Alþýðublaðið - 03.11.1976, Side 16
Undirskriftir 12500 manna afhentar á alþingi í gær:
F J ÖLD AUPPSAGNIR
í UNDIRBÚNINGI
Sigurpáll Einarsson, skipstjóri i Grindavik, afhendir Asgeiri
Bjarnasyni, forseta sameinaOs Alþingis, undirskriftarskjölin.
„Rúmlega 12500
manns hafa nú skrífað
nöfn sin á undirskrifta-
lista þar sem þess er
krafizt að stjórnar-
skrárbrotið frá 6.
september verði ógilt,
enda voru bráða-
birgðalögin tilræði við
afkomu sjómannastétt-
arinnar og verkafólks i
landinu almennt. Við
viljum taka það skýrt
fram að baráttunni er
EKKI lokið með af-
hendingu þessara und-
irskriftalista og má
geta þess að nú eru i
undirbúningi fjölda-
uppsagnir viða á báta-
flotanum og sýnir það
kannski betur en nokk-
uð annað hve sjómenn
eru óánægðir með
bráðabirgðalögin og
þau kjör sem þeim eru
skömmtuð af Matthíasi
og hans fylgifiskum.
Viljum við fordæma harka-
lega þá menn sem leggjast svo
lágt að ráðast jafn heiftarlega
gegn umbjóðendum sinum og
Pétur Sigurðsson ritari Sjó-
mannafélags Reykjavikur hefur
gert að undanförnu, sbr. viðtal
við hann i Morgunblaðinu
fimmtudaginn 28. oktober slð
astliðinn.
Að lokum viljum við þakka
þvi fólki sem stutt hefur undir-
skriftasöfnun þessa og þá sér-
staklega þeim sem hafa lagt
ómetanlega vinnu i það að gera
söfnunina að þvi sem hún varð.”
Þannig hljóðaði fréttatilkynn-
ing sem fulltrúar „Frjáls samn-
ingsréttar” sendu frá sér í gær-
dag, um leið og þeir afhentu As-
geiri Bjarnasyni, forseta Sam-
einaðs alþingis þrjá pakka með
samtals 12550 undirskriftum
gegn bráðabirgðalögunum frá 6.
september.
I>að var Sigurpáll Einarsson,
skipstjóri, sem afhenti Asgeiri
undirskriftalistana og kvað As-
geir þá mundu verða lagða fram
i lessal, þar sem allir þingmenn
gætu kynnt sér efni þeirra.
Þessir undirskriftalistár voru
frá um 2000 sjómönnum og um
10.000 manns úr öðrum laun-
þegahópum. Það vakti athygli
við umræður utan dagskrár á
alþingi skömmu siðar, að
sjávarútvegsráðherra kallaði
þetta fólk, 12.500 manns, fylgi-
fiska kommúnista og krata, sem
væru að þyrla upp ryki i full
komnum skripaleik (sjá annars
staðar i blaðinu).
—hm.
Utlit fyrir minni haustslátrun
en ráð hafði verið gert fyrir
Svo virðist sem haustslátrún
verði nokkru minni nú i haust en
gert hafði verið ráð fyrir. Þetta
kom fram er blaðið ræddi við Jón-
mund Ölafsson, hjá framleiðslu-
ráði landbúnaðarins i gær.
Sagði Jónmundur, að sam-
kvæmt beiðnum um haustslátrun
sem safnað var meðal bænda i
ágústmánuði hefði verið sótt um
1.040.000 leyfi og hefði það verið
nokkur aukning frá þvi i fyrra en
þá var slátrað alla 962.000.
Nú virðist samt sem áður allt
benda tii þess, að ekki verði
slátrað jafnmörgu fé og sótt hefði
verið um og efaðist Jónmundur
að talan færi yfir eina milljón.
Er hann var spurður um
hugsanlegar ástæður fyrir þess-
ari fækkun, benti hann á, að um
það leiti sem beiðnum var safnað,
hefði heyskaparútlitið verið
nokkuð dökkt og gæti verið að sið-
an þá hefði eitthvað ræzt úr.
