Alþýðublaðið - 19.08.1976, Page 2

Alþýðublaðið - 19.08.1976, Page 2
Fimmtudagur 19. ágúst 1976 siiför 2 STJORNMAL Utgefandi: Alþýðuflokkurinn. Hekstur: Reykjaprent hf. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Arni Gunnars- son. Fréttastjóri: Bjarni Sigtryggs- son. títbr.stj.: Kristján Einarsson, simi 14900. Aðsetur ritstjórnar er i Siðumúla 11, simi 81866. Auglýsinga- deiid, Alþýðuhúsinu Hverfisgötu 10 — simi 14906. Áskriftar - simi 14900. Prentun: Biaðaprenti h.f. Askriftarverð: 1000 krónur á mánuði og 50 krónur í lausasölu. Á kostnað neytenda Neytendur og starfsstúlkur mjólkurbúða hafa nú hrundið af stað mótmælahreyfingu gegn hinni fyrir- huguðu lokun Samsölubúðanna. Er það að vonum, því að mál þetta hef ur verið með endemum og ber vott um mikið tillitsleysi við neytendur. Fyrir löngu siðan var háð mikið mjólkurstrió, sem endaði á því að vinnsla og dreifing mjólkur á höfuð- borgarsvæðinu og langt út fyrir það var sameinuð í eina hendi og fengin samvinnusamtökum bændanna, sem mjólkina framleiða. Enginn ef i er á, að þetta var rétt stef na og hef ur sannað gildi sitt'gegnum árin. En nú hefur farið fyrir Mjólkursamsölunni eins og svo mörgum öðrum einokunarfyrirtækjum, að hún hefur f jarlægzt það fólk, sem hún á að þjóna — neytendur — og virðist nú vera rekin eftir hreinum peningasjónar- miðum. Þegar hinar nýju kjörbúðir komu til sögunnar hér á landi, þótti mörgum skrítið, að þær skyldu ekki fá að selja mjólk, þar sem aðstaða var til þess. Upphófst mikil togstreita um þetta mál, og spyrnti Mjólkur- samsalaná móti, þar sem hún hafði komið upp kerfi mjólkurbúða, sem voru margar hverjar til fyrir- myndar. Ekki þýddi þó að deila við þróun tækninnar og varð aðsjálfsögðu að leyfa hinum nýju og fullkomnu verzl- unum að hafa mjólk á boðstólum. Smám saman hafa kjörbúðirnar dregið til sín meira og meira af mjólkur- sölunni og hafa nú yfir helming hennar. Þegar svo var komið, að Mjólkursamsalan bjó við versnandi af komu mjólkurbúðanna, dró að því, að hún tók þá ákvörðun að kúvenda í málinu og losa sig alveg við búðirnar. Var þetta mál rekið af hinni mestu hörku og kaupmönnum nú sagt, að þeir yrðu að kaupa allar búðirnar og sjá fyrir starfsfólkinu. Ef mjólkurbúðunum verður lokað á einum degi, er augljóst, að í mörgum hverf um á höf uðborgarsvæðinu verða neytendur fyrir miklum óþægindum, og á það ekki sízt við gamla fólkið, öryrkja og barnafjöl- skyldur. Þá mun fjöidi kvenna, sem starfað hafa í mjólkurbúðunum, missa atvinnu, og er fjarri því að unnt sé að leysa það mál á auðveldan hátt. Sem sagt: Kaupmenn fá loksins vilja sínum framgengt og Mjólkursamsalan passar upp á krónurnar sínar, en neytendur verða fyrir óþægindum og borga auðvitað brúsann! Þetta er ekki í fyrsta sinn, sem slíkir aðilar sýna skeytingarleysi varðandi almenning. Ofan á þetta bætist, að borgarlæknir hefur tilkynnt, að allar matvöruverzlanir verði að sækja á ný um mjólkursöluleyf i og verði stranglega haldið við kröf ur um alla aðstöðu, hreinlæti og kæligeymslur. Vitað er, að ýmsar verzlanir hafa enn ekki bætt aðstöðu sina eins og þörf er, og sumar, sem eru í gömlum