Alþýðublaðið - 11.05.1976, Blaðsíða 5
VETTVANGUR 5
Iþýðu-
laóiöl
blai
jÞriðjudagur 11.
maí 1976
r
ALLIR ÞEIR SEM
EITTHVAÐ VITA
GEFI SIG FRAM!
Sakadómur Reykja-
víkur sendi fréttatil-
kynningu f rá sér í gærdag
og fer hún orðrétt hér á
eftir. Eins og þar kemur
fram hefur fjórum
mönnum verið sleppt úr
gæzluvarðhaldi, en þar
hafa þeir setið undan-
farnar vikur vegna
meintrar aðildar að
hvarfi Geirfinns Einars-
sonar.
Segja má að í þessari
f réttatilkynningu sé
ýmislegt gefið í skyn en
fátt eitt á hreinu.
Samkvæmt frettinni á
Erla Bolladóttir að hafa
játað á sig morð á Geir-
finni. Ekkert kemur hins
vegar fram um, hvar lík
Geirfinns sé að finna né
heldur hverjir komu því
fyrir. Þá virðist frásögn
Erlu um það að hún hafi
misst riffil í hendur unn-
usta sínum eftir ódæðið
nokkuð ævintýraleg.
Eins og fram kemur i frétt
Sakadóms eru þeir sem sleppt
var úr gæzluvarðhaldi undir
eftirliti lögreglu og verða að
sæta takmörkun á ferðafrelsi.
Slikt heyrir til undantekninga
hérlendis og á sér fáar hlið-
stæður. Af hálfu Sakadóms fékk
Alþýðublaðið ekki frekari upp-
lýsingar en þær sem hér fara á
eftir.
—SG
Svo sem áður hefur verið frá
greint hefir að undanförnu stað-
ið yfir umfangsmikil rannsókn
við sakadóm Keykjavikur, sem
einkum hefir beinzt að þvi að
upplýsa hver orðið hafi afdrif
tveggja horfinna manna, þeirra
Guðmundar Einarssonar úr
Reykjavik og Geirfinns Einars-
sonar frá Keflavik.
Hvarf Guðmundar
Rannsókn út af hvarfi
Guðmundar Einarssonar hófst i
siðari hluta desember sl. og
hafa sfðan setið i gæsluvarð-
haldi þrir menn, scm grunaðir
eru um að hafa átt sök á dauða
Guðmundar. Menn þ»“ssir heita
Sævar Marinó Ciesielski,
Kristján Viðar Viðarsson og
Tryggvi Rúnar Leifsson. t
framburði þeirra hefur komið
frant, að Guðmundur hafi látizt
i átökum við þá að Hamars-
braut 11 i Hafnarfirði, og þeir
siðan búið um lik hans og kvatt
til kunningja sinn, /^lbert Klahn
Skaftason, sem komið hafði i
bifreið að Hamarsbraut 11 og
aðstoðað þá við að flytja lík
Guðmundar út i Hafnarfjarðar-
hraun. Albcrt Skaftason kann-
ast við að hann hafi farið ferð
þessa en eigi vitað hvað verið
var að flytja. Albert var i gæzlu-
varðhaldi frá 23. desember til
19. mars 1976. Þrátt fyrir leit
hefur lik Guðmundar ekki fund-
izt enn.
Tildrög ökuferðar
Þá hefir rannsókn málsins á
siðari stigi mjög benzt að þvi að
upplýsa um tildrög ökuferðar,
sem fyrrnefndir Sævar Marinó
og Kristján Viðar eru taldir
hafa farið i ásamt Erlu Bolla-
dóttur sambýliskonu Sævars
Marinós, og fjórða manni, þ.e.
ökumanni, sem ekki er enn
ljóst, hver var, til Keflavikur og
þar að Dráttarbraut Keflavikur,
og að atferli þeirra þar. Ferð
þessi var að öllum likindum
farin að kvöldi 19. nóvember
1974, en eftir þann tima var
Geirfinns Einarssonar saknað.
Samkvæmt frásögnum þeirra
Kristjáns Viðars og Erlu urðu
þau vitni aö ágreiningi og átök-
um milli manna. Telur Kristján
Viðar sig þar hafa séð tii
manna, sem eltu og umkringdu
mann einn og þjörmuðu siðan að
lionum með höggum og bar-
smiðum og jafnvel eggvopnum.
Hafi maður þessi verið orðinn
mjög illa á sig kominn og blóð-
ugur cr hann sá hann siðast. Þá
hafi einhverjir manna þessara
liins vegar stuggað sér frá og
SæVar Marinó farið með sig að
bifreið þeirra, Telur Kristján
Viðar sig minnast þess, að er
þeir voru komnir i bifreiðina,
hafi hann séð riffil i höndum
Sævars Marinós, en Erlu sá
hann þá ekki.
Geirfinnur myrtur
Þá hefir Erla nú nýlega skýrt
svo frá, að Sævar Marinó hafi er
þetta gekk yfir vcrið með riffil i
höndunum og haldið honum
mjög að sér og nánast lagt hann
I hendur hennar og sagt henni
fyrir vcrkuin um það hvernig
hún skyldi beita honum gegn
nærstöddum manni, sem þá var
þegar mjög illa á sig kominn.
