Alþýðublaðið - 31.03.1976, Page 4
4
'--------------------
Dómsmál - stjórnkerfismál - fjölmiölar - efnahagsmál - landhelgismál
ALMENNUR BORGARA-
FUNDUR I ÍSAFIRDI
verður haldinn laugardaginn 3. april nk. i Sjáifstæðishúsinu.
Vilmundur Gylfason, menntaskólakennari
Sighvatur Björgvinsson, alþm.
Að framsöguræðum loknum hefjast
frjálsar umræður.
öllum heimill aðgangur.
Alþýöuflokksfélag ísafjaröar
Fundurinn hefst kl. 2. e.h.
FRUMMÆLENDUR:
Látið ykkur ekki lengur dreyma...
LÁTIÐ YKKUR EKKI LENGUR
DREYMA UM ÓSKAFERÐINA
LATIÐ HANA VERÐA AÐ VERU-
LEIKA með ferð Alþýðuflokks-
félags Reykjavikur til Þýzkalands,
Austurrikis, ítaliu og 4 dagar i
Danmörku 3.—20. júni, aðeins fá
sæti laus. Upplýsingar á skrifstofu
Alþýðuflokksins frá 9—5 i sima
15020.
Alþýðuflokksfélag
Reykjavíkur
Járnabindingamenn
Við óskum eftir að ráða nokkra
járnabindingamenn, sem hafi
a.m.k. 2ja ára reynslu í slíku starfi.
Skriflegar umsóknir séu sendar d skrifstofu vora í
Reykjavík, Suðurlandsbraut 12, þar sem greint sé frá
reynslu umsækjanda, og tilgreint hjá hvaða vinnu-
veitanda viðkomandi hafi unnið við járnabindingar.
ENERGOPROJEKT
Sigölduvirkjun
J
FRÉTTIR
Miðvikudagur 31. marz 1976. biai
ðu-
ið
Af vígstöðvum í kartöflustríðinu
KARTÖFLUSKORTI
AFSTÝRT SEGIR
GRÆ NMETISVERZLUN
LANDBÚNAÐARINS
1 fyrra var það sykurstrið — nU
er skollið á kartöflustrið, og eins
og skýrt var itarlega frá i Alþýðu-
blaðinu i siðasta mánuði hefur
verið umtalsverður kartöflu-
skortur i allri Vestur-Evrópu i
vetur vegna uppskerubrests i
haust.
Það olli þvi, að settar voru út-
flutningshömlur á kartöflur i
ýmsum helztu kartöfluræktar-
rikjum Evrópu, svo sem i
Hollandi, þar sem hamstur var
meira að segja refsivert.
1 vikunni sem leið varð svo
kartöflulaust i höfuðborginni, og
fréttir hermdu að ekki væri von á
erlendum kartöflum nema i litlu
magni og yrðu það dýrar
kartöflur.
Dagblaðið hefur siðan birt
fréttir og greinar um kartöflu-
skortinn, þar sem fram kemur að
innlendur heildsali hefur boðizt til
að útvega nægar kartöflur og
hvers kyns grænmeti á viðráðan-
legu verði — en það stangast á við
þær upplýsingar, sem fram hafa
komið i blaðaviðtölum við Jóhann
Jónsson, forstjóra Grænmetis-
verzlunar landbúnaðarins.
Sendir út frétt
í gær sendi Jóhann fjölmiðlum
svohljóðandi frétt um kartöflu-
málið:
„Eins og getið var I fréttabréfi
upplýsingaþjónustu land-
búnaðarins frá 18. marz, var sett
á útflutningsbann á kartöflur frá
Hollandi til landa utan Efnahags-
bandalagsins, jafnframt var sett
á útílutningsgjald að upphæð 300 $
á tonn. Þá þegar tryggði Græn-
metisverzlun landbúnaðarins sér
viðbótarmagn af kartöflum frá
Póllandi. Þegar útlit var fyrir að
ekki yrði hægt að fá kartöflur af-
greiddar frá Póllandi sökum
frosthörku þar, þá var kannað
hvort ekki mætti takast að fá
kartöflur annars staðar frá, til að
tryggja að ekki yrði kartöflu-
skortur hér á landi. Grænmetis-
verzlun landbúnaðarins sendi þvi
fyrirspurnir þann 12. marz til
Hollands og Danmerkur hvort
hægt mundi vera að fá kartöflur
af nýrri uppskeru frá suðlægri
löndum til afgreiðslu til Islands.