hverf um, hafa slæma aðstöðu til þess að uppfylla skilyrði borgarlæknis. Er þetta vorkunn, þar sem kaupmenn haf a verið dregnir svo lengi á málinu, en fá nú stuttan frest. Allt ber þetta að sama brunni: ástand mjólkur- sölunnar getur orðið erfitt og neytendur verða fyrir barðinu á því. Við þetta mætti bæta furðulegri sögu. Eftir að ákveðið var i stjórnarherbúðum að afgreiða mjólkur- málið—sem þurfti að gera með lögum — fengu vissir sérhagsmunaaðilar tækifæri til að smeygja inn í nauðsynlegt frumvarpnýjum ákvæðum, sem heimila, að f jármagnskostnaði vinnslustöðva landbúnaðarins megi bæta inn í af urðaverðið. Þetta er stórmál, nvir reikningar fyrir hundruð milljóna, sem smeygt er á neytendur í frumvarpi um mjólkursölu, meðan þeir hafa áhyggjur af mjólkurdreifingunni. Svona eru vinnubrögð hagsmunaklíkanna í stjórnarher- búðunum! B.Gr. Alltaf vantar húsnæði á Höfn „Það er óhætt að segja að hér hefur verið leiðinleg heyskapar- tiö undanfarnar vikur, rign- ingar og þoka. Hefúr heyskapur gengiö frekar stirðlega og er mikiö eftir aö hiröa. Einna lakaster ástandið hér i kringum Höfn i Nesja og Mýrahreppum, en öllu skárra i Suðursveit og Lóni”. Svo fórust Sigurði Hjaltasyni sveitarstjóra á Höfn i Hornafirði orð er blaðiö leitaöi frétta hjá honum. Sagði hann jafnframt að atvinnuástand á Höfn væri gott, nú sem undan- farin ár. Væri mikið um að- komufólk i sumarvinnu þar, aöallega úr Reykjavik og þá mest stúlkur. A vegum hreppsins er nú unnið að vatnsveitu fram- kvæmdum auk þess sem lagðar heföu verið götur um svæði þar sem fyrirhugað væri að byggja á. En að sögn Sigurðar hefur mikil húsnæöisekla staðið í vegi fyrir eðlilegum vexti kauptúns- ins. Ernú nýlokið við byggingu tveggja fjölbýlishúsa, samtals 28 Ibúðir. Eru það annars vegar leiguibúðir og hins vegar sjálfs- eignar ibúðir. Bæöi þessi hús eru fullsetin og komust færri að en vildu. Aö sögn Sigurðar virðast sama hve mikið sé byggt, alltaf er þörf fyrir meira húsnæöi. Sagði Sigurður að humarver- tiðin, sem lauk um 23. júli, heföi verið góð, en frá Höfn eru nú gerðir út milli 15 og 16 bátar auk eins skuttogara. Fry stihúsbyg ging Hiorn- firðinga sem staðið hefur yfir nokkur undanfarin ár er nú á lokastigi, og er ráðgert að taka það að fullu i notkun i oktober. Veröur þá hætt vinnslu i gamla frystihúsinu en væntanlega verður hluta af húsnæði þess notað i tengslum við nýtt slátur- hús sem fyrirhugað er að byggja. —gek. Nýting heyja nokkuð góð. A Djúpavogi munu vera bú- settir mflli 500 og 600 manns og þaraf eru milli 300og 400 manns i kauptúninu. Hjá Elisi Þórarinssyni fréttum viö að heyskapur heföi yfirleitt gengið nokkuð sæmi- lega i sumar og bjóst hann viö að bændur yrðu sæmilega birgir i vetur. Var grasspretta með betra móti og nýting heyja nokkuð góð. Þó vantar enn herzlumuninn á að tekizt hafi að ná öllum heyjum inn i hlöður. A vegum hreppsins eru i smiöum tvö Ibúöarhús og einnig er frystihús i byggingu. Þá er ráðgert að leggja oliumöl á um 600 metra vegarkafla i þorpinu og er undirbúningur þeirrar framkvæmdar þegar vel á veg kominn. Að sögn Elisar hefur atvinnu- ástand á Djúpavogi