Alþýðublaðið - 28.10.1976, Page 2
2 STJORNMÁL
Fimmtudagur 28. október 1976
alþýöu-
blaóið
Otgefandi: Alþýöuflokkurinn.
Rekstur: Reykjaprent hf. Ritstjóri og ábyrgöarmaöur: Arni Gunnarsson. Fréttastjóri: Bjarni Sigtryggsson.
Aösetur ritstjórnar er i Síöumúla 11, simi 81866. Auglýsingadeild, Alþýöuhúsinu Hverfisgötu 10 — simi 14906.
Askriftarsfmi 14900. Prentun: Blaöaprent h.f. Áskriftarverö: 1100 krónur á mánuöi og 60 krónur i lausasölu.
VILJA KANNA RAUNVERULEGAN
MISMUN LAUNA Á ÍSLANDI OG
I HINUM NORRÆNU LONDUNUM
Þegar rætt er um al-
menn laun hér á landi er
oft miðað við laun sam-
bærilegra stétta í hinum
norrænu löndunum.
(slenzku launþegasam-
tökin haf a bent á, að laun
séu hærri í þessum lönd-
um og kaupgetan meiri.
Þessum staðhæfingum
hefur meðal annars verið
svarað á þann hátt, að
skattar séu hærri í
þessum löndum og raun-
tekjur því ekki eins háar
og íslenzkir launþegar
vilja vera láta.
Til að fá úr þessu skorið
í eitt skipti fyrir öll hafa
þingmenn Alþýðu-
flokksins lagt fram á Al-
þingi tiílögu til þings-
ályktunar um öflun upp-
lýsinga um þjóðartekjur
á mann og kaupmátt
launa helztu starfsstétta
á íslandi og í öðrum nor-
rænum löndum. Slík
athugun hlyti að taka af
allan vafa um réttmæti
þessa samanburðar, sem
svo oft er notaður, þegar
deilt er um kaup og kjör
íslenzkra launastétta.
I þingsályktuninni er
ríkisstjórninni falið að
afla nýjustu fáanlegra
upplýsinga, sem séu sam-
bærilegar, um þjóðar-
tekjur á mann á (slandi
og öðrum Norðurlöndum.
Ennfremur skal ríkis-
stjórnin afla upplýsinga
um raunverulegar tekjur
þeirra fyrir og eftir
skattgreiðslu og um
vinnutíma. Jafnframt
verði kaupmáttur laun-
anna áætlaður, miðað við
verðlag í hverju landi. Al-
þingi verði síðan afhent
skýrsla um niðurstöðu
þessarar upplýsingasöfn-
unar.
Á næsta ári fara fram
samningar um laun nær
allra launþega í landinu:
verkalýðsfélaga innan
ASI, opinberra starfs-
manna og háskólamanna.
Það er ríkjandi skoðun
innan allra launþegasam
taka, að kaupmáttur
launa hafi rýrnað óhæfi-
lega mikið að undanförnu
og mjög mismunandi
mikið. Á þessu leikur
raunar enginn vafi
Launþegasamtökin
hafa haldið því fram, að
laun hér á landi séu orðin
miklum mun lægri en
gerist hjá hliðstæðum
sta rf sstéttum með
nálægum þjóðum, og sé
mismunurinn orðinn mun
meiri en mismunur
þjóðartekna á mann
gefurtilefni til. Þóttallar
upplýsingar, sem nú
liggja fyrir, bendi til að
þetta sé staðreynd, er
engu að síður rétt að af la
nýrra og greinagóðra
upplýsinga á skipulegan
hátt. Nauðsynlegt er
fyrir alla aðila sem þessi
mál skipta, að sem
skýrust vitneskja liggi
fyrir. Það ber að vísu að
viðurkenna, að vanda-
samt er að bera saman
þjóðartekjur á mann í
tveim eða fleiri löndum,
jafnvel þótt atvinnu- og
þjóðfélagshættir séu
svipaðir, og að enn
erfiðara er að bera
saman kaupmátt launa
tiltekinna starfsstétta í
ýmsum löndum.
En þótt niðurstaðan
hljóti jafnan að vera háð
nokkurri óvissu, er hér
samt um svo mikilvægt
atriði að ræða, að nauð-
synlegt er að af la þeirrar
vitneskju, sem fáanleg
er. Enginn vafi er á því,
að unnt er að safna upp-
lýsingum, sem taka af
tvímæli um, hvort um
sé að ræða alvarlegt mis-
ræmi í launakjörum hér á
landi og í öðrum nor-
rænum löndúm. — fþeím
tilgangi hafa Alþýðu-
flokks- þingmennirnir
lagt þessa tillögu fram á
þingi.
—AG
EIN-
DÁLKURINN
Menn eru heilaþvegnir á
fínan og kurteisan hátt.
