Alþýðublaðið - 28.10.1976, Qupperneq 3
VERKALYDSMAL 3
biaífö Fimmtudag
ur 28. október 1976
Alyktanir 10. þings Sjómannasambands Islands
Hlutaskiptaprósenta á fiski-
skipimi þarf að hækka um 3-5%
Rætt stuttlega við
Oskar Vigfússon
10. þing Sjómannasambands
tslands var haldið um siðustu
helgi, eins og fram hefur komið i
fréttum. Jón Sigurðsson, sem
verið hefur formaður sam-
bandsins frá upphafi, baðst und-
an endurkjöri.en i hans stað var
Óskar Vigfússon formaður Sjó-
mannafélags Hafnarfjarðar
kosinn formaður Sjómanna-
sambandsins.
i stuttu spjalli við Óskar ný-
lega sagði hann, að hann
byggist ekki við neinum að-
gerðuin af hálfu sjómanna.
Hendur þeirra hefðu verið
bundnar með bráðabirgða-
lögunum, en hann vænti þess
hins vegar að stjórnvöld losuðu
stéttina úr þeim viðjum. — Hins
vegar munum við nú skipu-
leggja samtök sjómanna
itarlega, með nánu sambandi
við aðra aðila verkalýðs-
hreyfingarinnar, sagði Óskar.
— Okkar vandamál hefur
verið það, að sjómenn eiga
ákaflega erfitt nieð að sækja
fundi og bera saman ráð sin,
vegna atvinnunnar. Þess
veena hefur verið erfitt að ná
þeim saman i nægilega kröft-
ugt aií. Auk þess virðist mér af
viðbrögðum manna, að for-
vsta þeirra hafi ekki verið i
nægilega nánuin tengslumvið
félagsmenn. Það skapaði svo
óánægju sem var nægilega
mikil til að þjappa mönnum
saman um stjórnarkjör. Mitt
framboð er til dæmis þannig til
kom ið, — þar voru það starfandi
sjómenn sem höfðu mikil áhrif á
gang mála. Mér var raunar ýtt
þarna fram meira en ég vildi.
Ég vona bara að það verði
sjómannastéttinni til góðs, en til
hennar tel ég mig teljast, sagði
Óskar að lokum.
Hér á eftir verða birtar
ályktanir 10. þings Sjómanna-
sambands tslands.
—hm.
Ályktun um kjaramál
10. þing Sjómannasambands
tslands bendir á þá alvarlegu
staðreynd, að kaup og kjör
islenskra sjómanna eru i dag
langt fyrir neðan það mark að
viðunandi geti talist og mun kaup
sjómanna almennt ekki vera
mikið yfir 60% af þvi kaupi, sem
margir starfshópar i landi hafa
fyrir sambærilegan vinnutima.
Hér verður þvi að verða stór-
breyting á, ef hægt á að vera að
manna fiskiskip og fragtskipa-
flotan góðum og vönum starfs-
krnftnm.
Vinnutimi sjómanna, fjarvera
þeirra frá heimilum sinum lang-
timum saman, ófullnægjandi að-
búnaður aðkomumanna i mörg-
um verstöðvum ásamt fleiri at-
riðum skjóta sterkum stoðum
undirkröfuna um stórbætt launa-
kjör og aðbúnað islenskra sjó-
manna.
Hlutaskiptaprósenta á fiski-
skipum þarf að hækka um 3-5%
eftir þvi, hvaða veiðar fiskimenn
stunda. Algerlega fritt fæði um
borð eiga sjómenn fiskiskipa að
hafa, eins og sjómenn á stærri
togurunum og allir þeir, sem
vinnú stunda fjarri heimilum sin-
um við stórframkvæmdir. Kaup-
trygging sjómanna þarf að hækka
um minnst 20%.
Þá verður það að vera höfuð-
krafa þingsins að fullnaðarupp-
gjör fari fram i lok hvers úthalds-
mánaðar, svo tryggt verði að góð-
ur aflahlutur eins mánaðar hverfi
ekki til jöfnunargreiðslu á kaupi
næsta mánaðar, þó aflaminni sé.
