þess að brigður séu bornar á ein-
læga viðleitni meginþorra tollgæzlu-
manna til að upplýsa lögbrot af þessu
tagi, þá hljóta þessar upplýsingar að
vekja spurningar, sem dómsmálayfir-
völd komast ekki hjá að leita svara við.
Þótt nauðsyn kref ji þess að ýmis at-
riði varðandi framkvæmd dómsmála,
einkum dómsrannsóknar, séu ekki gerð
opinská, þá verður dómsmálaráðherra
að gæta þess að þar sé ekki að finna ó-
skýranlegt misræmi — og svara rétt-
mætum spurningum almennings þar
um.
Leigu f lug—Neyóarflug
HVERT SEAA ER
HVENÆR SEAA ER
FLUGSTÖÐIN HF
Simar 27122-11422
Aðalfundur
Slysavarnadeildin Ingólfur heldur aðal-
fund sinn miðvikudaginn 25. febrúar kl.
20.00 i Gróubúð við Grandagarð.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Alþýðublaðið
Laugardagur 21. febrúar 1976