Alþýðublaðið - 20.05.1976, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 20.05.1976, Blaðsíða 16
ekki á land í Surtsey Fyrir nokkru voru starfsmenn danska sjón- varpsins á ferð i Vestmannaeyjum. Þeir dvöldust þar i nokkra daga við myndatöku.- Þeir ætluðu út i Surtsey og taka þar myndir. Þeir fóru þangað með Illuga VE-101, en þegar að eynni kom þótti þeim sjólagið ekki árennilegt og fóru ekki i land. önnur myndin er af sjónvarpsmönnunum og hin af Surtsey eins og hún leit út frá bátnum, þegar þeir ætluðu að reyna að komast i land. (Ljósm: Guðmundur Sigfússon) WÁ há J É , 1 f Á útleið með llluga, VE 101. Þeir voru að skipta yfir á humartroll, en gáfu sér tima til að skreppa með dönsku sjónvarpsmennina og nokkra gesti út að Surtsey. Sjónvarpið gerir mynd um líf barna á stríðsárunum tslenzka sjónvarpið mun nú i sumar hefja töku kvikmyndar sem ætlaö er að lýsa lifi islenzkra barna á striðsárunum. Að sögn Jóns Þórarinssonar, forstöðumanns Lista- og skemmtideildar sjónvarpsins, er þetta hluti af samnorrænu verki sem tsland vinnur aö i samvinnu við sjónvarpsstöðvar i Dan- mörku, Noregi og Sviþjóð. Hinar stöðvarnar munu hver um sig gera þrjá þætti um sama efni hvert i sinu landi, en hér verður gehður einn þáttur. Tilgangurinn, með gerð þess- ara mynda, er að sýna börnum nútfmans hvernig lif barna var lyrr a umum. Handritið að þættinum gerði Stefán Júliussonog verður mynd- in að mestu tekin upp I eldri hverfum Hafnarfjarðar. ES Enn óráðið í stöðu íþróttafréttamanns Enn hefur ekki verið gengið frá ráðningu iþróttafrétta- manns sjónvarpsins. Það kom fram i fréttum að búiö væri aö ráöa Sigrúnu Stefánsdóttur, rit- stjóra islendings, i starfið, en nú mun hún vera oröin þvi afhuga. Pétur Guðfinnsson, frani- kvæmdastjóri sjón varpsíns, sagöi i samtali viö Alþýöublaöið I gær, aö vinda þyrfti bráðan bug aö ráöningu fþróttafrétta- manns. Bjósl hann viö aö gengiö yrði frá þvi á næstunni og cin- hver úr hópi þeirra er sóttu um starfiö yröi ráöinn i þaö. Sá þyrfti hclzt aö byrja I næsta mánuði og I siðasta lagi l. ágúst þcgar sjónvarpiö byrjar aftur eftir sumarfri I júli. Meðal þeirra er sóttu um starfiö er það var auglýst var Bjarni Feiixson, sem hefur séð um iþróttaþáttinn siöustu vikur. —SG FIMMTUDAGUR 20.MAÍ 1976 alþýðu blaöið Heyrt: Að margir þing- menn hyggist starfa af krafti ikjördæmum sinum i sumar, þar eð flestir búist við kosningum áður en núverandi kjörtimabili ljúki. — Hleraö: Að brezka rikis- stjórnin sé nú tilbúin að ganga að nær öllum skil- yrðum tslendinga við hugsanlega landhelgis- samninga, og að hún vilji aðeins fá tryggingu fyrir þvi að hið fræga brezka stolt veröi ekki fyriráfalli á alþjóðlegum vettvangi. Lesið: t leiðara Timans i morgun: „Þannig eru tslendingar óvirtir og niðurlaégðir af þeim, sem þykjast þó vera banda- menn. Það er þvi engin furða, þótt sú stefna eigi vaxandi fylgi, að tslend- ingar endurskoði alla afstöðu sma til varnar- liðsins.” Heyrt: Að innan Framsóknarflokksins sé nú hafin mikil tangarsókn yngri manna með Stein- grim Hermannsson I fararbroddi, til að gera lýðum þaðljóst, að þaðhafi verið vegna hörku Fram- sóknarflokksins að Atlants- hafsbandalagið og Banda- rikjamenn hafi fengið Breta til að gefast upp i striðinu viö tslendinga. Heyrt: Að jafnvel séu fyrirsjáanlegar einhverjar frekari breytingar i banka- stjórastöðum Búnaðar- bankans: að annar af tveimur aðalbankastjórum hans muni láta af störfum innan skamms. Einnig, að ýmsir hyggi nú gott til glóöarinnar og vilji fá starfið. Lesiö: 1 Hagtölum mánaðarins: „Stefnt verður að þvl, að almenn útlán innlánsstofnana, önnur en reglubundin afurða- og rekstrarlán hækki ekki um meira en 16% á árinu I stað 12%, eins og lánsfjáráætlun gerir ráð fyrir og um hefur verið samiö við bankana”. Þetta þýðir I raun, að eitthvað verður rýmra um útlán bankanna en gert hafði verið ráð fyrir. Lesiö: I Sveitarstjórnar- málum, að félagsmála- ráðuneytiö hafi nú tilkynnt, að laun oddvita árið 1975 skuli reiknast sem jafngildi 250 krónum á hvern ibúa hreppsins miðað við ibúa- tölu 1974, auk tilskilinna innheimtulauna, sem eru 4% af innheimtum út- svörum og öðrum sveita- gjöldum, sem honum ber að innheimta hja gjald- .endum hrepssins.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.