Þá bendir þingið á að i næstu
samningum verði lögð áhersla á
að samið verði sér fyrir fiski-
menn er vinna á loðnubátum á
sumarvertið, og þá með það sér-
staklega i huga að þeir fái
löndunarfri og hafnarfri.
Þingið telur góða samstöðu sjó-
mannafélaganna i landinu undir-
stöðu að árangri kjarabaráttunn-
ar, og i þvi sambandi mikið atriði
að þau félög, sem sameiginlega
undirskrifa niðurstöðu samninga
hafi sameiginlega atkvæða-
greiðslu og fylgist að um boðun og
afboðun vinnustöðvana.
Þá beinir þingið þvi til sam-
bandsfélaga að þau fylgist vel
með að samningar þeirra séu
ekki brotnir, og að öll sérákvæði i
samningum þeirra verði ekki frá
þeim tekinn sem þegar eru kom-
inn inni samninga og félög hafi
rétt, sem hingað til að gera sér-
samning.
Þingið telur að niðurstaðan úr
uppstokkun sjóðakerfisins hafi
valdið sjómönnum verulegum
vonbrigðum, þar sem Ijóst er að
breytingin hefur að meginhluta
farið til útgerðarmanna en allt of
litið til sjómanna.
Engar veiðiheimildir
10. þing S.S.I., haldið 22. - 24.
okt. 1976, mótmælir öllum
samningum stjórnvalda við aðrar
þjóðir, eftir að veiðiheimildir
gerðra samninga renna út.
Þar sem fyrir liggur óvé-
fengjanlegar heimildir um að
tslendingar hafa ekkert um að
semja eins og ástand fiskistofna
er i dag.
Snurvoð verði ekki leyfð
10. þing Sjómannasambands
Islands, haldið 22. - 24. okt. 1976,
varar eindregið við að snuru-
voðaveiðar verði heimilaðar,
það hefur sýnt sig áður þar sem
snuruvoðaveiðar hafa verið
stundaðar að lifriki þess hafsvæð-
is hefur nær öllu verið eytt, og
helst á hinum eiginlegu uppeldis-
stöðvum nytjafiska okkar.
Ályktun um tryggingar- og
öryggismál.
10. þing Sjómannasambands
Islands fagnar þvi að i siðustu
fiskveiðideilu hafa ekki orðið
alvarleg slys né mannskaðar á
varðskipum okkar.
Sendir þingið öllum áhöfnum
varðskipanna bestu kveðjur og
þakkir fyrir vel unnin störf i sið-
asta þorskastriði.
Þingið bendir enn einu sinni á
nauðsyn þess, að öryggi i höfnum
sé aukið. Lýsing sé bætt, land-
gangar til staðar auk annars
öryggisbúnaðar. Þingið skorar á
Slysavarnarfélag Islands og sjó-
slysanefnd að fvlgja þessum mál-
um eflir.
Þingið felur væntanlegri stjórn
að vinna að þvi að lögum um
slysa- og örorkutryggingu sjó-
manna verði breytt þannig að
tryggingarupphæðir haldi sinu
raungildi og sé þá miðað við setn-
ingu laganna 1972.
Þingið harmar þann drátt sem
orðið hefur á framkvæmd þings-
ályktunartillögu um rannsókn á
reki gúmmbjörgunarbáta, en þar
eru eðlilegar skýringar á og ber
að vænta þess að nú verði hafist
handa um rannsókn þessa. Jafn-
framt rekrannsókninni og rann-
sókn tækjabúnaðar verði vand-
lega thugað hvort ekki eigi að
skylda sem björgunarbúnað i
skipum þann björgunarbúnað,
sem hefur verið kynntur hér á
landi nýverið.
