Alþýðublaðið - 11.05.1976, Page 3
bia&ö" Þriðjudagur 11. maí 1976
FRÉTTIR 3
Firmakeppni
Fáks
Þrátt fyrir slag-
veðursspá héldu Fáks-
menn firmakeppni sina
i glampandi sólskini á
laugardaginn var.
Óvenju margt glæsi-
legra hesta var mætt til
leiks eða yfir 300 og
áhorfendur einnig
margir. Hesta-
mennirnir fylktu liði i
upphafi og riðu tvo
hringi á hinum nýja
skeiðvelli Fáks að Viði-
völlum.
Þrir efstu gæðingarnir. Frá
vinstri: Aðalsteinn AðalSteins-
son á Háfeta, Halldórs Eiriks-
sonar, Karl Hjaltason á Fálka,
Ingigerðar Karlsdóttur og
Kagnar Hinriksson á Val, Arnar
Þórhallssonar. Jón Björnsson
stendur hjá. Ljósm. G.T.K.
Guðmundur ólafsson, gull- 3. Riðið i dóm.
smiður, veitir yngstu
keppendunum gullverðlaun
fyrir þátttökuna.
Finnbogi Eyjólfsson, verzlunarstjóri i Heklu, dustaði
af sér innirykið og naut veðurbliðunnar á baki gæðingsins.
Jón Björnsson, gjaldkeri Karl Hjaltason á gæðing
Fáks, verðlaunar þrjá efstu móður sinnar, Fálka.
hesta I gæðingakeppninni i
unglingaflokknum.
fllþingi tiyggi
áframhaldandi
lokun Faxaflóa
Verkalýðsfélag Akraness hefur
beint þeirri áskorun til Alþingis,
að til þess verði séð að Faxaflói
verði áfram lokaður fyrir dragn-
óta- og botnvörpuveiðum eins og
verið hefur nú um nokkurt skeið.
Svohljóðandi áskorun varsam-
þykkt á aðalfundi félagsins sem
haldinn var I Röst 9. þessa
mánaðar:
„Vegna frumvarps til laga um
fiskveiðilandhelgi tslands, sem
nú Iiggur fyrir Alþingi, skorar
aðalfundur Verkalýðsfélags
Akraness á háttvirt Alþingi aö
hafa Faxaflóa áfram lokaðan
fyrir dragnóta- og botnvörpu-
Veiðum.
Faxaflói er þýöingarmikil upp-
eldis- og hrygningarstöö fyrir
þorsk og ýsu, og siðan honum var
lokaö fyrir dragnóta- og botn-
vörpuveiðum hefur ýsuveiði á
linu stóraukizt.”
EB
Sænskur stuðningur
við 200 mílurnar
Málm- og skipasmiöasam- verkafólkið styðji kröfu Islands
bandinu hefur nýverið borizt um 200 sjómilna fiskveiðilög-
stuðningsyfirlýsing frá verka- sögu og lýsi samstöðu sinni með
lýðsfélaginu við Volvo Berg- islenzku þjóðinni i baráttu
slagsverken i Uppsölum. hennar.
Segir i yfirlýsingunni að
2300 sérþjálfaðir menn innan
vébanda Slysavarnafélagsins
Heiðursfélagar kjörnir á 17. landsþingi SVFí, ásamt forseta félagsins. Frá
vinstri: Jón O. Jónsson, Sigmar Benediktsson, Sesselja Magnúsdóttir,
Gunnar Friðriksson, Guðrún Rögnvaldsdóttir, óskar J. Þorláksson og
Daniel Sigmundsson. Á myndina vantar ólaf Sveinsson.
17. landsþing Slysavarnafélags
Islands var haldiö i Reykjavik
dagana 30.4-2.5. Voru þingfulltrú-
ar um 130, eða fleiri en nokkru
sinni i sögu félagsins.
Forseti SVFI, Gunnar Friðriks-
son, setti þingið með itarlegri
Breytingar á
verkefnum
byggingafulltrúa
Samband islenzkra sveitar-
félaga hefur kvatt byggingarfull-
trúa saman til tveggja daga ráð-
stefnu að Hótel Esju I Reykjavik
næstkomandi þriðjudag og mið-
vikudag 11. og 12. mai.
A ráðstefnunni verður rætt um
fyrirhugaðar breytingar á verk-
efnum byggingarfulltrúa sam-
kvæmt frumvarpi til bygging-
arlaga, scm nú liggur fyrir Al-
þingi, og nýsamþykktum lögum
um skráningu og mat fasteigna.
Fjallað vcrður um samskipti
byggingarfulltrúa við Húsnæðis-
málastofnun rikisins og Rann-
sóknarstofnun byggingariðnaðar-
ins og báðar þessar stofnanir
hcimsóttar. Loks verða kynntir
staðlar i byggingariðnaði og nýir
jarðskjálftastaðlar, og auk þess
verður almennt rætt um verkefni
byggingarfulltrúa og samstarf
þeirra við skipulagsstjóra rikis-
ins.
skýrslu um starfsemina á siðast-
liðnu ári.
Deildir innan SVFI eru nú um
200 með um 30.000 félagsmönn-
um, og á þeirra vegum starfa 79
björgunarsveitir með u.þ.b. 2300
sérþjálfaða menn. Á siðastliðnu
ári björguðu sveitirnar 40 manns
úrströnduðum skipum,en alls 230
manns á undanförnum 10 árum.
Björgunarstöðvahús og önnur
skýli félagsins nálgast nú 100.
Nýrerindreki hefurverið ráðinn
til félagsins, Óskar Þór Karlsson,
og hefur hann efnt til námskeiða á
ýmsum stöðum á landinu.
Mikið fé i
frjálsum framlögum.
Framlag rikisins til SVFI er nú
um 13,9millj. kr. og Reykjavikur-
borgar 650 þúsund kr., en auk
þess fær félagið enn meira fé frá
almenningi i' frjálsum frámlög-
um.
Að lokinni ræðu forseta félags-
ins, fluttu heiðursgestir ávörp, en
þeir voru m.a. forseti Islands,
herra Kristján Eldjárn,
biskupinn yfir Islandi, herra
Sigurbjörn Einarsson, félags-
málaráðherra ogborgarstjórinn i
Reykjavik.
Forseti þingsins var kjörinn
Tómas Þorvaldsson, en ritarar
Jóhanna Brynjólfsdóttir og Her-
geir Kristgeirsson.
Kjörnir voru sjö heiöursfélagar:
Sesselja Magnúsdóttir, Keflavik,
séra Óskar J. Þorláksson, Rvik.
Guðrún Rögnvaldsdóttir Siglu-
firði, Jón Oddgeir Jónsson,
Daniel Sigmundsson Isafirði, Sig-
mar Benediktsson, Eyjafirði, og
Ólafur Sveinsson, V-Eyjafjalla-
hreppi.
Fjöldamörg erindi voru flutt,
og margar ályktanir og tillögur
samþykktar.
Gunnar Friðriksson var ein-
róma endurkjörinn forseti SVFl.