Alþýðublaðið - 31.03.1976, Side 5
biaðrd Miðvikudagur 31. marz 1976.
FRÉTTIR 5
Ráða ekki fluamenn vfir brítuat
• •
FLUGFELOGIN VIUA FA AÐ
..ALAUPP”
Nýlega voru ráðnir 3 flugmenn
til starfa hjá Flugfélagi Islands,
úr höpi 60 umsækjenda. Ráðning
þessara manna hefur vakið
nokkrar deilur, eins og oft vilja
verða við ráðningar sem þessar,
þar sem persónulegt mat ráðn-
inganefndar ræður oft miklu.
beir þrír menn, sem stöðuna
hrepptu, hafa ekki próf á Fokker
vélar flugfélagsins, sem þeir
koma til með að fljúga. Hins veg-
ar hafði einn umsækjanda, Vil-
hjálmur Vilhjálmsson einn allra
umsækjanda tilskilin réttindi, til
þess að fljúga Fokker vélum án
þess að þurfa að ganga i gegnum
þjálfun. bjálfun þeirra þriggja
sem stöðurnar fengu er alltima-
frek og kostnaðarsöm.
Mörgum finnstþvi, að sá aðili ,
sem tiltekin réttindi hefur hljóti
að ganga fyrir, við veitingu stöð-
unnar. beir Flugfélagsmenn hafa
væntanlega ætlað annað.
Með hliðsjón af vissum
ramma.
Alþýðublaðið hafði
samband við Guðmund Snorra-
son, sem var i nefnd þeirri, er
ákvað hverjir skyldu fá störfin.
Blaðið spurði hann, hvað helzt
lægi til grundvallar þegar valið
væri úr hópi margra umsækj-
enda.
„Eins og gengur og gerist er
okkur mikill vandi á hönd-
um,þegar margir sækja um. Við
tökum okkar ákvarðanir með
hliðsjón af vissum ramma. I
þessum ramma eru ákveðnir
punktar sem við verðum að fara
eftir.T.d. varðandi aldurstak-
mörk. Við vinzum fljótt úr þá er
ekki uppfylla tilteknar reglur.
begar við erum siðan komir með
hóp, þar sem allir eru álika, þá
beitum við öðrum ráðurri”
En ef við höldum okkur við af-
markað dæmi. bað sótti um starf-
ið einstaklingur, sem hafði rétt-
indi til að fljúga Fokker vélunum.
Hann hefði ekki þurft á þjálfun að
halda, og þar með hefði verið
spáraður bæði timi og peningar.
ef af hans ráðningu hefði orðið.
„bjálfunin er til staðar hvort
sem er. Við erum með skóla sem
stendur í 6 vikur. Skólanum hefði
verið haldið úti, þótt svo þessi
maður hefði ekki þurft að sækja
hann. betta er þvi vart spurning
um kostnað”.
Frekar unga og óreynda.
Blm. En erþaðekki i sjálfu sér
stórt atriði, þegar umsóknir eru
metnar, að viðkomandi hefur
réttindi og reynslu við flug á
Fokker vélum.”
„Ég man bara ekki til þess, að
slikt hafi haft áhrif við ráðningar.
bað er ekki innan þess ramma,
sem fariðer eftir. beir sem hafa
réttindi á viðkomandi vélar
ganga engan veginn fyrir. Meira
að segja hefur það frekar verið
stefna F.I. að ráða unga menn til
starfa og mennta þá og ala upp,
heldur en að taka þá með
reynslu”.
,,Sá eini sem mér vitanlega
hafði réttindi á „Fokkerinn”, var
yfir þau aldurstakmörk sem mið-
að er við þ.e. að ráðnir séu menn
á aldrinum 21—30 ára”, sagði
Guðmundur Snorrason.
beir hæfustu valdir
„bað er mjög algengt að menn
séu ráðnir, þótt þeir hafi ekki
fengið þjálfun við að fljúga við-
komandi flugvélagerð, eða eins
og sagt er, ekki fengið „tékk” á, i
þessu tilviki Fokker”, sagði
Sveinn Sæmundsson, blaðafull-
trúi Flugfélags Islands.
„Umsækjendur ganga i gegn-
um ýmis próf,og það eitt að einn
umsækjandi hafi „tékk” á Fokker
tryggir honum alls ekki sjálf-
krafa starfið. bað er ýmislegt
sem kemur til greina i þessu.
Menn koma misjafnlega út úr
þessum prófum og tillit er til þess
tekið. Ég verð að ætla það, að þeir
menn sem af hálfu félagsins eiga
að velja menn til starfa úr stórum
hópi umsækjenda, geri það eftir
beztu samvizku. Ég held þvi að
megi ætla að þeir 3 sem ráðnir
voru, hafi komið með beztu út-
komuna úr þeim prófum sem
fram fóru”, sagði Sveinn enn-
fremur. —GAS.