Hafi hún siðan að fyrirmælum
Sævars Marinós beint þessu
vopni að manninum og hleypt
af. Hafi henni þá sortnað fyrir
augum, misst byssuna i hendur
Sævars Marinós, sem stóð fast
að baki hennar, en siðan hlaupið
á brott og falið sig, og siðan
komizt til < Hafnarfjarðar og
Reykjavikur eins og áður hefir
vcrið frá skýrt. Eftir myndum
að dæma telur Erla næsta
scnnilegt, aðsá, sem fyrir þessu
Frétt saka-
dóms gefur
ýmislegt
í skyn
- en þar
er þó fátt
eitt á hreinu
varð, hafi verið Geirfinnur
Einarsson. Ekki er frekar
upplýst um afdrif hans. Treg-
lega hefir gengið að fá fram hjá
Sævari Marinó hvað gerzt hafi
þarna sem og um afdrif
Guðmundar Einarssonar, og
hefir hann orðið margsaga i
þeim efnum. Kristján Viðar og
Erla töldu sig bera kennsl á
nokkra þeirra, sem voru þarna
staddir á athafnasvæði Dráttar-
brautarinnar, og voru þeir Ein-
ar Gunnar Bollason, Magnús
Leópoldsson, Valdimar Olsen og
Sigurbjörn Eiriksson tilgreindir
i þvi efni, en þeir hafa staðfast-
lega neitað þvi. Hafa þeir Einar
Gunnar, Magnús, Valdimar og
Sigurbjörn að undanförnu sætt
gæzluvarðhaldi vegna þessarar
rannsóknar, en hafa nú verið
leystir úr þeirri gæzlu, en að
ákvörðun rannsóknardómara
verið gert að sæta eftirliti lög-
reglu og takmörkunum á ferða-
frelsi i þágu rannsóknar máls-
ins.
Aðstoö óskast
Rannsókn cr haldiö áfram
bæði af hálfu rannsóknarlög-
reglu og fyrir dómi. Þau Sævar
Marinó, Kristján Viðar, Erla og
Tryggvi Rúnar eru öll i gæslu-
varðhaldi vegna rannsóknar
málsins og jafnframt gert að
sæta sérfræöilegri rannsókn á
likamlegu og andlegu heil-
brigði, og er sú rannsókn hafin
fyrir nokkru.
Ástæða er til að ætla að menn
þeir sem staddir voru i Dráttar
braut Keflavikur umrætt sinn
hafi skýrt einhverjum frá þvi.
Þá er ástæða til þess að ætla að
þeir Sævar Marinó, Tryggvi
Rúnar og Kristján Viðar hafi
skýrt einhverjum frá afdrifum
Guðmundar Einarssonar.
Er hér með skoraö á þá sem
slika vitneskju hafa að gefa sig
þegar fram við rannsóknarlög-
regluna.
Frá sakadómi Reykjavikur.
Sakadómsrannsókn vegna skrifa
Tímans um Kristján og Hauk
Ríkissaksóknari hefur
orðið við kröfu Kristjáns
Péturssonar og Hauks
Guðmundssonar um opin-
bera rannsókn á alvar-
legum áburði á þá félaga
sem fram hefur komið í
Tímanum Saksóknari
hefur ákveðið að þessi
rannsókn fari fram við
Sakadóm Reykjavíkur.
Þær sakir sem bornar
voru á þá Kristján og
V
Hauk eru mjög alvárlegs
eðlis. Þeir eru ásakaðir
fyrir að hafa beitt ólög-
legum aðferðum við yfir-
heyrslur meðal annars.
Þrátt fyrir þessar ásakanir
hafa yfirmenn viðkomandi
manna ekki séð ástæðu til að
vikja þeim úr starfi á meðan
rannsókn fer fram.
Eftirfarandi frétt barst
Alþýðublaðinu i gærdag frá
skrifs'ofu rikissaksóknara.
Með bréfi Kristjáns Pfturs-'
sonar, deildarstjóra, og Ilauks
Guðmundssonar, rannsóknar-
lögreglumanns, dags. 27. f.m. er
þess farið á leit við rikissak-
sóknara, að hann hlutist til um
að opinber rannsókn fari fram á
réttmæti sakargipta á hendur
þeim ,,um margskonar alvarleg
brot i opinberu starfi, er varðar
við almenn hegningarlög”, sem
birtist i grein i dagblaðinu Tim-
anum 14. f.m. (60. árg. 85. tbl.)
undir heitinu „Dýrlingur og
James Bond tslands" og
auðkennd er stöfunum S.P.
Með bréfi dags. i dag, 10.
þ.m., hefur af ákræuvaidsins
hálfu verið gerð krafa um að
rannsókn fari fram i sakadómi
Keykjavikur um sakarefni
þessi.
t fyrsta lagi verði rannsakað
ætlað brot ábyrgðarmanns dag-
blaðsins Timans gegn 108 gr. al-
mennra hegningarlaga nr. 19,
1940 sbr. 16. gr. og 15. gr. 2. mgr.
laga nr. 57, 1956 um prentrétt.
t öðru lagi verði rannsökuð
sannindi eða ósannindi þeirra
aðdróttana sem fram koma i
fyrrnefndri blaðagrein og
varðað gætu deildarstjórann og
rannsóknarlögreglumanninn
refsiábyrgð samkvæmt 131 gr.
hegningarlaganna cf sönnuö
væru.
t þriðja lagi veröi rannsakað
hvort þeir tveir félagar — annar
eða báðir — hafi við rannsókn
mála tekið sér eitthvert opin-
bert vald, sem þeir ekki hafa og
þannig gerst brotlegir gegn 116.
gr. hegningarlaganna eða mis-
notaö stöðu sina og hallað rétt-
indum einstakra manna á þann
veg að varði við 139. gr. sömu
laga. —SG