Alþýðublaðið - 25.08.1976, Page 12

Alþýðublaðið - 25.08.1976, Page 12
12 Miðvikudagur 25. ágúst 1976 Útsalan er hafin Terelynebuxur frá kr. 1975,-. Frakkar frá kr. 3575.-. — Nærföt — Skyrtur o.fl. Andrés, Skólavörðustíg 22A Nemendur verða teknir í simvirkja- og loftskeytanám nú i haust, ef næg þátttaka fæst. Umsækjendur skulu hafa gagnf ræðapróf eða hliðstætt próf og ganga undir inntökupróf f stærðfræði, ensku og dönsku. Inntökupróf verða 15. september og verða nánar tilkynnt síðar. Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá dyra- verði Póst- og símahússins við Austurvöll. Umsóknir ásamt heilbrigðisvottorði og Ijósriti af prófskírteini og sundskírteini skulu berast fyrir 1976. Nánari upplýsingar i síma 26000. Póst- og símamálastjórnin SÝRÐAR AGÚRKUR Það borgar sig að súrsa agúrkur sjálfur, ef vinnutiminn er ekki metinn til peninga. Það er lika indælt að fá ná- kvæmlega það bragð, sem manni finnst gott, og það verður ekki metið til peninga heldur. Hér á eftir eru nokkr- ar uppskriftir af sýrð- um agúrkum, sem reynzt hafa vel. AGORKUR KRISTINAR 2 kg agúrkur I kg sykur 1 dl fint salt 1 litri ediksblanda (ediksýra og vatn eöa mataredik og vatn) smábiti af piparrót 1 poki sinnepskorn dill Þvoiö agúrkurnar, skeriö þær i sneiöar og skiptiö dillinu (sól- selja) i bita. Sykur, salt, edik og sinnepskornin sett i pott. Suöan látin koma upp og vökvanum hellt heitum yfir gúrkurnar, sem raöaö hefur veriö I krukkur ásamt dillinu. Skeriö piparrót- ina i smábita og setjiö nokkra i hverja krukku. Agúrkurnar geymast lengur ef piparrótin er sett með. SÝRÐU AGÚRKURNAR HENNAR EVU Þeta er gömul uppskrift og dálitiö flókin, en gúrkurnar verða góöarog geymast mjög vel. 1 kg agúrkur. 1 litri ediksblanda 1/2 kg sykur 1 msk negull 2 kanellengjur 2 stykki engifer 8-10 hvit piparkorn. Skrælið agúrkurnar og takiö kjarnann úr, skeriö þær i 3-4 sm langa stöngla. Blandiö saman sykri og ediki, hnýtiö grisju utanum kryddiö og leggið ofan i löginn. Látiö agúrkurnar i krukkur og helliö leginum á. Látiö standa I 10-12 klst,,helliö þá leginum af og látiö suöuna koma aftur upp. Endurtakiö 3 til 5 sinnum, þvi oftar sem lögur- inn er soöinn, þvi betur geymast agúrkurnar. Volkswageneigendur Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Huröir -■ Vélarlok — Geymslulok á Wolkswagen í allflestum litum. Skiptum á . einum degi meö iiagsfyrirvara fvrir ákveöiö verö. Reyniö viöskiptin. ■ Bitasprautun Garðars Sigmundssonar. Skipholti 25 Simar 19099 og 20988. (|l Hjúkrunarfræðingar Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa á hinar ýmsu deildar Borgarspitalans. Nánari upplýsingar á skrifstofu forstöðu- konu i sima 81200. Sjúkraliðar Sjúkraliða vantar á Geðdeild Borgar- spitalans i Arnarholti sem fyrst. Upplýsingar á skrifstofu forstöðukonu i sima 81200. Reykjavik 24. ágúst 1976 BORG ARSSPÍ TALINN Skattstofa Reykjavíkur óskar eftir mönnum til endurskoðunar skattframtala. Umsóknir, sem greina ald- ur, menntun og fyrri störf, skal senda til skattstjóra fyrir 5. sept. nk. Reykjavik 20. ágúst 1976 Skattstjórinn i Reykjavík. Hjúkrunarfræðingar Iljúkrunarfræðingar óskast nú þegar að sjúkrahúsinu á Selfossi. Hlutavinna kemur einnig til greina. Upplýsingar gefur forstöðukona sjúkra- hússins i sima 99-1300. Sjúkrahússtjórn. BANNIÐ HÆTTULEGAR KAFFITREKTIR! Hvem hefði dreymt um það, að kaffitrekt- imar, sem svo margar húsmæður