Alþýðublaðið - 05.03.1976, Side 11
biaSfð Föstudagur 5. marz 1976.
MINNING
Guðný Jónsdóttir
fró Galtafelli
Guðný Jónsdóttir var fædd i
Galtafelli i Hrunamannahreppi
31. ágúst árið 1878. Foreldrar
hennar voiw hjónin Jón Bjarna-
son bóndi í Galtafelli og Gróa
Einarsdóttir frá Bryðjuholti i
Hrunamannahreppi.
Guðný ólst upp hjá foreldrum
sinum ásamt þrem bræðrum,
Jakobi, Einari og Bjarna. Galta-
fells systkinin voru öll sett til
mennta. Jakob lærði söðlasmiöi
og skósmiði i Reykjavik, varð
þjóðhagasmiður og bóndi i
Kampholti i Flóa og i Galtafelli,
kona hans var Guðrún Stefáns-
dóttir frá Asólfsstööum i Þjórsár-
dal. Einar fór til Danmerkur og
^lærði höggmyndasmiði, varð
siðar einn merkasti listamaður
Islands, hann kvæntist danskri
konujönnu Jörgensen, að nafni.
Bjami læröi húsgagnasmiði og
stundaði þá iðn um skeiö, en varð
siðan forstjóri Nýja biós i
Heykjavik, fyrri kona hans var
Stefania Stefánsdóttir frá Asólfs-
stöðum en seinni kona hans var
Sesselja Guömundsdóttir frá
Deild á Akranesi. Guðný fór úng i
Kvennaskólann. siðar sótti hún
námskeið við Kennaraskólann og
öðlaðist við það réttindi til far-
kennslu. Hún stundaði siðan far-
kennslu á ýmsum stööum i 14 ár,
t.d. i Húnavatnssýslu, Rangár-
vallasýslu og i Vestmannaeyjum.
Siðast var hún kennari við
skólann á Núpi i Dýrafiröi. Guðný
var góður kennari, hún var virt og
dáð af nemendum sinum. Margir
þeirra héldu tryggð viö hana, þar
til yfir lauk.
Guðný var i meðallagi hávaxin
jarphæö.frið sýnum, og fagureyg.
Hún var vel greind, fjölhæf,
listræn, aðlaðandi og hlý i
viðmóti.
Arið 1918 giftist Guðný góðum
og listhneigöum manni, Jóni
Guðmundssyni rafvirkja-
meistara, frá Krók á Rauöa-
sandi. Þau eignuöust eina dóttur,
Gróu Torfhildi, sem gift er
Hendrik Sv. Björnssyni, sendi-
herra iParis. Guöný varð oftast á
siðari árum aö dvelja langtimum
fjarri einkadótturinni, góðum
tengdasyni og barnabörnum. sem
hún unni svo mjög. En hún skildi
það vel að dóttir hennar var i
einni hinni mestu ábyrgðarstöðu
fyrir islenzka rikið, sem konu
getur hlotnazt, og að hún mátti
þvi ekki gera of miklar kröfur til
hennar fyrir sjálfa sig. Og bót i
máli var að fjölskyldan dvaldi hér
á landi i sumarfrium og gat
Guðný þá notið samvistar við þau
i rikum mæli. Fósturdóttir Guð-
nýjar og Jóns er Una Kjartans-
dóttir Jakobssonar frá Galtafelli,
hún giftist Jóni Kjartanssyni
verzlunarmanni.
Þær Guðný og Una bjuggu alla
tið i sama húsi og reyndist Una
henni sannur gimsteinn, eins og
Guðný orðaði það sjálf. En Una
annaðist fóstru sina og hlynnti að
henni með kærleiksriku hugarfari
eftir að hún þurfti á hjálp að
halda.
Kynni okkar Guðnýjar hófust er
ég var heitbundin bróðursyni
hennar, Stefáni Jakobssyni. Hún
tók mér strax eins og ég væri
hennar- bezta systir og hefur
kunningsskapur okkar og vinátta
varað æ siðan, eða i rúm fimmtiu
ár. Við Stefán vorum tiöir gestir á
Skóiavörðustig 17 hjá þeim Jóni
og Guðnýju, og eins eftir að þau
fluttu á Sjafnargötu 4. Það var
alltaf skemmtilegt að koma til
þeirra. Þau voru bæðisöngelsk og
spiluðu á orgel og gitar og voru
samtaka aö láta gestum sinum
liöa sem bezt. Aldrei var manni
boðið áfengi eða tóbak á þessu
heimili, enda áleit Guðný hvoru-
tveggja hættulegt heilsu manna
og siðgæöi.