SAS FJÖLGAR
ÍSLANDS- OG
GRÆNLANDS-
FERÐUM í SUMAR
I nýútkominni sumaráætlun
SAS er gert ráð fyrir að farnar
verði þrjár ferðir i viku frá
Reykjavik til Kaupmannahafnar
og frá Reykjavik til
Narssarssuaq á Grænlandi.
Frá Hofi
Munið ódýra Iljartagarnið kr.
176.00 hnotan, i heilum kilóum
kr. 3000.00 eða kr. 150.00 hnot-
an. Nokkrir ljósir litir á kr.
100.00 hnotan. Allt á að selj-
ast, þar sem hætt vcrður
framleiðslu á Hjartacrepi og
Combicrepi, i núverandi
mynd.
Hof
Þingholtsstræti.
I fyrra voru SAS ferðirnar tvær
i viku á þessum leiðum, og þá
hafði félagið þotur Flugleiða á
leigu til þessara ferða.
SAS kaupir Transair
Á s.l. ári keypti SAS sænska
flugfélagið Transair. bað flug-
félag á 3 Boeing flugvélar af sömu
gerð og vélar Flugfélagsins eru. 1
sumarnotarSASþessar flugvélar
til þess að annast íslands- og
Grænlandsflug sitt. Framkvæmd
flugsins er með svipuðu sniði og
áður.
Fyrir utan flug SAS til
Narssarssuaq frá Keflavik, flýg-
ur Flugfélag Islands a.mk. eina
ferð í viku á þeirri leið. Sú ferð er
farin i beinum tengslum við eina
af ferðum Flugfélagsins frá Höfn.
bannig verða fjórar ferðir i viku
héðan til Narssarssuaq (á
mánudögum, miðvikudögum,
fimmtudögum og föstudögum),
þegar áætlunin kemst í hámark
i sumar. —BS
Nokkrir heiðursfarþegar Flugfélags tslands stiga út úr einni af Fokker vélum félagsins. 60 manns
sóttu um þrjú flugmannsstörf á þessar vélar.
Krókaleiðir
fúkyrðanna
Almenningur i Bretlandi læt-
ur uppi hug sinn um landhelgis-
málið á ýmsa lund likt og hér —
en yfirleitt er fólk á Bretlands-
eyjum orðið hlynnt málstað ís-
lcndinga, nema i þeim hafnar-
borgum, sem hafa umtalsverða
togaraútgerð — ef marka má
fregnir þar að lútandi frá Bret-
landi.
bó verða menn varir við mót-
mæli — og það á ótrúlegustu
stöðum. bannig furidu starfs-
menn islenzkrar fatagerðar
smámiða inni i kiæðaströngum,
sem firmað flutti inn frá Bret-
landi, þar sem einhverjir brezk-
ir andvigismenn islenzkrar út-
færslu höfðu krotað með túss-
penna á merkimiða fyrirtækis-
ins alls kyns óhróður um isiend-
inga ásamt klámyrðum og vig-
orðunum „Up The English
Fishermen”.
SKODANAKONNUNIN
AF STAO AO NÝJU
Skoðanakönnun Alþýðublaðsins
fór vel af stað um daginn. bátt-
taka var mun meiri en við höfðum
ætlað. I dag ætlum við að leggja
fyrir lesendur blaðsins póhtiska
spurningu og hún er: „Hvernig
samsteypustjórn vilt þú helzt fá
núna á tslandi?”
Eftir tiu daga verða svörin talin
og að þvi búnu verður hringt i
jafnmarga einstaklinga og sama
spurning lögð fyrir þá. Simanúm-
erin verða valin samkvæmt úr-
taksaðferð úr Simaskránni. bað
er gert á þann hátt, að valið er til-
tekið nafn, t.d. efsta nafn i til-
teknum dálki. Siðan eru taldar
t.d. 5 eða 10 blaðsiður og efsta
nafn i samsvarandi dálki þar val-
ið. bannig koll af kolli þar til til-
tekinn fjöldi er fenginn. Ef Sima-
skráin dugar ekki, þá er byrjað á
ný á svipaðan hátt.
bátttakendur eru beðnir að
fylla út meðfylgjandi spurninga-
form og senda það siðan i lokuðu
umslagi til: Skoðanakönnun Al-
þýðublaðsins, Pósthólf 320.
Reykjavik.
r'
Sá sem svarar þessari spurningu er ara
Karl Kona (Setjið x þar sem við á)
Hvernig samsteypustjórn
vilt þú við völd hér?
O ,,Nýsköpunarstjórn" (Alþ.fl., Alþ.ba., Sj.fl.)
I | „Viðreisnarstjórn" (Alþ.fl., Sjfl.,)
Q „Vinstri stjórn" (Alþ.ba., Frams.fl., SFV)
□ „Hrein vinstri" (Alþ.fl., Alþ.ba., Frams.fl., SFV)
„Hægri-Mið" (Sj.fl., Frams.fl.)
Annað (tilgreinið samsetninguna)
Setjið x við þaö svar, sem við á.
Sendiö í lokuðu umslagi:
SKOOANAKÖNNUN ALÞÝOUBLAÐSINS
PÓSTHÓLF 320
Reykjavík