Alþýðublaðið - 05.03.1976, Qupperneq 16
Enn er þagað
um Geirfinns-
rannsóknina
Enn vill lögreglan ekk-
ert segja um gang Geir-
f innsrannsóknarinnar
svokölluðu. Alþýðublaðið
hafði samband við
Eggert Bjarnason rann-
sóknarlögreglumann,
einn rannsóknarmanna
þessa máls. Hann vildi
alls ekkert segja um
stöðu eða gang rann-
sóknarinnar.
Eggert var að því
spurður, hvort gæzlu-
varðhaldsvist þeirra
þriggja sem teknir voru
síðustu dagana í janúar,
yrði framlengd. Voru
þeir þrír úrskurðaðir í 45
daga gæzluvarðhald og er
Viö þetta hús hófst Geirfinns-rannsóknin. Þetta er Hafnarbúðin i
Keflavik, sem mjög kom við sögu á fyrstu dögum rannsóknarinnar,
en siðan er mikið vatn til sjávar runnið og enginn botn hefur fengizt
i rannsóknina.
sá tími úti í næstu viku.
Eggertsagði þá ákvörðun
ekki í sínum verkahring.
Það væri dómara að
ákveða slíkt. Hins vegar
væri rannsóknin í fullum
gangi ennþá.
Almenningur má því
enn kingja fréttaleysinu
af þessum málum og
gera sér slúðursögurnar
að góðu —GAS.
„Framkvæmdum viö byggingu
Seðlabankans verður haldiö
áfram, eins og ráð var fyrir gert,
en þær hafa legið niðri um nokkurt
skeiö vegna mótmæla gegn smiði
hússins. Þótti rétt að stöðva
framkvæmdir meðan litið var á
þessar athugasemdir,” sagði
Sigurður örn Einarsson skrif-
stofustjóri Seðiabankans, er
blaðið spurði hann um byggingu
hússins.
Bætti Sigurður við, að liklega
hefði verið rétt að hlusta ekkert á
þessa menn, en það hefði verið
gert og væri ekkert við þvi að
gera.
Eins og kunnugt er, þá hefur
bygging Seðlabankans við Arnar-
hól vakið miklar deilur manna á
meðal, og hafa ýmsir látið skoð-
anir sinar opinberlega i ljós um
þetta deilumál.
GG—
Atvinnuhorfur
skolafolks
slæmar — en
kraftaverk
geta gerzt
,,Ég hef það á tilfinningunni,
að enn erfiðara verði að útvega
skólafólki atvinnu á sumri
komandi, en gerðist i fyrra, og
gekk það þó nógu treglega,’_’
sagði Öskar Friðriksson hjá
Ráðningarstofu Reykjavikur-
borgar i samtali við Alþýðu-
blaðið.
Óskar kvað þessi mál vera
nokkuð óljós ennþá, þvi enn
hefði ekki verið gerð hin árvissa
könnun á atvinnuþörf næsta
sumar. Þeirri könnun yrði þó
væntanlega lokið um mánaða-
mótin marz-april.
Sagði Óskar, að með ári
hverju hefði það gengið erfið-
legar að útvega skólafólki
sumaratvinnu. I fyrrasumar
var þó flestum útveguð atvinna,
en það hefði gengið hægt fyrir
sig. Þeir siðustu fengu ekki
vinnu fyrr en i júli.
,,Ég get ekkert um það full-
yrt, en tel ég þó horfurnar alls
ekki góðar. En kraftaverk geta
gerzt” sagði Óskar Friðriksson
að lokum.
—GAS
Dagblaðið heldur
áfram húsakaupum
Dagblaðið hefur nú fest kaup
á húseign, sem stendur á
mótum Þverholts og Stórholts I
Reykjavik. Gleriðjan hefur haft
þetta húsnæði á leigu, en eig-
andi er Kexverksmiðjan Esja.
Kaupverðið er 25 milljónir
króna.
1 þessu húsi var áður harð-
fiskverkun. Húsið er fremur
lélegt, en lóðin verðmæt. Dag-
blaðsmenn hyggjast i byrjun
hafa afgreiðslu sína i þessu
húsi, en framtiðaráætlunin mun
vera sú að reisa þar nýtt hús.
Fyrir nokkru keypti Dag-
blaðið húseign við Laugaveg, en
hefur nú selt verulegan hluta af
henni, tizkuverzlun og læknum.
Mun blaðið hafa gert þar góð
kaup.
Þvi má bæta við, að Bókaút-
gáfa Guðjóns 0. hefur keypt
gamla verksmiðjuhús Kexverk-
smiðjunnar Esju i Þverholti, og
hyggst hafa þar prentsmiðju.
BJ
Klúbburinn heldur sínu striki — ennþá
Eins og komið hefur
fram í fréttum að undan-
förnu/ hefur saksóknari
ríkisins höfðað mál á
hendur Sigurbirni Eiríks-
syni, veitingamanni í
Klúbbnum og Magnúsi
Leópoldssyni fram-
kvæmdastjóra veitinga-
hússins, fyrir stórfelld
lagabrot við rekstur
hússins. Vanskilin eru
samtals að upphæð 38
milljónir króna.