10. þing S.S.l. bendir á og lýsir
yfir að fyrirbyggjandi aðgerðum
gegn eldsvoðum i skipum sé mjög
ábótavant. Telur þingið að stór-
aukið álag á rafala ýmissa skipa
geti þar átt hlut að. Handslökkvi-
tæki verði af viðurkenndri gerð,
og islenskir leiðarvisar fylgi
hverju tæki og kennsla i meðferð
slökkvitækja verði framkvæmd
af kunnáttumönnum og verði fjöl-
miðlar notaðir til þeirra hluta.
Þá telur þingið vegna fenginnar
reynslu grannþjóða okkar, að nú
beri að kalla inn alla gúmm-
björgunarbáta sem framleiddir
eru fyrir árið 1960, vegna þeirra
tæknigalla sem fram hafa á þeim
komið.
Þingið telur að stórauka þurfi
Skipaeftirlit rikisins og bendir
enn einu sinni á fyrri kröfur um
að eftirlitsmenn fari á milli staða
og framkvæmi skyndiskoðanir.
10. þing S.S.l. bendir á að nauð-
synlegt sé að Siglingamálastofn-
unin merki og haldi skrá yfir þau
öryggistæki, sem skylt er að hafa
um borð i skipum, þannig að ekki
sé hægt að flytja milli skipa þegar
skoðun fer fram.
Þá þakkar þingið S.V.F.l. fyrir
framkvæmd á tilkynningaskyldu
skipa og skorar á Alþingi að setja
lög þar um, og þá verði Pósti og
sima farið að bæta aðstöðu
strandstöðva og bendir sérstak-
lega á Breiðafjörð, sunnanverða
Vestfirði og norð-austurlands-
svæðið.
Einnig vill þingið færa Sjó-
slysanefnd þakkir fyrir þau störf
sem hún hefur unnið og hvetur
sjómannafélögin að dreifa
skýrslum sjóslysanefndar um
borð i öll skip.
10. þing S.S.l. skorar á þá út-
gerðarmenn sem ekki hafa látið
koma fyrir öryggislokum i linu-
spilum báta sinna að koma þvi
framkvæmd strax. Einrtig skor-
um við á sjómenn, að nota ávallt
þann öryggisútbúnaðsem skylt er
að hafa um borð i skipum, eins og
t.d. öryggisbelti og hjálma.
Að lokum samþykkir þingið að
fela væntanlegri sambandsstjórn
og einstökum félögum að vinna
ötullega að þvi að fá lifeyrissjóði
sjómanna verðtryggða og að
vinna sameiginlega að hags-
munamálum sjómannastéttar-
innar i heild og skipti þá ekki máli
hvort um yfir- eða undirmenn er
að ræða.
Aukið vinnuálag vegna
fækkunar i áhöfn
10. þing S.S.l. varar við þeirri
alvarlegu þróun sem orðið hefur á
isl. fiski- og farskipaflotanum
vegna mikillar fækkunar i áhöfn-
um skipanna.
Á sama tima og unnið er að
minnkandi vinnuálagi landverka-
fólks, er vinnuálag á sjómenn
aukið svo að til óefnis stefnir.
Skorar þingið á öll stéttarfélög
sjómanna að standa dyggilegan
vörð um mönnunarakvæði kjara-
samninganna.
Þiggið ekki veizluboöið!
10. þing S.S.l. samþykkir þar
sem öllum er ljóst hvaða aðferð
sjómenn viðurkenna sem eðlilega
við ákvörðun um kaup og kjör
þeirra, sem fer ekki saman við
gerðir sjá varútvegsmálaráð-
herra þar að lútandi. Þá telur
þingið ekki fært að þiggja nein
veisluboð úr þeirri átt, að ó-
breyttu.
Enda sé fjármunum skattþegna
betur varið á annan hátt.
Ellilifeyrir 50 ára
10. þing S.S.t. skorar á stjórn-
völd að breyta lögum um lifeyris-
sjóð sjómanna þannig, að sjó-
menn fái ellilifeyri 50 ára.