nota nú, séu stórhættulegar? Vitið þið, að árlega skað- brenna 700 Danir sig á kaffitrektum sem eru valtar og velta? Það eru aðallega konur og börn, sem fá ljót og sársaukafull brunasár af sjóðheitu kaffinu. Frá þvi 1971 hafa læknar á sly savaröstofunni i Kaup- mannahöfn rekið mikinn áróö- ur fyrir nýrri gerö af kaffitrekt- um, sem hafi stút, sem nái langt niöur ikönnuna ogkomimeö þvi i veg fyrir, aö trektin velti. Þaö eru komnar trektir á markaöinn i Danmörku, sem eru svona, en þaö er galli á gjöf Njaröar. Nýju trektirnar eru breiðariog okarnir sem notaöir eru i þær veröa þvi dýrari. Þess vegna kaupa neytendur gömlu, ódýru pokana — og geta ekki notaö þá i nýju trektirnar, svo aö þær gömlu (hættulegu) eru teknar i notkun á ný og i þær þarf aö kaupa ódýru pokana o.s.frv. Þetta er ein hringavitleysa, en þaö er bráönauösynlegt aö taka þessar hættulegu trektir af markaöinum eftir þvisem neyt- endasamtökin dönsku og marg- ir læknar segja. Hvernig er það hérna hjá okkur? Notum viö ekki flestar svona trektir? ■> Þessar trektir eru hættulegar og mörg börn hafa skaöbrennzt, er þær uitu. Læknar I Danmörku hafa barizt gegn þeim frá 1971 og neytendasamtökin leggjast gegn notkun þeirra. FRAMHALPSSAGAM En 1805 gíftist elsta dóttir: Álex anders Page og fluttist til Anna- polis. Frú Page skrifaöi stúlkunni nokkur bréf og sagöi henni slúður að heiman. Eldsvoðinn hjá Campbell var þar á meðal.” „Eldsvoði?” endurtök Sara. „Húsið brann til kaldra kola... og Douglass Campbell brann inni.” Þögnin var svo algjör, að kvak skjósins liktist veini. Ruth mundi eftir þvi, aö henni haföi fundist um morguninn, að það ætti að vera brunablettur þar, sem íík- amningurinn haföi veriö. Þegar hún leit á Söru, sá hún, að frænka hennar hugsaði eins^ andlit hennar var hvttt af skelfingu. „Svarti reykjarmökkurinn,” hvislaði hún. „Bruce, gæti þaö verið — hann?” „Hættu!” sagöi Bruce. Um leið sagöi Pat hvasst: „ Verið ekki svona sjúklegar. Reykjarmökkurinn er hugrænn. Hvernig stóö á þvi, Bruce, aö sá gamli brann inni? Hann hlýtur að hafa veriö háaldraöur, fyrst húsið var byggt 1780.” „Eldurinn braust út þrjátiu árum seinna,” sagöi Bruce. „Hann gæti hafa veriö fimmtiu og fimm ára eöa áttræöurþessvegna. Hann gæti hafa kafnað af reyk, áöur en nokkur sá, aö húsiö var alelda. Þetta var steinhús segir i bréfinu. Veggirnir brunnu auö- vitaö ekki, en allt, sem inni var og þakiö féll. Þegar erfinginn, sonur systur Campbells, fluttist til Georgetown frá Fredrick, braut hann múrana niöur og reisti nýtt hús frá grunni.” Ruth þagöi. Sólskiniö og fugla- söngurinn voru svo fjarlæg, þvi aö hinn gamli sorgarleikur hafði meiri áhrif á hana, en hún haföi gert sér ljóst. „Ég sé engin tengsl milli þessa og likamningsins okkar,” sagöi Pat. „Reyksúlan er óskiljanleg. Ef gamli maöurinn heföi heitað Samúel, þá....” „Hann hét það ekki. En þaö er annað....” „I bréfinu?” „Já vandræðin við svona bréf eru þau, að bréfritari veit svo margt, sem hann skýrir ekki. Enda ástæöulaust. Lesandinn veit það lika, en þeir sem lesa þau núna, koma af fjöllum. Gamla frú Page lýsti eldsvoðanum og sorgarleiknum öllum af mikilli list. Svo skrifaði hún — biöið andartak, ég skrifaði það hjá mér.” Bruce tók upp vasabók. „Þá byrjar balliö: „Sumir segja, Komdu heim, Ammí Höfundur: Barbara Michaels Þýðandi: Ingibjörg Jónsdóttir

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.