Sigurbjörn og Magnús eru báðir
undir lás og slá þessa dagana.
Þeir voru úrskurðaðir i gæzlu-
varðhald vegna rannsóknar á
hvarfi Geirfinns Einarssonar og
sölu smyglaðs spira. Ekki hefur
þó verið upplýst, hvaða sökum
þeireru bornir i þessu sambandi.
Almenningur hefur að undan-
förnu velt þvi fyrir sér, hvernig
rekstri Klúbbsins væri háttað um
þessar mundir. Magnús Leó-
poldsson er skrifaður fyrir
vinveitingaleyfi hússins. Getur,
einstaklingur, sem situr innan
fangelsisrimla verið ábyrgðar-
maður fyrir rekstri veitingahúss?
Þeirri spurningu beindi blaðið tl
Ólafs Walters Stefánssonar skrif-
stofustjóra i dómsmálaráðu-
neytinu.
Sagði Ólafur, að enn hefði ekki
komi til álita, að svipta Klúbbinn
vinveitingaleyfinu. Saksóknari
rikisins krafðist þess reyndar i
málshöfðun sinni, vegna brota á
lögum i rekstri hússins. í þvi máli
ætti hins vegar eftir að dæma, og
þvi yrði vart lokið fyrir árið 1978,
þegar vinveitingaleyfi hússins
rynni út.
Ólafur kvað þó ekki útilokað, að
ihugað yrði að svipta Magnús
Leópoldsson vinveitingaleyfinu.
vegna þess sérstaka ástands sem
rikti, eins og hann orðaði það.
FÖSTUDAGUR
5. MARZ
alþýðu
Maölð
HEYRT: Að rætt sé um það
i herbúðum Alþýðubandalags-
manna i Reykjavik, að
Kjartan Ölafsson, ritstjóri
Þjóðviljans, verði fluttur til i
framboðum i næstu kosning-
um. Verði hann látinn yfirgefa
Vestfirði en settur i fyrsta eða
annað sæti á framboðslista
Alþýðubandalagsins i Reykja-
vik. Þykir ýmsum þetta
sennilegt og marka það m.a.
. af þvi, að Kjartan, sem var
mjög duglegur við að byggja
upp flokksstarf Alþýðubanda-
lagsins á Vestfjörðum og var
þar ávallt með annan fótinn
allt frá þvi tæpu ári fyrir
siðustu kosningar hefur varla
látið sjá sig vestra siðustu
mánuðina.
HEYRT: Frá sömu heimild,
að hinn ritstjóri Þjóðviljans,
Svavar Gestsson, hafi fullan
hug á að fá að erfa framboð
Lúðviks Jósefssonará Austur-
landi. Svavar er þó siður en
svo einn um þá hitu og hefur
verið áberandi, hve ýmsir
framgjarnir kommar hafa
gertsér mikið far um að flytja
ræður og erindi á vegum
komma á Austurlandi siðustu
mánuðina.
SAGT: Að Geir Hallgrims-
son, forsætisráðherra, eigi i
erfiðleikum miklum með þrjú
nes: Borgarnes (brúin),
Jóhannes (Nordal) og Sólnes
(Krafla). 1 hvert skipti, sem
nýr þrýstihópur sé kynntur
fyrir forsætisráðherranum
snúi hann sér að forvigis-
mönnunum og spyrji með
kviða i röddinni: „Heitir
nokkur ykkar nokkuð „nes”
LESIÐ: i „Kirkjuritinu”, að
á kristilega stúdentamótinu,
sem haldið var hér á landi á
s.l. ári, hafi selzt bibliur fyrir
60 þús. kr.
TEKIÐ EFTIR: Undarlegu
orðalagi á fréttatilkynningu
frá félagsmálaráðherra um
afskipti fjármálaráðuneytis-
ins af úthlutun húsnæðismála-
stjórnarlána og viðskiptum
við lifeyrissjóði. Fréttatil-
kynning var send út i kjölfar
siðustu kjarasamninga og var
um það, að félagsmálaráðu-
neytið myndi standa við fyrir-
heit sem fyrrverandi rikis-
stjórn gaf verkalýðshreyfing-
unni i húsnæðismálum lág-
launafólks. Jafnframt var
fjármálaráðuneytinu sendur
tónninn fyrir að vilja koma i
veg fyrir að samkomulagið
fengi staðizt. Er það ekki vani,
að eitt ráðuneyti setji jafn
rækilega ofan i við annað og
félagsmálaráðuneytið gerði
við fjármálaráðuneytið i þess-
ari fréttatilkynningu.
LESIÐ: 1 „Vestfirzka
fréttablaðinu”, að nýr
slökkviliösstjóri hafi verið
ráðinn til starfa við slökkvilið-
ið á tsafirði. Nýi slökkviliðs-
stjórinn er Guðmundur Helga-
son frá Keflavik, en hann hef-
ur starfað i sex ár við slökkvi-
liðið á Keflavikurflugvelli.