Asamt húsmóðurstörfum vann
Guðný að fjölmörgum öörum
áhugamálum sinum. Sunnan við
húsið við Sjafnargötu 4 er stór
garður, sem hún ræktaði i alls
konar blóm á meðan kraftar
hennar entust. 1 garði Guðnýjar
gréru meðal trjaa og annarra
jurta, fjölmargar islenzkar
blómategundir, svo og rósir i
mörgum litum. Guöný haföi
mikið yndi af aö sjá blómin sin
spretta og hlúa að þeim. Hún átti
litinn sumarbústað i Galtafelli,
þar dvaldi hún tima og tima á
sumrum, á efri árum, fór hún þá
langar gönguferðir, oft i fygld
meö börnum. Eitt sinn fór meö
henni sonardóttir min, Guðrún
Hreggviðsdóttir, sagði hún
mér að þessi dagur með Guð-
nýju hefði verið einn bezti og
ánægjulegasti dagur i lifi sinu.
Veður var yndislegt og Guðný
sagði henni nafn á hverju blómi,
sem á vegi þeirra varð svo og
heiti fjallanna, og kennileita i
landareigninni. A veturna kenndi
Guðný fjölda manns að spila á
gitar, einnig kenndi hún börnum
og unglingum i einkatimum á
heimili sinu, tungumál, reikning
og fleira.
Guðný var mikil hannyrða-
kona, hún teiknaöi og saumaði is-
lenzku blómin með eðlilegum
litum á klæði og var það listavel
gert. Hún átti vefstól, sem Jakob
bróðir hennar smiöaði, á hann óf
hún krossvefnaöar áklæði á stofu-
húsgögnin sin, og mætti vel segja
mér, aö slikt væri algjört eins-
dæmi. Einnig óf hún rósaflos á
stólsetur og i púða, borðrenninga
meö rósabanda og glitveínaöi, og
margs konar annan vefnað.
Flesta þessa muni gaf hún vinum
sinum.
Guðný var eins og flestir góðir
kennarar alltaf að kenna manni
eitthvað, sem að gagni mætti
koma, hún naut þess aö miöla
öðrum af þekkingu sinni. Hún var
mikil trúkona og sannfærð um
framhaldslif og vildi gjarnan
ræða um trúmál við vini sina, og
einnig um stjörnufræðren þá gat
maöur ekki lengur fylgzt með.
Guðný var hreinskilin og einlæg,
þaö var meðal annars þess vegna
sem maður hændist að henni, og
þótti vænt um hana. Hún var sér-
staklega minnug, sagði vel frá og
var fróð um liöna tið. Einnig var
hún ágæt ræðukona, hún hélt vel
upp byggðar tækifærisræður,
blaðalaust fram yfir niræðis-
aldur.
Guðný var fram úr skarandi
trygglynd og ættrækin, hún átti
þvi fjölmarga góða vini sem
heimsóttu hana, og buðu henni
heim, þar á meðal voru frænkur
hennar, Unnarholtssystur, þær 1
Jónina, Guðrún og Gróa Guöjóns-
dætur, en móðir þeirra Elinborg
Pálsdóttir var æskuvinkona
Guðnýjar.
Þegar Guðný var hátt á
niræðisaldri dvaldi hún eitt sinn i
London á heimili dóttur sinnar og
tengdasonar, hóf hún þá að rita
skáldsöguna „Brynhildur” og var
bókin gefin út hjá Helgafelli,
þegar Guðný var niræð. Seinna
skrifaði hún „Bernskudagar” .
sem út kom hjá sama forlagi árið j
1973, en það ár varð höfundur 95
ára gömul. Bækurnar eru skrif-
aðar á fögru og skiru máli og eru
skemmtilegar og hugljúfar af-
lestrar.
Skömmu fyrir andlátið kom
Guöný fram i viðtalsþáttum i
útvarpinu, sem vöktu athygli
fólks viða um land, sökum skýr-
leika frásagnarsnilldar og fram-
sagnarhæfileika svo fullorðinnar
konu.
Með Guðnýju er horfin sjónum
okkar mikilhæf og góð kona, sem
seint mun gleymast. Hún lezt 18.
des. 1975. Otför hennar fór fram
frá Hrepphólakirkju 30. sama
mánaðar.
Að lokum sendi ég ástvinum og
öðrum ættingjum Guðnýjar
kærar kveöjur, ásamt eftir-
farandi erindi úr fyrsta passiu-
sálmi séra Hallgrims Péturs-
sonar.
O. Jesú gef þinn anda mér
allt svo veröi til dýröar þér
uppteiknað, sungiö, sagt og téð
siðan þess aðrir njóti meö.
Guðrún Guðjónsdóttir.
TROLOFUNARHRINGAK
Fljót afgreiðsla.
Sendum gegn póstkröfu
GUÐM. ÞORSTEINSSON
gullsmiður, Bankastr. 12
Aáror staBfðir. smiSaðar eflir betðni
GLUÍ^AS MIÐJAN
Siðumúla 20, simi 38220
VIRPU - BltSKORSHURÐIN
Lagerstærðir miðað við jnúrop:
ldaeð;210 sm x breidd: 240 sm
'240 - x - 270 sm
ÞÆGILEG0G
ENDINGARGÓÐ
Q" SÚRSMIÐj
ÍUlllillllllllllOiP