Alþýðublaðið - 05.03.1976, Qupperneq 13
13
blalfö*' Föstudagur 5. marz 1976.
In memorian:
Sverrir
Kristjánsson,
sagnfræðingur
í dag er til moldar bor-
inn Sverrir Kristjánsson,
sagnfræðingur. Um stund
verður hljóðara yfir
landinu. AAenn finna að
djúpt skarð hefur verið
höggvið i múr íslenzkra
mennta, í múr raunveru-
legrar og sann.rar menn-
ingar.
Sem ungum manni og
barni í sagnfræðum var
mér í senn heiður og laer-
dómur að kynnast Sverri
Kristjánssyni. AAér er í
unglingsminni að hafa
setið á AAokkakaffi í
Reykjavík og hlustað á
þennan kúltúrmann segja
sögur frá lærdómsárum
sínum í Kaupmannahöfn
og Reykjavíkurlífi síðar.
Þessi grófa rödd, þessi
djúpa frásagnargáfa og
þetta næma mannvit ófu
þá vefi menningar og
mannvirði ngar, sem
aðeins fáum eru gefnir.
Ég hafði og hefi aðrar
stjórnmálaskoðanir en
Sverrir Krist jánsson.
Hann spurði mig ein-
hverju sinni að því, hvort
ég ætlaði með tíð og tima
að gerast merkisberi
borgaralegrar sagnfræði
á Islandi. Það þótti
honum ekki nógu gott. En
þó held ég, að svo mikil-
virkur fræðimaður, sem
Sverrir Krist jánsson,
hafi ekki fyrst og fremst
verið stjórnmálamaður í
fræðimennsku sinni,
heldur miklu fremur f ull-
trúi Ijóðrænu, persónu-
sögu og lífsnautnar.
Það var mér í senn
ánægja og djúpur lær-
dómur að eiga fyrir
nokkrum árum útvarps-
viðtal við Sverri Kristj-
ánsson um Árna heitinn
Pálsson, prófessor.
Sverrir var í essinu sínu,
og frásagnarlistin, þessi
einstæða gáfa, naut sin til
hlítar. útvarpsviðtal
þetta, hafði nokkurn
eftirmála, sýo sem kunn-
ugt er. Auðvitað má
aldrei lasta tilfinningar
fólks til látinna ættingja,
en þó held ég, að engum
hafi þótt þessi rekistefna
leiðari en Sverri Kristj-
ánssyni. Því svo mikið
vissi ég og veit, að fyrir
engum manni bar sagn-
fræðingurinn jafn djúpa
og hlýja virðingu og fyrir
hinum látna prófessor.
Og enda skein það úr
hverju orði.
Og nú, þegar Sverrir
Kristjánsson er á brott
genginn, er fölara í garð
islenzkra mennta og
mannvits. En þó enginn
komi Sverrir Kristj-
ónsson aftur, þá veit
söguþjóðin áreiðanlega
að sú varða menningar-
hefðar og þjóðlegrar
reisnar, sem sagnfræð-
ingurinn átti drjúgan þátt
í að hlaða, má aldrei
hrynja eða hverfa.
Vilmundur Gylfason
1
[SKIPAUTf.€RB RIKISÍN.SJ
M/SEsja
fer frá Reykjavik
miðvikudaginn 10.
þ.m. vestur um land i
hringferð.
Vörumóttaka: föstu-
dag og mánudag til
Vestfjarðahafna,
Norðurfjarðar, Siglu-
fjarðar, ólafsfjarðar,
Akureyrar, Húsavik-
ur, Raufarhafnar,
Þórshafnar og Vopna-
fjarðar.
Pennavinur
Ég er mjög einmana
fangi, og óska eftir
bréfasambandi við
einmana og skilnings-
rikar konur, á
aldrinum 24 til 34 ára.
Aðaláhugamál min
eru: Ferðalög,
iþróttir, skemmtanir,
bréfaskriftir og margt
fleira.
Fangi númer 23
Litla HRAUNI
Eyrarbakka
Árnessýslu.
AAUNIÐ að senda
HORNINU
nokkrar linur.
Utanáskrift:
HORNIÐ,
ritstjórn Alþýðublaðsins,
Síðumúla 11, Reykjavík.
Leiguf lug—Neyðarflug
HVERT SEAA ER
HVENÆR SEAA ER
FLUGSTÖÐIN HF
Simar 27122-11422
Laugardagur 6. marz. kl. 14.00
Skoðunarferð um Reykjavík
undir leiðsögn Lýðs Björns-
sonar cand, mag.
Verðkr. 600. Lagt upp frá Um-
ferðamiðstöðinni (að austan-
verðu)
Ferðafélag Islands.
SKEMMTANIR — SKEMMTANIR
HÓTEL LOFTLEIÐIR
Cafeteria, veitingasalur með sjáifsafgreiðsiu opin alla
daga.
HÓTEL LOFTLEIÐIR
Blómasaiur, opinn alla daga vikunnar.
HÓTEL BORG
við Austurvöll. Resturation, bar og dans I Gyilta
salnum.
Simi 11440.
HÓTEL SAGA
Grillið opið alla daga. Mímisbar og Astrabar, opið alla
daga nema miðvikudaga. Simi 20890.
INGÓLFS CAFÉ
viöHverfisgötu. — Gömlu og nýju dansarnir. Simi 12826.
ÞÓRSCAFÉ
Opið á hverju kvöldi. Simi 23333.
SKEMMTANIR — SKEMMTANIR
Ingólfs-Café
Gömludansarnir í kvöld kl. 9
Hljómsveit Garðars Jóhannessonar.
Söngvari Björn Þorgeirsson. ___
Aðgöngumiðasala frá kl. 8. — Simi 12826.