í siðustu Arbók landbúnaðar-
ins, sem Sveinn Tryggvason rit-
stýrir, fer ritstjórinn hörðum orð-
um um Framsóknarflokkinn og
hvernig stefna hans er önnur i
orði en á borði, þegar málefni
bændastéttarinnar eiga i hlut.
Sveinn gagnrýnir einnig vald
flokkanna almennt, en það fer
ekki fram hjá neinum að hvaða
flokki ritstjórinn er að vikja,
þegar hann segir:
„Menn skiptast i nokkrar póli-
tiskar fylkingar og fyrir margan
manninn er það alveg sama
hverju „flokkurinn” tekur uppá.
Hann fylgir honum fyrir þvi, bæði
i bliðu og striðu. Flokkurinn
veröur með timanum einskonar
Goði og allt sem forystumenn
hans taka uppá er harla gott, ekki
sizt þegar forystumenn flokksins
hafa talað i útvarpið, sýnt sig i
sjónvarpi og siöan látið taka við
sig viðtal i blaðinu og látið birta
þar mynd af sér, sömu myndina
ár eftir ár, sem kannske var tekin
af foringjanum fyrir áratug sið-
an. Menn eru heilaþvegnir á finan
og kurteisan hátt og þegar sú að-
gerð er um garð gengin, hafa
menn tekið málefnalega afstöðu,
sem er i fullri samstöðu við flokk-
inn. Þá prisar margur maðurinn
sig að hafa nú ekki tekið afstöðu i
málinu sjálfur, án þess að hafa
heyrt skoðun foringjans. Það er
svo leiðinlegt að vera alltaf að
skipta um skoðun. Það er bara
ekki gerandi, nema þá i ýtrustu
neyð ef einhver þrjóturinn pinir
út úr manni afstöðu til máls áður
en öll „gögn” hafa verið lögð á
borðið. Þá er fljótfærnisafstaða
afsakanleg. Þetta er kannske
heldur djúpt tekið i árinni, en
hver sá sem þetta les með hlut-
leysi i huga finnur án efa sann-
leikskornið.
Hver ný tillaga sem borin er
fram til breytinga á rikjandi
fyrirkomulagi, af einstakling, án
þess að hún hafi verið lifi gædd af
flokksblaðinu, flokksfundi, út-
varpi, sjónvarpi eða flokksfor-
ingjanum, týnist þvi i öllu mold-
viðrinu án tillits til þess hversu
skynsamleg hún er.
Hugmyndin um sameiningu
búnaðarsamtakanna i landinu
hefur þvi lent i ruslafötu þess
hugsanadoða, er nú hrjáir flesta
samborgarana og þaðan kemur
hún ekki aftur fyrr en einhverjum
þingflokknum dettur ihug að taka
hana til handargagns, þegar ein-
hver varaþingmaðurinn þarf að
ná sér i efni i jómfrúarræðu”.
Stefán Helgason
Alþýðuflokksfélag
Grundarfj arðar
Alþýðuflokksfélag Grundarfjarðar var stofnað sunnu-
daginn 17. okt. sl. Félagið nær til Grundarfjarðar og
Eyrarsveitar.
Aðdragandi að stofnun Alþýðuflokksfélags i Grundar-
firði er margra ára barátta, er loks tókst að koma i
framkvæmd. Aðaluppistaða félagsins er ungt fólk.
Aldursforseti er rúmlega fimmtugur, og allir félagar aörir
talsvertyngri. Flokksfélagareru 11 talsins. Formaður fél-
agsins er Stefán Helgason
Hólmfríður Friðriksdóttir
Kvenfélag
Skagafjarðar
1 sumarvarstofnað KvenfélagSxagafja.rðar,meðum 15
félögum. Fyrir eru áöur Alþýðuflokksfélag Hofsóss og
Alþýðuflokksfélag Sauöárkróks. Það var Magnúsi
Bjarnasyni mikiö áhugamál að stofnað yröi kvenfélag i
Skagafiröi á meðan hann vab á lifi, en hann lézt sl. ár. Þvi
var það að Kvenfélag Skagafjarðar var stofnað, og var
aðalhvatamaður þess Hallfriöur Bára Haraldsdóttir.
Formaður félagsins er Hólmfriöur Friöriksdóttir.
—A
Kristján Þorgeirsson
Alþýðuflokksfélag
Kjósarsýslu
8. okt. s.l. var stofnað Alþýðuflokksfélag Kjósarsýslu.
Formaður félagsins var kjörinn Kristján Þorgeirsson,
stofnfélagar voru 14, meirihlutinn ungt fólk. Mjög aukinn
áhugi er fyrir málefnum Alþýöufiokksins i Kjósarsýslu,
og sagði Kristján það leiða af sjálfu sér vegna þeirra
vandræðatima sem i þjóðfélaginu eru i dag.