Alþýðublaðið - 31.03.1976, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 31.03.1976, Blaðsíða 1
Fram til þessa hefur rikissjóður jafnan getað treyst á að hægt væri að fjármagna vegafram- kvæmdir með aukinni sölu á bensíni; hjólbörð- um og álagningu þunga- skatts. Gengið hefur verið út frá þvi sem visu, að fleiri bifreiðar, þvi meiri akstur, meiri bensínsala og auknar tekjur i vegasjóð. En svo lengi má brýna deigt járn að biti. Spáin brást Samkvæmt skýrslu samgönguráðherra um framkvæmd vegaáætl- unarfyrir árið 1975 urðu tekjur af bensinsölu 202 millj. kr. minni en gert var ráð fyrir, tekjur af þungaskatti 78 millj. minni og gúmmigjald var 34 millj. lægra en á- ætlað var. Markaðar tekjur vegasjóðsfyrir árið 1975 voru áætlaðar 2,4 mill- jarðar, en rauntekjur aðeins 2,1 milljarður eöa 314 milljónum króna lægri en reiknað var með. 8% minnkun Frá nóvember 1974 fram i október 1975 varð bensinsalan 103,6 millj. litra og er það 6,5 m. litra eða 6,5% minna en áætlað var og 800 þús- und iitrum minna en 1974. Meðalfjöldi bensinbifreiða i fyrra er áætlaður 64.400. Hefur þvi hver bifreið eytt að meðaltali 1.610litrum af bensini á árinu. 1 vegaáætlun var hins vegar gengið út frá meðaleyðslu undanfar- inna ára eða 1.750 1. á bifreið og notkunin á- ætluð alls 110,1 millj. litra. Af þessu er ljóst, að bensinnotkun á hverja bifreið hefur minnkað um 8% i fyrra. Meðal- eyðslan Árið 1971 nam bensin- salan 77,5 millj. litra og meðaleyðsla á bifreið var 1.756 litrar. Árið eft- ir varð aukning á ensíninnflutningi, en eðaleyðslan minnkaði í kkuð' A árinu 1973 Vaf mikið flutt inn af bensini og landsmenn eyddu þvi óspart. Það ár var meðaleyðsla á bifreið 1.757 litrar og hefur ekki i annan tima verið meiri. 1 fyrra var meðaleyðslan siðan komin niður i 1.610 litra eins og áður segir. Gúmmi- gjald En það er ekki nóg með að dregið hafi stór- lega úr bensinnotkun. Innflutningur hjólbarða hefur dregizt saman með ólikindum. A undanförnum árum hefur meðalendurnýjun á hjólbörðum verið 24 kg á bifreið. Siðasta ár hrapaði þessi tala niður i aðeins 15 kg. Minni umferð Eins og gefur að j skilja hefur þetta þýtt samdrátti allri umferð. j 1 heild virðist meðal- j sumarumferð á land- [ inu, samkvæmt taln-1 ingu, hafa minnkað um 4% frá árinu 1974. Mun- ar þar mestu að umferð I á Suður- og Austurlandi [ hefur minnkað um hvorki meira né minna I en 8—14%. Hins vegar virðist umferð á Vestur- landi hafa aukizt nokk- uð, en staðið i stað á| Norðurlandi. —SG MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ FLUGLEIÐIR RÁÐA EKKI FLUGMENN SEM ERU KOMNIR YFIR ÞRÍTUGT Flugmenn eldast hratt, ef miðað er við þær reglur sem gilda um aldursmörk við ráðning- ar hjá flugfélögunum. Sjá frétt á blaðsiðu 5. BENZfNSALA MINNKAÐI UM200 MILLJÓNIR f FYRRA „ÞAÐ ER LJÓTT AÐ ULLA Hér kemur enn ein af þessum skemmtilegu barnamyndum, sem við fundum í gömlu myndasaf ni blaðsins. Hann er heldur önugur á svipinn þessi ungi maður, sem rekur tunguna • • • út úr sér, líklega til að segja álit sitt á Ijós- myndaranum. Hann er að dunda sér við klif urgrind á ein- hverjum leikvelli borgarinnar. En hann má vita að það er ijótt að ulla. Þegar Nýfundnaland varð gjaldþrota: Þá var ekki ósvipað ástand og á íslandi nú SIA OPNU

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.