34. þing Iðnnemasambands íslands:
Bendir á hættuna af
frumvarpinu um stétta-
félög og vinnudeilur
- Sveinn Ingvarsson var kjörinn formaður
Iðnnemasamband Islands
hélt sitt 34. þing um siðustu
helgi. Þingið fjallaði m.a. um
iðnfræðslu, kjaramál iðnnema,
félagsmál og almenn þjóðmál,
auk þess sem fjallað var um
starfsyfirlýsingu milli ASI og
INSl. Tuttugu manna stjórn er
i sambandinu og er hún þannig
skipuð.
Framkvæmdastjórn:
Sveinn Ingvarsson, Rvik,
formaður
Hallgrimur G. Magnússon,
Rvik, varaformaður
Jóhann Úlfarsson, Rvik, ritari
Hallgrimur Valsson, Rvik, 1.
gjaldkeri
Ólafur Gunnarsson, Rvik, 2.
gjaldkeri
Guðrún Geirsdóttir, Rvik,
meðstjórnandi
Sigþór Hermannsson, Rvik,
meðstjórnandi
Aörir í stjórn:
Hólmfriður S. Björnsdóttir,
Rvik
GunnarS. Guðmundsson, isa-
firði.
Ómar Halldórsson, Rang-
árvallasýslu.
Benedikt Egilsson, Dalasýslu
Gunnólfur Arnason, Keflavik
Hafsteinn Eggertsson, Rvik
Einar Torfason, A-Skafta-
fellssýslu
Kristján S. Kristjánsson, Rvik
Jón Jóhannsson, Akureyri
Einar Sigurðsson, Hveragerði
Skúli Magnússon, Eskifirði
Frimann Sigurnýason, Rvik
Smári Guðnason, Akranesi
Ritstjóri Iðnnemans var
kjörinn Jason Steinþórsson og
fræðslustjóri sambandsins
Vilberg Sigurjónsson.
Blaðinu hafa borizt þrjár af
samþykktum félagsins, en
væntanlegar eru siðar aörar
ályktanir. Þær sem borizt hafa
eru þessar:
Ályktun um huidunefnd
Men nta má la ráðu-
neytisins.
16. des. 1975 skilaði meirihluti
Iðnfræðslulaganefndar nefnd-
aráliti sinu til Mennta-
málaráðuneytisins er bar yfir-
skriftina, ,,Um þróun verk-
menntunar á framhalds-
skólastigi”.
Nú 10 mánuðum siðar hefur
ekkert heyrst um afstöðu ráðu-
neytisins. Þó er vitað um nefnd
innan þess er vinnur að
krufningu nefndarálitsins.
Starf nefndarinnar hefur
farið mjög leynt og hefur hún af
þeim sökum hlotið nafnið
..Hulda”.
34. þing Iðnnemasambands
Islands krefst þess af mennta-
málaráðherra, að hulunni verði
svipt af störfum nefndarinnar
og að hann geri þeim aðilum
ljóst, scm málið varðar. hvert
stefnir i ..störfum nefndar-
innar”.
ÁLYKTUN u m
frumvarp til laga um
stéttarfélög og vinnu-
deilur:
34. þing Iðnnemasam-
bands tslands vill beina
athygli launþega lands vors að
hinni miklu hættu, sem
samtökum vorum stafar af hinu
nýja frumvarpi til laga um
stéttarfélög og vinnudeilur. sem
áætlað er að leggja fyrir
Alþingi. Iðnnemasamband Is-
lands biður launþega lands
vors að taka nú höndum saman
og brjóta á bak aftur þessa
ógnun gegn frelsi og lýðræði.
ÁLYKTUN um bráða-
birgðalög gegn sjó-
mönnum:
34 þing Iðnnemasambands
lslands ályktar að rikisstjórnin
felli niður nú þegar bráða-
birgðalög þau. sem sett voru
gegn sjómönnum 6. sept. siðast
liðinn. sem er svivirðileg árás á
réttindi sjómanna. —hm.