Alþýðublaðið - 28.10.1976, Qupperneq 4
4
Fimmtudagur 28. október 1976
Frá Samein-
uðu þjóðunum
Ört vaxandi
viðskipti
Efnahagsmálanefnd Sam-
einuðu þjóðanna upplýsir, aö
viðskipti milli austur og vest-
ur Evrópuþjóöa hafi tifaldast
á siðustu tiu árum, eða úr 6
millj. dollara i 60 milljarða.
Nú séu um 1000 iðnsamvinnu-
samningar i gildi milli austur
og vestur Evrópu og árlega
séu gerðir60-100 slikir samn-
ingar.
Fiskveiði-
samvinna
Þróunarstofnun S.Þ. beitir
sér nú fyrir samvinnu um nýt-
ingu fiskstofna. Könnun sýnir,
að næstum allir fiskstofnar,
sem nú eru nýttir, eru þegar
ofveiddir, eða verða brátt með
sama áframhaldi. Hvergi hef-
ur komið fram aukning i fisk-
veiðum, en afli úr heimshöf-
unum minnkað um 10% frá
1971-1974.
Til eru þó fiskstofnar, sem
enn eru ekki nýttir, einkum
undan ströndum Patagoniu og
i norð vestur Indlandshafi. 1
Suður-lshafinu eru fisktegund,
nefnd Krill, sem ersvipuð smá
rækju. Talið er að hún fyrir-
finnist í svo miklu magni þar,
að unntværi aö veiða þar um
50 milljónir lesta árlega. Mikil
hreyfing er nú á að auka og
bæta nýtingu fiskaflans og
styrkja fiskveiðar vanþróaðra
þjóða. Fiskeldi er nú ört vax-
andi og mun gefa af sér um 5
millj. lesta árlega. Talið er, að
auðvelt sé að tvöfalda, eða
þrefalda þann afrakstur og
þeir bjartsýnusta tala um ti-
földun!
Skortur á
hreinu vatni
Vatnið er ein mikilvægasta
auðlind mannkynsins, en með
siaukinni iðnvæðingu og
mengun, sem af henni leiðir,
er talið að vatnsforði heimsins
gangi á mörgum svæðum
bráðlega til þurrðar. Borgar-
samfélag nútimans á og sinn
rika þátt i þessari framvindu.
Þess ber að gæta, að vatns-
forða heimsins er ákaflega
misskipt, þar sem sumir hafa
ofgnótt, en aðrir að lenda i
þroti. Ráðstefna er fyrirhuguð
um þessi mál á næsta vetri, og
hafa þeir, sem undirbúa ráð-
stefnuna komizt aö þeirri nið-
urstöðu,aðum 20% borgarbúa
i veröldinni og um 10% sveita-
fólks hafi ekki aðgang að
hreinu vatni. Viða eru þessaf
tölur þó enn óhagstæðari svo
miklu munar.
Eyðimerkur
Talið er að eyðimerkur jarð-
arinnar færi stöðugt út kviarn-
ar og fyrirhuguð er ráðstefna
á næsta ári i Afriku, til að
hamla gegn þeim voða.
Siikir kassar með bjarghringum eru með vissu millibili um allt hafnarsvæðið. En það er ótrúlega algengt
að hringirnir séu teknir úr kössunum, skorið á linuna i þeim og þeim siðan kastað í höfnina.
□ Krafa reykvískra sjómanna til hafnarstjórnar:
REYKJftVÍKURHÖFN
VERÐI L0KAÐ!
Það verður sifellt tiðara að i
blöðum og öðrum fjölmiðlum sé
greint frá innbr. i skip og báta
sem liggja við bryggju. Þessum
innbrotum fylgir oftast skemmd-
arstarfsemi af einhverju tagi en
það sem þó er alvarlegast er það,
að takmark þeirra sem afbrot
þessi fremja eru oftast lyfja-
birgðir skipanna. Þessar birgðir
eru bæði geymdar i sérstökum
hirzlum i herbergjum skipstjóra
eða stýrimanna, en auk þess eru
einnig lyfjabirgðir i gúmmí-
björgunarbátum.
Það ætti ekki að þurfa að fjöl-
yrða um það, hverjar afleiðingar
það getur haft, er slikum birgð-
um er stolið án þess að greinileg
merki sjáist. Starfsvettvangur
sjómannsins er i langflestum til-
vikum langt frá landi og ef til
slysa kemur eru þær lyfjabirgðir
sem um borð eru, eina hjálpar-
tækið. Afleiðingarnar geta þvi
orðið hörmulegar, ef þessar
birgðir eru ekki fyrir hendi þegar
á þarf að halda.
Einnig er það svo, að til að
komast að lyfjum gúmmibjörg-
unarbátanna þarf að taka þá úr
umbúðunum, en um leið og það er
gert eru þeir orðnir ónothæfir.
Það hefur komið i ljós, þegar bát-
ar hafa verið komnir út á sjó, að
farið hefur verið i björgunarbát-
inn og hann eyðilagður. Ef slikt
kemur i ljós i hafsnauð, þarf ekki
að spyrja að afleiðingunum.
Vegna þessara innbrota meöal
annars hafa sjómenn margoft
farið fram á að Reykjavikurhöfn
verði lokað. En það eru ekki að-
eins þessi innbrot. Einnig er það
þyrnir i augum þeirra sem þessi
mál varða, að slysfarir I höfninni
eru nokkuð tiðar. Það kemur oft
fyrir að fólk fellur I höfnina. Oft-
ast er þvi bjargað, en þó ekki allt-
af. Hér er að þvi er virðist oftar
um að ræða fólk sem óviðkom-
andi er öllu starfi við höfnina, fólk
sem ranglar þangað eins og af til-
viljun á kvöldgöngu. Til þess að
koma i veg fyrir slika umferð
vilja fulltrúar sjómanna að höfn-
inni sérstaklega þó1 vesturhöfn-
inni, verði lokað og vörður settur
við hlið þar.
Alþýðublaðið tók nýlega tali
fulltrúa þriggja aðila, sem mál
þetta varðar, Sjómannafélags
Reykjavikur, Hafnarskrifstof-
unnar og Slysavarnarfélags Is-
lands og birtast svör þeirra hér i
opnunni.
—hm.
Þessi simaklefi er við lögreglustöðina i Pósthússtræti. Hann er einn þriggja
á svæðinu frá Sundahöfn að Grandagarði sem fengið hafa að vera i friði
fyrir skemmdarvörgum. Nálægð lögreglunnar á ef til vill sinn þátt i þvi.
(AB-myndir:------hm.)