veriö nokkuð gott I sumar, eru þaðan gerðir út þrir bátar stærri en 50 tonnaauk smærri trillna. Sagði hann að milli 30 og 40 manns, aðallega húsmæður, störfuðu við fiskvinnslu á Djúpavogi og hefði atvinna hjá þvi fólki veriö nokkuö stöðug. —gek. Heyskap viðast lokið. Á Kirkjubæjarklaustri er prestur séra Sigurjón Einars- son. 1 viðtali við blaðið sagði hann að heyskapur I kringum Klaustur hefði viðast hvar gengið vel og ættu nú fáir bændur eftir að hirða hey sin fyrir austan Mýrdalssand. Þá sagði séra Sigurjón að mikið væri byggt á Kirkju- bæjarklaustri og vantaði þar mannskap til vinnu. Sem dæmi um uppbygginguna sagði séra Sigurjón, að hann hefði brugðið sér i ársfri á s.l. ári, og þegar hann kom aftur hefði verð búið að reisa 9 ibúðarhús. Þess má geta að á Kirkju- bæjarklaustri munu vera bú- settir um 100 manns. „ . Kvölddagskráin „Opið hús” í næst síðasta sinn 1 sumar hefur verið „opið hús’ i Norræna húsinu á fimmtudags kvöldum og hefur þar verið fluti dagskrá, sniðin fyrir norrænE ferðamenn. Þessum kvöldstundum fer ni senn að ljúka og er næst siðasU „opna húsið” i kvöld, fimrrtu daginn 19. ágúst. Dr. Sigurður Þórarinsson mur flytja erindi á sænsku, sem hanr nefnir Eldfjallavirkni á tslandi Sýnir hann jafnframt litskugga myndir máli sinu til skýringar Flutningur erindisins hefst kl 20:30. Siðar um kvöldið, eða kl. 22 verður sýnd kvikmynd Osvaldai Knudsen — Surtur fer sunnan — en hún fjallar um gosið er hafði i för með sér myndun Surtseyjar 1 bókasafni Norræna hússins stendur yfir sýning á bókum um Island. Sænska listakonan Dagmar Martas sýnir þar einnig vatnsiitamyndir sinar. í anddyri Norræna hússins sýn- ir Færeyingurinn Trándur Patursson vatnslitamyndir. Trándur er einn skipverja á skinnbátnum BRENDAN og hefur hann málað þessar myndir um borð i bátnum á leiöinni frá Færeyjum til íslands. Þeir sem leggja leið sina i Norræna húsið til aö skoða sýningarnar og hlýða á fyrir lestur dr. Sigurðar geta siðan fengið sér hressingu i kaffistofu hússins, en hún veröur opin i kvöld frá kl. 20-23. AV. Dr. Sigurður Þórarinsson flytur fyrirlestur á sænsku í Norræna húsinu i kvöld. Þögn um ávísanamálið t myndatexta i blaöinu i gær eru talin upp þau dagblöð, sem látiö hafa hjá liöa aö minnast á hiö umfangsmikla ávisana- svikamál, sem nú er i saka- dómsrannsókn og taliö er varða um 20 manns. Þar er ekki sanngirni gætt gagnvartDagbiaöinu, sem vikið hefur aö þessum svikum og öörum i fréttum og hugleiöing- um af og til. Hinsvegar hafa enn sem komiö er hvorki Tfminn né Morgunblaðið birt nokkuð um , þetta tiltekna mál. Skýringin kann aö vera sú, aö talsmenn sakadóms neita meö öllu að gefa nokkrar upplýsingar — og er nú vindátt önnur en þegar send var fréttatilkynning til fjölmiöla meö nafni og heimilis- fangi þess lögrcglumanns, sem uppvís varö að ávisanamisferli. Séu menn jafnir fyrir lögum má ætia aö nöfn þeirra, sem leikið hafa lausum hala um bankakerfiö árum saman veröi birt, óski fjölmiölar þess. En veröi öllu meiri dráttur á nánari upplýsingum fer ekki hjá þvi aö óskaö verði skýringa. —BS

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.