Þá gat Jónmundur þess, að
niðurgreiðslur hefðu staðið i stað
frá þvi i fyrra á meðan að slátur-
kostnaður á hverja kind hefði
hækkað yrði af þeim sökum lik-
lega meira um heimaslátranir.
Þess má geta, að óheimilt er að
selja þær afurðir sem fást við
heimaslátrun búpenings enda eru
þær einungis ætlaðir til neyzlu á
viðkomandi bóndabýli. _GEK
Fimmtíu ár frá fæðingu:
Huppa Birnisdóttir frá Kluftum
1 dag verður stutt athöfn að
Flúðum i Hrunamannahreppi,
þar sem afhjúpaö verður stórt
og mikið málverk eftir Halldór
Pétursson listmálara. Það telst
að visu tæplega tilstórtiðinda að
málverk séu afhjúpuð, en i þetta
skipti er „módel” það er verkið
er málað eftir fremur óvenju-
legt, nefnilega kýr. Kýrin sú er
þó engin venjuleg kýr, heldur
hin þekkta Huppa frá Kluftum. 1
dag er hálfrar aldar afmæli
Huppu og i tilefni þess lét Bún-
aðarfélag Islands mála mynd af
gripnum og afhending hennar
fer fram á afmælisdaginn.
Myndina mun afhjúpa fyrrum
eigandi kýrinnar, Margrét
Andrésdóttir, en hún bjó að
Gróf og siðar að Kluftum. Mar-
grét varð niræð nú i haust.
Mikil nyt og væn
Samkvæmt skýrslum var
heildarmagn mjólkur þeirrar er
Huppa gaf af sér á þeim 15 árum
sem hún mjólkaði, tæp 62.000
kg eða 4150 kg á ári að meðáltáli
Meðalfita mjólkurinnar var
4.12% og fitueiningar að meðal-
tali 17.098 árlega. Til saman-
burðar má geta þess að ársnyt
fullmjólkandi kúa hjá naut-
griparæktarfélögum alls lands-
ins á árunum 1971-75 var að
meðaitali 3805 kg, mjólkurfita
4.12% og fitueiningar 15.677.
Með þessum samanburöi er
hægt að leiða likur að þvi, að
Huppa frá Kluftum hafi verið
ótrúlega afurðahá kýr, enda
tiðkaöist ekki fóðúrbætisgjöf og
fleira þess háttar i hennar tima
likt þvi sem nú er.
Út af Huppu er kominn mikill
ættstofn góðra og farsælla naut-
gripa, sem dreifst hefur um
land allt. Hafa hinir góðu erfða-
eiginleikar kýrinnar þannig
sannað sitt gildi og er talið að
þorri Islenzkra kúa nú eigi ætt
sina að rekja aö einhverju leyti
til Huppu.
Fæddist þá kálfur
eingetinn......
Fyrir nokkrum árum hélt
Helgi Haraldsson á Hrafnkels-
stööum erindi á fundi hjá naut-
griparæktarfélaginu i Hruna-
mannahreppi og fjallaði um
Huppu. Þar kom fram að Helga
og búnaðarskýrslur greinir á i
einu atriði, það er ætterni kýr-
innar. Helgi sagði, að á siðustu
tugum 19. aldar hafi búið i
Núpstúni i Hrunamannahreppi
bóndi sá er Stefán hafi heitað,
sonur hans var Bjarni faðir
Brynjólfs fyrrv. menntamála-
ráðherra. Bar svo við einn dag,
að ein bezta snemmbæran i fjósi
Stefáns tók að ókyrrast og sá
bóndi að hún mundi vilja hafa
náin samskipti við hitt kynið án
tafar. Lagði karl af stað með
kusu i bandi og lá leiðin með-
fram háu íjalli. Þegar þar var
komið ferðum, gerði þreifandi
útsynningsél á bóndann með
kúna, en hann tók það ráð að
forða sér undir háan klett til að
standa af sér élið. Þegar veðr-
inu slotaði þreif bóndi í kýr-
bandið og ætlaði að skunda af
stað, en þá brá svo við að kýrin
hreyfði sig hvergi, heldur stóð
sem jarðföst og þótti bónda kyn-
lega við bregða. En svo fór að
kýrin linnti þrjózkunni og bæöi
komust á fund tuddans En þá er
tuddinn ætlaði að sinna göfug'u
kalli náttúru sinnar, ærðist kýr-
in og komu menn henni hvergi
að tudda.
