Alþýðublaðið - 20.05.1976, Qupperneq 7
aipyou-
biaöiö Fimmtudagur 20. maí 1976
sókninni í þorskinn?
Eins og komið hefur fram eru
menn orðnir mjög uggandi um
framtið þorskstofnsins við
strendur Islands, enda hefur
fiskgengdin farið stöðugt
minnkandi á undanförnum ár-
um.
Hafrannsóknarstofnun hefur
unnið að rannsóknum og mæl-
ingum á hafinu umhverfis land-
iðog hafa þær leitt i ljós að sjór-
innfyrir norðan land hefur farið
stöðugt kólnandi á undanförn-
um árum og þróunin virðist
vera sú að kuldamörkin séu að
færast nær landi og hitastig
sjávar þar með að lækka.
Hætta á að þorskurinn
yfirgefi miðin vegna
kulda
Sven Aage Malmberg, hjá
Hafrannsóknarstofnun, tjáði
blaðinu, að lækkandi hitastig
sjávarhefði i för með sér, að lif-
verum i sjónum fækkaði
til muna og æti fiskjarins
minnkaði. Eftir þvi sem sjórinn
kólnaði versnuðu lifsskilyrði
fiskjarins og þá drægi jafnframt
úr vaxtarhraða hans.
Sagði Aage að þróun sú sem
átt hefur sér stað norður af
landinu væri ekki ósvipuð þeirri
sem átti sér stað viö strendur
Vestur-Grænlands á sinum |
tima, þegar kuldinn varð þess
valdandi að þorskurinn leitaði á
önnur svæði til að klekja. Þá
væritalið að lágt hitastig sjávar
árið 1965 hafi átt sinn þátt i þvi
að sildin hætti að ganga inn á
Norðurlandssvæðið, en leitaði
til Svalbarða og Jan Mayen i
staðinn.
Sven Aage sagðist vilja taka
það skýrt fram, að þarna væri
ekki um að ræða neina spádóma
fram i timann, heldur væri ein-
ungis talað út frá þeim stað-
reyndum sem fyrir lægju. Þró-
un sú sem orðiðhefði fyrir norð-
an land á siðustu árum sýndi að
þorskstofninn ætti erfitt upp-
dráttar a.m.k. sem stæði og
aukin sókn væri sizt til bóta,
heldur yrði að leggja áherzlu á
að vernda stofninn og fyrir-
byggja þannig eyðingu hans.
250 milljónir i fiskileit
og eftirlit
Blaðið sneri sér til Matthiasar
Bjarnasonar og innti hann eftir
þvi hvaða ráðstafanir hafi verið
gerðar að hálfu stjórnvalda til
að draga úr ásókn á þorskmiðin.
Sagði Matthias, að nú væri
búið að veita 250 milljónum
króna til fiskileitar, eftirlits og
annarra hluta sem mættu verða
til frekari verndunar þorsk-
stofnsins.
Togarinn Runólfur frá
Grundarfirði hefði verið leigður
til 6 vikna og yrði hann notaður
til karfaleitar og annarrar fiski-
leitar. Þá stæði til að leigja bát
til að kanna möguleika á skar-
kolaveiðum og jafnframt yrði
haldið áfram tilraunum með
spærlingsveiðar.
Enn fremur verður hluti þess-
arar upphæðar notaður til að
tryggja rekstrargrundvöll 4—5
skipa til loðnuveiða fyrir suður-
og austurströnd landsins og 3
skipa til veiða á úthafsrækju. Þá
verður unnið að markaðsöflun
fyrir þessar nýju fisktegundir,
bæði hér á landi og erlendis og
jafnframtleitaztvið að fá hærra
verð fyrir þær en fengizt hefur
fram til þessa.
Kvaðst ráðherra telja að
auknar veiðar fyrrgreindra
fisktegunda leystu þann vanda
sem togaraflotinn hefur átt við
að glima og drægju úr þeirri á-
sókn sem hefur verið i þorsk-
stofninn fram til þessa. Enn
fremur sagði hann að margvis-
legar ráðstafanir hefðu verið
gerðar til að varna rányrkju á
miðunum og mætti þar nefna
stærri möskva og hert eftirlit
með veiðunum.
Þessar ráðstafanir
leysa engan vanda
Alþýðublaðið leitaði álits
Kristjáns Ragnarssonar for-
manns Llú á ofangreindum
ráðstöfunum stjórnvalda, og
hafði hann þetta um málið að
segja.
„Þær tilraunir með nýjar teg-
undir nytjafiskjar sem stjóm-
völd hafa ákveðið að gerðar
verði, koma alls ekki til með að
leysa þann vanda sem togara-
fiotinn á við að etja. Þó að það
verði aukning á loðnuveiðum
fyrir austan, kolmunnaveiðar
og spærlingsveiðar einhvers
staðar annars staðar, þá verða
það fyrst og fremst þeir bátar,
sem þegar eru verkefnalausir,
Skuld VE 263. Þeir eru að gera að karlarnir út á Vik. Sl. vetur voru slæmar
gæftir hjá Eyjabátum, en oft fiskaðist sæmilega þegar á sjóinn gaf.
Bragðprófun
Matreiddir voru fiskstautar
úr marningi úr kviðhreinsuðum
kolmunna og leitað álits starfs-
fólks R.f. Til samanburðar voru
sams konar stautar úr þorsk-
marningi og ufsamarningi. Kol-
munnamarningurinn þótti á-
gætur, mun betri en ufsamarn-
ingurinn en heldur siðri en
þorskmarningur.
