Alþýðublaðið - 19.08.1976, Side 3
Fimmtudagur 19. ágúst 1976
FRÉTTIR 3
Skák
SAGA UM
TAFLLOK
„Stúdia” eftir J. R. Capablanca
og Emanúel Lasker.
fl 7¥) i§
& A Bi
& * rnm
í'. 9 ■
fjjg n
p ■
Þessi staöa er heimsfræg.
Utan á kössum sem blýfylltu
taflmennirnir frá Hong Kong
eru i má sjá hana og mjög viða i
skákblöðum og skákbókum en
aldrei áður hef ég vitað hina
sönnu söguum tafllokin fyrr en i
siöasta mánuði.
Hvernig þetta skeði ritaði
Emanúel Lasker um í skákþætti
sinum i Vossische Zeitung 1914.
Þýðingin er litið eitt stytt úr
„Schach nytt” úr grein eftir All-
an Werle.
„Það var tilviljun að þetta
skeði. Kúbanski meistarinn var
á ferö i Berlin i júli.
Ég var sjálfur á leiö á þýzka
skákþingiðí Mannheim, þar átti
að athuga um stofiiun alþjóða
skáksambands og á þessu hafði
Capablanca áhuga.
Við ákv áðum þvi að hittast og
staðurinn var „Café Kerkau”.
Það vakti vissan áhuga manna
að við vorum staddir þarna og
einn skákáhugamaður notaði
tækifæriö ogbauð verðlaun fyrir
tiu hraðskákir milli okkar.
Skilyrðið var að hver leikur
væri leikinn innan fimm
sékúndna. Þrátt fýrir þennan
ógnarhraða tefldum við nokkuð
frambærilegar skákir.
Capablancasýndi sérstakt ör-
yggi.enég missteig mig oft. Úr-
slitin urðu sex og hálfur vinn-
ingurhjá Capablancaog ég fékk
þrjá og hálfan.
Eina skákina vann Capa-
blanca á undraverðan hátt.
Hugmyndin, sem hann notaði
var lagfærð af okkur á eftir og
þá varð þessi „stúdia” til.
Nái maöur hugmyndinni er
lausnin létt! Hún er svona: 1.
Rxc7, Rxc7. 2. Ha8 skák (Ekki
Kxc7 þvi þá er patt) Rxa8. 3.
Kc8 og vinnur. Þetta er
„stúdia” en ekki úr tefldri skák
alveg eins og svo oft má sjá á
prenti en Capablanca átti aö
sjálfsögðu hugmyndina.
Svavar Guðni Svavarsson.
Breiðholtiö orðið borgarprýöi!
Fegurstu mannvirkin í Reykjavík:
Þar mætast gamli tíminn og sá nýi
„1 þeim anda að það skipti
máli fyrir velferð okkar hvernig
umhverfi okkar liti út — aö þaö
sé snyrtilegt, að byggingar hafi
fögur form, útstillingar I glugg-
um gleöji augað og ánægja sé i
þvi fólgin aö búa viö eöa ganga
um fallega götu — hefur verið
siöur að fegrunarnefnd, sem nú
er hluti af umhverfismálaráði
borgarinnar, veiti á afmælis-
degi Reykjavikur, 18. ágúst,
viöurkenningu fyrir: 1. fegurstu
götuna, 2. fallegar byggingar, 3.
snyrtileg mannvirki og 4. fall-
egustu gluggaútstillinguna.
Þannig hljóðaði upphaf ræöu
Elinar Pálmadóttur, formanns
Umhverfismálaráðs Reykja-
vikur, að Höfða I gær þegar
afhentar voru viöurkenningar
fyrir falleg og snyrtileg mann-
virki.
1 ræðu sinni gat Elin
hreinsunarviku sem var i vor.
Sökum góðrar undirtekta fólks
var ákveðið að framlengja hana
um tvær vikur. Þá gat Elin
einnig starfs unglinganna i
borgarvinnunni, sem gengið
hafa rösklega fram i að hreinsa
og fegra umhverfi borgarbúa.
Hlutu viðurkenningu
Fallegasta gatan var valin
Gilsárstekkur.Þetta er lltil gata
I Breiðholtinu. Verður það að
teljast athyglisvert að gata isvo
nýju hverfi skuli hljóta þessa
viðurkenningu.
Undanfarin ár hafa verið
veittar viðurkenningar fyrir
falleg mannvirki. Er þeim skipt
i þrjá flokka: Einbýlishús, fjöl-
býsilhús og stofnun.
Fallegasta einbýlishúsiö var
valið hús frá 1922, Njarðargata
9. Arkitekt Guðmundur H.
Þorláksson. Vesturberg 144-148
var valið sem fallegasta fjöl-
býlíshúsíð. Arkíte'k'tar Ómar
Þór Gunnarsson og Ornólfur
Hall. Fallegasta stofnunin i
Reykjavik var valin Verkfræði-
deild H.t. annar áfangi. Arki-
tektar Ulrik S. Arthursson og
Haukur Viktorsson.
Þá er komið að viðurkenningu
fyrir snyrtilegt mannvirki.
Þann heiður fékk Málaskóli
Halldórs Þorsteinssonar i
Miðstræti 7.Þetta er gamalt og
virðulegt hús, sem Halldór
Þorsteinsson hefur gengiö um af
snyrtimennsku og viðhald þess
verið til fyrirmyndar.
Smekklegasta gluggaskreyt-
ing var talin Verzlun Helga
Einarssonar Skólavörðustig 4.
En þar er gluggaskreytingin
nánast tengd
verzlunarhúsnæðinu sjálfu.
Það nýja og
það gamla.
Það sem er eftirtektavert við
. þetta val er að i þvi mætast
gamli timinn og hinn nýji.
Fegursta gatan og fegursta
fjölbýlishúsið eru i nýjasta
hverfilborgarinnar Breiðholtinu.
Hverfi sem enn er i byggingu.
Fallegasta mannvirkið og
fallegasta einbýlishúsið eru
hvoru tveggja gamlar
byggingar.
jeg
Frá hófi borgarstjórnar að Höfða i gær.
Fegursta mannvirkið i Reykjavik. Málaskóii Halldórs Þor-
steinssonar að Miðstræti 7.
HÚSGAGNAVERSLUN (g) REYKJAVÍKUR HF.
Fjölbreytt húsgagnaúrval ú tveimur hœðum
Alltaf eitHivað nýtt — Veljið vönduð /f^ Húsgagnaverslun
húsgögn — Verðið mjög hagstœtt V^PJ/ Reykjavíkur hf.
Brautarholti 2 Símarl 1940 - 12691