Bóndi fór heim við svo búið og
liða vikur án þess að kýrin
bregði rólyndi sinu. Liðu svo 9
mánuðir frá ónýtisförinni á fund
tuddans og fæddi þá kýrin tvo
kálfa, naut og kvigu. Venjulegt
er i slikum tilfellum sem þess-
um, að kvigan sé ófrjó, og kall-
ast þá viðrini. Þótti það ógæfu-
merki að lóga viðrinum fyrr en
eftir 2-3 ár, en þá voru þau orðin
svo feit að þau myndu óæt talin
á okkar horketstimum. En þá
skeður undrið. Viðriniskvigan
fór að halda uppigangmálum og
var leidd undir sitt gagnstæða
kyn. Kvigan lét sér þetta vel
lika og.eignaðist kvigu, en und-
an henni segir Helgi Haraldsson
að sé komið frægasta kúakyn á
Islandi, nefnilega Kluftakynið.
Kviga þessi hét Murta og var
langamma Huppu á Kluftum.
—ARH
MIÐVIKUDAGUR
3. NÓVEMBER 1976
alþýðu
blaðið
Séð: 1 blaðinu Kópavogur,
aö bæjarstjórn Kópavogs
hafi nýlega hækkað laun
þeirra bæjarstarfsmanna,
sem hæst höfðu launin, en
lækkað laun annarra, svo
sem matráðskvenna. Bæj-
arstjórinn fái nú mánaðar-
lega, ofan á sin venjulegu
laun, 80 þúsund krónur.
Matráðskonur fái hins veg-
ar i fastakaup innan við 70
þúsund krónur á mánuði og
enga yfirvinnu.
o
Lesið: A forsiðu Dagblaðs-
ins i gær: „Skyndikönnun
tékka: 43 að upphæð 12,8
millj. án innistæðu: Ein-
hverjir stórir á ferðinni
með gúmmitékka — en
hinn almenni tékkheftis-
hafi varar sig.”
o
Frétt: Að i fyrrnefndri
skyndikönnun hafi komið
fram ávisanir að fjárhæð
1,2 milljónir króna, sem
Dagblaðið h.f. hafði gefið
út.
o
Lesið:I Búnaðarritinu eftir
Óla Val Hansson: „Likur
eru fyrir að kálmaðkur hafi
viða leikið gulrófur grátt,
þvi að óviðunandi ástand
hefur skapazt i eiturefna-
málum vegna einstreng-
ingslegra sjónarmiða og
seinagangs um skrásetn-
ingu og viðurkenningu a
varnarlyfjum. Af þessum
sökum eru ennþá aðeins ör-
fá plöntulyf af öllum þeim
fjölda, sem áður voru á
markaði, sem sloppið hafa
i gegnum nálaraugað og
hlotið viðurkenningu til
sölu.
o
Frétt: Að Kröflunefnd hafi
boðið blaða- og frétta-
mönnum til kynnisferðar á
virk junars væðið við
Kröflu. Verður þeim þá
gerð grein fyrir fram-
kvæmdum og væntanlega
kostnaði. Vonandi byrjar
ekki að gjósa áður en af
þessari ferð verður.
o
Lesið: 1 blaðinu Kópavog-
ur: „Hún er aldeilis mis-
kunnarlaus tölvan, sem um
siðustu áramót var tekin i
notkun á bæjarskrifstofun-
um. Samkvæmt upplýsing-
um Jóns Guðlaugs
Magnússonar, bæjarritara,
hafði hún um mánaðamótin
sept./okt. reiknað út vexti
af ógreiddu útsvari, að-
stööugjöldum og fasteigna-
gjöldum, hvorki meira né
minna en 31 milljón
króna. Vextir af opinberum
gjöldum i vanskilum hafa
ekki verið reiknaðir áður
hjá bæjarskrifstofunum,
þannig að þarna er svo gott
sem „fundið fé” til handa
stjórnun og rekstri bæjar-
ins... að visu tekið úr vasa
bæjarbúa.”