Þá bárust svör þess eðlis að
ekki væru á boðstólum nýjar er-
lendar kartöflur. Grænmetis-
verzlunin sendi itrekaðar fyrir-
spurnir en jákvætt svar og tilboð
barst ekki fyrr en 23. marz. Þá
hafði komið farmur af kartöflum
frá Mexiko til Hollands, sem ekki
voru háðar sömu ákvæðum varð-
andi útflutning og kartöflur af
hóllenzkum uppruna.
Grænmetisverzlunin tók til-
boðinu samdægurs, þó með þvi
skilyrði að hollenzka
heilbrigðiseftirlitið teldi
heilbrigðisvottorð fullnægjandi
fyrir Island. Von var á skipi Eim-
skipafélags Islands Urriðafoss til
Rotterdam á fimmtudag i s.l.
viku, en þar sem Rotterdam var
siðasti viðkomustaður skipsins á
leið til Island, var það þegar mjög
hlaðið, en ákveðið var að festa
kaup á þvi magni sem skipið gæti
tekið. í skipið komust 150 tonn,
það fór frá Rotterdam á föstu-
dagskvöld og er væntanlegt til
Reykjavikur á miðvikudags-
kvöld. Vonir standa til að hægt
verði að afgreiða kartöflur i
verzlanir fyrir helgi.
Lestað i Laxfoss
1 dag er verið að lesta 100 tonn
af kartöflum i Rotterdam um
borð i Laxfoss, sem fer væntan-
lega til Reykjavikur á morgun.
Ennfremur er gert ráð fyrir að is-
lenzkt skip lesti 300 tonn af
kartöflum i Póllandi i dag eða á
morgun og er væntanlegt til
Reykjavikur 6. april.
Ef flutningartil landsins ganga
eðlilega, þá ættiaðvera tryggtað
ekki verði frekar skortur á
kartöflum hér á landi á þessu ári.
Grænmetisverzlun land-
búnaðarins samþykkti tilboðið
frá Hollandi þann 23. marz i
mexikönsku kartöflurnar að upp-
hæð 975 gyllini á tonn, eða 64.00
krónur isl. á kg. komið i skip i
Rotterdam. Daginn eftir barst
henni tilboð frá innlendum heild-
sala i mexikanskar kartöflur af-
greiddar frá Rotterdam að upp-
hæð 1540 gyllini tonnið komið um
borð i skip þar eða rúmlega 100
kr. hvert kg. þar var um mismun
að ræða er nam 36 krónum á kg.
Ef ekki verður veruleg breyting
á gengi islenzku krónunnar þá
mun heildsöluverðið á þessum
nýju mexikönsku kartöflum
verða 90 kr. á kg. eða 10 krónum
lægra en tilboðsverð innlenda
aðilans i kartöflurnar i Hollandi.”
—BS
KRON leitar eftir stuðningi
launþegasamtakanna
Starfsfólk KRON hefur nú ósk-
að eftir þvi að launþegasamtökin
leggi kaupfélaginu i höfuðborg-
inni iið i þvi baráttumáli þess, að
fá að reisa stórmarkað i húsa-
kynnum félagsins við Sundahöfn,
en það er álit félagsins að stór-
markaður þess muni verða laun-
þegum og neytendum i Reykjavik
hin mesta búbót vegna þess lága
vöruverðs, sem unnt verður að
bjóða þar.
A fundi starfsmanna Kron var
svohljóðandi ályktun samþykkt:
Aðalfundur Starfsmannafélags
K.R.O.N. haldinn að Hamragörð-
um 16.3. 1976 mótmælir harðlega
synjun borgaryfirvalda i Reykja-
vik á beiðni K.R.O.N. um verzl-
unaraðstöðu við Sundahöfn, þrátt
fyrir meðmæli skipulagsnefndar.
Atelur fundurinn mjög eindregið
þá afstóðu borgarstjórnarmeiri-
hlutans að láta pólitisk sjónarmið
sitja i fyrirrúmi fyrir hagsmun-
um reykviskra neytenda, varð-
andi hagkvæm verzlunarvið-
skipti, þar sem hér var um að
ræða stórmarkað, sem átti að
bjóða viðskiptavinum hagstæðari
kjör, en almennt gerist á höfuð-
borgarsvæðinu. Telur fundurinn
það bera vott um mikið ofstæki og
vanhugsaða ákvörðunartöku, að
hafna slikri beiðni á hæpinni for-
sendu. Þá vill fundurinn skora á
launþegasamtökin i Reykjavik og
nágrenni að taka virkan þátt i þvi
að styrkja K.R.O.N. til að koma
þessum áformum i framkvæmd
ogsýnai verki skilning á þvi hver
hagsmunalegur ávinningur þetta
er fyrir láglaunafólk hér i borg-
inni og nágrannabyggðum.
—JSS