Japanir flytja nú mikið magn
af ufsamarningi á Bandarikja-
markað. Sú vörutegund er, að
sögn Tæknitiðinda, sizt álitlegri
en sá kolmunnamarningur sem
framleiddur var hér á landi sl.
haust og þvi ekki óliklegt að kol-
munnamarningurinn gæti orðið
samkeppnisfær á þeim mark-
aði. Sýni af kolmunna og spærl-
ingsmarningi hafa verið send
islenzkum sölufyrirtækjum i
Bandarikjunum og er nú beðið
umsagnar þeirra. ES
sem koma til með að stunda þær
veiðar, svo þetta minnkar eng-
an veginn þá ásókn sem er i
þorskinn.
„Það mun eiga að verja tals-
verðum hluta þessara 250 mill-
jóna til karfaleitar og það yrðu
togararnir, sem færu á þau mið
— en karfinn verður ekki veidd-
ur þó hann finnist vegna þess að
það borgar sig ekki að gera út
fyrirhann. Nú fást 24.60 kr. fyr-
ir kilóið af karfanum, en litrinn
af oliunni kostar 25.30 og þessar
tölur segja miklu meira e n
nokkur orð.
Ég hef ekki heyrt neina tillögu
framkomna frá stjórnvöldum,
sem mun tryggja það að þorsk-
stofninum verði ekki hreinlega
útrýmt, og það verður að gripa
til einhverra ráða en þeirra sem
nú eru notuð”. JSS
t siöustu Sjávarsiðu var
grein, um tilraunir á kolmunna-
vinnslu til manneldis', sem gerð-
ar voru á vegum Rannsókriar-
stofnunar fiskiðnaðarins. Sá
galli var þar á, aðekki var getið
nýjustu tilrauna sem Rann-
sóknarstofnunin hefir gert á
þessu sviði. Þær voru gerðar
siðastliðið hausti samvinnu við
Meitilinn i Þorlákshöfn.
Niðurstöður þessara tilrauna
lofuðu nokkuð góðu. Helzt kem-
ur til greina að vinna marning
úr kolmunnanum. Marningur úr
kviðhreinsuðum fiski reyndist
nokkuð dökkur og útlitsljótur
vegna hryggjarblóðs, en marn-
ingur úr flökuðum kolmunna
var mun fallegri útlits. Þvi gæti
komið til greina að flaka fiskinn
fyrst, áður en hann er notaður
til marningsframleiðslu, ef
nauðsynlegl reynist vegna
vörugæðanna.
- já, segir
sjávarútvegsráðherra
- nei, segir
formaður LÍU
Draga veiðar á öðrum
fisktegundum úr
Enn um kolmuna
rannsóknir
Lélegri vertíð að Ijúka
- um helmingi minni aflt á land í Grindavík, en árið 1970
Aukin sókn Breta á
miðin við Færeyjar
Færeyingum er það mikið
kappsmál að samningar takist i
landhelgisdeilu íslendinga og
Breta. Brezkir og skozkir tog-
arar hafa i' sivaxandi mæli flutt
sig af Islandsmiðum og hafið
veiðar við Færeyjar. Heima-
menn bera ekki ýkjamikinn
hlýhug til Bretanna, sem hafa
eyðilagt veiðarfæri fyrir fjöl-
mörgum færeyskum linubátum.
1 einni veiðiferð missti kutter
Nesbugvin veiðarfæri fyrir um
115.000 kr.
Á stóra Færeyjabankanum
sem eru sérlega fiskisæl mið,
veiða að staðaldri um 9 brezkir
togarar innan um 30-40 fær-
eyska linubáta.
Varðskip frá dönsku land-
helgisgæzlunni hefir leitazt við
að koma i veg fyrir átök milli
Breta og heimamanna. Nú er
verið að ljúka smiði fyrsta
gæzluskips Færeyinga og er
gert ráð fyrir að það verði tilbú-
ið til gæzlustarfa nú i mai.
ES
Nú er vetrarvertiðinni
lokið.Samkvæmt gamalli hefð
var lokadagur 11. mai en
tryggingatimabilinu lauk þann
15.
Flestum, i það minnsta hér
sunnanlands er litil eftirsjá að
þessari vertið, sem hefir verið
ein sú lélegasta um áraraðir.
Það er ihugunarvert, þar eð
sóknin var meiri en nú mörg
undanfarin ár.
Alþýðublaðið hafði samband
við Ilanél Haraldsson, vigtar-
mann við höfnina i Grindavik,
og spurði hann frétta af afla-
brögðum heimamanna.
„Aflinn sent kominn var á
land hér i gær var 18681 tonn, 15.
mai i fyrra var aflinn 18236 tonn
svo að ljóst er að aflabrögð eru
með svipuðu móti og þá. Þessu
til samanburðar má nefna að
seinnihluta aprQmánaðar 1970
bárusthér á land um 14.500 tonn
og i þeim mánuði öllum 24500
tonn.Þá var vertiðaraflinn 36-42
þúsund tonn.
Aflahæsti báturinn nú var
Ilafberg mcö 622 tonn og annar í
röðinni var Hrafn Sveinbjarnar-
son 3. með 532 tonn. Þetta eru
svipaöar aflatölur og hjá lægstu
bátunum hér áður fyrr.
Töluvert var um aðkomubáta
hér á vertiðinni, en þeir eru nú
sem óðast að tinast burt."
—Og hvað er nú framundan
hjá Grindvikingum? „Flestir
stærri bátar munu liklega halda
netaveiðinni áfram. en 50-100
tonna bátarnir fara að öllum
likinduin á humarveiðar hér
undan Suðurlandinu".
—ES—